Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Bændablaðið

Shows

Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsFæðuöryggi #5 Heimaræktun og sjálfbærni - Dagný og Sigurður á SkyggnissteiniDagný Guðmundsdóttir og Sigurður Jónsson eru viðmælendur Guðrúnar Huldu í þessum þætti um Fæðuöryggi. Efni þáttarins snýr að fæðuöryggi einstaklingsins og heimilisins. Í viðtali við Bændablaðið árið 2017 fjalla þau um vegferð sína að því líferni sem þau hafa tileinkað sér, sem snýst meðal annars um um að safna, rækta og vinna úr matvælum úr landskika sínum, Skyggnissteini í Bláskógabyggð. Viðtal við hjónin á Skyggnissteini: https://www.bbl.is/frettir/aetigardur-i-uppsveitunum Þau hafa einnig verið að deila þekkingu sinni á ýmsan hátt, m...2021-06-2447 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #28 - 8. apríl 2021Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr spjallar við Pétur Jóhann Sigfússon sem hefur marga fjöruna sopið. Þeir ræða um sveitastörf að fornu og nýju, fyrirgreiðslupólitík af gamla skólanum, pikkalóstörf Péturs Jóhanns á Hótel Sögu og um svæsin mígrenigöst Jóns sem hafa dregið dilk á eftir sér. Að sjálfsögðu sitja þeir í hljóðstofu með Bændablaðið fyrir framan sig sem kveikir ótal hugmyndir og hugrenningatengsl hjá þessum gömlu vinum.2021-04-091h 47Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsÍ fréttum er þetta helst 4. tbl. 2021Um leið og Bændablaðið kemur út renna blaðamennirnir Vilmundur Hansen og Erla Gunnarsdóttir yfir helstu efnistök þess. Hér er rætt um 4. tbl. 2021 sem kom út 25. febrúar.2021-02-2620 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #10 – Stefanía Bjarney - 9. nóvember 2020Í þættinum ræðir Alma Dóra við eina af sínum helstu fyrirmyndum úr nýsköpunarheiminum, Stefaníu Bjarneyju Ólafsdóttur. Stefanía er meðstofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Avo sem hefur verið að gera frábæra hluti undanfarið og er, meðal annars, fyrsta íslenska fyrirtækið til að vera valið til þáttöku í Y Combinator. Stefanía sagði frá sinni vegferð og upplifuninni af Y Combinator. Auk þess ræddu þær hvernig er að skipta um stefnu í miðri sprotavegferð, mikilvægi þess að forðast hlutdrægni við ráðningar og rússíbanann sem það er að koma sprotafyri...2020-11-0934 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsÍ fréttum er þetta helst 21. tbl. 2020Erla Hjördís Gunnarsdóttir og Vilmundur Hansen fletta nýjasta tölublaði Bændablaðsins og ræða efnistök þess. Á góma bera skordýraeitur í innfluttu grænmeti, lógun minnka vegna Covid-19, rófuræktun í Árborg, frostþurrkað skyr, makríll, sviðsmyndagreining í ferðaþjónustu, riðuveiki, Crispr-jarðarber, nýsköpun á borð við prjónareiknivél og frumuræktun á suðrænum ávöxtum, negulpipar, ársfundur Landssambands kúabænda, vélabásinn og smáauglýsingarnar sívinsælu.2020-11-0614 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – #6 – Ísland stefnulaust í lífrænni framleiðsluÍsland stendur norrænum þjóðum mun aftar þegar kemur að lífrænni framleiðslu og hefur ekki sett sér nein langtíma markmið í þessum efnum. Þetta kemur fram í markaðsgreiningu sem unnin var á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og kom út í ár. Berglind Häsler, umsjónarmaður Hlaðvarps Havarí rýnir í skýrsluna í þessum 6. þætti um lífræna framleiðslu.2020-11-0213 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #17 - Aðlögun plantna að vetri – 30. október 2020Aðlögun lífvera að kulda er margbreytileg. Farfugla leggja á sig langt og erfitt flug á suðlægari slóðir. Sum spendýr liggja í dvala yfir vetrarmánuðina, önnur safna vetrarforða eða þreyja þorrann og góuna. Gróðurinn getur aftur á móti ekki tekið sig upp og flutt á hlýrri stað á haustin, hann er fastur í jörðinni og verður því að aðlagast umhverfi sínu á öllum árstímum til að að lifa af. Viðkvæmustu garðplöntunum þarf að skýla yfir vetrarmánuðina. Vilmundur Hansen fjallar um aðlögun plantna að vetri á sinn margrómaða2020-10-3017 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #21 - 27. október 2020Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr er mættur með 21. tölublað Bændablaðsins við hönd. Honum er lögreglan hugleikinn í dag, enda sjálfur sonur lögregluþjóns. Innfluttar lífverur, auðlindir hafsins og sláturgerð bera einnig á góma.2020-10-271h 46Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #9 – Salome - 26. október 2020Í þættinum ræðir Alma Dóra við Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups. Hún sagði henni frá því hvernig þau styðja við fjölbreytta frumkvöðla á fjölbreytta vegu, og þá sérstaklega í gegnum að tengja og hraða sprotafyrirtækjum. Einnig ræddu þær viðskiptahraðlana sem þau bjóða upp á og frumkvöðlakeppnina Gulleggið. Ölmu Dóru grunaði að sjálfsögðu ekki í sumar þegar viðtalið var tekið upp, að þegar það kæmi út væri hennar eigið teymi, HEIMA, ný búið að sigra Gulleggið 2020. Hægt er að hafa samband við Icelandic S...2020-10-2626 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #6 – Jói í Ostabúðinni - 21. október 2020Nýr þáttur í hlaðsvarpsþættinum Máltíð er kominn í loftið. Svo sannarlega hristur en ekki hrærður. Gestur Hafliða Halldórssonar að þessu sinni er matreiðslumaðurinn Jóhann Jónsson sem fleiri þekkja sem Jóa í Ostabúðinni.  Jói er einn frumkvöðla í hópi veitinga-og verslunarmanna við Skólavörðustíg sem hafa haldið merki Kjötsúpunnar á lofti um árabil. Kjötsúpan fær sviðsljósið ásamt stuttu spjalli um ferilinn og framtíð Jóa í rekstri. Leynigestur þáttarins var jarðskjálftinn á mínútu 22:30 sem allt og alla hristi 20. október síðastliðinn upp á 5,6 á Richter.2020-10-2124 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #8 – Þorbjörg Helga - 20. október 2020Í þætti dagsins kemur hún Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, og ræðir við Ölmu Dóru. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Í þættinum ræðir Þorbjörg sína vegferð, uppbyggingu og fjármögnun Köru og áskoranir sem margir kvenfrumkvöðlar ættu að kannast við.2020-10-2031 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #16 – Haustplöntur - 15. október 2020Hægt er að lengja sumarið með því að skipta sumarblómunum út fyrir harðgerðar haustplöntur, til dæmis litríkt lyng eða sígræna sýprusa. Haustplöntum er hægt að planta í ker eða beint út í beð, allt eftir aðstæðum. Allar þessar plöntur standa fram í frost og margar geta lifað veturinn af sé þeim skýlt og þær vökvaðar reglulega í þíðu. Vilmundur Hansen garðyrkjumógúll fer yfir sniðugar haustplöntur og umönnun þeirra í þessum þætti.2020-10-1523 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #20 - 14. október 2020Hver er munurinn á vírus og bakteríu? Jón ræðir plebbaskap, músíkalska anhedoníu, grímnotkun og margt fleira í þætti dagsins.2020-10-141h 47Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #7 – Huld - 13. október 2020Huld Magnúsdóttir hefur átt í áralöngu sambandi við nýsköpun og starfar nú sem framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins. Hún kom í viðtal til Ölmu Dóru og ræddi sína vegferð, starf sjóðsins og hverju þau leitast eftir í fjárfestingartækifærum. Einnig spjölluðu þær um mikilvægi fjölbreytni, fyrirmynda og jafnvægisins þegar man sinnir krefjandi störfum. Hægt er að fræðast um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins á www.nyskopun.is og lesa skýrslu Nordic Innovation um konur í nýsköpun sem Huld minnist með því að smella hér.2020-10-1327 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #6 – Edda og Melkorka - 9. október 2020Edda og Melkorka eru stofnendur Nýsköpunarvikunnar sem haldin er í fyrsta skiptið haustið 2020. Þær mættu í stúdíóið til Ölmu Dóru og deildu með henni sögum úr sinni vegferð, hvernig Nýsköpunarvikan kom til, hvað sé á dagskránni og hvaða væntingar þær hafa til næstu ára. Einnig eru þær báðar vel sjóaðar úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi og deildu sínum bestu ráðum til frumkvöðla. Ég mæli með að kíkja á www.nýsköpunarvikan.is fyrir streymi af þeim fjölmörgu viðburðum sem eru á dagskránni. Einnig má nálgast frekari 2020-10-0926 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #5 – Guðrún Tinna - 6. október 2020Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, stjórnarformann Svanna lánasjóðs. Svanni lánar fyrirtækjum sem stofnuð og leidd eru af konum án þess að frumkvöðlarnir þurfi að gefa veð, til dæmis í fasteign eða öðrum eignum heimilisins. Tinna segir okkur frá sinni eigin frumkvöðlavegferð, starfsemi og framtíðaráherslum Svanna og deilir sínum helstu lyklum í frumkvöðlastörfum. Hægt er að kynna sér starfsemi Svanna betur á www.atvinnumalkvenna.is2020-10-0632 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – #5 – Anna María Björnsdóttir – danska leiðinHvergi í heiminum er hlutfall lífrænna afurða hærra í stórvöruverslunum og í Danmörku. Þetta er engin tilviljun heldur liggur að baki 30 ára markviss vinna í þessa átt, vinna sem hefði ekki skilað jafngóðum árangri ef stjórnvöld hefðu ekki markað sér stefnu í þessum efnum, fyrst allra þjóða. Danmörk var líka fyrsta landið í heiminum til að setja sér stefnu um að opinber mötuneyti ættu að nota 60% lífrænar afurðir. Vegna þessa er Danmörk orðin þekkt og virt matvælaþjóð, þekkt fyrir hágæða mat sem seldur er um heim allan. Fleira spilaði i...2020-10-0537 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #19 - 1. október 2020Saga, heyrn, fæðuöryggi, gæludýrafóður og nagladekk eru meðal umræðupunkta Jóns í Kaupfélaginu í dag auk þess sem heimspekingurinn Wittgenstein er honum hugðarefni um þessar mundir. Hann flettir sem endranær nýju tölublaði Bændablaðsins í leiðinni.2020-10-011h 37Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #4 – Ásdís - 29. september 2020Ásdís Guðmundsdóttir er gestur Ölmu Dóru í þessum þætti, en hún er verkefnastýra Atvinnumála kvenna. Ásdís sagði frá styrkjunum sem þau veita, lýsti ferlinu og gaf ráð til þeirra sem hafa hug á að sækja um styrki. Ásdís hefur unnið með fjölda frumkvöðla í gegnum árin og hefur margar góðar sögur sem gaman er að.  Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um atvinnumál kvenna á www. atvinnumalkvenna.is 2020-09-2932 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #15 – Haustlaukar - 25. september 2020Vilmundur Hansen fjallar um haustlauka í þætti dagsins af Ræktaðu garðinn þinn á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins. Haustið er rétti tíminn til að undirbúa blómstrandi og litríkt vor með því að setja niður lauka af öllum gerðum. Laukarnir sem settir eru niður á haustin eru margir fyrstu vorboðarnir en aðrir eru að blómstra fram á mitt sumar.2020-09-2535 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #3 – Jenny Ruth - 22. september 2020Í þessum þætti spjallar Alma Dóra við Jenný Ruth Hrafnsdóttur, meðstofnanda Crowberry Capital. Crowberry er íslenskur vísissjóður sem fjárfestir í tæknidrifnum nýsköpunarfyrirtækjum sem eru snemma á sínum lífsferli. Jenný sagði frá sínu starfi hjá Crowberry, vegferðinni sem leiddi hana þangað og sínum hugleiðingum um nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Frekari upplýsingar um Crowberry er hægt að finna á www.crowberrycapital.com2020-09-2232 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #2 – Gréta María - 17. september 2020Viðmælandi Ölmu Dóru í þessum þætti er Gréta María, stjórnarformaður Matvælasjóðs sem er einn af nýjustu sjóðum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Gréta ræddi sína vegferð og þá reynslu sem hún tekur með sér inn í starf sjóðsins og deildi sínum bestu ráðum til frumkvöðla og þeirra sem hyggjast sækja um í Matvælasjóð. Auk þess sagði hún frá upplagi sjóðsins og þeim markmiðum og aðgerðum sem stjórnin hefur sett af stað til að stuðla að jöfnum tækifærum kynjanna. Hægt er að fin...2020-09-1728 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #14 – Blómaval 50 ára - 15. september 2020Vilmundur Hansen ræðir við Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóra verslunarsviðs Húsasmiðjunnar og Blómavals, um sögu, samtíð og framtíð Blómavals.2020-09-1520 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun #1 - Þórdís Kolbrún - 14. september 2020Í byrjun sumars sat Alma fyrir Þórdísi Kolbrúnu, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til að gulltryggja sér viðtal við hana fyrir þinglok. Það reyndist þó vera algjör óþarfi þar sem hún var meira en til í að vera með. Í þættinum ræða þær hvernig Þórdís varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar, áhrifafólkið í hennar vegferð og nýsköpunarlandið Ísland 2030.2020-09-1431 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKonur í nýsköpun - kynningAlma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, jöfn tækifæri, fjölbreytni og valdeflingu kvenna til nýsköpunar. Verkefnið er hýst af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Sumarið 2020 fékk Alma Dóra Ríkarðsdóttir (að eigin sögn) besta sumarstarf sem nokkur viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði gæti óskað sér. Á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna rannsakaði hún stöðu og valdeflingu kvenna til nýsköpunar hjá atvinnuvega- og nýsk...2020-09-1402 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #18 - 11. september 2020Hlustendur Hlöðunnar geta nú hlýtt á nýjan þátt Kaupfélagsins sem ávallt opnar við útgáfu á nýju tölublaði Bændablaðsins. Að vanda gerir Jón Gnarr fjölbreytt málefni að umtalsefnum sínum um leið og hann flettir í gegnum blaðið. Ræðir hann m.a. um lausagöngu hunda, óorð íslenskunnar, stigvél, skáld og skógrækt, kirkjugarða og nýja jeppa. Ætli þú finnir ljóðabók í rekka smáframleiðenda í Krónunni á Granda?2020-09-111h 31Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #17 - 20. ágúst 2020Jón Gnarr er kominn úr sumarleyfi og hleður í Kaupfélagsþátt í tilefni útgáfu nýs Bændablaðs. Umfjöllunarefnið er meðal annars kannabisræktun í Kaliforníu og réttarstörf haustsins hér á Fróni. „Það er enn eitt reiðarslagið, það er búið að banna gestum að taka þátt í réttum!“ segir Jón þegar hann les forsíðufréttina og segir frá því að laganna verðir muni gæta þess að eingöngu bændur og þeir sem eigi fjárvon sé heimilt að taka þátt í réttarstörfunum þetta árið vegna kórónuveirufársins. „Þetta er ákveðin haustgleði, tækifæri...2020-08-2055 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #16 - 21. júlí 2020Jón Gnarr hefur frá mörgu að segja í þessum Kaupfélagsþætti. Hundurinn Klaki er með honum og hlustar á húsbónda sinn vaða á súðum, þann mikla „meistara útúrdúranna og guðföður langlokunnar“ eins og hann segir sjálfur. Tvennt er á dagskrá – frásögn af ferðalögum um landið ásamt svæsinni sjúkrasögu Jóns sem betur fer fær farsælan endi. „Ég er alltaf jafn hissa á því að fólk hafi gaman af því að hlusta á svona röfl,“ segir þáttastjórnandinn þegar hann kveður hlustendur sína eftir tæplega tveggja klukkustunda hugvekju.2020-07-221h 45Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #15 - 1. júlí 2020Gasprarinn og rauparinn Jón Gnarr, eins og hann kynnir sjálfan sig, ræðir við hlustendur um allt milli himins og jarðar í Kaupfélaginu. Jón er á faraldsfæti eins og þorri landsmanna en fjallar engu að síður um fjölbreytt hugðarefni, meðal annars heimspeki og Þórberg Þórðarson, stangaveiði og erfiðar minningar. Þá fá læknaritarar sitt pláss í þættinum að þessu sinni.2020-07-221h 29Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #13 – Liljur - 21. júlí 2020Vilmundur Hansen fjallar um liljur í hlaðvarpsþættinum Ræktaðu garðinn þinn. Liljur eru fagurblómstrandi plöntur sem vaxa upp af laukum og tengjast þær menningu og mataræði þjóða víða um heim. Margar tegundir og hundruð yrkja eru í ræktun og sum þeirra dafna ágætlega hér á landi. Algengasta lilja í íslenskum görðum er eldlilja sem er appelsínugul og með dökkum dröfnum.2020-07-2117 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #12 – Drukkna hjákonan - 8. júlí 2020Vilmundur Hansen fjallar um bóndarósir, sögu þeirra og ræktun. Bóndarósir eru yfirleitt auðveldar í ræktun eftir að þær hafa komið sér fyrir. Plantan er langlíf og líður best ef hún fær að standa lengi óhreyfð á sama stað.2020-07-0817 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #14 - 26. júní 2020Jón Gnarr kaupfélagsstjóri hefur skoðun á öllu mögulegu og ómögulegu. Nú fjallar hann m.a. um viðhorf til dýra, lúsmý og íslenskt mál. 2020-07-021h 56Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #13 - 23. júní 2020Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr dregur ekki af sér að segja frá því sem hefur á daga hans drifið síðustu vikur. Boltaleikur við hundinn Klaka dró dilk á eftir sér eins og Jón rekur ítarlega í nýjasta hlaðsvarpsþætti Kaupfélagsins. „Ég er hérna með tvö þéttskrifuð blöð með punktum,“ sagði Jón þegar hann hlammaði sér í kaupfélagsstjórastólinn í hlaðvarpsstúdíói Bændablaðsins, lúinn eftir inntöku verkjalyfja, bakmeiðsli og liðskrið síðustu vikna.2020-06-231h 18Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #12 - Kormákur - 19. júní 2020Nýsköpun í ferðaþjónustu er áframhaldandi viðfangsefni í hlaðvarpsþættinum Víða ratað með Sveini Margeirssyni. Kormákur Hermannsson er framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Basecamp Iceland. Hann hefur langa reynslu af nýsköpun og hefur byggt upp Basecamp Iceland frá árinu 2014. Fyrirtækið vinnur um allt land og hefur m.a. unnið mikið að því að bæta upplifun ferðamanna af norðurljósum. Vöruþróun hefur frá upphafi skipað veglegan sess í þróun Basecamp Iceland og fjallar Kormákur m.a. um þá vöruþróun í samhengi landbúnaðar.2020-06-2249 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #11 – Berin best úr eigin garði - 18. maí 2020Í þessum þætti fjallar Vilmundur Hansen um ber. Ber eru góð á bragðið, það er gaman að rækta þau og það er auðveldara en marga grunar. Flestar berjaplöntur gefa betur af sér séu þær ræktaðar í frjósömum og deigum jarðvegi sem blandaður hefur verið með lífrænum áburði og á sólríkum og skjólgóðum stað. Ber úr eigin garði eru góð í munninn beint af plöntum eða í saft, sultur og til víngerðar.2020-06-2225 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #11 - Rusticity - 12. júní 2020Sveinn Margeirsson ræðir við Nönnu K. Kristjánsdóttur og Gilles Tasse hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Rusticity, sem býður upp á sérfræðiráðgjöf og innleiðingu á nýjum snjalllausnum á rekstrar- og skráningarkerfum fyrir bændur.2020-06-1227 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #10 – Grasið í garðinum - 9. júní 2020Fátt er yndislegra en ilmurinn af nýslegnu grasi á fallegum sumardegi. Til þess að grasflötin verði falleg þarf hún góðan undirbúning, áburð og umhirðu. Grasflöt í paradís er lávaxin og hægvaxta, þekur vel og hefur þétt rótarkerfi og grænkar snemma á vorin. Hún sölnar seint á haustin og hefur fallegan dökkgrænan lit. Vilmundur Hansen fjallar um gras í 10. þætti af Ræktaðu garðinn þinn í Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins.2020-06-0917 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #12 - 27. maí 2020Það er margt sem Jóni Gnarr liggur á hjarta í hvítasunnuþætti Kaupfélagsins. Hundurinn Klaki mætir í stúdíóið og sefur á meðan húsbóndinn ræðir m.a. svefnleysi í Svíþjóð, íslensku forsetakosningarnar, bull, nauðsynlega nýliðun í sauðfjárrækt, ímynd hjúkrunarfræðinga og drykkjusiði landans.2020-05-292h 35Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #6 - Bryndís Marteinsdóttir og Grólind - 25. maí 2020Bryndís Marteinsdóttir verkefnastjóri er viðmælandi Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Bryndís stýrir verkefni sem nefnt er GróLind. Bryndís og samstarfsfólk hennar er að leggja lokahönd á fyrsta stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Stöðumatið byggir á rofkortlagningu RALA og Landgræðslunnar og vistgerðaflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands og verður kynnt opinberlega í næsta mánuði. Bryndís segir að í þessu fyrsta mati verði fyrirliggjandi upplýsingar notaðar til að meta ástand auðlindanna. Þrátt fyrir að matið sé á grófum kvarða mun það gefa ágætis...2020-05-2527 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #5 – Árni Bragason - 20. maí. 2020Árni Bragason landgræðslustjóri er viðmælandi í fimmta hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Í viðtalinu ræðir Árni m.a. um það hvers vegna Ísland er eitt vistfræðilega verst farna land Evrópu. Þá talar Árni um loftslagsmarkmiðin og jarðvegseyðinguna sem er alvarlegasta ógnin sem blasir við mannkyni, en uppskerutap vegna hennar er gríðarlegt. Hlutverk sveitarfélaga kemur til umræðu og breytt landnotkun. Í framhaldi af því fjallar Árni um friðun lands og þátt landeigenda/bænda. „Við eigum bara eina jörð og ef við umgöngumst hana ekki með sjálfbærum hætti fer illa. Það er enginn sem getur leyft...2020-05-2045 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #9 – Ævintýri garðálfanna - 20. maí 2020Í þessum níunda þætti Ræktaðu garðinn þinn fjallar Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur um sögu garðálfa sem eiga sér aldagamla hefð í Evrópu sem verndarar og frjósemistákn sem ætlað var auka uppskeruna. Vinsældir garðálfa sem garðskraut á Íslandi fara eftir tískustraumum og annað hvort hatar fólk þá eða elskar.2020-05-2009 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkeggrætt með Áskeli Þórissyni - #5 – Ólafur Arnalds – 15. maí 2020Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, er gestur í hlaðvarpsþætti Áskels Þórissonar. Umræðuefnið er landnýtingarþáttur gæðastýringar í sauðfjárrækt. Ólafur segir íslenskt samfélag veita gríðarlegum fjárhæðum til sauðfjárræktar og að hluti hennar nái ekki lágmarksviðmiðunum gæðastýringarinnar. Um leið er slæm staða íslenskra vistkerfa einn helsti umhverfisvandi landsins. Fjármunum til sauðfjárbænda er beint í gegnum sérstakt greiðslukerfi þar sem hluti styrkjanna er háður því að framleiðslan standist ákveðnar gæðakröfur. Ólafur segir athuga...2020-05-1837 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #8 - Sumarblóm - 12. maí 2020Að þessu sinni fjallar Vilmundur Hansen um sumarblóm. Hvenær á að setja þau niður, undirbúning jarðvegsins og staðsetningu. Hann segir einnig frá því hvað sumarblóm eru há og hver eru lág, hver þeirra standa langt fram á haust, hver ilma mest og hver þeirra eru æt.2020-05-1221 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - # 11 - 8. maí 2020Jón Gnarr ræðir um lífsins gagn og nauðsynjar. Hefur kórónuveiran breytt Vesturlandabúum, er Miklatún gott nafn á túni og hvers geta ferðamenn vænst í mat og drykk þegar þeir ferðast um landið í sumar?2020-05-101h 51Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #4 - Tryggvi Felixson hjá Landvernd - 6. maí. 2020Tryggvi Felixson, formaður stjórnar Landverndar, er gestur Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Landvernd eru stærstu náttúruverndarsamtök Íslands. Samtökin voru stofnuð árið 1969. Þau eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Innan Landverndar eru 40 aðildarfélög um allt land en auk þess eru um 6.000 félagar í Landvernd. Tryggvi getur þess í samtalinu að afskipti Landverndar af loftslagsmálum megi rekja allt til ársins 2005 en þá var stofnaður sérstakur lofslagshópur sem sendi frá sér tillögur sem snertu m.a. sjávarútveg, samgöngur...2020-05-0642 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #10 - Hrífunes - 5. maí 2020Ferðaþjónustubændur um allt land horfa fram á gjörbreytta eftirspurn og þörf á nýsköpun. Hlaðvarpsþátturinn Víða ratað mun á næstu vikum horfa sérstaklega til nýsköpunar tengdri ferðaþjónustu. Sveinn Margeirsson tók hús á Höddu Gísladóttur og Snorra Haukssyni á Hrífunesi í Skaftafellssýslu á dögunum. Þar á bæ verður áherslan í sumar á að gefa Íslendingum kost á að upplifa náttúruperlur sem þeir hafa ekki aðgang að á hverjum degi, samhliða því að njóta matar úr héraði með alþjóðlegum blæbrigðum.2020-05-0523 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkeggrætt með Áskeli Þórissyni - #4 - Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir – 30. apríl 2020Tölur sýna að rekja má um helming allrar auðlindanýtingar og allt að 30-40% orkunotkunar og útblásturs til byggingariðnaðarins, sem gerir hann að þeim iðnaði sem losar mest af gróðurhúsalofttegundum á heimsvísu. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir ræðir þessi mál við Áskel Þórisson í þættinum "Skeggrætt. Þórhildur er framkvæmdastjóri Grænni byggðar sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar. Hér eru á ferð félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarmarkmiðs og starfa sem partur af alþjóðlega tengslanetinu World Green Building Council...2020-04-3037 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu – #4 – Sólveig Eiríksdóttir (Solla)Sólveig Eiríksdóttir, sem kölluð er Solla, hefur í áratugi talað fyrir lífrænni ræktun og lífrænum afurðum. Það sé einfaldlega betra fyrir umhverfi, menn og dýr. Solla er gestur Havarí hlaðvarpsins að þessu sinni, þáttar um lífræna ræktun og framleiðsu sem unninn er í samstarfi við VOR og Bændablaðið.2020-04-2928 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #7 - Kartöflur - 24. apríl 2020Að þessu sinni fjallar Vilmundur Hansen um þann þjóðlega sið að rækta kartöflur. Hann bendir meðal annars á að vegna stutts vaxtartíma er gott að forrækta kartöflur í fimm til sex vikur áður en útsæðinu er stungið í jörð.2020-04-2422 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #10 - 22. apríl 2020Í tíunda þætti Kaupfélagsins heldur Jón Gnarr því staðfastlega fram að það eigi að efla innlenda matvælaframleiðslu. Hann vill átak í því að bæta kjör og aðstæður garðyrkjubænda og segir nýjar reglur um innflutning á hampfræi alveg gráupplagðar. Að venju eru komið víða við og fátt sem er Jóni óviðkomandi. Hann rifjar upp tilraunir manna við innflutning á froskum og sauðnautum til Íslands og spyr hvort ekki séu sóknarfæri í því að rækta kanínur til manneldis. Flugvallarumræðan fær sitt pláss í þættinum og hugmyndir um nýjan flugvöll...2020-04-242h 16Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsÍ fréttum er þetta helst - #3 - Kórónuveiran í Noregi, Belgíu og Kúveit - 10. apríl 2020Bændablaðið sló á þráðinn til þriggja Íslendinga sem búa í Noregi, Belgíu og við Persaflóa, nánar tiltekið í Kúveit. Þó aðstæður séu ólíkar í þessum löndum er viðfangsefnið það sama – að þreyja þorrann og góuna þar til COVID-19 lætur undan. Rætt er um daglegt líf í skugga veirunnar og hvernig faraldurinn hefur haft áhrif á matvælageirann og landbúnað í löndunum þremur.2020-04-1052 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #5 - Gísli Matthías í Slippnum - 6. apríl 2020Gísli Matthías Auðunsson er viðmælandi Hafliða Halldórssonar í hlaðvarpsþættinum Máltíð. Gísli Matt, eins og hann er alltaf kallaður, hefur sett verulegt mark á veitingageirann þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur náð góðum árangri í rekstri og er þekktur fyrir frumleika og að sækja í rætur íslenskrar matarmenningar. Gísli er oftast kenndur við veitingahús sín: Slippinn í Eyjum og Skál á Hlemmi.2020-04-0657 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #9 - Fæðuöryggi og breytingar - 6. apríl 2020Umræða um fæðuöryggi Íslend­inga hefur vaknað í tengslum við COVID-19-faraldurinn. Viðbrögð við þeirri umræðu hafa eðlilega snúist um skammtímasjónarmið, en mikilvægt er að horfa til lengri tíma í þeim efnum. Sveinn Margeirsson fjallar um tíu breytingar sem eru að hans mati nauðsynlegar fyrir íslenska fæðuframleiðslu í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er.2020-04-0626 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #9 - 5. apríl 2020Jón Gnarr hefur dvalið á óðali sínu í Skorradalnum síðustu tvær vikurnar, fjarri öllu kórónufári í sjálfskipaðri útlegð frá höfuðstaðnum. Hann sætir lagi og mætir í hlaðvarpsstúdíó Bændablaðsins á milli apríllægða þar sem hann hleður í hnausþykkan páskaþátt. Jón ræðir um tvö mikilvæg hugðarefni sín: bílljósanotkun og landnám Íslands.2020-04-051h 42Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkörin - #3 - Freyja Þorvaldar ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson um landbúnaðarmál - 3. april 2020Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sest á Skörina með Freyju Þorvaldar í nýjum hlaðvarpsþætti. Umræðuefnið er landbúnaðarstefna Framsóknarflokksins og framtíð íslensks landbúnaðar. Þau fara um víðan völl og ræða meðan annars um tengingu Framsóknar við bændur í gegnum árin, innflutning á hráu kjöti, nýsköpun og menntun, eignarhald á landi, tengsl byggðastefnu og landbúnaðar og mótun matvælastefnu fyrir Ísland.2020-04-0330 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #6 - Áburður eykur grósku - 3. apríl 2020Vilmundur Hansen fjallar um áburðarnotkun í garðyrkju. Er munur á lífrænum og tilbúnum áburði og hvaða áhrif hafa mismunandi áburðarefni á gróðurinn?2020-04-0315 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #4 - Brynja Laxdal hjá Matarauð Íslands - 31. mars 2020Brynja Laxdal, verkefnastjóri Matarauðs Íslands, er gestur Hafliða Halldórssonar í hlaðvarpinu Máltíð. Matarauðurinn hefur þann megintilgang að draga fram sérstöðu íslensks hráefnis og matarmenningar. Í þættinum ræðir Brynja m.a. um fjölbreytta matvælaframleiðslu, nýsköpun og mikilvægi þess að við gerum okkur mat úr íslenskum hefðum og hráefni til að skapa okkur sérstöðu og aðgreiningu. Smáframleiðslu, heimboð til bænda og Reko-hópa á Facebook ber einnig á góma ásamt umræðu um vannýtt hráefni og tækifæri sem í þeim felast.2020-03-3146 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsÍ fréttum er þetta helst - #2 - Er fæðuöryggi okkar tryggt á tímum kórónuveirunnar? - 26.03.2020Við lifum á undarlegum tímum. Þjóðfélagið er að aðlagast nýjum raunveruleika, sem felur í sér lítinn sem engan samgang við annað fólk, sóttkví, jafnvel veikindi og almenna röskun á veruleikanum eins og við eigum að venjast honum. Eitt hefur þó ekki breyst - við þurfum að borða. Í skugga kórónuveirunnar berast fréttir af lokunum landamæra, hnökrum í vöruflutningum og yfirvofandi framboðsskorti í matvörubúðum. Við verðum kannski örlítið hrædd og förum jafnvel að hamstra. Í þessu innslagi er rætt við talsmenn tveggja mikilvægra hlekkja í framleiðslu...2020-03-2624 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu – #3 – Karen Jónsdóttir (Kaja) - 19. mars 2020Þriðji viðmælandi Berglindar Häsler er Karen Jónsdóttir sem á og rekur Kaja Organic á Akranesi. Karen tileinkaði sér lífrænan lífstíl þegar hún veiktist fyrir allmörgum árum.  Karen rekur eina kaffihús landsins sem vottað er lífrænt, þá er hún einnig heildsali, framleiðandi og frumkvöðull. Í þættinum fáum við að smakka fyrstu íslensku jurtamólkina – byggmjólk!2020-03-2538 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #8 - 20. mars 2020Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr er mættur í fjósagalla og gatslitinni lopapeysu í hljóðver Hlöðunnar, hlaðvarps Bændablaðsins. Hann er á persónulegu nótunum og ljóstrar meðal annars upp fyrir hlustendum kenningu móður sinnar um það hver væri fyrirmyndin að Georgi Bjarnfreðarsyni. Jón ræðir um fæðuöryggi og íslenskt mál eins og í fyrri þáttum og hringir í landsfrægan Hilux-eiganda sem er með grátstafinn í kverkunum yfir því að þurfa að selja þennan vin sinn og dygga þjón.2020-03-201h 51Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #5 - Klipping limgerða og stórra trjáa - 20. mars 2020Lóan er komin og vorið handan við hornið. Í fimmta þætti hlaðvarpsins Ræktaðu garðinn þinn fer Vilmundur Hansen yfir tækni og aðferðir við klippingu, snyrtingu og grisjun runna og trjáa.2020-03-2020 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkörin - #2 - Freyja Þorvaldar ræðir við Steingrím J. Sigfússon um landbúnaðarmál - 18. mars 2020Freyja Þorvaldar býður Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis og fyrrverandi fjármála- og landbúnaðarráðherra, að setjast á skörina. Þar kryfja þau stefnu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í landbúnaðarmálum og ræða m.a. um samþjöppun í eignarhaldi bújarða, nýliðun og nýsköpun, hálendisþjóðgarð og loforð í stjórnarsáttmála um aðgerðir til að mæta erfiðum rekstri sauðfjárbænda.2020-03-1842 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsÍ fréttum er þetta helst - #1 - Snorri Sig og reynslan af COVID-19 í Kína - 16.3.2020Snorri Sigurðsson er lesendum Bændablaðsins að góðu kunnur. Hann er nú búsettur í Kína og starfar þar sem framkvæmdastjóri hjá mjólkurfyrirtækinu Arla Foods í Peking. Á dögunum skrifaði Snorri áhugaverðan pistil á Facebooksíðu sína um þá reynslu að sitja í sóttkví í 42 daga meðan versta útbreiðslan á COVID-19 veirunni gekk yfir. Bændablaðið sló á þráðinn til Snorra og spurði hann meðal annars hvað Vesturlandabúar gætu lært af Kínverjum til þess að verjast þessum óboðna gesti, sem COVID-19 er.2020-03-1629 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #4 - Dedúað við dalíur - 9. mars 2020Tími vorlaukanna er runninn upp. Vilmundur Hansen fjallar um meðhöndlun þeirra í þessum þætti af "Ræktaðu garðinn þinn".Til einföldunar eru laukar og hnýði flokkaðir eftir árstímanum sem þeir eru settir niður.2020-03-0912 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #7 - 6. mars 2020Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr fer yfir víðan völl að venju. Í löngum og yfirgripsmiklum þætti gefst lítið ráðrúm til þess að ræða efnistök og auglýsingar Bændablaðsins. Jóni liggur ýmislegt annað á hjarta. Hann minnist vinar síns Ragga Bjarna, leggur til breytingar á þjóðsöng Íslendinga og segir frá því að hann sé byrjaður að borða kjöt á nýjan leik. Örlögin höguðu því þannig að í stað þess að nema skógfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, sem Jón var búinn að sækja um, mun kaupfélagsstjórinn stúdera handr2020-03-061h 46Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #3 - Arnheiður Hjörleifsdóttir bóndi í Hvalfirði - 6. mars 2020Arnheiður Hjörleifsdóttir, bóndi á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, er viðmælandi Hafliða Halldórssonar í Máltíð. Hún ásamt fjölskyldu sinni rekur myndarlegt bú sem er hvað þekktast fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu, heimavinnslu og sölu eigin afurða beint til neytenda. Arnheiður er umhverfisfræðingur að mennt og er ötull talsmaður þess að við skiljum og áttum okkur á sérstöðu landsins í hráefnavali. Það er mikils virði, að hennar mati, fyrir íslenska ferðaþjónustu að geta boðið upp á alíslenskt hráefni og byggt á rótgrónum matarhefðum.2020-03-0658 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkörin - #1 - Freyja Þ. ræðir við Unnstein Snorra um framtíð sauðfjárræktarinnar - 6. mars 2020Freyja Þorvaldar, bóndi á Grímarsstöðum í Borgarfirði og nemi við LbhÍ, ræðir við Unnstein Snorra Snorrason, framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda, um stöðu og horfur í sauðfjárrækt á Íslandi. Margar áskoranir bíða sauðfjárbænda sem hafa gengið í gegnum mögur ár með sögulega lágu afurðaverði. Hvað er til ráða?2020-03-0650 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu – #2 – Kristján OddssonKristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós, er viðmælandi Berglindar Häsler í öðrum þætti af Hlaðvarpi Havarí á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins. Kristján er frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. Kristján og kona hans, Dóra Ruf, stofnuðu fyrirtækið árið 2003. Í þættinum segir Kristján lífræna ræktun geti skipað stóran sess í baráttunni við loftlagsvána. Vandinn hér á landi sé hins vegar sá að enn sé glímt við ákveðna fordóm...2020-03-0234 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #8 - Grasprótín - 28. feb. 2020Nýlokið er frumgreiningu á fýsileika þess að vinna prótín úr íslensku grasi, en Danir hafa á síðustu árum lagt talsverða vinnu í þróunarvinnu á sviði grasprótínframleiðslu. Finnbogi Magnússon, Ditte Clausen og Hannes Rannversson fjalla um ýmsar hliðar á þessu verkefni í hlaðvarpsþættinum Víða ratað. Finnbogi ríður á vaðið, Ditte fjallar um fóðurfræði og samvinnu við Dani frá mínútu 42:50 og Hannes fer fyrir greiningu á innflutningi og arðsemisathuganir frá mínútu 53:40.2020-02-291h 09Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Bændasamtakanna - #2 – Tillaga um nýtt félagskerfi landbúnaðarins - 27. febrúar 2020Tillaga að heildarendurskoðun á félagskerfi landbúnaðarins liggur fyrir Búnaðarþingi 2020. Meginmarkmiðið er að auka skilvirkni og bæta nýtingu fjármuna, ná fram sem breiðastri samstöðu meðal bænda og auka slagkraft hagsmunagæslunnar. Að auki á að finna leiðir til að fjármagna rannsóknir til að stuðla að framþróun og aukinni fagmennsku í landbúnaði. Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá BÍ og fyrrum formaður Búnaðarsambands Suðurlands og Baldur Helgi Benjamínsson, bóndi á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði og fyrrum framkvæmdastjóri Landssam...2020-02-2847 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #6 - 21. febrúar 2020Kaupfélagsstjórinn Jón Gnarr rýnir í Bændablaðið, ræðir um veðrið, stórar dráttarvélar, kjallaradælur fyrir salerni og hellulagnastörf í Reykjavík forðum daga. Í lok þáttar boðar kaupfélagsstjórinn stórar fréttir um framtið sína og möguleg jeppakaup.2020-02-211h 16Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #3 - Guðrún Schmidt fræðslufulltrúi LG - 21. feb. 2020Gestur í hlaðvarpi Landgræðslunnar að þessu sinni er Guðrún Schmidt fræðslufulltrúi Landgræðslunnar. Guðrún ræðir um loftslagsmál frá ýmsum hliðum og segir að Íslendingar megi gjarnan temja sér meiri nægjusemi – enda sé nægjusemi ein af frumforsendum þess að mannkyni takist að ná tökum á loftslagsvandanum. Sömuleiðis, segir Guðrún, verður að endurskoða hagkerfið sem þrífst fyrst og síðast á neyslu og aftur neyslu.2020-02-2130 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #3 - Jarð- og moltugerð - 21. febrúar 2020Vilmundur Hansen fjallar um jarðveg og jarðvegsgerð. Áhugi á jarð- eða moltugerð eykst sífellt og margir garð- og sumarhúsaeigendur eru með safnhaug í þeim tilgangi að nýta lífrænan úrgang sem fellur til úr eldhúsinu og garðinum. Góð safnhaugamold er besta mold sem hægt er að fá.2020-02-2113 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #7 - Hlöðver Hlöðversson bóndi á Björgum - 19. feb. 2020Hlöðver Hlöðversson bóndi að Björgum í S-Þingeyjarsýslu er viðmælandi Sveins Margeirssonar í Víða ratað. Þeir ræða skemmtilega vakningu bænda í Þingeyjarsýslum, nýtingu jarðvarma og fóðurframleiðslu. Einnig ber uppkaup á jörðum á góma.2020-02-2018 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #6 - Hildur Ásta Þórhallsdóttir - 12. feb. 2020Hildur Ásta Þórhallsdóttir stjórnmálafræðingur sem nýlega lauk námi tengdu sjálfbærni við Edinborgarháskóla í Skotlandi er viðmælandi Sveins í þessum þætti af Víða ratað. Þau ræða m.a. áskoranir og tækifæri í landbúnaði og við landnýtingu í ljósi loftslagsbreytinga.2020-02-1226 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #5 - 11. febrúar 2020Kaupfélagsstjóranum Jóni Gnarr er ekkert óviðkomandi. Hann flettir í gegnum nýjasta Bændablaðið og ræðir við hlustendur um málefni jeppaeigenda, lestarkerfi hringinn í kringum landið, súrmeti, leiðsögustörf á jöklum, jarðgerðarílát frá Borgarplasti og trygglyndi hunda.2020-02-121h 45Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKöngull - þáttur Landssamtaka skógareigenda - #2 - Lífið er vatn og vatn fyrir alla - 10.2.2020Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógarbænda, fjallar um mikilvægi skóga sem vistkerfi og lífsnauðsynlegt samspil við vatn. Því meiri skógur, því meira vatn, því lífvænlegri jörð. Þetta á ekki síður við um Ísland en aðrar heimsins grundir. Ísland var fyrr á tíð eðlilega skilgreint sem túndra, ekki það að það hafi verið á túndrubeltinu heldur einfaldlega vegna ástandsins á landinu. Það var og er enn skilgreint hnattrænt á barrskógarbeltinu og verður líklega í laufskógabeltinu ef fram fer sem horfir. Landnemar gengu á landsins gersemar. Aðstæður breyt...2020-02-1007 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu – #1 – Eygló Björk ÓlafsdóttirBerglind Häsler, eigandi Havarí í Berufirði og markaðsstjóri í Reykjavík, stýrir hlaðvarpinu Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu í Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins. Í fyrsta þætti sínum spjallar Berglind við Eygló Björk Ólafsdóttur, bónda í Vallanesi á Fljótdalshéraði og annan eiganda framleiðslufyrirtækisins Móðir Jörð. Hún er einnig formaður VOR - verndun og ræktun, sem er hagsmunafélag framleiðenda sem stunda lífræna ræktun eða fullvinnslu lífrænna, íslenskra afurða. Hlaðvarpið Havarí er samvinnuverkefni VOR og Bæ2020-02-1045 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #2 –Sigtryggur Veigar og Daði Lange - 6. febrúar 2020Gestir Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar eru þeir Sigtryggur Veigar Herbertsson, fagstjóri á búfjárræktar- og þjónustusviði Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Daði Lange Friðriksson, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Norðurandi eystra. Framundan eru námskeið í Loftslagsvænum landbúnaði. Á þessum námskeiðum mun bændum og öðrum landeigendum gefast kostur á að efla þekkingu á loftslagsmálum. Farið verður yfir aðgerðir til að draga úr kolefnisspori landbúnaðarins, með breyttri landnýtingu, ræktun, áburðarnotkun og fóðrun, auk kolefnisbindingar. Í þessum hlaðvarpsþætti verður fjalla...2020-02-1048 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #5 - Þorsteinn Tómasson - 3. febrúar 2020Þorsteinn Tómasson, fyrrverandi forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, er viðmælandi Sveins Margeirssonar í hlaðvarpsþættinum Víða ratað. Þeir ræða m.a. um kynbætur í trjárækt en Þorsteinn hefur um árabil unnið að þeim.2020-02-0328 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #2 - Umhirða pottaplantna eru geimvísindi - 31. janúar 2020Í öðrum þætti af hlaðvarpsþættinum „Ræktaðu garðinn þinn“ fjallar Vilmundur Hansen um pottaplöntur. Hann stiklar á stóru í sögu pottaplöntunnar í Evrópu, en fyrstu heimildir um slík stofuprýði á Íslandi er frá árinu 1856. Í framhaldi bendir hann á góðar aðferðir við almenna umhirðu pottaplantna. Ræktaðu garðinn þinn er samstarfsverkefni Facebook-síðunnar Ræktaðu garðinn þinn og Hlöðunnar, hlaðvarps Bændablaðsins.2020-01-3123 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkeggrætt með Áskeli Þórissyni - #3 - Þórey Ólöf Gylfadóttir – 31. janúar 2020Þórey Ólöf Gylfadóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, ræðir við Áskel Þórisson um landbúnaðarrannsóknir. Þórey segir að miðað við nágrannalöndin standi Ísland sig ekki nógu vel þegar kemur að landbúnaðarrannsóknum. Landbúnaðurinn er flókin atvinnugrein og til þess að hún geti þróast þurfi rannsóknir – og fjármagn. Þekkingin er upphaf og endir alls í landbúnaði og á henni verði byggt þegar loftslagsvandi framtíðarinnar knýr fastar á dyr. „En það kostar tíma og peninga að afla þekkingar,“ segir lektorinn og kallar eftir auknum skiln...2020-01-3136 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #4 - 24. janúar 2020„Ég segi það alveg hreint út og í heiðarleika…“ fullyrðir Jón Gnarr sem flettir brakandi fersku Bændablaði og ræðir meðal annars um yfirheyrsluaðferðir bandarískra rannsóknarlögreglumanna, íslenska málshætti, ær og kýr. Jón slær á þráðinn til hennar Láru sem er í atvinnuleit. Hún hefur meðal annars unnið við rennismíði, á saumastofu og í fiski. Lára auglýsir eftir vinnu í smáauglýsingum Bændablaðsins og ræðir m.a. við Jón um hundahald, vinnustaðamenningu og sjóveiki.2020-01-241h 16Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #4 - Sigurður Björnsson - 20. janúar 2020Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs hjá Rannís, er gestur Sveins Margeirssonar í fjórða hlaðvarpsþætti Víða ratað. Meðal þess sem ber á góma eru styrkjaleiðir sem tengjast rannsóknum og nýsköpun í landbúnaði og græna hagkerfinu. „Allir sem hafa áhuga á nýsköpun og vilja stunda nýsköpun geta leitað til okkar,“ segir Sigurður.2020-01-2027 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #2 - Agnar Sverrisson á Texture - 17. janúar 2020Agnar Sverrisson, matreiðslumaður og eigandi Michelin-veitingastaðarins Texture í London, er viðmælandi Hafliða Halldórssonar í öðrum þætti Máltíðar. Aggi segir meðal annars frá námsárunum á Sögu, þegar hann fór í víking til útlanda, rekstri veitingastaða í Lundúnum og hvaða skoðanir hann hefur á íslensku veitingasenunni.2020-01-1739 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsRæktaðu garðinn þinn - #1 - Sáning og meðferð á smáplöntum - 16. janúar 2020Vilmundur Hansen, garðyrkju- og grasafræðingur og blaðamaður Bændablaðsins, sér um hlaðvarpsþáttinn Ræktaðu garðinn þinn. Nafnið er dregið af samnefndum hópi á Facebook sem Vilmundur stofnaði á sínum tíma og gengur út á ráðgjöf og skoðanaskipti um garðyrkju og gróður. Í þessum fyrsta þætti af Ræktaðu garðinn þinn í Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins, fjallar Vilmundur Hansen um sáningu og meðferð smáplantna.2020-01-1614 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkeggrætt með Áskeli Þórissyni - #2 - Guðríður Helgadóttir – 15. janúar 2020Guðríður Helgadóttir, Gurrý á Reykjum, er gestur Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþættinum Skeggrætt. Hún er forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands og staðarhaldari í Garðyrkjuskólanum á Reykjum, en þar er garðyrkjunám LbhÍ til húsa. Guðríður hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu um síðustu áramót fyrir störf á vettvangi íslenskrar garðyrkju og miðlun þekkingar. Gurrý segir í viðtalinu að hægt sé að rækta miklu meira af grænmeti á Íslandi en gert er nú um stundir. Í bæjum hefur stóraukinn gróður breytt ásýnd byggðar og skapað s2020-01-1532 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #3 - seinni hluti - 13. janúar 2020Jón Gnarr sprengir öll tímamörk í þriðja hlaðvarpsþætti Kaupfélagsins þar sem hann fjallar um allt annað en smáauglýsingar Bændablaðsins, sem þó er meginefni þáttarins. Til hægðarauka er þátturinn tvískiptur að þessu sinni og er þetta seinni hluti.2020-01-141h 17Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #3 - fyrri hluti - 13. janúar 2020Jón Gnarr sprengir öll tímamörk í þriðja hlaðvarpsþætti Kaupfélagsins þar sem hann fjallar um allt annað en smáauglýsingar Bændablaðsins, sem þó er meginefni þáttarins. Til hægðarauka er þátturinn tvískiptur að þessu sinni og er þetta fyrri hluti.2020-01-141h 19Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Landgræðslunnar - #1 - Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Aðalbjörg Egilsdóttir - 12. janúar 2020Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, fyrrverandi formaður Félags íslenskra framhaldsskóla, og Aðalbjörg Egilsdóttir hjá Náttúrustofu Vesturlands ræða við Áskel Þórisson, kynningarstjóra Landgræðslunnar, um loftslagsmál og aðgerðir ungs fólks í baráttunni um betri heim.2020-01-1233 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðvarp Bændasamtakanna - #1 - Ólafur R. Dýrmundsson og markaskrárnar - 10. jan. 2020Hvað gera markaverðir og hvernig er haldið utan um eyrnamörk búfjár? Hafinn er undirbúningur að útgáfu markaskráa um land allt en þær eru gefnar út á átta ára fresti í samræmi við ákvæði afréttalaga og reglugerðar um búfjármörk. Ólafur R. Dýrmundsson, fyrrverandi ráðunautur og landsmarkavörður, leiðir hlustendur í allan sannleika um umfang og eðli markaskráa.2020-01-1028 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #3 - Freyja Þorvaldar - 7. janúar 2020Freyja Þorvaldar, bóndi á Grímarsstöðum og nemi í búvísindum við LbhÍ, ræðir við Svein Margeirsson um nýsköpun í landbúnaði, markaðsmál, heimaslátrun og mikilvægi þess að bændur þrói nýjar vörur, m.a. fyrir þá neytendur sem aðhyllast veganlífsstíl.2020-01-0719 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #2 - Oddný Anna Björnsdóttir - 27. desember 2019Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla og bóndi í Gautavík, er viðmælandi Sveins Margeirssonar í öðrum hlaðvarpsþætti Víða ratað. Oddný Anna er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði í áratug hjá stoðtækjafyrirtækinu Össuri, meðal annars úti í Kaliforníu. Hún ákvað að venda sínu kvæði í kross þegar hún flutti aftur til Íslands árið 2010 og einsetti sér að starfa í matvælageiranum og hafa þar áhrif til góðs.2019-12-2729 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsMáltíð - #1 - Kynning og jólasaga - 23. desember 2019Í hlaðvarpsþættinum Máltíð er fjallað um mat og matarmenningu á Íslandi. Hafliði Halldórsson matreiðslumeistari hittir áhugaverða kokka og annað fagfólk úr matvælageiranum og skoðar matarmenninguna á veitingahúsum landsins. Hann heyrir líka í bændum, frumkvöðlum í matvælaiðnaði og eldheitu áhugafólki um mat.  Fyrsti þátturinn er einskonar aðdragandi að því sem koma skal þar sem Hafliði ræðir um veitingamennskuna og deilir með hlustendum góðri sögu í aðdraganda jólanna. Verið velkomin í MÁLTÍÐ!2019-12-2322 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKöngull - þáttur Landssamtaka skógareigenda - #1 - Slagur út í loftið - 23. desember 2019Um þessar mundir er fólk heimskringlunnar í óðaönn að slást við loftið. Hvað er hægt að gera svo ekki fari verr en illa, þegar fram í sækir? Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda, ræðir um aðgerðir sem skógræktarfólk getur lagt til loftslagsmálanna. Hvaða trjátegundir eru heppilegastar í slagnum við loftið?2019-12-2308 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKitla - Margföldunartaflan og milljarðarnirJón Gnarr kaupfélagsstjóri og Hallgrímur Sveinsson hjá Vestfirska forlaginu fara örsnöggt yfir margföldunartöfluna hlustendum til fróðleiks og ánægju. Hljóðbrot úr 2. þætti Kaupfélagsins sem aðgengilegur er á öllum helstu hlaðvarpsveitum.2019-12-2204 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #2 - 19. desember 2019Jón Gnarr hleður í langan jólaþátt þar sem hann freistast til að fletta í gegnum allt Bændablaðið. Schnitzel-viðvörun í Þýskalandi kemur við sögu ásamt því að Jón slær á þráðinn til Hallgríms Sveinssonar hjá Vestfirska forlaginu. Þeir ræða um vestfirskar bókmenntir og renna í gegnum margföldunartöfluna hlustendum til ómældrar ánægju.2019-12-201h 34Hlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsSkeggrætt með Áskeli Þórissyni - #1 – 17. desember 2019Áskell Þórisson skeggræðir um umhverfismál í víðu samhengi. Gestur í fyrsta þætti er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Hafdís hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu eftir tólf viðburðarík ár þar sem hún hefur ferðast víða og kynnst nemendum úr öllum heimshornum. Í viðtalinu segir hún m.a. frá starfsemi Landgræðsluskólans, gildi alþjóðlegrar samvinnu, áhrifum loftslagsbreytinga á landbótastarf og mikilvægi sjálfbærrar þróunar.2019-12-1737 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsVíða ratað með Sveini Margeirssyni - #1 - 12. desember 2019Sveinn Margeirsson, matvælafræðingur og doktor í iðnaðarverkfræði, er stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Víða ratað. Fjallað er um tækniumbyltingar, nýsköpun og þróun í landbúnaði og tengdum greinum. Viðmælandi Sveins í fyrsta þætti Víða ratað er Hlynur Þór Björnsson verkfræðingur. Hann stofnaði nýlega fyrirtækið Bálka miðlun ehf. en það sérhæfir sig í notkun á bálkakeðjutækninni (e. blockchain). Hlynur er jafnframt formaður rafmyntaráðs, www.ibf.is, sem hefur það markmið að gera Ísland að leiðandi afli í nýsköpun á rafmyntum og bálkakeðjum. Sveinn...2019-12-1326 minHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsHlaðan - Hlaðvarp BændablaðsinsKaupfélagið með Jóni Gnarr - #1 - 6. desember 2019Jón Gnarr er kaupfélagsstjóri í þætti þar sem smáauglýsingar Bændablaðsins eru í forgrunni. Vantar þig múgavél, haugsugu eða hákarlstennur? Í fyrsta þætti ræðir Jón um eðlislægan áhuga sinn á endurnýtingu gamalla hluta, moltugerð og ferðir sínar í Góða hirðinn og kaupfélagið á Króksfjarðarnesi.2019-12-0959 min