Hvert var Katrín að stefna áður en CrossFit varð að hennar atvinnu? Hvernig aftraði það henni að sjá strax góðan árangur í sportinu og hverju þurfti að breyta þegar henni var ljóst, árið 2014, að hún hafi ekki komist á Heimsleikana í fyrsta skipti síðan hún lagði CrossFit fyrir sig.
Ferlið sem Katrín fór í gegnum lýsti sér ekki einungis í fleiri og lengri æfingum og bættri líkamlegri heilsu, Katrín og þjálfarinn hennar eru bæði sammála um að ástæðan fyrir því að hún endaði tvö ár í röð efst á palli með titilinn Fittest Woman on Earth er einfaldlega hausinn á henni.