Listen

Description

Í fréttum er þetta helst
Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu  viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi.

Á fjórða hundrað jarðskálftar umhverfis Eldey frá hádegi í gær. Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar.

Afstaða-félag fanga segir að fjórþættar aðgerðir sem stjórnvöld hafi tilkynnt vegna Bakkakotsmálsins nái ekki til allra einstaklinga sem málið varði. Einn sem hafi orðið fyrir ofbeldi á vistheimilinu í æsku sitji nú í fangelsi á Spáni þar sem hann hafi hvorki fengið endurhæfingu né áfallastuðningi. Félagið segir engan mega vera skilinn eftir.

Sveitarstjórnarfólk víða um land óttast frekari samþjöppun valds á suðvesturhorninu, verði af breytingum á kosningalögum sem jafni vægi atkvæða á landsvísu. Á Íslandi er misvægi atkvæða milli landshluta með því allra mesta í Evrópu.

Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár.

Nýleg dæmi eru um að stjórnendur við Háskólann á Bifröst hafi hringt í nemendur og beitt þá þrýstingi segir Sigrún Lilja Einarsdóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og stjórnarmeðlimur í Félagi akademískra starfsmanna á Bifröst.

Mona Juul hefur sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Utanríkisráðherrann Espen Barth Eide tilkynnti þetta í gær.

Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.