podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Þorsteinn V. Einarsson
Shows
Karlmennskan
S2:Þ2 Klám ruslar í kynheilbrigði
Klám er oft fyrsta vísbending barna um kynlíf og jafnvel aðgengilegasta kynfræðslan sem þau fá. En klám er ekki kynfræðsla þótt það hafi áhrif á kynhegðun og hugmyndir barna og fullorðinna um kynlíf – með miður góðum afleiðingum. Kynferðisofbeldi, klámvæðingu hversdagsleikans, hlutgervingu kvenna og óraunhæfum útlitskröfum. Í þessum þætti skoðum við áhrif kláms á einstaklinga í gegnum reynslu tveggja stráka á þrítugsaldri sem hættu að horfa á klám, Eddu Lovísu sem hætti að framleiða klám og Kolbrúnu Hrund kynjafræðing sem hatar klám. Kolbrún Hrund h...
2024-05-14
38 min
Karlmennskan
S2:Þ1 „Bókin seldist vel og konur voru þakklátar og líka fullt af körlum“ - Hulda Tölgyes og Haukur Bragason
Þriðja vaktin – Jafnréttishandbók heimilisins kom út í lok nóvember í fyrra. Bókina skrifaði ég ásamt Huldu Tölgyes sálfræðingi og í nánu og góðu samstarfi við ritstjórann okkar, Hauk Bragason. Haukur hélt að hann þyrfti mest að passa að tóna okkur niður, passa að við værum ekki of róttæk, reið og stuðandi, en var í raun farinn að þurfa að tóna okkur upp. Í þessum þætti gefum við innsýn í ferlið á skrifunum, segjum frá því hvernig bókin þróaðist, segjum frá upplifun okkar af ofsafenginni en innihaldslausri gagnrýni og...
2024-04-07
1h 05
Karlmennskan
127. „Talaru íslensku?“ - Sara Cervantes
Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum. Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég varð að leyfa ykkur að heyra. Við spjöllum um forréttindi, jaðarsetningu, inngildingu, útilokun, hver ber ábyrgð á inngildingu á vinnustöðum og almennt í samfélaginu og „two minute investment“-leiðina sem Sara telur mun gagnlegri en að spyrja „talaru íslensku...
2023-10-28
41 min
Karlmennskan
126. „Held ég hafi akkúrat nægar áhyggjur af drengjum í skólakerfinu“ – Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði. Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kennslukörlum og hvernig þeim tekst að komast inn í kennarastarfið, ræðum um umhyggju sem Ingólfur horfir á sem faglegt gildi sem sé algjörlega óháð kyni. Við færum okkur í seinni hluta viðta...
2023-09-21
1h 00
FJÓRÐA VAKTIN
16. Áttavillt í hinsegin hatri
Í þættinum ætlum við að fjalla um föstudagshugleiðingu sem ég skrifaði um þær árásir sem hinsegin fólk hefur mátt sæta að undanförnu - og hvernig við sem ekki tilheyrum hinseginsamfélaginu getum mögulega lagt okkar af mörkum og staðsett okkur með gagnrýnum hætti í upplýsingaóreiðu. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. SIlla - I Want All
2023-09-18
24 min
Karlmennskan
125. „Stjörnur hrapa en kúkurinn flýtur“ - Dóri DNA (Halldór Laxness Halldórsson)
Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónulega sjálfsefann og veiku sjálfsmyndina sem dylst undir sjálfsörugga grínaranum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs...
2023-08-31
48 min
FJÓRÐA VAKTIN
15. Hinn hæfilegi leikskóli
Í þættinum fjöllum við um tvær tilraunir sveitarfélaga til að draga úr leikskólaþjónustu undir þeim formerkjum að það sé „börnunum fyrir bestu“. Við færum rök fyrir því að þessar aðgerðir séu hvorki í þágu barna, foreldra né jafnréttis í samfélaginu. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-08-25
19 min
FJÓRÐA VAKTIN
14. Hláturtjákn sem valdatól
Grín getur verið valdeflandi til að þola við í fáránlegum aðstæðum en grín getur líka verið öflugt valdatæki. Karlrembur hafa áttað sig á hversu öflugt tæki hæðni getur verið og vinna markvisst með það til að grafa undan og þagga niður í þolendum og baráttufólki. Við kryfjum og ræðum hæðni með sérstaka áherslu á hláturtjákn á samfélagsmiðlum. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson og Sóley Tómasdóttir Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-08-24
19 min
FJÓRÐA VAKTIN
13. „Heimgreiðslur eru fátæktargildra“
„Heimgreiðslur hljóma kannski ágætlega ef maður spáir ekkert í það. En ef við setjum þetta í samhengi við stöðu fólks. Þú getur rétt ímyndað þér hversu kynjaðar ákvarðanir eiga sér stað inni á heimilunum [...] heimgreiðslur ýta konum inn á heimilin og eru fátæktargildra fyrir lágstéttarkonur.“ Við fjöllum um kynjuð fjármál, innblásin af kynningu félagsins Femínísk fjármál á Kynjaþingi sem haldið var 13. maí síðastliðinn. Förum yfir það hvernig „hlutlausar“ ákvarðanir um fjárútlát, einkum hins opinbera, hafa neikvæð áhrif á jafnrétti. ...
2023-06-30
19 min
Karlmennskan
124 „Eins og það sé körlum ekki eðlislægt að sjá skít“ Ragnheiður Davíðsdóttir
„Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst og erlendar rannsóknir hafa dregið ítrekað fram. Verkaskipting hugrænnar vinnu er bæði misskipt og kynjuð. Mæður í gagnkynhneigðum samböndum báru meiri hugræna byrði en...
2023-06-19
1h 07
FJÓRÐA VAKTIN
12. Feðraveldi
Í þessum þætti útskýrum við eitt grundvallarhugtaka kynjafræðinnar, kynjakerfið eða feðraveldi, sem litar líf okkar allra og konur og kvár finna fyrir í daglegum veruleika á meðan karlar geta komist upp með að hunsa tilvist þess. Umfjöllunin byggir á grein Þorgerðar Einarsdóttur um kenningar Sylviu Walby. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist. Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-06-11
29 min
Karlmennskan
123. Þriðja vaktin - Q&A með Huldu Tölgyes og Þorsteini V.
Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir. Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýrum ýmsa þætti sem snúa að þriðju vaktina, ábyrgðinni, lausnir og fleira. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto...
2023-06-10
1h 00
Karlmennskan
122. „Ég er búin að taka valdið“ - Dilja Pétursdóttir
Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af youtube frá Ísland got talent og undanúrslitakvöldi Eurovision. karlmennskan.is/
2023-06-09
40 min
FJÓRÐA VAKTIN
11. Píkur, MA, Freyja og frekir kallar
Við lítum yfir fréttir undanfarinna vikna og stöldrum við fjögur mál: píkucomment þjálfara karlaliðs Víkings í fótbolta, enn eitt skiptið sem Freyja Haraldsdóttir fær okkur til að hugsa, stöðu brotaþola, freka hvalveiðikallinn og hvað það er í raun margt líkt með kynbundnu ofbeldi og hvalveiðum. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr Silla
2023-05-19
23 min
Karlmennskan
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þetta. Við kryfjum stafræna heima með kynjagleraugunum í þessum þætti og snertum á heimskum lykilorðum, stóra gagnalekanum, blindu trausti okkar á tæknirisum s...
2023-05-10
1h 03
FJÓRÐA VAKTIN
10 Virkar vinnan okkar?
Við fjöllum um vinnuna okkar í þessum þætti þ.e. ráðgjafa- og fyrirlestrahaldið, jafnréttisiðnaðinn, sem við höfum stundað undanfarin ár á hundruðum fjölbreyttra vinnustaða. Gefum innsýn í reynslu okkar, áhrifunum sem við teljum okkur hafa, hvenær við sjáum komu okkar einungis til skrauts og hvenær við greinum raunveruleg merki um vilja til breytinga. Gefum líka smá innsýn í mistök, vonbrigði og hindranir sem við höfum mætt. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-05-03
34 min
Karlmennskan
120. „Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson
„Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fremst vegna þess að honum líður vel þannig. Honum er nákvæmlega sama hvað fólki finnst um hann og segist almennt fá stuðning fyrir a...
2023-04-27
36 min
FJÓRÐA VAKTIN
9 Edda Falak og Gylfi Sig
Í þessum þætti brjótum við aðeins út af vananum. Við ræðum um tvær nafngreindar manneskjur og berum mál þeirra saman. Samanburðurinn leiðir í ljós rótgróna karllægni, hannúð og gerendameðvirkni. Við veltum fyrir okkur hvort við hötum femínískar konur virkilega jafn mikið og við elskum fræga fótboltakarla. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-04-21
23 min
FJÓRÐA VAKTIN
8 „Atvinnurekendur komast upp með að ræna konur“ - Fjórða vaktin
Í þessum þætti fjöllum við um launamun kynjanna og áhrif hans á konur og samfélagið í heild. Tilefnið er að sjálfsögðu nýfallinn dómur og umfjöllun um stórfelldan launamun hjá Innheimtustofnun sveitarfélaganna. Við setjum launamun í sögulegt og samfélagslegt samhengi, förum yfir miskann eða afleiðingar af kerfisbundnu launalegu misrétti og krefjumst þess að atvinnurekendur hætti að ræna konur. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I want all (án söngs)
2023-04-14
27 min
Karlmennskan
119. „Þá þarf ég bara femínista sem er að pæla í píkum“ - Nanna Hlín Halldórsdóttir
Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira. Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagslegrar mótunar en snertum á ýmsu sem hefur verið í deiglunni eins og áherslum femínismans, áhrifum hans á samfélagið, iðrandi leikþátt manna sem nenna ekki að vinna neina tilf...
2023-04-11
56 min
Karlmennskan
118. „Svona er ég bara“ - Biggi Veira
Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl. Biggi lýsir því hvernig hann áttaði sig mjög snemma að hann hneygðist að hefðbundnum kvenfatnaði, þótt erfitt sé að lýsa því eð...
2023-03-23
49 min
FJÓRÐA VAKTIN
7 Karlhatandi heilaþvottur femínista og kynjafræðinga
7 Karlhatandi heilaþvottur femínista og kynjafræðinga Splunkuný greining á andspyrnu við kynjafræði og femínisma innan akademíunnar rímar ljómandi vel við íslenskan samtíma og sambærilegar eldri greiningar, enda virðist lítið fara fyrir sköpunargleði hjá andstæðingum femínisma. Í þættinum koma karlar sem fletta ofanaf konum við sögu, karlar sem óttast heittrúaðar saumakúbbskerlingar í háskólanum og svo allir karlarnir sem ráðast bara beint á okkur með fúkyrðum. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want Al
2023-03-22
27 min
FJÓRÐA VAKTIN
6 Þroskaferlið okkar - Ólíkir mælikvarðar
Hvaða vandamál koma upp þegar miðaldra kona með áratuga reynslu af femínískum aktívisma og yngri karl sem vissulega er með svolitla reynslu ákveða að búa til hlaðvarp? Hvernig bregðast þau við viðvörunarljósunum sem kvikna hjá konunni og karlinn skilur ekki? Í þættinum ræða Sóley og Steini um óþægilegt samtal sem þau áttu um undirbúning, eðli og afstöðu í þáttunum og lærdómana sem þau draga af því. Persónulegt þroskaferli ígrundað og sett í víðara samhengi við rannsóknir á þátttöku karla og kvenna í jafnréttisvinnu. Ums...
2023-03-15
22 min
Karlmennskan
117. „Það sem er mjúkt getur ekki brotnað“ - Spindrift, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær. Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og...
2023-03-09
48 min
FJÓRÐA VAKTIN
5 Haturstal og skýrsla fjölmiðlanefndar
Í þættinum fjöllum við um mikilvægi þess að ræða um upplýsingaóreiðu, skautun og hatursorðræðu en bendum á hætturnar sem felast í að birta skýrslu fjölmiðlanefndar algerlega án samhengis við valdakerfið, eðli þess og leiðirnar sem það notar til að viðhalda sér. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want Allt (án söngs)
2023-03-02
22 min
Karlmennskan
116. „Ég er ekki sammála því“ - Þórarinn Hjartarson
Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi margra sem eru orðnir þreyttir á byltingum og baráttum sl ára, sem telja sig ge...
2023-02-23
1h 54
FJÓRÐA VAKTIN
4. Tilkall og tilkarlar í ljósi Kate Manne
Við rýnum í hugtakið entitlement út frá skilgreiningu Kate Manne í bókinni Entitled og setjum í samhengi við birtingarmyndir í íslensku samfélagi og í okkar eigin hegðun. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-02-22
26 min
Karlmennskan
115. „Klám er helsta kynfræðsla barna, sem vinnur gegn kynfrelsi“ - María, Kristín og Eygló
Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin skyndilausn væri við jafn flóknum og útbreiddum vanda sem kynferðisofbeldi er, auk þess sem skólar geti ekki tekið að sér hlutverk réttarkerfisins. Fi...
2023-02-15
48 min
FJÓRÐA VAKTIN
3 Virka átök og aðgerðir í jafnréttismálum?
Í þessum þætti rýnum við í nokkur átök eða aðgerðir í jafnréttismálum m.a. nýjasta átak Vinnueftirlitsins, átakið „Má ekkert lengur?“ á vegum VIRK, átak ríkislögreglustjóra „Verum vakandi“ og nokkur í viðbót. Sum átökin eru að okkar mati frábær, önnur eru næstum því góð og önnur alveg hrikaleg. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-02-14
32 min
Karlmennskan
114. AUKAÞÁTTUR - „Við munum breyta heiminum“ ÖRLÖ, Hörður og Kristinn
ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni. Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri VAXA Thecnologies útskýra þetta nánar. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þessi aukaþáttur...
2023-02-11
31 min
FJÓRÐA VAKTIN
2. Naglalakkaðir karlar menningarnám eða aktívismi?
Veltum fyrir okkur hvort naglalakk á sískynja gagnkynhneigðum strákum og körlum sé hluti af hybrid karlmennsku eða menningarnámi eða geti ennþá verið öflugt tæki til að brjóta niður ráðandi karlmennsku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson og Sóley Tómasdóttir Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-02-08
19 min
FJÓRÐA VAKTIN
1. Kvennasamstaða - Fjórða vaktin
Kvennasamstaða í fræðilegu og sögulegu samhengi og flækjurnar í femínískri afstöðu. Rýnum í kröfurnar á skilyrðislausan stuðnings femínista við konur og kvennabaráttu, mikilvægi kvennasamstöðu og að vera femínisti sem er ósammála femínista. Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs)
2023-02-07
30 min
Karlmennskan
#113 „Réttlæti fyrir brotaþola er að geta haldið áfram að lifa í sínu samfélagi“ - Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir og Elín Björk Jóhannsdóttir
Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og reynsla þolenda hefur sýnt fram á. Markmið ráðstefnunnar var að draga fram hv...
2023-02-01
49 min
FJÓRÐA VAKTIN
Kynningarþáttur
Velkomin á fjórðu vaktina með Sóleyju og Steina. Í þessum stutta kynningarþætti munum við staðsetja okkur fræðilega og persónulega, útskýra aðeins pælinguna á bak við þetta hlaðvarp og hvað er framundan. Tónlist: Mr. Silla - I Want All (án söngs) Umsjón: Sóley Tómasdóttir og Þorsteinn V. Einarsson
2023-01-30
22 min
Karlmennskan
#112 „Tilfinningar karla, er það ekki hot topic?“ - Ari Ísfeld Óskarsson
„Ég vonast til þess að karlar, ungir sem aldnir, byrji að tala saman meira um tilfinningar sínar og hvernig þeim líður.“ segir Ari Ísfeld Óskarsson leikari sem samdi og lék í How to make love to a man í tilraunaverkefninu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu sl. vor. Leikritið fjallaði á kómískan en raunsæan hátt um karlmennsku og karla, hvernig þeir eiga samskipti sín á milli og takast á við lífið. Ari var einmitt að gefa út lag sem samið var fyrir sýninguna sem er spilað í þættinum. Við spjöllum um ástæður þess að fjórir vinir ákveða að gera leikrit um karlmennsku, hv...
2023-01-20
27 min
Karlmennskan
#111 „Það er alltaf einhver afstaða í gríni“ - Dóra Jóhannsdóttir
Áramótaskaupið hefur sennilega aldrei fengið jafn almennt sterk jákvæð viðbrögð frá flestum, nema kannski „nokkrum fótboltagrúbbum” eins og Saga Garðars orðaði í viðtali á dögunum og svo er spurning hvernig sumum meintum og vinum þeirra fannst skaupið. Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri Áramótaskaupsins kryfur nokkra sketsana og gefur okkur innsýn í ferlið við skaupið. Hvernig kemur hún auga á fyndnina í gráum hversdagsleikanum og sárum kynferðisofbeldis og útlendingaandúðar? Förum inn í afstöðu grínsins og þerapjútíkina sem grínið getur gefið, veltum upp hvort gera megi grín að hverju sem er...
2023-01-13
1h 00
Karlmennskan
#110 „Gott að spá einhverju og geta svo látið það rætast“ - Miriam Petra og Sóley Tómasdóttir
Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og menningarfordóma og Sóley Tómasdóttir jafnréttis- og fjölbreytileikafræðingur horfa í baksýnisspegilinn o...
2022-12-28
56 min
Karlmennskan
#109 „Fólk verður bara að fyrirgefa hvað ég er lengi að fatta“ - Gísli Marteinn Baldursson
Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans. Kannski ekkert brjálæðislegt léttmeti, en Gísli Marteinn var allavega í jólaskapi. Það er eitthvað. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlis...
2022-12-14
59 min
Karlmennskan
#108 „Maður er líka alltaf að gera grín að sjálfum sér“ - Helga Braga Jónsdóttir
Helga Braga Jónsdóttir er leikona og grínisti, leiðsögumaður, flugfreyja, magadansfrumkvöðull og kvenuppistandsfrumkvöðull. Helga Braga hefur skapað ódauðlega karaktera og skrifað og leikið í ódauðlegum senum t.d. með Fóstbræðrum. Auk þess hefur Helga auðvitað leikið í fjölmorgum þáttum, bíómyndum, áramótaskaupum og fleiru. Við spjöllum um grínið, hvernig og hvort það hefur breyst, kryfjum nokkrar senur úr Fóstbræðrum og förum inn á persónulegri svið þegar talið berst að byltingum undanfarinna ára og mánaða. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhj
2022-12-08
52 min
Karlmennskan
#107 „Hinseginleikinn minn trompar það ekki að ég sé barn“ Hinsegin félagsmiðstöðin - Hrefna, Nóam og Tinni
Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna markvisst að því að bæta lýðheilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn fordómum, mismunun og einelti sem beinist gegn hinsegin börnum í skóla og frístundastarfi. Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar og Andreas Tinni og Nóam Óli sem eru 17 ára og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá 13 ára aldri segja o...
2022-11-25
58 min
Karlmennskan
#106 Þegar þagnaði í víkingaklappinu - Valur Páll Eiríksson M.A. í íþróttasiðfræði
Sjö leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta voru sagðir hafa beitt eða kærðir fyrir heimilisofbeldi eða kynferðisofbeldi haustið 2021. Öll sem stigu fram voru konur og sögðust gera það innblásnar af metoo byltingunum. Mál sem hreyfði við íslensku samfélagi og leiddi m.a. til þess að formaður KSÍ og öll stjórn sagði af sér. Valur Páll Eiríksson, íþróttafrettamaður, skrifaði meistararitgerð í íþróttasiðfræði frá háskólanum í Lueven í Belgíu, um málefni KSÍ í ritgerð sem heitir „The Viking-clap silenced - An ethical evaluation of the Icelandic football...
2022-11-09
42 min
Karlmennskan
#105 „Öfgahyggja er kynjaður vandi“ - Sema Erla Serdaroglu
Sema Erla Serdaroglu er stjórnmálafræðingur, tómstunda- og félagsmálafræðingur og evrópufræðingur, aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands og aktívisti gegn útlendingaandúð og þjóðernis- og öfgahyggju. Sema hefur rannsakað öfgahyggju meðal ungs fólks en meistararannsókn hennar ber heitið „Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna”. Sema setur meinta hryðjuverkaógn í samhengi við hatursorðræðu og aukna andúð gegn sumum hópum samfélagsins, bendir á hvernig öfgahyggja er kynjaður vandi, lýsir ferlinu sem getur átt sér stað til þess að einstaklingar geti verið tilbúnir ti...
2022-10-21
40 min
Karlmennskan
#104 „Eitt glas af enska boltanum og þrjár teskeiðar af karlrembu“ - Dagur Hjartarson rithöfundur
Dagur Hjartarson er kennari og rithöfundur sem hefur meðal annars fengið hin virtu bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá hefur Dagur einnig verið tilnefndur til bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og er einn af þeim útvöldu sem hafa fengið listamannalaun til að sinna ritstörfunum. Við Dagur ræddum um fyrirmyndir ungra drengja, hvað þurfi til svo skáld og rithöfundar taki við af fótbolta- og poppstjörnum sem fyrirmyndir, fjarveru drengja og karla í umræðu um samfélagslega knýjandi málefni, karlmennsku, karlrembu, prumpulykt og listina. Umsjón: Þorsteinn V. Einars...
2022-10-05
52 min
Karlmennskan
#103 „Hljómar eins og ég sé the bad guy“ - Kaupandi vændis
Kaupendur vændis eru duldir og í raun fjarverandi í umræðu um vændi og kynlífsvinnu. Átökin í orðræðu hafa að mestu hverfst um hugtök og nálganir er snýr að löggjöf í kringum vændi eða kynlífsvinnu og þá borin uppi af fólki sem almennt er sammála um að samfélagsgerð lituð af feðraveldi, karllægni, misskiptingu og fátækt geti ekki talist gott samfélag. Í þessum þætti leitast ég hinsvegar við að varpa ljósi á viðhorf kaupenda vændis eða kynlífsþjónustu og þá sérstaklega hvernig virðing kaupenda fyrir þeim sem þeir...
2022-09-21
1h 05
Karlmennskan
#102 Dulinn sexismi, incel og narsissismi í hópum - Bjarki Þór Grönfeldt
Bjarki Þór Grönfeldt er doktorsnemi í stjórnmálasálfræði við Háskólann í Kent á Englandi en hann mun í haust skila doktorsritgerð sinni um sjálfhverfu, eða narsissisma, í hópum. Bjarki hlaut á dögunum Roberta Sigel verðlaun Alþjóðasamtaka stjórnmálasálfræðinga fyrir bestu vísindagreinina skrifaða af ungum fræðimanni. Greinin bar nafnið „A Small Price to Pay: National Narcissism Predicts Readiness to Sacrifice In-Group Members to Defend the In-Group’s Image”. Þar kom meðal annars í ljós að þeir Bandaríkjamenn sem eru narsissískir um sína þjóðarímynd voru tilbúnir til þess að fórna samborgurum sínum...
2022-09-15
49 min
Karlmennskan
#101 „Eitruð karlmennska er stærsti óvinur veganismans“ - Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir
Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir er framkvæmdastjóri, meðeigandi og meðstofnandi Veganmatar sem rekur Veganbúðina og Jömm. Hún er brautryðjandi í veganisma á Íslandi og reyndar á heimsvísu því Veganbúðin í Skeifunni er stærsta veganbúð í heiminum. En Sæunn hefur auk þess komið að stofnun Samtaka grænmetisæta á Íslandi, verið vegan í 10 ár og er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og löggiltur verðbréfamiðlari. Sæunn hefur þó lýst því að hún stundi andkapítalískan og femíniskan rekstur og með það markmið að gera heiminn betri (og meira vegan) og kallar sig bis...
2022-09-02
57 min
Karlmennskan
#100 Páll Óskar Hjálmtýsson
Brautryðjandinn, poppgoðið, homminn og hin ögrandi þjóðargersemi Páll Óskar Hjálmtýsson er heiðursgestur 100. hlaðvarpsþáttar Karlmennskunnar. Við kryfjum karlmennskuna og kvenleikann, leikritið sem kynhlutverkin og karlmennskan er, skápasöguna og kolröngu viðbrögð foreldra Palla, karlrembur, andspyrnuna og bakslag í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóðar upp á þennan þátt.
2022-08-12
1h 39
Karlmennskan
#99 „Mig langaði ekkert að lifa“ - Lárus Logi Elentínusson (Eldgosi)
Lárus Logi Elentínusson hefur verið að glíma við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir frá því hann var unglingur. Lárus sem er 19 ára gamall, og þekktur sem Eldgosi á TikTok, deildi því með fylgjendum sínum að hann hefði gert sjálfsvígstilraun fyrir tæpum tveimur árum. Í einhverja mánuði voru viðbrögð fólks á TikTok, commentin og rauðu búbblurnar það sem hélt í honum lífinu. Lárus er ekki laus við vanlíðanina en með hjálp sálfræðings, þunglyndislyfja og því að tala opinskátt um líðan sína segist hann geta tekist betur á við erfiðar tilfinni...
2022-07-28
1h 02
Karlmennskan
#97 Vændi og Venjulegar konur - Brynhildur og Eva Dís
Venjulegar konur, vændi á Íslandi heitir nýlega útkomin bók eftir Brynhildi Björnsdóttur þar sem sex íslenskar konur lýsa sárri reynslu sinni af því að hafa verið í vændi. Í bókinni er auk þess fjallað um hugmyndafræðileg átök í tengslum við lagasetningar en kastljósinu er ekki síður beint að kaupendum, þeim sem bera uppi eftirspurnina sem er í langmestum meirihluta karlmenn. Frumkvæðið að bókinni á Eva Dís Þórðardóttir sem hefur áður stigið fram og lýst reynslu sinni sem þolandi vændis. Eva og Brynhildur vilja vekja athygli á stöðu þolenda vændis með þá von að leiðarljósi að styðja þ...
2022-07-14
1h 11
Karlmennskan
#98 Kynlífsverkafólk og Rauða regnhlífin - Logn og Renata
Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Þau styðja skaðaminnkun og vilja binda enda á fordóma gegn fólki sem selur kynlífsþjónustu. Logn starfaði við kynlífsþjónustu í 3 til 4 ár en Renata bryjaði að strippa meðfram skólagöngu sinni í Berlín áður en hún fór svo að notast við Onlyfans, sem hún starfar við í dag. Logn og Renata vilja afglæpavæða kynlífsþjónustu og telja að kynlífsverkafólk búi við samfélagslega smánun og séu berskjaldaðar fyrir ofbel...
2022-07-14
1h 07
Karlmennskan
#96 Jordan Peterson í femínísku ljósi - Unnur Gísladóttir
„Það er erfitt fyrir mig að kjarna gagnrýni á Jordan Peterson því hún er marglaga en ef ég ætti að gera það þá er það vanhæfni hans til að setja sig í spor jaðarsettra hópa eða kvenna.“ segir Unnur Gísladóttir mannfræðingur og framhaldsskólakennari. Unnur hefur lesið allar bækur Jordan Peterson og líklega innbyrt meira magn af efni eftir hann heldur en margur aðdáandinn. Unnur er hins vegar lítill aðdáandi og færir okkur gagnrýni sína þar sem hún varpar femínísku ljósi á málflutning Jordan Peterson. Fyrir þau sem...
2022-06-27
42 min
Karlmennskan
#95 „Plís, viljiði bregðast við þessum yfirlýsingum okkar“ - Líf án ofbeldis (Gabríela Bryndís og Sigrún Sif)
Sigrún Sif Jóelsdottir er með meistarargráðu í sálfræði og starfar við rannsóknir í Háskóla Íslands og Gabríela Bryndís Ernudóttir sjálfstætt starfandi sálfræðingur eru forsvarskonur Lífs án ofbeldis. Líf án ofbeldis er „baráttusamtök mæðra og uppkominna barna sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjármálum.” Gabríela og Sigrún Sif eru þolendur ofbeldis og þekkja þessi mál af eigin reynslu. Gabríela sem barn í kjölfar skilnaðar sem var þvinguð í umgengni og Sigrún Sif er þolandi heimilisofbeldis sem barn og fullo...
2022-06-15
54 min
Karlmennskan
#94 „Mestu persónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi“ - Alma Ómarsdóttir
„Ástandsárin“ hefur tíminn verið kallaður í sögubókunum okkar þegar Bretar hernámu Ísland í seinni heimsstyrjöldinni. Færri kannast þó kannski við að íslensk stjórvöld ofsóttu ungar konur, sviptu þær sjálfræði með því að hækka sjálfræðisaldur úr 16 ár í 20 ár til þess að geta dæmt þær í fangelsi fyrir að eiga í samskiptum við hermenn. Landlæknir, forsætisráðherra, Alþingi, lögreglan, fjölmiðlar og almenningur tóku þátt í einum mestu persónunjósnum sem fram hafa farið á Íslandi til þess að ná tökum á þeim „saurlifnaði“ að íslenskar konur sýndu breskum hermönnum áhuga. Tímabil sem aldrei hefur verið...
2022-06-02
53 min
Karlmennskan
#93 „En Bjarni minn, við vissum þetta alltaf“ - Bjarni Snæbjörnsson
Bjarni Snæbjörnsson er leikari hjá Þjóðleikhúsinu og í þessu spjalli kryfjum við sjálfsævisögulega heimildasöngleikinn hans „Góðan daginn, faggi“ sem sýndur er í Þjóðleikhúskjallaranum. Við ræðum ferlið við sýninguna, viðbrögðin sem hafa verið vægast sagt áhrifamikil, sársaukann og gleðina, samkennd og skilningsleysi, gagnkynhneigðarhyggju, transfóbíu og kvenfyrirlitningu sem sameinast oft í samfélagslegri homofóbíu eða gagnkynhneigðarhyggju. Bjarni segir að sá tími sé liðinn sem karlar fái að segja sögur kvenna, alveg eins og sá tími er liðinn þar sem gagnkynhneigðir fái að segja sögur...
2022-05-27
53 min
Karlmennskan
#92 Konur í karlastörfum
Hver er reynsla kvenna af karlastörfum? Í þessum þætti er varpað ljósi á reynslu 13 kvenna sem eiga það sameiginlegt að hafað starfað á vettvangi þar sem karlar eru í meirihluta eða starfsvettvangi sem telst karllægur. Þótt nokkuð fari fyrir átökum og hvatningu til kvenna að sækja í karlastörf þá eiga flestar, ef ekki allar, þessar konur sameiginlegt að hafa einfaldlega áhuga og löngun til að starfa á sínu sviði. Viðmótið og menningin sem flestar lýsa er þó vægast sagt fjandsamlegt sem litað er af fordómum, öráreiti, kynhyggju, smánun, hlutgervingu með þeim afleiðingum að flestar töldu sig þurfa að sanna sig...
2022-05-18
1h 41
Karlmennskan
#91 „INCEL hugmyndafræðin er útum allt“ - Arnór Steinn Ívarsson
„Konur skulda okkur kynlíf - Kvenhatur einhleypra karlmanna á netinu“ er heiti á B.A. ritgerð í félagfræði eftir Arnór Stein Ívarsson þar sem samtöl meðlima INCEL (hópur karla sem upplifa sig svipta rétti sínum ti kynlífs með konum) voru orðræðugreind. Arnór fer yfir grunninn í hugmyndafræði INCEL, hvaðan þeir koma og hvert einkenni þessarar orðræðu er. Við tengjum hugmyndafræðina við þekkt stef í íslensku samfélagi, svo sem í commentakerfum, spjallsvæðum og á Alþingi Íslendinga. Í grunninn snýr INCEL hugmyndafræðin að því að frelsi kvenna sé ein helsta ógn við siðað samfélag og því þurfi að ná y...
2022-05-12
47 min
Karlmennskan
#90 „Samt var ég rosa skotinn í henni“ - Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson er handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndanna Hjartasteinn og Berdreymi. Í þessu spjalli notum við Berdreymi og æsku Guðmundar, sem er fóður handrits Berdreymis, til að kryfja karlmennsku, karlmennskuhugmyndir, vináttu stráka, kvenfyrirlitningu og hírarkíu milli stráka. Við veltum fyrir okkur hvað þurfi til að skapa jákvæðari karlmennsku, mikilvægi stuðnings í skólakerfinu og hvort félagsmiðstöðvastarf ætti að efla til að ná utan um krakka sem eiga erfitt með að fóta sig. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Dominos og The Body Sh...
2022-05-10
53 min
Karlmennskan
#89 „Af hverju má ég ekki vera bæði?“ - Lenya Rún Taha Karim
Lenya Rún Taha Karim er fimmti yngsti varaþingmaður í sögu Íslands og hefur verið nokkuð áberandi undanfarna mánuði eða frá því hún var kosin inn á þing en datt svo út eftir talningaklúður. Lenya á kúrdíska foreldra og hefur vegna þess og húðlitar síns fengið að upplifa fordóma, þjóðernishyggju og andúð á eigin skinni. Við ræðum þó ekki bara rasisma heldur einnig stéttaskiptingu, pólitíkina, mikilvægi samtals milli grasrótar, aktívista og stjórnmála, kúrdíska blóðið og kröfuna sem Lenya hefur upplifað að þurfa að velja á milli hvaða hluta hún...
2022-05-04
1h 00
Karlmennskan
#88 „Fólk elskar að hata konur“ - Öfgar
„Við erum komnar með nóg af ofbeldi sem fjórða valdið hefur verið að beita konur, þá sérstaklega aktívista og þolendur.“ segja Öfga-konurnar Þórhildur Gyða og Hulda Hrund í spjalli um ástæður þess að hópurinn ákvað að rita pistlaröð og beindi spjótum sínum m.a. að fjölmiðlum. Við spjöllum almennt um baráttuna, stöðuna, áhuga erlendra fjölmiðla á hópnum Öfgar, aðferðafræði og oddaflug, árangurinn sem hefur sést á sl. mánuðum eftir áratuga baráttu gegn þolendaskömmun og meðvirkni, yfirlætisfullar alhæfingar sumra karla um leiðir fyrir brotaþola að heilun og hv...
2022-04-27
1h 05
Karlmennskan
#87 „Hvenær ertu búinn að axla ábyrgð?“ - Hildur Fjóla Antonsdóttir
Viðtal við tónlistarmanninn Auður í Íslandi í dag 12. apríl sl. er ákveðið leiðarstef í þessum þætti þar sem við leitumst við að svara því hvernig gerendur geti axlað ábyrgð á ofbeldi, einkum kynferðisofbeldi, og hvort tímabært sé að gerendur stígi fram líkt og Auðunn. Munu raddir gerenda yfirgnæfa frásagnir þolenda og hannúðin yfirtaka umræðuna? Er tímabært að hlusta á gerendur? Hildur Fjóla Antonsdóttir er doktor í réttarfélagsfræði og hefur rannskað réttlæti í hugum brotaþola kynferðisofbeldis og vann meðal annars skýrslu fyrir dómsmálaráðherra um úrbætur í réttarkerfinu...
2022-04-22
51 min
Karlmennskan
#86 „Samfélag án aðgreiningar er ekki til“ - Leifur Leifsson
Leifur Leifsson er aflraunamaður, crossfittari, fyrrverandi uppistandari og ræðumaður og starfsmaður í þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Leifur varpar ljósi á ráðandi karlmennskuhugmyndir út frá sínum reynsluheimi sem einstaklingur með hreyfihömlun sem notast við hjólastól. Á afskaplega kómískan hátt dregur Leifur fram krítískt sjónarhorn á able-ískt samfélagið, stéttaskiptingu innan hreyfihamlaðra einstaklinga, fordóma og staðalmyndir fólks gagnvart hreyfihömluðum. Hann telur skóla án aðgreiningar ekki vera til, ekki frekar en samfélag án aðgreiningar og finnst öll sértæku úrræðin sem hugsuð...
2022-04-14
1h 01
Karlmennskan
#85 „Mín kynslóð er markalausa kynslóðin“ - Bubbi Morthens
Bubbi Morthens hefur sannarlega sveiflast með tíðaranda okkar samfélags fram og aftur, verið gagnrýndur fyrir tækifærismennsku og fyrir að sýna af sér karlrembu en er einn af fáum sem þó gengst oft við því þegar hann ruglast, sem myndi teljast gott fordæmi um jákvæða karlmennsku. Bubbi segist þó upplifa sig oft sem utangátta, utanvelta og steingert tröll enda alinn upp, að eigin sögn, í eitraðri karlmennsku og kvennakúgun. Við förum yfir sjálfsvinnuna, kynferðisofbeldið sem Bubbi varð fyrir 14 ára gamall, afleiðingar þess, úrvinnslu og leiðina til sáttar. Tölum um klám og hver...
2022-04-07
1h 02
Karlmennskan
#84 „Of ungleg eða of gömul og með of djúpa rödd“ - Aldís Amah Hamilton
Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem meðal annars lék aðalhlutverkið og skrifaði þættina Svörtu sandar. Þá lék Aldís Amah einnig stórt hlutverk í netflix seríunum Katla og Brot eða The Valhalla Murders. Við tölum aðeins um veganisma og hvenær einhver er nógu vegan til að vera vegan, tækifæri og aldursfordóma, hvenær kona hættir að vera efnileg og verður öf gömul, tölum um líkamsímynd og fitufordóma, hvernig það er að leika í nándar og nektarsenum og hvernig samfélagsgerðin mót...
2022-03-31
53 min
Karlmennskan
#83 „Halda kjafti og lifa til 42 ára aldurs“ - Gísli Kort sérfræðingur í geðhjúkrun
Dominos, Veganbúðin, The Body Shop og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt. Gísli Kort Kristófersson er sérfræðingur í geðhjúkrun á sjúkrahúsinu á Akureyri og dósent við Háskólann á Akureyri. Gísli fór af járnsmíðaverkstæði í vinnu á hjúkrunarheimili og hefur ekki litið til baka síðan eða í 23 ár. Í dag kennir Gísli við háskólann á Akureyri, stundar rannsóknir og sinnir auk þess meðferðastarfi, einkum með körlum sem glíma við geðrænar áskoranir. Við spjöllum um geðrænar áskoranir, karlmennsku og hvernig það getur verið bylltingakennd uppgötvun...
2022-03-28
1h 01
Karlmennskan
#80 Jákvæð karlmennska: Sjálfsvígshugsanir - Tómas Kristjánsson sálfræðingur
Tómas Kristjánsson sálfræðingur útskýrir þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og leiðir til að vinna úr erfiðum tilfinningum. Ef þú finnur þig vonlausan er vert að leita sér aðstoðar t.d. í símanumerinu 1717 og 1717.is sem er opið allan sólahringinn, hjá Píeta samtökunum, Berginu (fyrir ungt fólk til 25 ára), hjá sálfræðingum víða um land en mikilvægast er að segja einhverjum sem þú treystir að þér líði illa. „Stundum segist fólk vera þunglynt en er í raun að vísa til depurðar. En þunglyndi er röskun, vissulega er depurð og leiði einkennandi í þei...
2022-03-14
40 min
Karlmennskan
#81 Jákvæð karlmennska: SKÖMM - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur
Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur fer yfir óþægilegu og oft erfiðu tilfinninguna skömm, hvers vegna við upplifum skömm og hvað má gera ef skömmin er yfirþyrmandi. „Þegar við upplifum að einhver gerir lítið úr okkur, lítilllækkar eða niðurlægir, þá er skömmin viðbragð við þeirri upplifun. Það er kallað ytri skömm. Innri skömm er þegar við upplifum að við göngum á einhver gildi sem eru okkur mikilvæg.“ Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Átakið jákvæð karlmennska er fjármagnað af VÍS, BSRB, Íslandsbanka, forsæti
2022-03-14
48 min
Karlmennskan
#82 Jákvæð karlmennska: REIÐI - Henrietta Ósk Gunnarsdóttir sálfræðingur
Henrietta Ósk Gunnarsdóttir sálfræðingur hjá fangelsismálastofnun fer yfir tilfinninguna reiði, hvers vegna við verðum reið og hvenær reiði er orðin of sterk svo hún veldur okkur og öðrum vandræðum. „Reiðin er í raun mjög góð, þetta er réttlætistilfinning. Við upplifum reiði þegar við finnum að brotið er á rétt okkar og hún getur verið mjög hjálpleg og þurfum á henni að halda. Gott dæmi er réttindabaráttur, þar er reiðin að kikka inn og hún er ákveðið drive sem við þurfum á að halda til að fara fram á við.“ Ums...
2022-03-14
34 min
Karlmennskan
#79 Jákvæð karlmennska: ÁFÖLL - Hulda Tölgyes sálfræðingur
Hulda Tölgyes sálfræðingur og ein af höfundum átaksins um jákvæða karlmennsku útskýrir áföll, afleiðingar áfalla, birtingamyndir og leiðir til úrvinnslu á áföllum. „Karlar og drengir í okkar samfélagi hafa ekki sama rými til þess að tala um og læra á tilfinningar sínar eins og stúlkur og konur. Ekki vegna þess hvernig þeir fæðast heldur vegna þess hvernig samfélagið er. Þeir leita sér síður aðstoðar og að vera litlir í sér, daprir eða hræddir samræmist ekki karlmennskuímyndinni sem getur haft skaðleg áhrif.“ Umsjón: Þorsteinn V. Ein...
2022-03-14
41 min
Karlmennskan
#78 „Finnst þetta bara ofboðslegt ónæði“ - Bragi Páll Sigurðarson
Bragi Páll Sigurðarson er rithöfundur og sjómaður, tveggja barna faðir, maki Bergþóru Snæbjörnsdóttir rithöfundar og sonur fyrrverandi þingmanns Miðflokksins. Bragi Páll gaf út bókina Arnaldur Indriðason deyr fyrir síðustu jól sem naut töluverðra vinsælda. Við ræddum samt ekkert um bækur, heldur um karlmennskuna á sjónum, klórdrekkandi samsæriskenningasinna, heimilisstörf og glímuna við að vera karlmaður í jafnréttissamfélagi, Bjarna Ben og Sjálfstæðisflokkinn og hvernig það er að eiga pabba sem var þingmaður fyrir Miðflokkinn. Umsjón: Þorsteinn V. Eina...
2022-03-10
1h 00
Karlmennskan
#77 „Fljót að droppa prinsippum fyrir rétta hópinn“ - Andrés Ingi Jónsson og Sema Erla Serdar
Fátt annað er fjallað um í fjölmiðlum hérlendis og útum allan heim þessa dagana en innrás Rússa í Úkraínu. Hafa nánast allar þjóðir heimsins fordæmt aðgerðir Rússa og virðast þeir algjörlega einangraðir í sjálftitlaðri „friðargæslu sinni” og frelsun Úkraínsku þjóðarinnar en milljón manns hafa flúið heimili sín frá Úkraínu og er búist við að milljónir muni flýja í viðbót. Andrés Ingi Jónsson alþingismaður og hernaðarandstæðingur og Sema Erla Serdar stofnandi Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleite...
2022-03-04
54 min
Karlmennskan
#76 „Þú lítur ekki út fyrir að vera hommi“ - Jafet Sigfinnsson
Jafet Sigfinnsson hefur heldur betur fengið að finna fyrir lífinu og upplifað röð áfalla sem hann hefur deilt með fylgjendum sínum á Twitter. Þar hefur hann sagt frá því þegar hann var staddur á æskuheimili sínu á Seyðisfirði þegar hann lenti í miðri aurskriðu, þeirri stærstu sem fallið hefur á þéttbýli á Íslandi. Jafet hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og stafrænu einelti þegar trúnaðarsamtali var dreift um allan menntaskólann sem hann var í og hefur Jafet tjáð sig um þetta á einlægan hátt á Twitter. Þetta er eitt magnaðasta viðtal sem ég hef tekið því Jafet er svo einlægur, opinn og kemur...
2022-02-24
45 min
Karlmennskan
#75 „Ég hafði svo margar spurningar“ - Steinunn, Linda og Hafdís - Stígamót, Vettvangur glæps
Þolendur kynbundins ofbeldis eru meira en vettvangur glæps er yfirskrift átaks á vegum Stígamóta sem felst í að skora á dómsmálaráðherra að gera brotaþola að aðilum eigin máls, en ekki bara að vitnum. Átakið og ákall Stígamóta byggir á reynslu fimm kvenna af réttarkefinu - hvernig þær voru vitni að eigin ofbeldi og líkami þeirra þar með vettvangur glæps. Í þessum þætti ræði ég við Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttir talskonu Stígamóta og Hafdísi Arnardóttur og Lindu Björg Guðmundsdóttur sem eru tvær af þeim fimm konum sem hafa lánað reynslu sí...
2022-02-21
42 min
Karlmennskan
#74 „Er ekki eitthvað beef á milli ykkar?“ - Guðrún Ýr Eyfjörð (GDRN)
GDRN eða Guðrún Ýr Eyfjörð tónlistarkona og leikkona virðist gædd einhverri náðargáfu. Hún semur texta, lög, spilar á fiðlu og píanó og bar uppi heila þáttaseríu í frumraun sinni sem leikkona. Við spjöllum um fjárhagsleg áhrif covid á tónlistarfólk, Kötlu ævintýrið og að verða skyndilega burðarstykki í Netflix seríu, fullkomnunaráráttuna og sjálfsvinnuna, konur í tónlist og þá tilhneigingu fólks að etja GDRN og Bríet upp á móti hvor annarri. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði Veganbú...
2022-02-17
38 min
Karlmennskan
#72 „Ég er frelsaður til femínismans“ - Árni Matthíasson
Árni Matthíasson er síðmiðaldra hvítur karlmaður, fyrrverandi togarasjómaður, blaðamaður á Mogganum til 40 ára, varaformaður stjórnar Kvennaathvarfsins og femínisti sem hefur reglulega skrifað pistla um jafnréttismál. Við ræðum um það að vera femínískir gagnkynhneigðir hvítir ófatlaðir karlmenn, lífsverkefnið sem það er að aflæra innrædda fordóma og gagnlitlar karlmennskuhugmyndir ásamt ýmsu því skátengdu. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði Veganbúðarinnar, Domino´s, The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar.
2022-02-03
31 min
Karlmennskan
#70 „Það er verið að fylgjast með ykkur“ - Edda Falak og Ólöf Tara
Edda Falak stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur og Ólöf Tara stjórnarkona í Öfgum hafa verið ansi áhrifamiklar undanfarna mánuði og að mörgu leiti leitt aðra bylgju metoo og þær samfélagshræringar, ef svo má segja, sem orðið hafa undanfarna daga og vikur. Við settumst niður og veltum fyrir okkur hvort nú værum við að horfa fram á raunverulegar breytingar, alvöru afstöðu valdafólks og fyrirtækja eða hvort meintir gerendur muni bara fara að rúlla til baka í makindum sínum og jafnvel með árásum á þolendur og baráttufólk. Edda Falak og Ólöf Tara lýsa u...
2022-01-17
58 min
Karlmennskan
#69 Að vera drull, menga og kvæsa - Gyða Margrét Pétursdóttir
Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði í Háskóla Íslands rýnir í, skýrir og setur í samhengi vatnaskilin sem hafa átt sér stað undanfarna daga í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og tilkalli karla til líkama kvenna. Afleiðing áratuga baráttu kvenna gegn nauðgunarmenningu, feðraveldi og þolendaskömm en vatnaskilin má skammlaust tileinka frásögn Vítalíu í hlaðvarpsþættinum Eigin konur með Eddu Falak. Gyða Margrét lýsir undrun og feginleik og segir í raun ótrúlegt hve hröð þróun hafi orðið í að losa um þolenda- og drusluskömm, afstöðu fyrirtækja og í umfjöl...
2022-01-11
50 min
Karlmennskan
#68 „Feðraveldið hafnar ekki tækifæri til að sparka í konur“ - Hildur Lilliendahl
Hildur Lilliendahl er brautryðjandi í íslensku samfélagi og femínískur byltingaleiðtogi sem á stóran þátt í að varpa ljósi á og hreyfa við djúpstæðri kvenfyrirlitningu og karllægni. Það er engin spurning að hennar barátta hefur skapað aðstæður sem síðan hafa leitt af sér allskonar misstórar byltingar síðustu árin. Þakkirnar sem Hildur hefur fengið fyrir sitt framlag til jafnréttis hafa þó aðallega verið í formi niðurlæginga, árása, hótana og fyrirlitningar. Óumbeðið varð Hildur hættulegasti óvinur feðraveldis á einni nóttu og í kjölfarið nokkurskonar holdgervingur femínismans í augum ansi margra Í...
2022-01-06
1h 03
Karlmennskan
#66 „Menn eru hræddir við að konur taki valdið þeirra frá þeim“ - Reykjavíkurdætur (Steiney og Salka)
Reykjavíkurdætur urðu til upp úr rappkonukvöldum fyrir tæpum áratug, fyrst sem samkurl allskonar kvenna en síðar sem hljómsveit með ákveðnum fjölda og tilteknum einstaklingum. Þær mættu mikilli mótspyrnu til að byrja með, en yfirstigu andspyrnuna og hafa meikað það erlendis undir nafninu Daughters of Reykjavik. Þótt flestir Íslendingar hafi heyrt um hljómsveitina Reykjavíkurdætur hafa mun færri séð þær á tónleikum eða hlustað á plöturnar þeirra - eins og þær sjálfar hafa bent á. Er það vegna þess að þær eru konur, róttækar óþægilegar femínískar konur eða er músíkin ekki samboðin ís...
2021-12-10
49 min
Karlmennskan
#56 Fullkomið foreldri, besta barnið - Auður Magndís Auðardóttir og Sunna Símonardóttir
„Í staðinn fyrir að líta á okkur sem heild eða hluta af mengi þá erum við farin að líta á okkur og börnin okkar sem einhverskonar frífljótandi einstaklinga og okkar hlutverk er að besta okkur sjálf og börnin okkar sem samkeppnishæfasta einstaklinginn sem fer út og skapar peninga.“ segir Auður Magndís Auðardóttir í samtali við Sunnu Símonardóttur og Þorstein V. Einarsson um foreldrahlutverkið. Auður Magndís og Sunna hafa báðar gert doktorsrannsókn á kröfur á foreldra og hvernig þær hafa aukist undanfarna áratugi sem þær tengja við stéttaskiptingu, markaðsvæðingu, nýfrjálshyggju...
2021-10-14
31 min
Karlmennskan
#49 „Það er búið að þagga niður milljón svona mál“ - Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu
„Við vitum að yfir 10% kvenna er nauðgað og yfir 30% lenda í kynferðisofbeldi sem hefur áhrif á þær til framtíðar [...] samt erum við ekki tilbúnir til að trúa þolendum.“ segir Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu. Í kjölfar frásagna af þöggun KSÍ um ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, afsagnar formannsins, afsagnar stjórnar og brotthvarf framkvæmdastjórans (allavega tímabundið) hefur verið töluverð umræða um eitraða íþróttamenningu, skaðlega karlmennsku og klefamenningu. Á síðustu dögum hefur þó meira farið fyrir skoðanapistlum miðaldra karlmanna, löglærðra manna, og annars málsmetandi fólks sem gefa í skyn...
2021-09-08
33 min
Karlmennskan
#48 Ég veit ég hef rödd og ég ætla að beita henni - Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
„Ég hef það ágætt, þetta er búið að vera stormur en ekki í versta skilningi“ segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar KÍ. Hanna Björg skrifaði pistil sem birtist á Vísi 13. ágúst síðastliðin með fyrirsögninni „Um KSÍ og kvenfyrirlitningu“. Þar gagnrýndi hún KSÍ fyrir að þagga niður ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og bregðast þolendum. Í kjölfarið hefur formaður og síðan stjórn KSÍ sagt af sér og síðast í gær var tilkynnt um að framkvæmdastjórinn væri komin í leyfi. Hanna Björg segir að KSÍ sé höfuðvígi fe...
2021-09-02
33 min
Karlmennskan
#47 Þegar barn er beitt kynferðisofbeldi - Aníta aðstandandi og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
„Hvernig kemst maður yfir eða lifir með þeirri lifsreynslu að barnið mans hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu manns sem maður var í sambandi með?“ spyr Aníta sem er bæði brotaþoli sjálf og aðstandandi dóttur sinnar sem beitt var kynferðisofbeldi af hálfu sama manns og kallar hún eftir umræðu um aðstandendur brotaþola. Aníta, sem er dulnefni, lýsir áfallinu og sektarkenndinni sem það er að frétta að barnið hennar hefði orðið fyrir ofbeldi og upplifir Aníta að aðstandendur brotaþola fái lítinn sem engan stuð...
2021-08-26
30 min
Karlmennskan
#46 „Ég er smá homophobic sjálfur“ - Bassi Maraj
„Það voru alveg margir sem hættu að vera vinir mínir en svo var ég bara okei bæ“ segir Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson betur þekktur sem Bassi Maraj um það þegar hann kom út úr skápnum í 10. bekk. Bassi er ein af stjörnunum í raunveruleikaþáttunum Æði sem gerði hann að áhrifavaldi á Instagram og poppstjörnu en fyrsta lagið hans fór beint á topplista Spotify. Ný sería af Æði fer að koma út og sömuleiðis er Bassi að fara að gefa út EP plötu á næstunni. Við kryfjum frasana low key, living, sliving, slay og child (cheeld), rifjum upp unglingsár Bass...
2021-08-20
28 min
Karlmennskan
#45 „Ég elska viðbrögð“ - Edda Falak
„Stundum er þetta bara skemmtilegt en stundum er það smá þreytandi sérstaklega þegar það er fjallað um hvað ég er að borða í morgunmat.“ segir Edda Falak fjármálafræðingur, hlaðvarpsstjórnandi og áhrifavaldur um nærgöngulan áhuga fjölmiðla á lífi hennar. Edda hefur verið ansi áhrifamikil í umræðunni undanfarana mánuði með 30 þúsund fylgjendur á Instagram, þúsundir á Twitter og með vinsælasta hlaðvarpið á Íslandi. Skoðanir Eddu og málefnin sem hún fjallar um vekja oft upp sterk viðbrögð og hreyfa við mörgum. Í 45. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar ræðum við Edda um fyrirmyndir, fordóma, áhrifavalda, gillz-áhrifin og...
2021-08-13
33 min
Karlmennskan
#44 „Þetta er klárlega ekki komið“ - Hinsegin dagar, Ásgeir Helgi Magnússon
„Við erum að sjá börn og ungmenni koma snemma út úr skápnum í faðmi fjölskyldu og vina og geta áttað sig á tilfinningum sínum með þeim.“, segir Ásgeir Helgi Magnússon formaður Hinsegin daga sem fara fram dagana 3. til 8. ágúst með allskyns viðburðum, þrátt fyrir að ekkert verði af Gleðigöngunni vegna samkomutakmarkanna. Þótt Ísland standi framarlega í jafnréttismálum segir Ásgeir Helgi að enn vanti margt upp á í lagaumhverfinu, sem tengist hinsegin fólki og að við þurfum stöðugt að vera á varðbergi fyrir mannréttindum fólks. Það sjáist best á löndum á borð við Pólland og Ungverjaland þ...
2021-08-06
26 min
Karlmennskan
#43 „Kvenlegir menn munu ekki erfa Guðs ríki“ - Birgir Fannar
„Ég er að reyna vernda grunngildi karlmennskunnar og er hérna í snákagryfjunni þinni“, segir Birgir Fannar sem hefur reglulega poppað upp á samfélagsmiðli Karlmennskunnar og lýst með athugasemdum andstöðu sinni við þau sjónarmið sem þar liggja til grundvallar. Telur hann femínisma það versta sem komið hafi fyrir íslenskt samfélag, telur Druslugönguna ala á framhjáhaldi og að samfélagsmiðilinn Karlmennskan stuðli að bælingu á eðli karlmanna. Viðmið Birgis Fannars koma úr Biblíunni og telur hann að sannkristið fólk geti ekki beitt ofbeldi. Þessi þáttur er tilraun mín til samtals við einstakling sem er á öndverðum me...
2021-08-05
1h 18
Karlmennskan
#42 No fucking way - Hulda Tölgyes
„Ég er alveg hrædd við að viðurkenna að ég sé buguð í sumarfríi með börnunum mínum,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur og móðir í samtali við maka sinn Þorstein V. Einarsson, þar sem þau gera upp sumarfríið með börnunum sínum og ómeðvitaða ójafna skiptingu ábyrgðar í foreldrahlutverkinu. Hið ósýnilega mental load, fjarverandi viðvera við morgunverðarborðið og ólíkar kröfur og væntingar heimsins til mæðra og feðra eru umtalsefni 42. þáttar hlaðvarpsins Karlmennskan.
2021-07-30
37 min
Karlmennskan
#41 „Kynferðisofbeldi snýst oftast um vald en ekki kynlíf“ - DRUSLUGANGAN, Inga Hrönn Jónsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir
Inga Hrönn Jónsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir úr skipulagsteymi Druslugöngunnar eru viðmælendur í þessum þætti í tilefni þess að Druslugangan verður farin í Reykjavík laugardaginn 24. júlí nk. Fyrirmynd viðburðarins er erlend, þar sem fyrsta druslugangan eða Slut Walk, var farin í Toronto í Kanada árið 2011 eftir að lögreglustjórinn þar í borg sagði að „konur ættu ekki að klæða sig eins og druslur ef þær vildu ekki verða fyrir kynferðisofbeldi“. Druslugangan er því mótmæli gegn menningu sem nærir ofbeldi og því viðhorfi að það sé þolendum ofbeldis um að kenna að verða fyrir ofbeldi. E...
2021-07-22
38 min
Karlmennskan
#40 „Ég er vegan fyrir dýrin“- Valli dordingull
„Ó þú ert vegan, þá er ég bara vegan líka“, segir Sigvaldi Ástríðarson, kallaður Valli dordingull, um ástæðu þess að hann varð vegan þegar hann sá að pönk fyrirmynd hans var vegan. Valli stofnaði dordingull.is fyrir 22 árum síðan, sem var grunnur þungarokks og pönkmenningar á Íslandi og selur brot- og borvélar í dag. Valli hefur verið vegan í 17 ár fyrir dýrin og var veganmanneskja fjölmiðla í „gamla daga“. Valli kannast því við margar mýtur sem fólk heldur fram um veganisma og hefur margoft fengið athugasemdir eða skot tengt veganismanum þótt fólki geri það sjaldan í dag. Hann kom að stofnun samtaka...
2021-07-15
48 min
Karlmennskan
#39 „Hvað eigum við að öskra þetta lengi!?“ - ÖFGAR, Huld Hrund og Ólöf Tara
„Við ætlum að fella feðraveldið,“ segja Hulda Hrund og Ólöf Tara um markmið hins nýstofnaða femíníska aðgerðahóps ÖFGAR í samtali við Þorstein V. Einarsson í nýjasta hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar. Hópurinn hefur hleypt krafti í seinni eða aðra bylgju metoo með nafnlausum frásögnum tugi kvenna af kynferðisofbeldi og áreitni þjóðþekkts tónlistarmanns. Þá sendi hópurinn frá sér yfirlýsingu, ásamt AGN (aðgerðahópur gegn nauðgunarmenningu), til þjóðhátíðarnefndar þar sem þess var krafist að Ingólfur Þórarinsson yrði afbókaður til að stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í 39...
2021-07-08
51 min
Karlmennskan
#38 Guð gefi mér æðruleysi - Kalli, Rótin og Hörður
„Það er kannski ekkert valdeflandi þegar það er sagt við mann þegar maður er tvítugur að maður sé með ólæknandi heilasjúkdóm“ segir Kristín I. Pálsdóttir talskona og framkvæmdastjóri Rótarinnar í samtali við Hörð Ágústsson fyrrverandi meðlim AA samtakanna, Kalla (dulnefni) núverandi meðlim AA samtakanna og Þorstein V. Einarsson í hlaðvarpinu Karlmennskan. Ræða þau AA samtökin á gagnrýnin hátt byggt á eigin reynslu og rannsóknum sem sýnt hafa að fíknivandi er flóknari en svo að hann sé einungis líffræðilegur og megi lækna með trúarlegum leiðum. Hörður...
2021-07-02
1h 04
Karlmennskan
#37 „Það er ekkert til sem heitir hlutleysi“ - Andri Freyr Viðarsson og Anna Marsibil Clausen
„Við höfum bara ákveðið að hvítir karlkyns líkamar og þeirra vitund sé hlutlaus og það er marker sem við verðum að afbyggja, það að hvít karlmennska sé hlutleysi,“ segir Anna Marsý dagskrárgerðamaður hjá RÚV í samtali við Andra Frey Viðarsson dagskrárgerðamann hjá RÚV og Þorstein V. Einarsson. Skyggnst er á bakvið raddirnar sem hljóma reglulega í útvarpinu okkar, hver galdurinn er á bakvið góða hljóðmiðlun, rætt er um „hlutleysi“ og valdastöðu fjölmiðlafólks og óþægindin sem eru nauðsynleg gagnrýnu fólki. Þáttur númer 37 í hlaðvarpinu Karlmennskan er ekki um pólitís...
2021-06-25
1h 14
Karlmennskan
#36 „Þótt við förum ekki áfram með málið þá þýðir það ekki að við trúum þér ekki“ - Kolbrún Benediktsdóttir
„Þótt við förum ekki áfram með málið þá þýðir það ekki að við trúum þér ekki,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari, sem meðal annars sér um kynferðisbrotamál hjá embætti héraðssaksóknara. Hún hefur starfað í 16 ár hjá ákæruvaldinu og segir margt hafa breyst undanfarin ár meðal annars vegna gagnrýni á embættið. Nefnir hún sem dæmi að lögð hefur verið vinna í að bæta skýrslutökur því framburður er það sem ákæurvaldið liggur yfir til að meta sönnunarstöðuna og þá hefur þjónusta við brotaþola einnig verið bætt til dæmis með auk...
2021-06-18
39 min
Karlmennskan
#31 „Hann hefði mátt vita það“ - Hildur Fjóla Antonsdóttir og Katrín Ólafsdóttir
„Hvernig axlar maður ábyrgð á gjörðum sínum þegar það er engin forskrift til?“ segir Hildur Fjóla Antonsdóttir doktor í réttarfélagsfræði í spjalli við Katrínu Ólafsdóttur doktorsnema og Þorstein V. Einarsson í hlaðvarpinu Karlmennskan. Ræddu þau aðra bylgju metoo á Íslandi, mögulegt réttlæti fyrir þolendur kynferðisofbeldis og ofbeldis og hvernig gerendur geti mögulega tekið ábyrgð á gjörðum sínum. Þær eru sammála um að skýr krafa sé um ábyrgð gerenda og gerendameðvirkninni sé ögrað með kröftugum hætti. Pressa sé á karla sem beitt hafa ofbeldi um að gangast við gjörðum sínum en ekki eru f...
2021-05-21
1h 10
Karlmennskan
#26 Bara ég og strákarnir - Ágúst, Árni, Hörður og Þorsteinn
„Það er ekkert svo langt síðan að við hættum að vera á yfirborðinu og fórum að tala um hvernig við erum í alvörunni“ er nokkuð lýsandi fyrir innihald samtals okkar fjögurra vina sem höfum verið að glíma við sjálfa okkur, sambönd og karlmennsku. Ég bauð nokkrum af mínum nánunustu vinum í spjall um það hvernig þeir eru að glíma við þá staðreynd að vera (hálf)miðaldra hvítir gagnkynhneigðir sís karlmenn. Persónulegt og oft á tíðum berskjaldað samtal sem snertir á upplifun af jafnréttisbaráttunni, karlmennsku, sjálfsvinnu, vináttu, ofbeldi og men...
2021-04-09
1h 28
Karlmennskan
#25 Synd, glæpur, sjúkdómur - Sögur af hommum - Þorvaldur Kristinsson
„Ég á mér fortíð sem gagnkynhneigður maður, var í hjónabandi með konu og ól upp dóttur en það sem ég þráði alltaf innst inni voru karlmenn,“ segir Þorvaldur Kristinsson rithöfundur sem kominn er á áttræðisaldur og hefur staðið framarlega í réttindabaráttu samkynhneigðra í nokkra áratugi. Þorvaldur fékk yfir sig skítkast úti á götu, átti erfitt á íbúðamarkaði og upplifði á eigin skinni andúð og fordóma fyrir kynhneigð sína. Mikil framför hefur átt sér stað í réttindabaráttu samkynhneigðra undanfarin 30 ár sem Þorvaldur skýrir með tilkomu frjálsrar fjölmiðlunar, íslenskra fjölskyldubanda, stuðning...
2021-04-02
59 min
Karlmennskan
#24 Jákvæð karlmennska
Samfélagsmiðlinn Karlmennskan hefur staðið fyrir átaksverkefninu jákvæð karlmennska undanfarnar tvær vikur í samstarfi við Píeta samtökin, Stígamót, UN Women á Íslandi og námsbraut í kynjafræði í Háskóla Íslands. Í þessum þætti er hugtakið jákvæð karlmennska útskýrt nánar ásamt því sem fulltrúar samstarfsaðilanna gera grein fyrir snertirfleti þeirra starfsemi við karlmennsku og ástæður þess að þau ákváðu að taka undir átakið jákvæð karlmennska. Um er að ræða endurbirtar hljóðklippur úr viðtalsþættinum Karlmennskan á Hringbraut frá 15. mars þar sem Þorsteinn ræðir við Þorgerði Einarsdóttur prófessor í kynjafræði, Hjálmar Sigmarsson ráðgjafa hj...
2021-03-26
40 min
Karlmennskan
#23 Drengir, testósterón og (náms)umhverfi - Hermundur Sigmundsson
„Öll þekking og færni þarnfast þjálfunar og reynslu til að verða góð,“ segir Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Háskólann í Þrándheimi. Nokkuð hefur verið talað um drengi í skólakerfinu og hefur Hermundur talað um að það ríki þöggun um málefni þeirra. Hann telur að börn byrji of snemma í skóla og skólakerfið taki ekki nægjanlegt tillit til þarfa barna. Hermundur segir að öll börn þurfi að vinna með réttar áskoranir og aðalmálið sé að við náum að skapa umhverfi sem sé gott og mæti þörfum þeirra. Þ...
2021-03-19
50 min
Karlmennskan
#12 Meðganga og fæðingarorlof - Hjónin tala saman
„Þú gast bara lifað þínu lífi áfram á meðan ég var bara ein heima með barnið og kalt kaffi“. Hjónin Hulda Jónsdóttir Tölgyes og Þorsteinn V. Einarsson ræða saman í þessum þætti um reynslu þeirra og upplifun af meðgöngu og fæðingarorlofi. Hvað þau hefðu viljað vita fyrirfram, hverju þau hefðu viljað breyta og það sem heppnaðist ágætlega.
2020-12-18
1h 10
Karlmennskan
#9 Mental load: Hjónin Hulda og Þorsteinn
„Það eru hundrað þúsund hlutir sem þarf að hugsa um [...] og ég held að menn átti sig oft ekki á því“ segir Hulda og vísar til fyrirbærisins mental load. Mental load er umfjöllunarefni þessa þáttar þar sem hjónin, Þorsteinn V. Einarsson og Hulda Jónsdóttir Tölgyes, spjalla saman um það hvernig mental loadið hefur birst í þeirra lífi og hvaða leiðir þau hafa farið til að jafna byrðina sem til fellur í sambúðinni.
2020-11-27
56 min