Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Blindrafelagið

Shows

Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 57Í þessum þætti tók Hlynur Þór viðtal við Gunnar Má Óskarsson, félagsmann og starfsmann Blindrafélagsins.2025-05-3049 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 56Í þessum þætti heyrum við viðtal sem Már Gunnarsson tók við sjálfboðaliða Bresku Leiðsöguhundasamtakanna Guide Dogs UK. Þess ber að geta að viðtalið er á ensku.2025-05-0911 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 55Í þessum þætti ræðir Hlynur við Ásdísi Evlalíu Guðmundsdóttur, félagsmann í Blindrafélaginu og við skellum okkur í NaviLens ratleik með UngBlind. 2025-04-251h 18Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 54Í þessum þætti tekur Eyþór Kamban Þrastarson viðtal við Inga Þór Einarsson, aðstoðarprófessor í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Umfjöllunarefnið er rannsóknir sem Ingi hefur gert á fötluðum börnum og fötluðu íþróttafólki með áherslu á blint íþróttafólk.2025-04-1157 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 53Í þessum þætti tekur Hlynur Þór nærmyndarviðtal við Rósu Maríu Hjörvar og Már Gunnarsson  ræðir við Theódór Helga Kristinsson um talgervla og snjalltæki.2025-03-281h 08Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 52Í þessum þætti ræða Hlynur, Eyþór og Már um gervigreind í daglegu lífi. Við fjöllum einnig um nýjar íslenskar raddir fyrir Apple snjalltæki og ræðum við Önnu Nikulásdóttur hjá Grammatek um það spennandi verkefni. Már Gunnarsson fer einnig í leiðangur með aðstoð rauntímasjóngreinis (live recognition).2025-02-2846 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 51Í þessum þætti verður fjallað um færnibúðir sem haldnar voru hérlendis í október síðastliðnum og fengu þar ungmenni að spreyta sig í alls kyns íþróttum, við ræðum við Margréti Helgu, eða Möggu, formann UngBlindar um starfið hjá þeim, Hlynur leit við í sundleikfimi hjá Trimmklúbbnum Eddu og Már Gunnarsson fjallar um skemmtilegan ratleik sem hann stóð fyrir í Hörpu.2025-02-011h 29Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 50Í þessum þætti svífur jólaandinn yfir vötnum. Við heyrum innsendar jólakveðjur, ræðum ýmislegt jólalegt og Lions Song Festival for the Blind.2024-12-2345 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 49Þessi þáttur er upptaka af opnum umræðufundi um menntamál gagnvart blindum og sjónskertum. Fjölbreyttur hópur sótti fundinn með hjálp fjarfundarbúnaðar og líflegar umræður sköpuðust. Í pallborði voru þau Ágústa Eir Gunnarsdóttir, Eyþór Kamban Þrastarson, Hlynur Þór Agnarsson, Íva Adrichem og Már Gunnarsson.2024-11-291h 31Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 48Í þessum þætti fjöllum við um nýja íslenska heimildarmynd um heilatengda sjónskerðingu sem ber nafnið Fyrir allra augum eða Acting Normal with CVI. Myndin er eftir þær Dagbjörtu Andrésdóttur, Elínu Sigurðardóttur og Bjarneyju Lúðvíksdóttur. Hlynur tók viðtal við þær á frumsýningardaginn. Eyþór reynir að nota óaðgengilgan hleðslumæli til að sjá hvort rafhlöðurnar sínar séu hlaðnar og Már Gunnarsson tekur fróðlegt viðtal við Þorkel Jóhann Steindal, formann leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins.2024-10-251h 01Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 47Að þessu sinni er aðalumræðuefnið Ólympíuleikar fatlaðra. Már og Eyþór deila sinni reynslu af mótinu og Hlynur ræðir við Halldór Sævar Guðbergsson, sem fór á leikana 1988 í Suður Kóreu og 1992 í Barcelona.2024-09-2754 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 46 Í þessum þætti fögnum við 85 ára afmæli Blindrafélagsins. Hlynur og Eyþór ræða við Gísla Helgason um Hamrahlíð 17, merkilega sögu hússins og þann stóra part sem það á í sögu Blindrafélagsins. Einnig ræða þeir merkilega biósýningu sem fram fór í tilefni afmælis Blindrafélagsins, þegar kvikmyndin Snerting eftir Baltasar Kormák var sýnd með sjónlýsingu. Einnig tók Már Gunnarsson frábært viðtal við Arnþór Helgason.2024-08-301h 08Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 45Í þessum þætti ræðum við nýja útgáfu nafnskírteina og hvort þau séu sniðug lausn fyrir t.d. einstaklinga sem ekki hafa ökuskírteini. Eyþór fræðir okkur um aukinn veruleika (augmented reality). Már teku r einnig spennandi viðtal við erlendan lækni á heimsmælikvarða, m.a. í erfðafræði og sérhæfingu í blindu og sjónskerðingu.2024-07-261h 00Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 44Í þessum þætti er fjallað um aðgengi og tæknimál. Eyþór ræðir við Þorkel Jóhann Steindal um snjallúr og hvernig hægt er að nýta sér þau, sem og valdeflingu og umferli. Einnig ræðir Már Gunnarsson við Baldur Snæ Sigurðsson, tækniráðgjafa hjá Blindrafélaginu en sá síðarnefndi sótti Sight City tæknisýninguna í Frankfurt í Þýskalandi í maí. Baldur fer yfir ýmis skemmtileg og spennandi tæki og tól sem urðu á vegi hans þar.2024-06-281h 20Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 43Í þessum þætti ræða Hlynur og Eyþór við Sigþór U. Hallfreðsson, formann Blindrafélagsins og Már Gunnarsson kynnir sér sjálfkeyrandi bíla.2024-05-3147 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 42Í þessum þætti er fjallað um heimilishald, húsverk og leiðsöguhunda. Einnig skellir Már Gunnarsson sér á matreiðslunámskeið.2024-04-2752 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnUm Skapta Ólafsson, leiðsöguhundar og karlakórarJónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal klassískra dægurlaga, m.a. Allt á floti, sem við heyrðum einmitt á undan viðtalinu. Í næstu viku er alþjóðlegur...2024-04-1850 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnUm Skapta Ólafsson, leiðsöguhundar og karlakórarJónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal klassískra dægurlaga, m.a. Allt á floti, sem við heyrðum einmitt á undan viðtalinu. Í næstu viku er alþjóðlegur...2024-04-1854 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnUm Skapta Ólafsson, leiðsöguhundar og karlakórarJónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal klassískra dægurlaga, m.a. Allt á floti, sem við heyrðum einmitt á undan viðtalinu. Í næstu viku er alþjóðlegur...2024-04-1854 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 41Í þessum þætti skyggnumst við inn í fortíðina og ræðum þjóðsögur með tilliti til fötlunar, blindu og sjónskerðingar. Eyþór ræðir við Evu Þórdísi Ebenezersdóttur, fötlunarþjóðfræðing um málefnið. Már Gunnarsson kynnir okkur fyrir eina konungnum sem vitað er til þess að hafi verið grafinn hér á landi, en sá var blindur.2024-03-2948 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 40Í þessum þætti ræða Eyþór og Már við Baldur Snæ Sigurðsson, tækniráðgjafa hjá Blindrafélaginu um þau verkefni sem eru í gangi í dag. Við skoðum nýja BlindShell takkasímann sem er sérsniðinn fyrir blinda og sjónskerta. Einnig sláumst við í för með Má Gunnarssyni og leiðsöguhundinum Max er þeir ferðast með leigubíl, flugi og lest frá Manchester til Belgíu.2024-02-231h 00Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 39Þessi þáttur er helgaður minningu Rósu Guðmundsdóttur, stofnfélaga og fyrrum formanns Blindrafélagsins. Rósa er önnur tveggja kvenna sem gegnt hafa því embætti. Sérstakur gestur þáttarins er Gísli Helgason sem ræðir við Eyþór og Hlyn um ævi og störf Rósu auk þess sem við heyrum gömul viðtöl við hana. Sérstakar þakkir fær einnig Helga Magnúsdóttir, systurdóttir Rósu, fyrir veittar upplýsingar við gerð þáttarins. Einnig ræðir Már Gunnarsson við Guðmund Viggósson, augnlækni, sem starfaði um árabil hjá Sjónstöð Íslands en hefu2024-01-261h 14Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 38Í þessum þætti ræður jólaandinn ríkjum. Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, les jólakveðju. Már Gunnarsson hefur grafið upp jólalög sem ýmist hafa verið samin eða flutt af félagsmönnum í Blindrafélagsins. Eyþór kynnir kappaksturstölvuleik sem hann hefur verið að spila undanfarið og við heyrum dæmi. Að lokum spurðum við fólk í þremur mismunandi löndum hvað jólin væru fyrir þeim og heyrum svör frá fólki á Íslandi, Englandi og Grikklandi. Gleðileg jól! :)2023-12-2256 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 37Í þessum þætti ræðir Eyþór við Rannveigu Traustadóttur, umferliskennara hjá Sjónstöðinni. Már Gunnarsson fer á stúfana, ræðir við Theodór Helga Kristinsson og kynnir sér heim stefnumótaforrita. Einnig ræða Eyþór og Hlynur um aðgengilega tölvuleiki.2023-11-241h 01Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 36Í þessum þætti verður fjallað um vinnustaði fyrir blinda og sjónskerta og borin saman staðan á Íslandi og Grikklandi. Hrekkjavakan fær einnig sitt pláss og Már Gunnarsson kemur með innslag frá Manchester.2023-10-2848 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 35Í þessum þætti spjöllum við um spennandi nýjung frá fyrirtækinu Be My Eyes sem nefnist Be My AI og Eyþór sýnir okkur hvernig hún virkar. Einnig tók Hlynur viðtöl við Sóley Guðmundsdóttur, sjálfbærnifulltrúa KSÍ og Kristinn Halldór Einarsson, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, varðandi nýtt samkomulag um sjónlýsingar á landsleikjum.2023-09-2947 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 34Í þessum þætti er fjallað um Iris Vision gleraugun og farið yfir þá möguleika sem þau veita ásamt viðtölum við Völu Jónu Garðarsdóttur hjá Sjónstöðinni og Svavar Guðmundsson, félagsmann í Blindrafélaginu.2023-08-2539 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 33Í þessum þætti fjöllum við um NaviLens merkingar og fyrirhugaða uppsetningu þeirra á öllum biðstöðvum og vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Einnig settist Hlynur niður og ræddi við Má Gunnarsson, ekki missa af því.2023-07-2852 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 32Í þessum þætti fjöllum við um nýlega sjónlýsingu á leikjum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Hlynur tók viðtal við Kristinn Halldór Einarsson varðandi það verkefni. Einnig fjöllum við um appið Clew sem er sniðugt staðsetningar- og leiðarvísis app en Eyþór ræddi við Þorkel Jóhann Steindal um það.2023-06-3041 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 31Hljóðbrot er með öðru sniði að þessu sinni. Við héldum opinn umræðufund um foreldrahlutverkið og áhrif blindu og sjónskerðingar á það. Líflegar umræður sköpuðust, fólk deildi reynslusögum og nokkur góð trix litu dagsins ljós.2023-05-261h 18Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 30Í þessum þætti er viðtal við Hjalta Sigurðsson, félagsmann í Blindrafélaginu og neyðarvörð hjá 112. Einnig leyfir Eyþór okkur að heyra upptökur frá páskum á Grikklandi, sem eru töluvert frábrugðnir páskunum eins og við þekkjum þá hérlendis.2023-04-2841 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 29Í þessum þætti verður farið um víðan völl, rætt um nýjustu vendingar í tækniheiminum og þróun gervigreindar, litið við á markboltaæfingu og spilakvöld.2023-03-3140 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 28Við höldum áfram umfjöllun okkar um hæfingu og endurhæfingu blindra og sjónskertra. Fróðlegt viðtal við Brynju Arthúrsdóttur um dvöl sína og endurhæfingu í Bretlandi.2023-02-241h 05Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 27Í þessum þætti er fjallað um mikilvægi endurhæfingar blindra og sjónskertra. Við heyrum gamalt viðtal við Halldór Rafnar, en hann hefði orðið 100 ára 20. janúar síðastliðinn. Auk endurhæfingar er einnig rætt um hæfingu almennt og hæfni einstaklinga.2023-01-2759 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 26Í þessum þætti fara Eyþór og Hlynur yfir stöðuna í nýlegu máli þar sem Eyþóri og eiginkonu hans var meinað að fljúga með SAS í tvígang með kornunga dóttur sína og nýjar upplýsingar koma fram. Einnig ræða þeir jólin, jólahefðir og Sigþór formaður Blindrafélagsins sendir jólakveðju.2022-12-2442 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 25Í þessum þætti ræða Eyþór og Hlynur um íslenska máltækni og talgervla. Við fáum að heyra hljóðupptöku frá fyrsta talgervli sem búinn var til í heiminum árið 1939 og rekjum sögu talgervla, greinum stöðuna í íslenskri máltækni og veltum framtíðinni fyrir okkur.2022-11-2644 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 24Í þessum þætti er rætt við Daniel Kish um umferli og aðgengismál. Daniel Kish er framkvæmdastjóri World Access for the Blind og missti sjón á fyrsta æviári sínu. Hann sinnir kennslu og þjálfun um víða veröld og framlag Daniels til rannsókna á skynjun ýmiskonar er víðtækt. Á ferli sínum hefur hann vakið mesta athygli fyrir færni og kennslu á sviði hlustunar, í því að skynja rými og í því að nýta til þess endurkast hljóðbylgna (echolocation). Síðustu árin hefur það verið markmið Daniels að deila reynslu sinni og þekkingu...2022-10-2857 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 23Í þessum þætti er fjallað um greiðslur með farsímum og hvernig er öruggast að borga ef maður getur ekki stimplað inn PIN númer. Einnig er fjallað um sjónlýsingar, hvaða hlutverki þær gegna og spiluð upptaka af sjónlýsingu á Árbæjarsafni.2022-09-3043 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 22 Í þessum þætti er fjallað um leiðsöguhunda. Heyrt var í nokkrum leiðsöguhundanotendum og þeir spurðir hvað hundarnir geri fyrir þau. Einnig er umfjöllun frá Þorkatli Steindal þar sem hann fer með hundinum sínum Gaur út í Kringlu. Þá umfjöllun er gott að hlusta á með heyrnartólum til að fá bestu upplifunina2022-06-1539 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 21.Eyþór Kamban ræðir við Ástu Björnsdóttur um VIVA verkefnið.2022-05-0622 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 20Í þættinum heyrum við jólakveðju frá formanninum Sigþóri U. Hallfreðssyni. Þórunn Hjartardóttir ræðir og fræðir okkur um hljóðlýsingar. Gísli Helgason sendir okkur jólakveðju frá Kanada. Svo er heyrum við jólakveðju frá Hljóðbókasafninu. Þættinum stýrir Eyþór Kamban Þrastarson.2021-12-2334 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 19Í þættinum talar Hlynur Þór Agnarsson við Ísak Jónson foreldri í Blindrafélaginu um nýtt app sem hann vinnur nú að því að framleiða sem eykur aðgengi blindra og sjónskertra að borðspilum. Einnig er kynning á tölvuleiknum Eurofly frá Eyþóri þar sem flogið er frá Keflavík til Egilstaða.2021-11-1256 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 18Í þættnum er að finna viðtal við Gunnar Thor Örnólfsson máltæknisérfræðing um nýjar íslenskar talgervilsraddir sem eru í þróun um þessar mundir. Einnig leit Marjakaisa Matthíasson við á Blindravinnustofunni í tilefni af 80 ára afmæli hennar.2021-09-2432 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 17Í þættinum heyrum við í þeim Patreki Axelssyni og Má Gunnarssyni sem eru staddir í Tókíó og taka þáttí Ólympíumóti fatlaðra sem nú stendur yfir. Einnig heyrum við innslag frá Gísla Helgasyni sem fjallar um fyrsta tölvustýrða punktaletursprentarann sem kom til Íslands árið 1986 en nú eru þrjátíu og fimm ár liðin síðan.2021-08-2735 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 16Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Friðrik Steinn Friðriksson tekur viðtal við Ásdísi Evalalíu Guðmundsdóttur, varaformann Blindrafélagsins. 2021-05-2848 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 15Eyþór Kamban Þrastarson sér um þáttinn. Hann og Þorkell Steindal fjalla um umferli í umferðinni. Gísli Helgason gróf upp ákaflega skemmtilega upptöku um ökudag blindra  sem haldinn var 19. október árið 1997.2021-04-3037 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 14Fjórtandi þátturinn af Hljóðbroti, hljóðtímariti Blindrafélagsins er kominn út. Þættinum stjórnar Eyþór Kamban Þrastarson. Í þessum þætti heyrum við í nýjum forstöðumanni Miðstöðvarinnar Elfu Svanhildi Hermannsdóttur. Við fáum að heyra í nýjasta og heitasta eldgosinu sem Anna Marsibil Clausen tók upp. Hún segir okkur frá tilurð upptökunnar. Að lokum fáum við að heyra í Hlyni Þór sem segir okkur aðeins frá hlaðvarpi sem hann er í.2021-03-2634 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 13Þrettándi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins. Þættinum stjórnar Friðrik Steinn Friðriksson. Í þessum þætti heyrum við viðtal við Hjalta Sigurðsson og fáum kynningu á forritinu Retina Risk.2021-02-1244 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 12Tólfti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Friðrik Friðriksson. Í þessum þætti fáum förum við niður í miðbæ með Þorkatli og reynum að fanga jólaandann. Þorkell Jóhann Steindal og Theódór Helgi Kristinsson ræddu við Marín Guðrúnu Hrafnsdóttur, nýjan forstöðumann Hljóðbókasafnsins. Einnig fáum við að heyra jólakveðjur.2020-12-1855 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 11Í tilefni af degi hvíta stafsins, 15. október 2020. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti fáum við kynningu á hvíta stafnum. Þorkell Jóhann Steindal og Eyþór Kamban Þrastarsson fara í göngutúr með hvíta stafinn og tala um hversu mikilægur stafurinn er blindum og sjónskertum.2020-10-1548 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 10Tíundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Friðrik Steinn Friðriksson. Í þessum þætti fáum við innsent sumarkort frá Gísla Helgasyni og Herdísi Hallvarðsdóttur. Einnig heyrum við áhugavert viðtal um Borgarlínuna, en þar ræða þeir Þorkell Jóhann Steindal og Theódór Helgi Kristinsson við Hrafnkel Á. Proppé, Verkefnastjóra Borgarlínunnar, og Eddu Ívarsdóttur, borgarhönnuður Reykjavíkurborgar.2020-08-2054 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 9Níundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Friðrik Steinn Friðriksson. Í þessum þætti fáum við innsent hljóðbrot frá Gísla Helgasyni og Herdísi Hallvarðsdóttur úr gönguferð þeirra um Fossvoginn í apríl mánuði. Svavar Guðmundsson sendi inn upplestur úr bókinni sem hann skrifaði sem heitir „Þú ert snillingur“. Friðrik Steinn Friðriksson, Baldur Snær Sigurðsson og Hlynur Þór Agnarsson fóru á kjörstað utan kjörfundar og skoðuðu aðgengi fyrir forsetakosningarnar 2020.2020-06-1028 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 8Áttundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti munum við fræðast um aðgengilega tölvuleiki. Við heyrum viðtal við Hlyn Þór Agnarsson og fræðumst um lausnina NaviLens sem er aðgengiskerfi tengt við farsíma sem hægt er að nýta sem leiðarvísakerfi og upplýsingarkerfi fyrir blinda og sjónskerta. Við heyrum aðeins um sjónlýsingar í streymisveitunum Netflix og Amazon Prime.2020-04-0152 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 7Sjöundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti munum við fræðast um ráðstefnuna Retina International World Congress sem verður haldin í júní næstkomandi í Hörpunni í Reykjavík. Við heyrum viðtal við Már Gunnarsson sem er að halda stórtónleika núna í mars. Við heyrum svo tvær hljóðmyndir: Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir heimsóttu fílaheilsubæli á Indlandi og Sigþór Hallfreðsson sendi okkur upptöku frá heimsókn sinni í Dómkirkjuna í Fære2020-03-0652 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 6Sjötti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti munum við fræðast um leiðsöguhundanámskeið sem verður á dagskrá í febrúar. Við heyrum viðtal við Brynju Arthursdóttir en hún stjórnar bókmenntaklúbbi Blindrafélagsins sem hélt upp á 15 ára afmæli sitt fyrir stuttu. Við fáum svo að heyra viðtal við Kristínu Sjöfn Valgeirsdóttur og fáum upplýsingar um Heilsuklúbb Blindrafélagsins, sem er kominn í gang með fulla dagskrá í Hamrahlíð 17.2020-01-241h 12Hljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 5Fimmti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Baldur Snær Sigurðsson. Útsetningu annaðist Þorkell Jóhann Steindal. Í þessari jóla útgáfu af Hljóðbroti er ýmislegt að finna. Sigþór U. Hallfreðsson, sendir okkur jólakveðju og hugvekju og við heyrum jólakveðjur frá framkvæmdarstjóra félagsins og öðrum félagsmönnum. Þorkell kíkti á jólaskemmtunina sem var haldin 30. nóvember síðastliðnum. Keli segir okkur einnig frá samstarfi sínu við leiðsöguhundinn Gaur, en þeir héldu upp á eins árs starfsafmæli...2019-12-2046 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 4Fjórði þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins. Þættinum stjórnar Baldur Snær Sigurðsson. Starfsmann mánaðarins að þessu sinni er Hlynur Þór Agnarsson, Aðgengis og upplýsingarfulltrúi Blindrafélagsins. Eyþór Kamban Þrastarson, Sigþór U. Hallfreðsson, Marjakaisa Matthíasson og Kaisu Hynninen ræða um aðalfund EBU. Baldur Snær Sigurðsson og Rósa María Hjörvar ræða um máltækniráðstefnuna "Er íslenskan góður Business?" og Baldur segir aðeins frá OrCam kynningunni sem var í október og aukakynningu sem verður 12. desember næstkomand2019-11-1550 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 3Þriðji þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Rósa María Hjörvar. Rósa tekur viðtal við starfsmann mánaðarins sem að þessu sinni er Dagný Kristmannsdóttir, Trúnaðarmaður hjá Blindrafélaginu. Baldur Snær Sigurðsson, Rósa María Hjörvar og Hlynur Þór Agnarsson ræða um rafræn skilríki. Þorkell Jóhann Steindal og Eyþór Kamban Þrastarson ræða um hvíta stafinn og Baldur Snær segir frá Korta forritinu frá Landsbankanum.2019-10-1642 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 2Annar þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Rósa María Hjörvar. Rósa tekur viðtal við starfsmann mánaðarins sem að þessu sinni er Stefán Vilbergsson, verkefnastjóri hjá ÖBÍ og starfsmaður aðgengis- og heilbrigðismálahópa ÖBÍ. Baldur Snær Sigurðsson, Sigþór U. Hallfreðsson, Marjakaisa Matthíasson og Rósa María ræða um UNK ráðstefnuna í Svíþjóð sem var í lok ágúst 2019. Steinunn Helgu fór með Opna húsinu á listasýningu Gerðar Guðmundsdóttur, "Skynjum - má snerta" í listasal2019-09-2045 minHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsHljóðbrot - Hljóðtímarit BlindrafélagsinsÞáttur 1Fyrsti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarp Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Rósa María Hjörvar og er þessi þáttur sérstaklega tileinkaður afmæli félagsins, Blindrafélagið verður 80 ára 19. ágúst. Rósa tekur viðtal við starfsmann mánaðarins sem að þessu sinni er Elín Marta Ásgeirsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Þjónustu og þekkingarmiðstöðinni. Einnig eru Sigþór U. Hallfreðsson, Gísli Helgason, Guðmundur Rafn Bjarnason og Friðrik Friðriksson með efni í þættinum. Hljóðbrot er einnig hægt að hlusta á í Vefvarpi Blindra...2019-08-1554 min