Í fréttum er þetta helst
Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11 á Íslandi og eru íslenskir ríkisborgarar þar á meðal. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna.
Sjö manns voru drepnir og 27 særðust í skotárás í gagnfræðaskóla í Tumler Ridge í Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Lögreglunni barst tilkynning um vopnaðan árásarmann í Tubler Ridge síðdegis að staðartíma. Þegar lögreglan kom á vettvang voru sex einstaklingar látnir og sjöunda fórnarlambið lést á leið á spítala. Tveir hinna særðu eru með alvarlega áverka en 25 eru með minni háttar áverka. Árásarmaðurinn svifti sig lífi en nafn og aldur árásarmannsins hefur ekki verið upplýst.
Staðan á bráðamóttökunni var slæm fyrir en nú er hún afleit, segir forstjóri spítalans. Þar bíður fólk í rúmlega tvo sólarhringa eftir legurými. Í ofanálag er krafa um hagræðingu, en tækifærin til þess að hagræða eru takmörkuð að mati forstjórans. Runólfur segir að færa þurfi allt að 50 manns af spítalanum á hjúkrunarheimili til að þau endurheimti legurými.
Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um opnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár.
Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. Patrekur Freyr spilaði í undir 18 ára-liði SR en spilaði áður með Fjölni. Allur ágóði af leiknum í kvöld rennur til fjölskyldu Patreks.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir skjálftahrinu við Eldey til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa. Gjósi þar geti það valdið truflunum á flugi. Skjálftahrinan við Eldey er til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa.
Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Meirihluti viðmælenda var hlynntur símabanni í grunnskólum landsins en deilt var um hvern árangur og markmið slíks banns myndu hafa í för með sér.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.