Listen

Description

Í þessum þætti er tekið hús á Stefáni Þorleifssyni, tónlistarmanni og kennara (og margt fleira). Hann tók á móti okkur í Tónsmiðju Suðurlands og við ræddum lífshlaupið, tónlistina, kennsluna og margt fleira. Stefán er lífsglaður og hláturmildur með skoðanir á hlutunum og við hefðum getað talað mikið lengur um tónlist og kennslu. 

Því miður voru einhverjir tæknilegir örðugleikar á upptöku spyrils þannig að í síðari hluta þáttarins voru spurningar stjórnanda teknar upp aftur og skeytt í á sína staði. Ég vona að þetta komi ekki að sök en það er búið að ganga í málið og vonandi verða ný tæki komin fyrir næsta þátt.