podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Alfa Framtak Ehf.
Shows
Alfa hlaðvarp
Dan Sullivan - Maðurinn sem mun lifa að eilífu
Við ákváðum að brjóta upp okkar tímabundnu pásu og taka upp þennan þátt. Þátturinn er með öðru sniði en vanalega þar sem viðmælandinn Dan Sullivan er ekki af íslensku bergi brotinn. Dan byggði upp fyrirtækið Strategic Coach ásamt eiginkonu sinni Barböru. Þau mynda frábært teymi þar sem hann hefur verið hugmyndasmiðurinn og hún hefur byggt reksturinn upp á þeim hugmyndum. Strategic Coach hjálpar fólki sem stundar viðskipti að ná betri árangri. Fyrirtækið hefur unnið með yfir 20 þúsund einstaklingum frá 46 löndum. Það má segja að Dan sé meis...
2020-07-10
57 min
Alfa hlaðvarp
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir - Einstök saga Actavis
Viðmælandi þessa þáttar, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir (eða Edda eins og hún er kölluð), hefur átt langan og farsælan feril sem einn af lykilstjórnendum í Actavis og forverum þess fyrirtækis, Pharmaco og Delta. Í viðtalinu lýsir Edda hvernig lyfjaframleiðsla varð til sem atvinnugrein á Íslandi og þróaðist í að verða einn af burðarstólpum atvinnulífsins. Fyrirtækin Pharmaco og Delta voru leiðandi í þeirri uppbyggingu en þau fyrirtæki byrjuðu sem eitt, slitu svo samvistum en tóku aftur saman 2002 og breyttu síðan nafninu í Actavis. Á árunum 19...
2020-03-13
1h 08
Alfa hlaðvarp
Jón Björnsson - Sigurvegarinn í smásölunni
Gestur þessa þáttar, Jón Björnsson, hefur verið í leiðandi hlutverki við umbreytingu á tveimur stærstu smásölufyrirtækjum landsins, Högum og Festi. Á milli þessara krefjandi verkefna þá tók Jón að sér að snúa við rekstri á krúnudjásni danskrar verslunar Magasin du Nord. Jón hóf vinnu hjá dótturfyrirtækjum Haga árið 1996 og vann sig svo upp í fyrirtækinu og varð framkvæmdastjóri þess árið 2002. Hann lýsir þeim dýnamíska kúltúr sem varð til í fyrirtækinu sem hefur alið af sér margt besta rekstarfólk í smásölu á Íslandi. Eftir 10...
2020-02-14
1h 42
Alfa hlaðvarp
Guðrún Hafsteinsdóttir - Kjörísdrottningin frá Hveragerði
Viðmælandi þessa þáttar er Guðrún Hafsteinsdóttir. Guðrún tók við sem forstjóri Kjörís aðeins 23 ára að aldri eftir að faðir hennar Hafsteinn Kristinsson, sem hafði stofnað og stýrt fyrirtækinu, varð bráðkvaddur aðeins 59 ára að aldri. Guðrún þurfti að leggja allar fyrirætlanir um háskólanám til hliðar og takast á við þetta krefjandi verkefni. Guðrún ásamt systkinum sínum og móður ákváðu strax eftir fráfall Hafsteins að reka fyrirtækið í minningu hans. Kjörís hefur verið rekið í 50 ár sem fjölskyldufyri...
2020-01-24
1h 18
Alfa hlaðvarp
Hjálmar Gíslason - Játningar raðfrumkvöðuls
Gestur þessa þáttar er Hjálmar Gíslason. Hann hefur stofnað fimm fyrirtæki á Íslandi. Fyrstu tvö þeirra Lon&Don og Maskína runnu saman við önnur fyrirtæki. Það þriðja Spurl.net var keypt af Já hf. sem var dótturfyrirtæki Símans hf. á þeim tíma. Það fjórða Datamarket var svo selt til erlenda fyrirtækisins Qlik á 1,6 milljarð króna. Sú sala var valin viðskipti ársins af Fréttblaðinu árið 2014. Í viðtalinu fer Hjálmar yfir alla þessa sögu og deilir því helsta sem hann hefur lært á leiðinni. Við ræðum m.a. um mikilvægi sölu- og markaðsmál...
2020-01-10
1h 26
Alfa hlaðvarp
Jón Sigurðsson - Sveitastrákurinn með stóru draumana
Gestur þáttarins er Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf. Jón er að eigin sögn slugsi frá Selfossi og móðir hans óttaðist að hann myndi aldrei áorka neinu. Jón féll bæði á gagnfræðiprófi sínu sem og inntökuprófi í rafvirkjanám. Eftir frekar stefnulausa siglingu í gegnum lífið þá kviknaði á metnaðinum hjá Jóni. Hann fór aldrei í menntaskóla en tókst með sínum leiðum að ná sér í tvær háskólagráður, í Danmörku og Bandaríkjunum. Jón varð síðan viðskiptafulltrúi Íslands í New York þar sem hann kynnt...
2019-12-06
1h 13
Alfa hlaðvarp
Alfa Messan með Sesselju Vilhjálmsdóttur og Steinari Þór Ólafssyni
Í þessum þætti af Alfa Messunni fáum við til okkar tvo góða gesti þau Steinar Þór Ólafsson og Sesselju Vilhjálmsdóttur. Steinar er markaðsstjóri Skeljungs og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir virka umræðu um viðskipti á LinkedIn. Sesselja hefur komið að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja og vinnur nú hjá tækni- og fjárfestingarbankanum Bryan, Garnier & Co. Sesselja framleiddi einnig myndina Startup Kids sem hlaut mikla útbreiðslu um allan heim. Í þættinum ræða Gunnar og Rakel hjá Alfa við Steinar og Sesselju um það markverðasta í þáttum 4-7 af Alfa hlaðvarpinu. Það voru viðtölin við A...
2019-11-22
54 min
Alfa hlaðvarp
Liv Bergþórsdóttir - Nova og Wow: Árangur, mistök og hlutverk heppninnar
Liv Bergþórsdóttir hefur verið einskonar ofurkona í íslensku viðskiptalífi undanfarinn áratug. Hún stofnaði fjarskiptafyrirtækið Nova ásamt Jóakimi Reynissyni og Novator. Félagið hóf starfsemi korter í kreppuna sem kom árið 2008. Nova réri lífróður og tapaði hundruðum milljóna króna fyrstu starfsár sín í baráttu við risana á markaðnum, Símann og Vodafone. Liv, sem forstjóri félagsins, hafði skýra sín á hvað skipti máli til að ná árangri. Úthugsuð viðskiptaáætlun, fjögur skýr markmið, réttar ráðningar og mögnuð markaðssetning.
2019-11-08
1h 24
Alfa hlaðvarp
Sigurlína Ingvarsdóttir - Bakvið tjöldin hjá Star Wars, FIFA og EVE Online
Það er líklega enginn Íslendingur sem hefur komið að gerð fleiri vinsælla tölvuleikja en viðmælandi okkar í þessum þætti hún Sigurlína Ingvarsdóttir. Þetta ferðalag hefur tekið hana frá Reykjavík til Malmö, Stokkhólms, Vancouver og núna Los Angeles. Flestir hafa eflaust spilað einhvern tölvuleik sem Lína hefur komið að hönnun á. Vegferðin hófst hjá CCP en svo dróst hún til fyrirtækisins Dice þar sem hún fékk tækifæri lífs síns að þróa tölvuleikinn Star Wars Battlefront. Þar vann hún ná...
2019-10-25
1h 14
Alfa hlaðvarp
Andri Þór Guðmundsson - Úr 3 í 18 milljarða með myndrænni markmiðasetningu
Hvernig umbreytir þú rótgrónu framleiðslufyrirtæki í árangursdrifið sölu og markaðsfyrirtæki? Viðmælandi okkar í þessum þætti er arkitektinn á bak við undraverðan árangur Ölgerðarinnar. Tekjur Ölgerðarinnar hafa vaxið úr þremur í átján milljarða undir hans stjórn og arðsemi aukist. Viðmælandinn er Andri Þór Guðmundsson og er forstjóri félagsins. Hvernig breyttist popp og kók í popp og pepsí? Hvað gerðist eiginlega? Andri trúir á lýðræðislegt einræði og lýsir því betur í viðtalinu. Hann kann þá list að setja stór markmið og virkja fólk...
2019-10-11
1h 09
Alfa hlaðvarp
Alfa Messan með Andrési Jónssyni og Öldu Sigurðardóttur
Þessi þáttur er ekki með hefðbundnu sniði. Þátturinn ber heitið Alfa Messan og í honum er farið yfir það markverðasta sem kom fram í fyrstu þremur þáttum Alfa hlaðvarps. Til þess að gera það hafa þau Gunnar Páll Tryggvason og Rakel Guðmundsdóttir hjá Alfa Framtak fengið til sín tvo góða gesti, Öldu Sigurðardóttur og Andrés Jónsson. Þau fylgjast vel með í íslensku viðskiptalífi og eru bæði með eigin rekstur. Alda er stjórnendaþjálfari og rekur fyrirtækið Vendum. Andrés Jónsson er almannatengill og hausaveiðari og rekur fyr...
2019-09-27
53 min
Alfa hlaðvarp
Haraldur Þorleifsson - Í hjólastól upp á toppinn
Hvernig er hægt að vera fullur í fimm ár, taka sig svo saman í andlitinu, og á næstu 5 árum búa til eitt flottasta fyrirtæki landsins? Viðmælandi þessa þáttar Haraldur Þorleifsson þekkir það af eigin raun. Hann deilir hér með okkur sinni átakanlegu sögu. Haraldur er lítið þekktur á Íslandi, en er orðin einskonar rokkstjarna erlendis á sínu sviði. Það þarf ekki annað en að googla nafnið hans til að komast að því. Hönnunarfyrirtæki Haraldar, Ueno, veltir um 2,5 milljarði króna og komst nýlega á lista Inc. í Bandaríkjunum yfir þau fyrirtæ...
2019-09-13
54 min
Alfa hlaðvarp
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir - Úr fótboltalandsliðinu í fjármálastýruna
Gestur þáttarins er Eva Sóley Guðbjörnsdóttir. Eva er í dag fjármálastjóri Icelandair Group og var þar á undan fjármálastjóri Advania, eins stærsta upplýsingatæknifyrirtækis landsins. Hún hefur einnig verið varaformaður bankaráðs Landsbankans og í stjórn Skeljungs.Eva var ung komin á ábyrgðarstöður og aðeins 28 ára gömul var hún gerð að fjármálastjóra Kaupþings eftir hrun bankans. Þar þurfti hún að eiga við ágenga erlenda kröfuhafa sem svifust einskis til að hafa upp á henni og ná fram sínum hagsmunum.Eva starfaði einnig...
2019-08-30
52 min
Alfa hlaðvarp
Gummi Hafsteins - Maðurinn sem Google varð að fá
Gestur þessa þáttar er Guðmundur Hafsteinsson. Á sínum magnaða ferli hefur Gummi starfað hjá tveimur verðmætustu fyrirtækjum heims, Google og Apple. Þar stýrði hann m.a. vöruþróun á Siri og Google Maps. Gummi stofnaði síðan sjálfur fyrirtæki sem síðar var keypt af Google og er í dag orðið Google Assistant. Yfir 1 milljarður tækja sem byggja á Google Assistant tækninni hafa verið seld í heiminum í dag. Gummi hefur bókstaflega unnið við að búa til framtíðina okkar síðan árið 2005. Í viðtalinu ræðum við m.a. hvað Gummi hefur lært af því...
2019-08-14
1h 25