Í fréttum er þetta helst
Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér.
Norski skíðagöngukappinn Johannes Høsflot Klæbo varð í dag sigursælastur í sögu Vetrarólympíuleikanna. Hann vann sín níundu gullverðlaun er Noregur vann í boðgöngu karla. Yfirburðir hins 29 ára Klæbo hafa verið miklir frá hans fimmtu leikum árið 2018.
Sóley Eiríksdóttir ítrekar ósk sína og fleiri Flateyringa um að stjórnvöld láti rannsaka snjóflóðið á Flateyri 1995 með svipuðum hætti og gert var í rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Sóley segir að með ákvörðun sinni um að láta rannsaka Súðavíkursnjóflóðið hafi verið viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins.
Hæð yfir Grænlandi og lægðir vestur af Noregi halda áfram að draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga. Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag þar sem kaldast verður inn til landsins.
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði kom hópi fólks til bjargar á Fjarðarheiði í nótt þar sem það hafði lent í vanda sökum ófærðar. Fimm voru í bílnum og voru allir fluttir á Seyðisfjörð þar sem fólkinu var komið í gistingu. Bíllinn var skilinn eftir.
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að til að bæta ástandið á Bráðamóttökunni þurfi að huga að rót vandans. Það sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma. Í fimm ára áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019-2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu myndi fjölga um rúmlega 540 en raunin varð sú að þeim fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili.
Júlía Kristín Jóhannesdóttir sló í gær 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnarsdóttur í 60 metra grindahlaupi. Júlía hljóp á 8,25 sekúndum en Guðrún hljóp á 8,31 sekúndu árið 1996. Hún segist hafa haft eitt í huga fyrir hlaupið; að bæta metið.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.