Listen

Description

Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um heimildir vítt og breytt. Allt starf sagnfræðinga byggist á notkun heimilda og eru þær gluggi okkar inn í fortíðina.  Þegar fram líða stundir breytist verk sjálfra sagnfræðinganna í frumheimildir um þeirra eigin tíma, og þannig heldur hringrás heimildanna áfram. 

Rætt er um heimildagildi, sanngildi heimilda og aðgengi að heimildum, allt frá handritasöfnun á 18. öld, til prentútgáfu á 19. og 20. öld og stafrænnar útgáfu heimilda á 21. öld. Hvaða álitamál fylgja þessari þróun og hvernig stöndum við frammi fyrir heimildum í dag á tímum hinnar stafrænu vendingar? 

Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.