Listen

Description

Þetta

Þetta ákveðna augnaráð
sem starir djúpt inn í sál mína
brennir upp alla rökhugsun.

Þetta litla atlot
þegar þú strýkur mér um bakið
magnar upp tilfinningar mínar.

Þessi æpandi þögn
meðan ég bíð eftir að heyra frá þér
kyndir undir þráhyggju hugsunum.

Þessi fáeinu orð
þegar raunveruleikinn verður mér ljós
er það eina sem situr eftir.