Rimlarnir eru staddir á Phlegethos, fjórða lagi helvítis. Verkefni þeirra er að stela reiðtygjum af Náttmeri, sem er logandi helvítishestur, í eigu Narzugon sem er djöfull og musterisriddari ills. Þeir byrja vel, en eins og þeim einum er lagið fer ýmislegt úrskeðis...
ATH foreldrar, í hita leiksins þá sleppur kannski f-orðið út fyrir varir leikmanna stöku sinni...
Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara eða paladin, á níunda stigi.
Kristján leikur Emir, völund eða artificer, á níunda stigi.
Ingolfur leikur Joy, ljóskáld eða bard, á níunda stigi.
Jói er spunameistarinn.