ATH! Lýsingar í þessum þætti eru kannski ekki fyrir þá yngstu sem hlusta. Foreldrar, vinsamlegast "forhlustið".
Rimlarnir fá í hendurnar næsta verkefni, sem leiðir þá í gegnum þriðja lag Helvítis, Minauria sem stýrt er af erkidjöflinum Mammon, og inn í Keðjuborgina. Þeim er falið að bjarga þar manni, og brjótast aftur inn í híbýli einhvers...
Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara á áttunda stigi
Ingolfur leikur Joy Malleus, bard og ljóðskáld á áttunda stigi.
Kristján leikur Emir, artificer eða þúsundþjalasmið á áttunda stigi.
Jói er leikjameistarinn.