Listen

Description

Kransæðarslaufa

Himnaríki og helvíti
hnýta slaufu
úr kransæðum.

Sólin rís í austri
yfir grunlausa pabba
á ferð um samfélagið
á gulum skódum.

Í síðasta skipti
er félagsleg vitund
mín skjaldborg.

Ég er með sjálfsofnæmi
og sólin skín,
sólin sem brennir nóttina.

Klakabrynjan bráðnar
af hjartanu
og það verður eins ört
og lyfjalaust ofvirkt barn.

Ég hef alla tíð
verið á jaðri geðveikinnar.