Listen

Description

Í fréttum er þetta helst

Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar.

Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK sem fram fór í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Annar maður sat í gæsluvarðhaldi í um tvo sólarhringa grunaður um verknaðinn en var síðan sleppt úr haldi lögreglu.

Allt virðist dottið í dúnalogn eftir jarðskjálftahrinu síðustu sólarhringa þar sem hundruð jarðskjálfta mældust við Eldey á Reykjaneshrygg. Flestir skjálftarnir voru smáir en þó nokkrir mældust yfir þremur að stærð. Sá stærsti, af stærðinni 3,4, skók hafsbotninn á sunnudaginn.

Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg.

Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda.

Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Hann staðfestir þetta í færslu á samfélagsmiðli.

Eftir langa fjarveru frá íslenska landsliðinu er Gylfi Þór Sigurðsson í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik ytra í lok mánaðarins. Hópurinn er nær eingöngu skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni.

Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.