Felix sendir þáttinn frá Bræðslunni á Borgarfirði eystri og viðmælandi dagsins er enginn annar en Mugison sem segir af fimm stöðum sem hafa haft áhrif á líf hans. Þar kennir ýmissa grasa og við heyrum af bæjarrónanum Cesariu Evora á Grænhöfðaeyjum, listamannaskólanum á miðvikudagskvöldum í Hrísey og leitinni að draumagötunni í Mosó á google.
Tónlistin í þættinum tengist nokkrum hátíðum helgarinnar, Bræðslunni, Vori í Vaglaskógi og Eldi í Húnaþingi.