Hlaðvarpsþáttur KA er stútfullur að þessu sinni en þeir Siguróli, Ágúst og Hjalti fara yfir fótboltann sem og handboltann sem er að fara að hefjast.
Andri Snær Stefánsson fyrirliði KA í handbolta ræðir komandi vetur, Donni þjálfari Þórs/KA ræðir titilbaráttuna sem og Meistaradeildina og að lokum mætir Steinþór Freyr Þorsteinsson og ræðir sumarið hjá KA sem og sinn feril.