Eftir sumarfrí Uppsveitakastsins lá leiðin í Eystra-Geldingaholt þar sem sr. Axel Á. Njarðvík tók á móti mér og bauð mér til stofu í einu af elstu húsum sveitarinnar. Við tók skemmtilegt ferðalag um sögu hússins og um leið sögu sveitarinnar. Axel hafði frá mörgu að segja, uppvöxtur í Reykjavík, vinnu, nám og svo flutningurinn í sveitina þar sem við tóku ný verkefni. Axel er umhugað um náttúruna og sveitina og tíminn flaug þegar hann sagði frá.