Í fréttum er þetta helst
Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar.
Níu menn hafa krafið forsætisráðherra um rannsókn og bætur vegna mikils ofbeldis sem þeir segjast hafa upplifað á sveitabæ sem börn allt til ársins 2002. Barnaverndarnefndir sendu fjölda barna á bæinn og eftirlit virðist hafa verið í molum.
Framleiðslueldhúsi fyrir aldraða á Vitatorgi var lokað í gær vegna listeríu. Framkvæmdir við nýtt eldhús gætu tekið meira en ár. Ríflega 900 máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á hverjum degi.
Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin að mati hagfræðings sem segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið og kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði.
Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi.
KR hafði betur og mætir Stjörnunni í úrslitaleik á laugardaginn.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.