Á nýársdag gáfu Árný Fjóla og Daði Freyr sér tíma til að kíkja við og spjalla við okkur í Tveir á tali. Við ræddum um tónlistina og myndlistina og bara flest milli himins og jarðar. Eurovision bar á góma ásamt leiklist í FSU og þar sem Árni Þór var einn af stjórnendum var auðvitað rætt um körfubolta. Það var virkilega gaman að fá þessa ungu listamenn í heimsókn og heyra aðeins af þeirra lífi.