Listen

Description

Nágranninn

Ég vil kvarta undan hávaða
miklum hávaða

hann hefur oft verið
þessi hávaði
amað mig
bagalega

(krishhhsishh)

ég vil ekki þurfa að heyra þennan hávaða
hann lætur mér líða illa
hann truflar mig

já það er hávaði hérna
getiði gert eitthvað í því?
plís ég vil ekki þennan hávaða

ég hef oft heyrt þennan hávaða
en nú er komið nóg!

partý?
nei þetta er ekki partý
þetta er bara hávaði
læti
í fólki

(AAAAAAAAÆÆÆRÆÆÆAÆAÆAAG)

þið verðið að gera eitthvað í þessu
í þessum hávaða
ég vil ekki hlusta
á þetta
margir?
nei þetta eru bara tvær manneskjur
með þennan hávaða

nei, engin tónlist
bara hávaði

mannalæti
hávaðalæti
hávaðarifrildi
hávaðaöskur
hávaðabrot og braml

ekki samt segja að ég
hafi hringt
út af þessum hávaða

(bank bonk krass)

vil ekki bregðast
of hart við
vil engin fjólublá augu
á mér

vil samt hjálpa
vil stöðva þetta
vil losna

undan þessum hávaða

það er svo mikill hávaði
þið verðið að stöðva
þennan hávaða

getiði hjálpað?