Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

A Mannauðsmali

Shows

Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli50. Sigrún Ósk Jakobsdóttir - AdvaniaGestur þáttarins heitir Sigrún og starfar sem mannauðsstjóri hjá Advania. Sigrún segir okkur frá þeirra helstu áherslum í mannauðsmálum og svo þær áskoranir sem upplýsingatæknifyrirtæki standa frammi fyrir varðandi það að efla konur í þessum geira. Styrktaraðilar þáttarins eru Akademias, Hoobla, YAY, Alfreð, Dagar og Giggó. 2024-12-0951 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli49. Hildur Hörn Daðadóttir - Lífeyrissjóður verslunarmannaGestur þáttarins er Hildur Hörn sem starfar hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Við ætlum að spjalla um allt sem tengist lífeyrismálum ig það komum við mannauðsfólk sterk inn. Hildur fer yfir lífeyrismál og við ræðum hvernig lífeyrir getur stutt við okkur í allskonar aðstæðum. Styrktaraðilar eru Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar. 2024-09-1748 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli48. Davíð Tómas Tómasson - MoodupGestur þáttarins heitir Davíð og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri Moodup. Davíð er ótrúlega skemmtilegur og hefur mikinn áhuga á andlegri og líkamlegri heilsu ásamt því að brenna fyrir Moodup. Við förum yfir sögu fyrirtækisins sem er svo sannarlega áhugaverð. Styrktaraðilar eru Akademias, Hoobla, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar. 2024-08-1652 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli47. Sigríður Inga Svarfdal - YAYJæja gott fólk. Gestur þáttarins er Sigga hjá YAY. Hún starfar sem markaðsstjóri hjá YAY og hefur verið hjá fyrirtækinu frá upphafi. Sagan þeirra er ótrúlega áhugaverð og þau halda bara áfram að stækka. Sigga ætlar að segja okkur frá því hvernig þetta ferðalag hófst og hvaða vörur þau bjóða uppá. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, GIGGÓ og nýjasti meðlimur í auglýsingaflóru podcastsins er Dagar! 2024-06-1354 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli46. Unnur Ýr Konráðsdóttir - LucinityUnnur hjá Lucinity situr til móts við mig á þessum fallega degi. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.  Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð og GIGGÓ. 2024-04-2353 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli46. Unnur Ýr Konráðsdóttir - LucinityUnnur hjá Lucinity er gestur þáttarins. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.   Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup og Alfreð. 2024-04-0552 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli45. Jakobína Árnadóttir - HrafnistaGestur þáttarins heitir Jakobína og starfar sem mannauðsstjóri Hrafnistu. Við settumst niður og ræddum stefnumótunarvinnu, fræðslumál, styttingu vinnuvikunnar og allskonar skemmtilegt sem er í gangi hjá þeim. Í raun má segja að undanfarin ár hafi Hrafnista farið í gegnum mikið umbreytingarferli og það kemur skýrt fram miðað við það sem hún segir okkur. Þau vinna meðal annars með það að þau eru þjónustufyrirtæki og það sem kjarnar starfseminnar þeirra er í raun þetta: “Við vinnum á heimili fólks en þau búa ekki á vinnustaðnum okkar!”   Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri end2024-02-0747 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli44. Adriana Pétursdóttir - Formaður MannauðsÍ spjallið til mín að þessu sinni kom Adriana Pétursdóttir. Ég þarf varla að kynna hana til leiks en hún starfar sem leiðtogi starfsmannaþjónustu RIO TINTO og í byrjun árs tók hún við sem formaður Mannauðs, okkar allra besta mannauðsfélags. Við vorum svo sem sammála um það að við hefðum getað spjallað í marga klukkutíma en hér á eftir förum við yfir allt þetta helsta – Mannauðsdaginn sjálfan, hvað hún brennur helst fyrir í tengslum við mannauðsmál og svo auðvitað þróunin framundan. Svo er nú smá rúsína í pylsuendanum...2023-11-231h 19Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli43. Aðalheiður Hreinsdóttir - LearnCoveGestur þáttarins heitir Aðalheiður Hreinsdóttir, kölluð Heiða, og starfar sem framkvæmdastjóri LearnCove. Og hvað er nú LearnCove eiginlega? Jú það er auðvitað fræðslukerfi sem Heiða ætlar að segja okkur frá í þessu lauflétta spjalli. Við ræddum um hvað kerfið býður upp á, hverjir eru kostir þess, hversu notendavænt það er og af hverju þetta kerfi er betra en önnur. Til þess að fá að vita allt um það er bara um að gera að koma sér vel fyrir og leggja við hlustir.  Styrktaraðilar þáttarins eru alveg geggjaðir – Aka2023-10-1832 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli42. Sverrir Hjálmarsson - AkademiasGóðan daginn kæru hlustendur. Gestur þáttarins heitir Sverrir Hjálmarsson og starfar sem ráðgjafi hjá Akademias. Við Sverrir eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fræðslumálum og þess vegna er það aðal umræðuefni þáttarins. Sverrir segir okkur frá starfi sínu hjá Akademias og þeirri þróun sem á sér stað hjá þeim. Þar má meðal annars nefna fjölbreyttar námsleiðir, rafræna fræðslusafnið, sprettina og fleira skemmtilegt. Við ræddum líka aðeins starfsþróun og svo gervigreind í tengslum við fræðslumál. Stórskemmtilegt spjall þó ég segi sjálf frá!2023-09-281h 10Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli41. Inga Þórisdóttir - Via OptimaÍ spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, YAY, Moodup og2023-04-0747 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli40. Guðfinna Ingjaldsdóttir - ReykjavíkurborgÍ þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá Reykjavíkurborg við að byggja upp nýtt svið. Styrktaraðilar þáttarins er Akademias, Moodup, YAY og 50skills.2023-03-011h 11Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli40. Guðfinna Ingjaldsdóttir - ReykjavíkurborgÍ þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá Reykjavíkurborg við að byggja upp nýtt svið.2023-02-271h 12Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli39. Davíð Rafn Kristjánsson - Swapp AgencyHann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Covid. Ónei, þetta er miklu skemmtilegra concept. Kannski nær því að fara til Bali í mánuð og vinna þar? Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf. Akademias, YAY, Moo2022-10-271h 09Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli38. Ragnhildur Bjarkadóttir - AuðnastRagnhildur er annar eigandi og stofnandi Auðnast. Hún er mjög mikið menntuð og ég ætla bara að leyfa henni að segja ykkur frá því. Við fórum auðvitað yfir það hvað Auðnast stendur fyrir og hver þeirra sýn er. Félagslega umhverfið í heild sinni er þeirra nálgun og þar hefur safnast mikil reynsla og þekking seinustu ár. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.2022-10-0652 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli37. Helga Halldórsdóttir - Arion bankiHelga Halldórsdóttir er gestur þáttarins en hún starfar sem forstöðumaður mannauðssviðs hjá Arion banka. Við fórum yfir víðan völl í þættinum. Helga segir okkur frá sinni vegferð í mannauðsmálum, hvernig Arion banki hefur notað breytingastjórnun til þess að ná árangri, mánaðarlegar mælingar, mannauðsstefnuna þeirra, húsnæðismál og margt fleira. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, 50skills og Moodup. Rúsínan í pylsuendanum - Fulltrúar fyrirtækja sem hafa samband við YAY og prófa að gleðja hópinn sinn í júní 2022 fá veglega inneign upp í...2022-06-091h 03Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli36. Ragnheiður Aradóttir - PROevents & PROcoachingÍ þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki hjá því að ræða Covid og hvernig hún snéri vörn í sókn þegar allt fór á hliðina. Svona til þess að toppa þetta þá ræddum við einnig...2022-04-071h 08Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli35. Hildur Sigurðardóttir - RÚVÍ þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar sem hefur verið lögð áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda RÚV og þeirra sem starfa við fréttir og dagskrárgerð. Við komumst svo ekki hjá því að ræð...2022-03-1857 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli34. Elísabet Helgadóttir - IcelandairGestur þáttarins er Elísabet Helgadóttir en hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Icelandair. Félagið hefur vægast sagt þurft að takast á við ýmsar áskoranir seinustu tvö ár eins og mörg önnur fyrirtæki. Í þættinum spjöllum við Elísabet um þær áskoranir sem félagið hefur þurft að takast á við ásamt því að vera í kjaraviðræðum, huga að fjarvinnu og endurskipulagningu félagsins. Það er eiginlega hálf ótrúlegt að félagið hafi náð að halda velli í gegnum þessa veirutíma en Elísabet segir að það hafi reynst langbest að nýta hugarfar Pollýönnu á þessum tímum og að virkja upp...2022-03-021h 06Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli33. Thor Olafsson - Strategic LeadershipThor Olafsson er stofnandi Strategic Leadership og hefur unnið sem stjórnendaráðgjafi í meira en 20 ár. Hann er sestur hjá mér og það eina sem við ætlum að ræða eru stjórnendur og aftur stjórnendur. En hvað er það við stjórnendur sem er svona merkilegt? Jú, það er nefnilega frekar margt. Við ræðum um stjórnendaþjálfun, hlutverk stjórnenda, fyrirtækjamenningu, samvinnu stjórenda og starfsfólks og síðast en alls ekki síst er það egó stjórnenda. Hvað er egó stjórnenda? Thor segir okkur allt um það.  Þátturinn er í boði frábærra fyrirtækja - Akad2022-02-101h 29Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli32. Harpa Magnúsdóttir - HooblaGestur þáttarins er enginn önnur en Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. Drifkrafturinn í Hörpu er ótrúlegur, hún stóð á tímamótum í byrjun árs 2021 eftir 15 ára starf hjá ORF líftækni. Hún fann að það voru tækifæri í gig-umhverfinu og nokkrum mánuðum seinna var hún búin að stofna Hoobla. Harpa segir okkur frá þessu öllu saman ásamt skemmtilegu samstarfi við Siggu Kling.  Styrktarðilar þáttarins eru Akademias, Moodup, Origo og Alfreð. 2021-12-1553 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli31. Kristín Hrefna Halldórsdóttir - OrigoVið Kristín hittumst í Akademias stúdíóinu og töluðum um hið frábæra jafnlaunakerfi. Origo býður nú upp á þjónustu sem heitir Justly Pay og tengist jafnlaunakerfinu í heild. Justly Pay er í þremur þrepum sem Kristín fer vel yfir og svo ræðum við hvernig er hægt að vinna með það. Jafnlaunakerfið er  ekkert annað en gæðakerfi og þess vegna er þessi snilld frá Origo eflaust að fara að spara fjöldan allan af vinnustundum. Þátturinn er í boði Akademias, 50skills og Moodup. 2021-10-0855 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli30. Björn Björnsson - MoodupÍ Akademias stúdíóinu situr ungur maður að nafni Björn sem stofnaði nýverið fyrirtækið Moodup en það sérhæfir sig í að mæla starfsánægju hjá fyrirtækjum. Björn er sprenglærður og hefur komið víða við á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars unnið sem aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann stofnaði Moodup í þeim tilgangi að efla starfsánægju starfsfólks með einföldum og þægilegum hætti. Ótrúlega skilvirk lausn sem þið fáið að heyra allt um. Þátturinn er í boði Akademias, Mótun og Alfreð.2021-08-1252 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli29. Erla María Sigurðardóttir - KrónanVið Erla María sem starfar sem mannauðsstjóri Krónunnar hittumst alveg eldhressar í Akademias stúdíóinu. Erla segir okkur frá starfsemi Krónunnar ásamt því að fara yfir málefni sem tengjast ungum stjórnendum, Krónuskólanum, velferðarpakkanum þeirra og hvernig þau tókust á við Covid. Virkilega skemmtileg hlustun! Þátturinn er í boði Akademias, 50skills, Moodup og Mótun. 2021-06-2451 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli28. Ágústa Björg Bjarnadóttir - SjóváVið Ágústa hittumst í Akademias stúdíóinu en hún starfar sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Sjóvá. Það sem mér hefur þótt einna áhugaverðast við þeirra áherslur eru jafnréttismálin. Þau fá svo sannarlega svigrúm í þessu spjalli en auk þess ræddum við stefnumótunarvinnu sem þau fara í á 2-3 ára fresti þar sem allir starfsmenn taka þátt og leggja sitt af mörkum. Einnig ræddum við um starfsumhverfið og sálfélagslega áhættumatið sem þau leggja mikla áherslu á.  Þátturinn er í boði Akademias, Moodup, Mótun og Alfreð. 2021-06-0356 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli27. Alþjóðlegi mannauðsdagurinn 2021Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er 20. maí 2021. Í samstarfi við Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi er þátturinn því með aðeins öðruvísi sniði en vanalega en hann er sérstaklega tileinkaður þessum degi. Ég fékk til mín alveg frábæra gesti sem allir eiga það sameiginlegt að starfa við mannauðsmál og eru núverandi og fyrrverandi formenn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en það eru Ásdís Eir sem er núverandi formaður félagsins, Ketill Berg, Dröfn, Ella Sigga og Brynjar Már. Í þættinum ræðum við meðal annars hverjar eru helstu áherslur í man...2021-05-2043 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli26. Sigríður Harðardóttir - StrætóÍ Akademias stúdíóinu er Sigríður Harðardóttir sem er sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála hjá Strætó. Við ræddum meðal annars starfsþjálfunarkerfi fyrir vagnstjóra, öflugt fræðslustarf þar sem áhersla er lögð á endurmenntun vagnstjóra og hvernig er hægt að viðhalda þeirra þekkingu og færni í starfi, streita og álag kom til tals þar sem þau fóru í áhugaverða vinnu í tengslum við að draga úr þessum þáttum í starfsumhverfinu í samstarfi við VÍS og svo fórum við yfir styttingu vinnuvikunnar í tengslum við vaktavinnu. Þátturinn er í boði Akademias og 50skills.2021-05-171h 00Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli25. Ketill Berg Magnússon - MarelGóðir gestir, næsti viðmælandi er ekki af verri endanum. Hann heitir Ketill og er mannauðsstjóri hjá Marel. Ég bauð Ketil velkominn í Akademias stúdíóið þar sem við náðum heldur betur góðu spjalli. Ketill er fyrsti viðmælandi minn sem nær að tala í tæpa tvo klukkutíma en ekki örvænta, þetta er svo fróðlegt spjall að það nær bara varla nokkurri átt. Ketill segir okkur frá hverjar áherslurnar eru hjá Marel, hvernig er að vinna hjá fyrirtæki á alþjóðavísu með 7.500 starfsmenn, hvernig þau tókust á við Covid, afnámu stimpilklukkuna, klár...2021-04-291h 49Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli24. Elín Kristín Guðmundsdóttir - HugarheimurVið Elín hjá Hugarheimi skelltum okkur í Akademias stúdíóið. Hugarheimur sérhæfir sig meðal annars í að sálfélagslegu þáttunum í vinnuumhverfinu eins og streitu, kulnun, álagi og öðru áreiti sem hefur áhrif á líðan okkar bæði í starfi og einkalífi. Við ræddum einmitt þessa þætti betur og fórum yfir það hvernig er hægt að búa til aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvernig við getum náð betri hvíld án þess endilega að sofa meira. Stytting vinnuvikunnar kom einnig til tals og þá sérstaklega í tengslum við að starfsfólk þarf að vera duglegra að nýta frítímann sinn t...2021-03-171h 17Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli23. Dröfn Guðmundsdóttir - OrigoGestur minn að þessu sinni er Dröfn Guðmundsdóttir sem er mannauðsstjóri hjá Origo. Fyrirtækið hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og sérstaklega hvað varðar jafnréttismál og starfsánægju á tímum Covid. Við ræddum það hvernig er hægt að auka þátttöku kvenna í tæknigeiranum, hvaða áhrif fyrirmyndir hafa í þessum efnum og hvaða skref þarf að taka til þess að það beri árangur. Einnig ræddum við starfsánægju sem hefur mælst ótrúlega góð hjá þeim og þar skiptir miklu máli að upplýsa vel og að stjórnendur haldi vel utan um sitt fólk...2021-02-161h 07Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli22. Unnur María Birgisdóttir - GekoGestur þáttarins er hún nafna mín, Unnur, sem leiðir People Experience hjá Geko. Þetta fyrirtæki er heldur betur nýtt á nálinni en það var stofnað í febrúar 2020. Unnur brennur fyrir fjölbreytni á vinnustað, hvernig er hægt að vinna með svokallaðan bias á vinnustöðum þar sem aðal áherslan er að auka víðsýni til að geta verið opnari fyrir ólíku fólki og skoðunum á vinnustaðnum. Einnig ræðum við jafnréttismálin í þessu samhengi sem er mjög áhugaverð nálgun. Virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall. Þátturinn er í boði 50skills. 2020-12-2245 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli21. Guðmundur Pálmason - PromenntGestur þáttarins er Guðmundur Pálmason sem er eigandi og framkvæmdastjóri Promennt. Fyrirtækið sérhæfir sig í fræðslu í viðskiptagreinum, tölvu- og upplýsingatækni og hefur Guðmundur hefur starfað við upplýsingatækni í mörg ár og þekkir það af eigin reynslu hvernig best er að fræða, kenna og upplýsa svo góður árangur náist. Það mætti segja að Promennt sé langt á undan okkur í tæknilegri þróun en það eru að verða 10 ár síðan fyrirtækið byrjaði að bjóða upp á rafræn námskeið svo að þetta Covid tímabil kom þeim ekki úr jafnvægi...2020-11-1047 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli20. Sigríður Indriðadóttir - PósturinnGestur minn að þessu sinni heitir Sigga og er framkvæmdastjóri mannauðs hjá Póstinum. Við Sigga hittumst í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni og okkar helsta umræðuefni var meðvirkni í stjórnun og á vinnustöðum. Hún hefur mikla reynslu af því að vinna með meðvirkni og hefur meðal annars verið að halda fyrirlestra um málefnið. Hún segir að það skiptir miklu máli að vera hugrökk þegar takast á við meðvirkni og varpa ábyrgðinni á rétta staðin. Það að vera hugrökk þýðir þá að taka á málnunum á faglegan hátt og koma í veg fyrir svokall2020-10-211h 02Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli19. Gunnur Líf Gunnarsdóttir - SamkaupGestur þáttarins kom í heimsókn í Nóa Síríus-stúdíóið í Podcaststöðinni og heitir Gunnur Líf Gunnarssdóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum. Við Gunnur ræddum um öfluga vinnustaðamenningu hjá Samkaup, hvað liðsheildin er sterk og hversu mikilvægt það er að halda vel utan um starfsfólkið sitt. Hún tók við starfinu fyrir um tveimur árum og lagði strax mikla áherslu á að kynnast störfunum og fólkinu, fór hringinn í kringum landið og raðaði snakkpokum í hillur. Með þessu fannst henni tengslin styrkjast bæði við starfsfólkið og til þess að fá inn...2020-07-0353 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli18. Ásta Bjarnadóttir - LandspítaliGestur minn að þessu sinni heitir Ásta Bjarnadóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála á Landsspítalanum. Svona til þess að gefa ykkur góða mynd af því mannauðsstarfi sem fer fram á spítalanum þá starfa um 60 manns við ráðningar, stjórnendaráðgjöf, laun og önnur mál. Ásta hefur starfað nánast óslitið við mannauðsmál sem mannauðsstjóri, háskólakennari eða ráðgjafi á því sviði frá því að hún lauk doktorsprófi í vinnu- og skipulagsfræði frá Minnesotaháskóla í Bandaríkjunum haustið 97. Starfið á spítalanum er viðamikið og ræðum við meðal annars hvernig miðlæg mannauðsþjónusta...2020-05-131h 17Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli17. Helgi Héðinsson - Líf og sálHann heitir Helgi og starfar sem sálfræðingur á Líf og sál sálfræðistofu. Helgi starfar mikið með íþróttafólki í sinni vinnu og við ræddum meðal annars hvernig hóp íþróttir geta endurspeglað teymi á vinnustöðum. Við ræddum einnig Meeto byltinguna og þar komum við inná hvernig hún hefur breytt samfélaginu til hins betra, hvernig tímarnir voru fyrir byltinguna, eftir hana og stöðuna í dag. Hvað það er sem stjórnendur þurfa að taka með sér og læra á þessari byltingu eða eins og Helgi orðaði það “stjórnendur eru orðnir soldið stressaðir”...2020-03-231h 14Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli16. Guðrún Snorradóttir - StjórnendamarkþjálfiGestur þáttarins er Guðrún Snorradóttir. Hún starfar sem stjórnendamarkþjálfi og er nýbúin að opna eigin heimasíðu sem heitir gudrunsnorra.com. Spjallið okkar Guðrúnar einkenndist af því hverjir eru styrkleikar stjórnenda, hvernig mannlegi þátturinn er grundvöllur í árangri þeirra og hvernig kynslóðabilið getur haft áhrif á aðferðir stjórnenda til þess að ná árangri með sína starfsmenn. Svo töluðum við um hvað framtíðin ber í skauti sér hvað varðar störf, teymisvinnu og aðrar mannauðstengdar áherslur sem eru að ryðja sér til rúms í dag. Þátturinn er í boð2020-03-0359 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli15. Steinar Þór Ólafsson - SkeljungurHann heitir Steinar Þór er markaðsstjóri Skeljungs. Hann er ekki  sérfræðingur í mannauðsmálum en undanfarið hefur hann komið fram með skemmtilegar pælingar sem tengjast vinnustöðum og ástæða þess að ég vildi fá hann í spjall er sú að hann hefur verið að setja fram ýmsar pælingar sem flestir hugsa um en enginn þorir að segja upphátt. Við ræddum vinnustaðamenninguna, gildi, tölvupóstinn, fyrirtæki sem fjölskyldur og svo margt fleira. Við ræddum truflina sem getur verið svo mikil þegar maður reynir að einbeita sér að verkefnum og hvort að það væri kannski bara...2020-02-121h 18Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli14. Sigurjón Þórðarson - CapacentSigurjón starfar sem ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun hjá Capacent. Sigurjón segir okkur skemmtilega sögu frá því hvernig hann byrjaði að sinna hópeflisstarfi og ráðgjöf til fyrirtækja. Hann hefur mikla reynslu á þessu sviði og við ræddum meðal annars hvaða styrkleika stjórnandi þarf að hafa. Stefnumótun er einnig ofarlega í huga Sigurjóns og þar fórum við yfir helstu atriði sem eru mikilvæg ef það verkefni á að heppnast vel.2020-01-2159 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli13. Rúna Magnúsdóttir - The Change MakersRúna er rithöfundur, fyrirlesari, umbreytingamarkþjálfi, stofnandi The Change Makers og svo stofnaði hún líka vitundarvakninguna No More Boxes. Hún er ótrúlega orkumikil, algjör DO-er og kemur hugmyndum í framkvæmd. Virkilega skemmtilegt spjall um orkustjórnun, hvernig við getum haft áhrif á umhverfið okkar, konur í viðskiptum og svo afhverju og hvernig við setjum fólk alltaf í ákveðin box, hvort sem það eru status box eða kynja box. Þátturinn er í boði 50skills og Origo. 2019-12-131h 13Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli12. Ásdís Eir Símonardóttir - Orkuveita ReykjavíkurHún heitir Ásdís og er mannauðsráðgjafi hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ásdís hefur starfað í þessum bransa í nokkur ár og ætlar að miðla með okkur þeirri reynslu sem snýr að því að feta sín fyrstu fótspor í þessum bransa. Ásdís hefur verið dugleg að afla sér reynslu og starfar meðal annars sem varaformaður í Mannauði, sem er félag mannauðsfólks á Íslandi og var einnig kynnir á Mannauðsdeginum 2019. 2019-11-261h 04Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli11. Sigríður Elín Guðlaugsdóttir - Háskólinn í ReykjavíkHún er kölluð Ella Sigga og er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað í þessum bransa í þónokkur ár og þekkir þetta málefni vel. Hún er hreinskilin og talar opinskátt en með mikilli umhyggju. Við ræddum ferilinn hennar, þau verkefni sem hún hefur sinnt og svo auðvitað MeeTo byltinguna sem skiptir hana svo miklu máli. 2019-11-111h 12Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli10. Hafsteinn Bragason - ÍslandsbankiHafsteinn er mannauðsstjóri Íslandsbanka. Hann er ansi kunnugur þessum bransa, hefur starfað við mannauðsmál í um 20 ár. Við spjölluðum um þau verkefni sem hann og fleiri stóðu frammi fyrir í hruninu, hversu mikilvæg tengsl og samvinna er á milli mannauðsdeilda og stjórnenda og svo að auki helstu verkefni í hans daglega starfi.  Þátturinn er í boði Alfreð og Franklin Covey. 2019-10-231h 24Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli9. Guðrún Högnadóttir - Franklin CoveyGuðrún er framkvæmdastjóri hjá Franklin Covey og þekkir það vel að ná góðum árangri. Við tölum um ferilinn hennar og þau verkefni og störf sem hún hefur fengist við. Síðan er það hugmyndafræði Franklin Covey sem á hug hennar og hjarta. Í stuttu máli fjallar hugmyndafræðin þeirra um 7 venjur til árangurs þar sem lögð er áhersla á að efla einstaklinginn í að ná árangri bæði persónulega og í starfi - lykillinn að góðri forystu og leiðtogahæfni. 2019-10-101h 01Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli8. Víðir Ragnarsson - Orkuveita ReykjavíkurVíðir starfar sem sérfræðingur á mannauðssviði hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Víðir er sannkallaður talna- og greiningagúru og er með allt á hreinu þegar kemur að kynjagreiningum, greiningum á launamyndun, veikindagreiningum og síðast en ekki síst greiningu á ástæðum starfsloka. Það getur nefnilega reynst svo gagnlegt að hafa tölur fyrir framan sig sem segja til um stöðuna og vinna síðan út frá því. Fyrir áhugasama þá verður Víðir einmitt með erindi um þessi mál á Mannauðsdeginum sem verður haldinn í Hörpu þann 4. október n.k (2019). Hægt er að kaupa miða á viðburðinn á www.mannaudsfolk.is.2019-09-251h 12Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli7. Gestur Pálmason - Complete CoherenceGestur starfar hjá bresku fyrirtæki og sinnir þar verkefnum sem snúa að stjórnenda- og teymisþjálfun. Hann þekkir það vel að vera hluti af sterkri liðsheild og hefur getað nýtt þá reynslu sína vel við störf. Við fórum meðal annars yfir það hvaða eiginleika stjórnendur þurfa að hafa til þess að drífa verkefni áfram og hvernig er hægt að nýta kenningar og greiningar til þess að ná betri árangri. 2019-09-111h 30Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli6. Maríanna Magnúsdóttir - ManinoMaríanna Magnúsdóttir starfar sem umbreytingaþjálfari hjá Manino. Í þættinum förum við yfir það hvernig er hægt að ná árangri með teymi, hvernig hamingja á vinnustað hjálpar okkur að vera meiri DO-er og svo auðvitað hvernig Lean aðferðafræðin getur einfaldað okkur vinnulífið. 2019-08-281h 01Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli5. Kristján Kristjánsson - 50skillsKristján Kristjánsson er eigandi og stofnandi 50skills. Kristján segir margt hægt að nýta úr tækninni til þess að betrumbæta ferla í mannauðsmálum og þess vegna varð 50skills að veruleika. Fyrirtækið sérhæfir sig í einföldu og notendavænu ráðningarkerfi sem býður upp á fjölmarga möguleika til þess að nýta tímann betur við ráðningar starfsfólks. Einnig ræðum við frumkvöðla bakteríuna og hvernig þróunin hefur verið seinustu ár. 2019-07-291h 12Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli4. Katrín S. Óladóttir - HagvangurKatrín er framkvæmdastjóri Hagvangs. Hún hefur starfað við ráðningar og mannauðsmál í tugi ára. Ástríða hennar fyrir ráðningum skín í gegn og ásamt því að ræða um ráðningar þá fórum við yfir sögu Hagvangs, þjónustuna sem þau bjóða uppá og svo Siðferðisgáttina sem er nýtt verkefni hjá þeim og tengist Metoo byltingunni.  Þátturinn er í boði 50skills. 2019-07-111h 13Á mannauðsmáliÁ mannauðsmáli3. Árný Elíasdóttir - AttentusÁrný er einn af ráðgjöfum og eigendum Attentus. Árný hefur lengi starfað við kennslu og segir þá reynslu hafa nýst mjög vel í mannauðsráðgjöfinni. Hún brennur fyrir fræðslumálum og hefur sinnt þeim verkefnum hjá fjölmörgum fyrirtækjum, auk þess að sjá um stefnumótun hjá stofnunum og fyrirtækjum. 2019-06-2054 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli2. Jónína Guðmundsdóttir - WOW airJónína var framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá WOW air. Við fórum stuttlega yfir feril Jónínu sem spannar hátt í 15 ár og ræddum síðan starf hennar hjá WOW air. Þar komum við inná ráðningar, fræðslumál, markaðssetningu félagsins sem var algjör tía og svo auðvitað þessa geggjuðu vinnustaðamenningu sem varla hefur sést áður. 2019-05-2953 minÁ mannauðsmáliÁ mannauðsmáli1. Brynjar Már Brynjólfsson - Mannauður og OrigoBrynjar Már Brynjólfsson er formaður Mannauðs, sem er félag mannauðsfólks á Íslandi og verkefnastjóri á mannauðssviði hjá Origo. Við spjölluðum aðallega um félagið og vegferð þess ásamt því að fara stuttlega yfir hvað gott tengslanet skiptir miklu máli, hversu mikilvæg upplýsingatæknin er orðin og mátt breytingastjórnunar. 2019-04-291h 10