Listen

Description

,,Viðleitni heimspekinga til að lýsa heiminum í formi skilgreininga og hugtaka hefur gert það að verkum að sú reynsla okkar sem tungumálið nær ekki yfir hefur mögulega ekki fengið þá athygli sem skyldi í heimspekileri umfjöllun.'' Nanna Hlín Halldórsdóttir er gestur þáttarins í dag. Við veltum fyrir okkur tjáningu án orða innan heims heimspekinnar en þar kemur kenningarammi fyrirbærifaræðinnar helst fyrir, og þá aðallega franski 20. aldar heimspekingurinn Maurice Merleau-Ponty. En að mati Merleau-Ponty er líkaminn ekki aðskilinn vitundinni. ,,Vitundin er líkamleg. Ég er líkami minn, og það er fyrir tilvist líkamans sem ég skynja hlutina''.

Viðmælandi er Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktor í heimspeki.

Skyndibitinn er pizza.