Listen

Description

Gestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR.
Í þættinum ræðir Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til kennsluréttinda (MEd) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, við Kjartan um  valfag í unglingadeild sem hann kom af stað fyrir þó nokkrum árum ásamt kollega sínum og kallaðist Á toppinn. Verkefnið naut mikillar velgengni innan skólans og hlaut m.a. viðurkenningu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

///

The guest of this episode is Kjartan Stefánsson, a highly experienced primary school teacher, football coach, and more. Kjartan has taught school sports at Árbæjarskóli, with an excellent reputation, and is currently pursuing a Master’s degree in the Department of Sport Science at Reykjavík University.

In the programme, Sveinn Þorgeirsson, Programme Director of the Master of Education (MEd) leading to teaching certification at the Department of Sport Science at Reykjavík University, speaks with Kjartan about an elective course for lower secondary students that Kjartan initiated several years ago together with a colleague, entitled Á toppinn (“To the Top”). The project enjoyed considerable success within the school and received recognition from the City of Reykjavík's Department of Education and Youth.

UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.