Í fréttum er þetta helst
Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti.
Leikskólastjórnendur í Reykjavík krefjast aðgerða: „Við getum ekki haldið svona áfram“.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent.
Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag til siðanefndar flokksins að hópurinn Konur í Framsókn skuli auglýsa fund með Lilju Alfreðsdóttur nokkrum dögum áður en flokksþing Framsóknar hefst.
Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna.
Samtals 84 var sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. Öllum verður boðin vinna aftur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.
Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.