Í fréttum er þetta helst
Ríkisstjórnin hyggist tengja almannatryggingar við launavísitölu. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt lagabreytinguna. Áhyggjurnar snúast meðal annars um það hvort verið sé að búa til tvöfaldan lás þar sem bætur, eða lífeyrir, geti vaxið og vaxið óháð því hvernig árar og jafnvel farið fram úr launum í einhverjum tilfellum – sem dragi úr hvata fólks til að fara aftur á vinnumarkað.
Íslenski alpagreinaskíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson stóð sig frábærlega í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna þegar hann náði 25. sætinu. Þetta er besti árangur Íslendings á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina til þessa og sá besti í tvo áratugi í svigi.
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Með lagabreytingunum verður stjórnvöldum heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi ríkisins.
Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknum fimm ára skipunartímabili hennar.
Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu mælist hár. Á hádegi var gildið fyrir gróft svifryk 178,9 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg, til samanburðar eru sólarhringsheilsuverndarmörkin 50 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan 14 mældist gróft svifryk 216,0 míkrógrömm á rúmmetra.
Anahita Babaei og Elissa May Philipps hafa verið sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu.
Aldraðir og aðstandendur þeirra segja sorglegt að fólk sé geymt mánuðum saman á Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Þau furða sig á að ekki sé búið að bregðast við ástandinu fyrir löngu síðan. Stjórnandi á stofnun fyrir aldraða segir fólk þar óttast að leggjast inn á spítala vegna hættu á að festast þar inni.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.