Listen

Description

Ég banka

Ég banka og banka.
Af og til svarar þú
en stundum þykistu ekki vera heima.

Ég sé samt sál þína spóka sig
hinum megin við gægjugatið.

Þú lofar mér lyklinum þínum
en afhendir mér hann aldrei.

Ég íhuga að klifra upp á svalirnar
til þess að komast inn til þín.

Ég banka og banka og banka.