Listen

Description

Í fréttum er þetta helst
Lögmaður manna sem dvöldu í Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn segist ekki hafa átt von á svo skjótum viðbrögðum stjórnvalda. Tugir manna og kvenna hafa leitað til hans eftir að Kveikur greindi frá aðstæðum drengja í Bakkakoti sem segjast hafa verið beittir ofbeldi þar.
Hugmyndir um að tvímenna í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila til að bregðast við skorti á legurýmum á Landspítala eru með ólíkindum, að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélagsins. Það er lagt til í minnisblaði Landspítala til heilbrigðisráðuneytisins frá því í upphafi árs.
Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá.
Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á framboðslista Framsóknar í kvöld. Kosið var um fjögur efstu sætin á fundi Framsóknar í dag.
„Ef við fáum ekki peninga til að fara að ráða núna, við getum ekki auglýst bara í maí af því að við þurfum að þjálfa fólk á nýja kerfið, þá mun þetta landamæraeftirlit fara í bál og brand,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið.
Sautján ára gamli pilturinn sem lést í bílslysi á Miklubraut hét Patrekur Freyr Sveinsson. Hann var liðsmaður í U18 liði Skautafélags Reykjavíkur en félagið birtir í dag samúðarkveðjur til fjölskyldu Patreks.
Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru síðustu daga. Stór bakki hrundi úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.