Listen

Description

Í fréttum er þetta helst
Ísland er komið áfram í undanúrslitin á EM í handbolta eftir öruggan 39-31 sigur gegn Slóveníu í síðasta leik milliriðilsins.

Fjörutíu og fimm manns var sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag.

Atvinnuvegaráðherra segir bandarískt stórfyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska lagasetningu í eldismálum.

Þrír Íslendingar þjálfa lið í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta í ár.

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir fólk sem ekki virðir íslensk gildi ekkert hafa hingað að gera.

Ísland mun mæta Danmörku í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta klukkan 19:30 á föstudagskvöld.

Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.