Listen

Description

Í fréttum er þetta helst
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að verða næsti formaður Framsóknarflokksins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Ísland standi áfram með Dönum og Grænlendingum í deilu þeirra við Bandaríkin. Mörgum létti þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagðist í gær ekki ætla að beita hervaldi gegn Grænlandi og afboðaði tolla á Evrópuríki vegna stuðnings þeirra við Grænlendinga. Hann og Mark Rutte framkvæmdastjóri NATO komust að samkomulagi um Grænland í gær sem fól ekki í sér eignarhald eða yfirráð yfir landinu.
Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið.
Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum.
Óbirt skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða lýsir veikri fjárhagsstöðu félagsins sem hafi verið rekið með ósjálfbærum hætti undanfarin ár.
Öllum starfsmönnum Vélfags hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sem segir að öllum hafi verið sleppt í gærkvöldi að lokinni skýrslutöku.
Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár.

Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.