Listen

Description

Í fréttum er þetta helst
Lafuey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024.
Gagnagrunnur heimilisfanga og annarra persónuupplýsinga fjölda ICE-liða er hýstur á íslenskum netþjóni. Upplýsingunum hefur verið safnað og er haldið úti á síðunni sem lýst er af aðstandenda sem „átaki í ábyrgð“.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33.
Náttúruhamfaratrygging gerir ráð fyrir að heildarbótagreiðsla á atburðinum í Grindavík, eins og hann hefur orðið, sé kannski um eða yfir 12 milljarðar.
Verðbólgan mældist 5,2% í nýliðnum janúarmánuði og jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða, svo ekki er von um frekari vaxtalækkanir í bili og ekki ómögulegt að Seðlabankinn hækki vexti á miðvikudag.
Um 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þeim fjölgar ár frá ári. Börn niður í níu ára fá þyngdarstjórnunarlyf.
Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.