Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Borgarbokasafn Reykjavikur

Shows

Bókmenntaborgin ReykjavíkBókmenntaborgin ReykjavíkGlæpasagnaganga - Borgarbókasafn (kynning)Úlfhildur Dagsdóttir leiðir glæpasagnagöngu um miðbæ Reykjavíkur. 2021-03-2100 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðHrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann JakobssonDrauga-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonDúkka eftir Gerði Kristný...2020-10-3037 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSkrimslavarpidÍ tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu.2019-11-0522 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðHryllingshlaðvarpiðBjörn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi.2019-10-2522 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókstaflegir titlar!Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther.2019-10-0418 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðByggt á bókMaríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum.2019-09-2727 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðKvikmyndatónlistarspurningaleikurinn!Í tilefni þess að Hildur Guðnadóttir vann Emmy verðlaunin fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl tók Esther þá Inga og Jóhannes í örstuttan kvikmyndatónlistarspurningaleik. Esther spilaði stutt brot úr hinum ýmsu kvikmynda- og þáttatónlistarverkum og Ingi og Jóhannes giskuðu á höfund og þátt/kvikmynd.2019-09-1918 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSkólabækur og fingrasetningJóhannes Árnason, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir ræða um bækurnar sem framhaldsskólanemum er gert að lesa. Leslistarnir eru að einhverju leyti fjölbreyttir, eins og reynsla þáttastjórnenda. Á meðan þau yngri gerðu stuttmyndir byggðar á Galdra-Lofti lærði fulltrúi eldri kynslóða á ritvél.2019-09-1319 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðHvað lásum við í sumar?Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un).2019-09-0719 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBækur að kvikmyndumIngi, Björn Unnar og Jóhannes skeggræða (að Inga utantöldum) hvaða bækur væri gaman að gera að bíómyndum!2019-06-2224 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðGiskaðu á bókinaIngi spurði Guttorm og Esther spjörunum úr um daginn þegar Stjörnustríðið var tekið fyrir í hlaðvarpinu. Í þættinum í dag nær Esther fram hefndum þegar hún lætur Inga og Björn Unnar giska á bókatitla út frá aðeins sex orðum!2019-06-1514 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSumarlestrarbækur Sunnu!Hvað myndi Sylvía Nótt, Ali G eða Amy Schumer lesa í sumar? Hvað myndum við lesa í sumar? Hvað munt þú lesa í sumar? Getur þú yfir höfuð lesið yfir sumarið?Við svörum (næstum því) öllum þessum spurningum í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!2019-06-0822 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðÆvisögulegir titlar Guttorms994 titlar eru ræddir í þaula í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins. Sunna Dís, Guttormur og Guðrún ræða gamlan föstudagsfésbókarpóst þar sem fólk gat fengið titilinn á óútgefna ævisögu sína út frá upphafstöfum nafn síns!2019-06-0116 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSkylduáhorf í skóla lífsinsHvað eiga Amélie de Poulain, Trainspotting og Michael Mann sameiginlegt? Sunna, Jóhannes og Björn Unnar spjalla um svörin sem bárust á Facebook þegar við spurðum fylgjendur okkar hvaða kvikmynd ætti að vera skylduáhorf fyrir alla. Þráðinn má finna hér: http://bit.do/eSDvb2019-05-1718 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSíðbúinn fermingagjafaþátturBjörn, Jóhannes og Guðrún ræða hvaða bækur má gefa fermingarbörnum og komast að misgáfulegum niðurstöðum!2019-05-1015 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðAlþjóðlegi Star Wars dagurinn - May(hew) the fourth be with you!Flest erum við nú farin að tengja 4. maí við einn frægasta vísindaskáldskap heims, Star Wars. Í tilefni af þessum merkisdegi ákváðu Esther, Guttormur og Ingi að setjast niður í Kompuna og spjalla um Star Wars í bland við föstudagsstuðið þar sem fylgendur okkur á Facebook voru spurðir út í þær vísindaskáldsögubækur og -bíómyndir sem væru í uppáhaldi hjá þeim. Þátturinn var tekinn upp 2. maí en daginn eftir bárust fregnir af andláti leikarans Peter Mayhew sem var hvað helst þekktur fyrir túlkun sína á Chewbacca, eina ástsælustu persónu kvikmyndaseríunnar. Því var tekinn upp formáli á 2019-05-0330 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókmenntahátíð í ReykjavíkSunna Dís og Guðrún Baldvins rétt fara yfir dagskrá Bókmenntahátíðar í Reykjavík í einum lengsta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!2019-04-2730 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðHefðalaust páskafríVið spurðum Fésbókarvini hver leiðarendinn væri ef þeim áskotnaðist flugmiði um páskana til bókarinnar sem þeir væru að lesa þessa stundina. Áfangastaðirnir voru af misjöfnum toga, sumir voru ansi heppnir en aðrir síður. Þau Sunna Dís, Guðrún Baldvins og Jóhannes á Borgarbókasafninu ræddu þessi ímynduðu ferðalög og svo að sjálfsögðu hvað yrði lesið og horft á í páskafríinu.2019-04-1620 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðAtvinnutækifæri í barnabókumFöstudagsstuðsumræðan að þessu sinni er afar barnabókavæn í tilefni af Barnamenningarhátíð. Fyrst var spurt hvaða barnabók væri í uppáhaldi hjá fylgjendum Borgarbókasafnsins á Facebook og því næst áttu svarendur að velja sér starfstitil í bókinni. Skemmtilegar umræður spunnust út frá stuðinu svo þær Guðrún Baldvins, Þorbjörg Karls og Esther Þorvalds ræddu og grínuðust hressilega í þessum dulitla hlaðvarpsþætti.2019-04-1214 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðEftirminnilegasta setningin!Esther, Tobba og Droplaug ræða eftirminnilegar setningar úr íslenskum bókum og orðagrín á splunkunýjum pokum Borgarbókasafnsins í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!2019-04-0512 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBækur sem fá tárin til að rennaÍ nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins áttu Esther, Guðrún og Ingi saman sorgarstund í Kompunni þegar þau ræddu föstudagsfjörs spurninguna; Hvaða bækur fá tárin til að renna?2019-03-2819 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSmáskilaboðaforeldrahandbókinÍ nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða Guðrún, Esther og Jóhannes svör við föstudagsfjörinu á facebook síðu safnsins þar sem spurt var; „Síðustu skilaboð sem þú sendir foreldri þínu eða barni eru titillinn á foreldrahandbókinni sem þú ert að skrifa. Hvað heitir hún?".2019-03-2215 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðEyðieyjugögninAlræmda eyðieyjan var til umræðu á Facebook síðu borgarbókasafnsins um daginn þegar við spurðum fólk hinnar erfiðu spurningar; Ef þú mættir bara taka með þér eina bók, vínyl eða bíómynd á eyðieyju, hvað yrði fyrir valinu?Sérstakir eyðieyju sérfræðingar bókasafnsins, Guðrún, Jóhannes og Ingi ræddu þetta mál og svör fólks í þaula - ásamt því að velja sín persónulegu eyðieyjugögn - í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!2019-03-0817 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBíómyndaþýðingarVeturinn er mikill hámhorfstími hjá Íslendingum. Við spurðum ykkur fyrir nokkru hvort þið væruð nokkuð orðin samgróin sjónvarpssófanum. Erlendar bíómyndir hafa margar fengið hreint dásamlega íslenska titla í þýðingu, og þeir eru ágætis skemmtun svona einir og sér. Fylgjendur Borgarbókasafnsins á Facebook höfðu margt til málanna að leggja og í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins ræða þau Esther, Ingi og Jóhannes um nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem fæddust í spjallþræðinum!2019-02-2211 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjall - JanúarbækurHafið þið ekki öll lesið einhverja bók sem þið lokið með bros á vör, sól í hjarta, syngjandi englakór og endurnýjaðri trú á mannkynið? Við teljum það siðferðislega skyldu okkar á þessum tíma ársins að létta borgarbúum lund – og fengum þar góða aðstoð fylgjenda okkar á Facebook! Hér setjast þau Ingi, Esther og Guðrún og spjalla um svörin sem bárust í föstudagsstuði Borgarbókasafnsins þann 4. janúar 2019. Spurt var: Hvaða bók myndir þú ávísa til þess að létta lund og bæta geð?2019-01-3018 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðJóladagatal 2018 - Sögur af Zetu: Ullarsokkar í jólasnjó - Allir þættirnirVelkomin í Jóladagatal Borgarbókasafnsins 2018!Á hverjum degi til jóla opnast nýr gluggi með spennandi kafla í jólasögu Evu Rúnar Þorgeirsdóttur um bókaveruna Zetu og vini hennar. Myndskreytt af Ninnu Þórarinsdóttur. Lesið hér: https://bit.ly/2Q8Yyhz Lestur: Eva Rún ÞorgeirsdóttirUpptaka: Ingi Þórisson2018-12-2459 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBjörgunarhringurinn: Sögur úr bókaflóði 1. hlutiBókaflóðið er að skella á okkur en það er engin ástæða til að örvænta - Björgunarhringurinn er innan seilingar! Guðrún Baldvinsdóttir og Sunna Dís Másdóttir fara hratt yfir sögu og gera flóðbókum og öðrum bókum skil í Hlaðvarpi Borgarbókasafnsins. Í fyrsta þætti er fjallað um: Sálumessa e. Gerði KristnýjuMúmínálfarnir (Litlu álfarnir og flóðið mikla; Halastjarnan; Pípuhattur galdrakarlsins) e. Tove JanssonOrlando e. Virginíu WoolfHeimför e. Yaa Gyasiog sömuleiðis m...2018-11-0824 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSumarlesturinn - 4. þáttur: Af uppistandi, hundshjörtum og GljúfrasteiniÍ fjórða og síðasta þætti Sumarlestursins (því við erum með sól í hjarta þótt það sé löngu komið haust!) bregðum við okkur til Írlands, höldum upp í Mosfellsdal og höfum svo langa viðkomu í Rússlandi. Þau Guðrún Baldvinsdóttir, Guttormur Þorsteinsson og Ólöf Sverrisdóttir spjalla um eftirtaldar bækur: Okkar á milli – Sally Rooney Hundshjarta – Mikhaíl Búlgakov Eftir að þú fórst – Jojo MoyesFyrir fallið – Noah Hawley We – Jevgeníj Ívanovítsj ZamjatínElsku Drauma mín – Sigríður Halldórsdóttir og Vigdís GrímsdóttirEnn fremur er talað um...2018-10-0942 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðPlötuspjalliðStarfsfólk Borgarbókasafnsins skrafar um vínyl - allt frá Samaris til World Narcosis. Í þættinum koma fram þau Esther Þorvaldsdóttir, Ingi Þórisson og Ingvi Þór Kormáksson. Eftirfarandi plötur eru til umræðu: Mixtúrur úr MósebókÁsgeir Trausti - Here it comesSamaris - SilkidrangarEik - Hríslan og straumurinnWorld Narcosis - World CodaDrýsill - Welcome to the showHljóðmaður: Ingi ÞórissonGóða hlustun!2018-09-0633 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókabíllinn HöfðingiBókabíllinn Höfðingi hefur ekið um götur borgarinnar síðan árið 1969 og Bjarni Björnsson bókabílstjóri hefur keyrt hann frá upphafi. Guttormur Þorsteinson bókavörður fékk hann til að ljóstra upp leyndarmálum bílsins áður en hann sest í helgan stein.2018-08-1719 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSumarlesturinn - 3. þáttur: Sögumenn, krúnuleikar og hvíta tjaldiðÍ þriðja þætti Sumarlestursins 2018 eru þau Sunna Björk Þórarinsdóttir, Jón Páll Ásgeirsson og Esther Ýr Þorvaldsdóttir stödd í Englandi, N-Ameríku, Mexíkó og Frakklandi.Sunna þykist hafa fundið fyrirmyndirnar af hinum ýmsu persónum úr A Game of Thrones í sagnfræðibókum um hin svokölluðu Rósastríð, Jón Páll skoðar óáreiðanlega sögumenn í Síle og Frakklandi og Esther skoðar bækur sem seinna hafa orðið að sjónvarpsþáttum og leikritum. Bækurnar sem eru til umræðu í þættinum:Lancaster and York eftir Alison WeirRichard II...2018-07-2558 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSumarlesturinn - 2. þáttur: Af anarkíu, bakaríum og fótboltaÍ hlaðvarpi Borgarbókasafnsins skrafar starfsfólk safnsins um sínar hjartans bækur. Í öðrum þætti Sumarlestursins 2018 höfum við viðkomu á anarkísku tungli, í Plymouth og á fótboltavellinum. Þau Guttormur Þorsteinsson, Ólöf Sverrisdóttir og Sunna Dís Másdóttir spjalla um eftirfarandi bækur: Ancilliary þríleikurinn eftir Ann Leckie The Dispossessed eftir Ursulu Le GuinUnfinished Tales eftir Tolkien Litla bakaríið við Strandgötuna eftir Jenny ColganSlepptu mér aldrei eftir Kazuo IshiguroSummerhill-skólinn eftir A.S. NeillMálavextir eftir Kate AtkinsonCall Me By Your Name ef...2018-07-111h 02Bókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðSumarlesturinn - 1. þáttur: Um Ítalíu, kvenhetjur og kirkjugarðaÍ hlaðvarpi Borgarbókasafnsins skrafar starfsfólk safnsins um sínar hjartans bækur. Í fyrsta þætti Sumarlestursins 2018 komum við við á Ítalíu, í aldagömlum kirkjugarði og í blokk í Vesturbænum. Þau Björn Unnar Valsson, Guðrún Baldvinsdóttir og Hildur Baldursdóttir ræða um eftirfarandi bækur: Dagar höfnunar eftir Elenu FerranteEf að vetrarnóttu ferðalangur eftir Italo CalvinoMálverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson Lincoln in the Bardo eftir George Saunders Blood Meridian eftir Cormac McCarthyThe Last Ringbearer eftir Kirill Eskov Lífsnautnin frjóa eftir Anne B. Ragde2018-06-2745 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspæjarinn - bókasafnsglæpasaga úr smiðju Veru IllugadótturBókaspæjarinn er bókasafnsglæpasaga úr smiðju Veru Illugadóttur. Þátturinn var gerður sérstaklega fyrir Borgarbókasafnið og tekinn upp í Kompunni, hlaðvarpsstúdíói Borgarbókasafnsins í tilefni af opnun þess.Hljóð og tónlist í þætti Veru er fengin frá Bensound.comViltu taka upp viðtal við langömmu þína? Ræða nýjustu fréttir við besta vin þinn? Taka upp þriggja tíma einræðu um skósmíðar? Kíktu í Kompuna – þar er, merkilegt nokk, pláss fyrir alla. Bókaðu Kompuna með því að senda okkur tölvupóst á hladvarp@borgarbokasafn.is2018-05-2214 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðJólabarnabókaspjallið - Þáttur 3Við fengum tvo lestrarhesta til viðbótar í heimsókn í hlaðvarpið um daginn og Sunna spjallaði við þær um bækurnar sem þær völdu sér fyrir jól. Við röbbum líka um jólagjafabækur, laumulestur á kvöldin og dagbækur. Tobba, verkefnastjóri barnastarfs, leit líka í heimsókn og spjallaði um bækur skrifaðar í dagbókarstíl, Önnu Frank og krúsípúsí fuglasteikur, meðal annars. Í þættinum koma fram:Lilja Karen SigurðardóttirRagnheiður Eyja ÓlafsdóttirSunna Dís MásdóttirÞorbjörg KarlsdóttirSpja...2018-02-2325 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðJólabarnabókaspjallið - Þáttur 2Bíðið þið jafn spennt eftir Bókatíðindum og við? Merkið þið við bækurnar sem þið viljið helst finna í pökkunum undir trénu? Eða eruð þið að velta því fyrir ykkur hvaða bók þið ættuð að gefa krökkunum í kringum ykkur?Í Jólabarnabókaspjallinu heyrum við beint frá lestrarhestum á aldrinum 8-11 ára sem hafa tekið að sér að lesa jólabækurnar fyrir Borgarbókasafnið, sem og barnabókavörðum safnsins.Í þættinum koma fram:Axel Daðason, 5. bekk í AusturbæjarskólaHannes Þórður Hafstein, 3. bekk í AusturbæjarskólaSunna Dís MásdóttirÓlöf Sverrisdóttir...2017-12-1437 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðJólabarnabókaspjallið - Þáttur 1Bíðið þið jafn spennt eftir Bókatíðindum og við? Merkið þið við bækurnar sem þið viljið helst finna í pökkunum undir trénu? Eða eruð þið að velta því fyrir ykkur hvaða bók þið ættuð að gefa krökkunum í kringum ykkur? Í Jólabarnabókaspjallinu heyrum við beint frá lestrarhestum á aldrinum 8-11 ára sem hafa tekið að sér að lesa jólabækurnar fyrir Borgarbókasafnið, sem og barnabókavörðum safnsins. Í þættinum koma fram:Dagur ThorsHögni HalldórssonSteinunn Margrét HerbertsdóttirHrafnhildur OddgeirsdóttirSunna Dís Másdóttir...2017-12-0728 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókmenntir augnabliksins - TjarnarbíóÞáttur um leikverk í Tjarnarbíói í haust. Rætt er við Ragnheiði Hörpu um brúðu- og barnaleiksýninguna Íó.Fram komaÓlöf Sverrisdóttir, Björn Unnar Valsson og Ragnheiður Harpa.Hljóðmaður: Ingi Þórisson2017-12-0229 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókmenntir augnabliksins - Borgarleikhúsið.Í þessum þætti er fjallað um leikrit Borgarleikhússins þetta leikárið og Medea eftir Evripídes sérstaklega tekin fyrir.Rætt er við leikstjóra Medeu, Hörpu Arnardóttur.Í þættinum koma fram: Björn Unnar Valsson, Ólöf Sverrisdóttir og Harpa ArnardóttirHljóðmaður: Ingi Þórisson2017-11-0937 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókmenntir augnabliksins - Þjóðleikhúsið.Í Þættinum koma framÓlöf Sverrisdóttir og Ragnar Bragason.Lauslega er fjallað um eitthvað af leikritum Þjóðleikhússins leikárið 2017 – 18en ýtarlegri umfjöllun fær leikritið Risaeðlurnar og viðtal tekið við Ragnar Bragason, höfund og leikstjóra verksins.Spilað er örlítið brot úr Risaeðlunum.Hljóðmaður: Ingi Þórisson2017-10-1925 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðLestur er vestur, VesturlandÍ þættinum Lestur er vestur koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriÞórður Sævar Jónsson, bókavörður og húsvörðurSpjallað er um eftirfarandi bækur:Svartfugl eftir Gunnar GunnarssonÉg man þig eftir Yrsu SigurðardótturGerpla eftir Halldór LaxnessIllska eftir Eirík Örn NorðdahlHeimska eftir Eirík Örn NorðdahlFiðrildi, mynta og Spörfuglar Lesbíu eftir Magnús SigurðssonÞorpið eftir Jón úr VörLjóðasafn Steins S...2017-06-211h 03Bókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðÚt og Suður - SuðurlandÍ þættinum Út og Suður koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriIngibjörg Ösp Óttarsdóttir, deildarbókavörður Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSpjallað er um eftirfarandi bækur: Blátt blóð: Í leit að kátu sæði eftir Oddnýju Eir ÆvarsdótturSkegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu MínervudótturGuð hins smáa eftir Arundhati RoyVetrarhörkur eftir Hildi KnútsdótturGaldrastafir og græn augu eftir Önnu Heiðu PálsdótturOrmhildarsaga...2017-06-2145 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðNorður, en ekki niður - NorðurlandÍ þættinum Norður, en ekki niður, koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriHalldór Marteinsson, deildarbókavörðurNanna Guðmundsdóttir, deildarbókavörðurSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSpjallað er um eftirfarandi bækur: Bernskubók eftir Sigurð PálssonAnna frá Suðurey, Arild Mikkelsen skráðiBókaflokkurinn um Elías: Elías, Elías á fullri ferð, Elías í Kanada, Elías, Magga og ræningjarnir, Elís kemur heim, eftir Auði HaraldsNíu þjófalyklar eftir Hermann StefánssonSpenn...2017-06-2143 minBókaspjallið | BorgarbókasafniðBókaspjallið | BorgarbókasafniðAustur, lengra en á Klaustur - AusturlandÍ þættinum Austur, lengra en á Klaustur koma fram: Ingi Þórisson, bókavörðurNanna Guðmundsdóttir, deildarbókavörðurSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSunna Björk Þórarinsdóttir, bókavörðurSpjallað var um eftirfarandi bækur:Fransbrauð með sultu eftir Kristínu SteinsdótturMóðir í hjáverkum eftir Allison Pearson Sjálfstætt fólk eftir Halldór LaxnessAð heiman eftir Arngunni ÁrnadótturFiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman StefánssonÍ miðjum draumi eftir Súsönnu SvavarsdótturA...2017-06-2148 min