Í fréttum er þetta helst
Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram.
Yfirfull bráðamóttaka, aldrað fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og skurðaðgerðir sem þarf að fresta eru þau verkefni sem stjórnendur Landspítalans þurfa að glíma við. Þeir lýsa alvarlegri stöðu spítalans í þremur minnisblöðum til heilbrigðisráðherra
Um tveggja ára barn var skilið eftir eitt í lok dags á leikskóla í Breiðholti á mánudag. Þegar foreldri barnsins kom að sækja barnið var leikskólinn lokaður og barnið eitt úti í garði. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur harmar atvikið og segir að reynt verði að tryggja að slíkt gerist ekki aftur.
Ríkissaksóknari hefur gert lögreglu að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum vegna meintra kynferðisbrota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara, sem á eftir að taka afstöðu til tveggja þeirra.
Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga.
Icelandair tapaði 1,2 milljörðum króna árið 2025 eftir skatta. Um er að ræða samdrátt frá fyrra ári þegar tap nam 2,8 milljörðum króna. Stjórnendur segja tekjur félagsins aldrei hafa verið hærri og þær aukist um 11 prósent milli ára í 223,6 milljarða.
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.