Listen

Description

Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson

Gestur: Guðjón Davíð Karlsson

Gestur Grínlands í þetta skiptið er prestssonurinn og sprellipésinn Gói.
Það eru ekki margir sem vita það (þar á meðal þáttarstjórnandi) að Gói heitir ekki Gói.
Hann heitir Guðjón!¨Ekki nóg með það, hann heitir Guðjón Davíð Karlsson!
Hér fáum við að kynnast drengnum á leigubílahjólinu með Taxa merkinu, drenginn sem lék sitt fyrsta frumsamda verk á erlendri grundu, manninn sem elskar leiklist af ástríðu.
Ástríðufullur Gói í Grínlandi er góður fyrir sál og líkama.