Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Bruggvarpið Bruggvarp

Shows

BruggvarpiðBruggvarpiðS5E02 - ÁramótaþynkanStrákarnir hrærðu í einn svona aukaþátt, rétt fyrir áramótin.   Ýmislegt skeggrætt og skrafað.   Hér er smakkaður  Bóndalager frá Ægisgarði Frelsislager frá Dokkunni SkyrjarmurSkyrjarmur Ketkrókur Sour jólaglögg - Borg brugghús Röðull rauðöl - RVK Brugg Huginn - RVK Brugg SteðjaKveðja - Collab milli Borgar og Steðja2022-12-311h 21BruggvarpiðBruggvarpiðS05E01 - Bruggvarpið byrjar á nýjan leikEnn og aftur telja piltarnir í Bruggvarpsþátt. Vissulega er langt um liðið síðan síðast og fögur fyrirheit ávalt brostin, en hér er talið í nýtt tímabil fyrir Bruggvarpið. FArið er yfir víðan völl, enda langt síðan síðast. Lagabreytingar, nýjir bjórar, breytingar á Brugghúsamarkaði og allskonar sem er rætt. Smakkað hér er: Gæðingur Octopus Segull 67 Tindur Október öl Ölverk Hrekkur Festbier Októfer Bock Daniel nr. 97 Pastry Double Bock2022-10-281h 29BruggvarpiðBruggvarpiðS04E09 - Loksins rumskar BruggvarpiðEftir logn, lágdeyðu, lægðir, storma, COVID og rauðar viðvaranir rumskar þetta Bruggvarp loksins. Hér er farið svona létt yfir stöðu mála, hvað hefur gerst síðan síðast og þetta smakkað: Skúli nr. 70 Pale Ale frá Borg Brugghúsi Hver? nr. 10 frá Ölverk Brugghúsi Einstök Arctic Lager frá Einstök/Víking Skvetta berjakóla frá Ægisgarði (Óáfengur) Borghildur Lager og Steinbúi Pale Ale frá KHB Brugghúsi 2022-03-1555 minBruggvarpiðBruggvarpiðS04E08 - Fyrsti þáttur ársinsÍ þessum fyrsta þætti ársins 2022 er farið yfir helstu áramótahluti hjá strákunum. Áramótaskaupið er skoðað, toppar og lægðir ársins á undan, í bjór og rennt er yfir sölutölur í Vínbúðinni örlítið.2022-01-141h 01BruggvarpiðBruggvarpiðS04E07 - Síðasti jólaþátturinn þetta áriðSenn líður að tíðum og núna er síðasti jólaþátturinn kominn í hús. Amk þetta árið. Hér er farið yfir ýmislegt, jólin rædd, nýjar sóttvarnaraðgerðir ræddar, og bara allskonar. Fátt mannlegt óviðkomandi þessum strákum. Hér er smakkað Akasleikir frá Borg Drunken Monkey frá RVK brewing Choc HoHo frá Smiðjunni í Vík Cosmos 2022 frá RVK brewing Gáttaþefur frá Borg Brugghúsi2021-12-2356 minBruggvarpiðBruggvarpiðS4E06 - Annar í jólumHér er dottinn annar þátturinn sem gengur meira og minna útá jólabjór. Strákarnir fara í „djúpa“ greiningu á jólabjóramarkaðinum og kasta fram sleggjudómum eins og þeim einum er lagið. Staðsetningar nýrra Vínbúða og þróun stór-Hlemmsvæðisins rædd. Í þessum þætti var smakkað: Hátíð í bæ frá Múla Litla Brugghúsið jóla hvað? Haltá jólaketti frá Smiðjunni Vík Vetrarævintýri IPA frá OG natura Anchor Merry Christmas 2021-11-261h 09BruggvarpiðBruggvarpiðS04E05 - Fyrsti í jólabjórum og hungangsflugan.Í ár ætla strákarnir nú ekki alveg að missa sig í jólabjórunum eins og síðast en ætla að smakka allskonar sem þeim finnst skemmtilegt. Hér er farið aðeins yfir jólabjóramarkaðinn, Ora Jólabjórinn smakkaður ásamt HóHóHó tunnuþroskuðum stout frá Ægisgarði. Þá er Hampbjór frá Svaneke brugghúsinu í Borgundarhólmi. En strákarnir kíktu líka í heimsókn í Öldur Mjaðargerð og rifja upp viðtalið sem þeir tóku þar. Þar opnaði Sigurjón Friðrik Garðarsson augu BruggVarpsins fyrir leyndardómum mjaðarins.2021-11-121h 14BruggvarpiðBruggvarpiðS04E04 - HEimsókn í BjórlandStrákarnir fóru að heimsækja Þórgný  Thoroddsen hjá Bjórlandi. Þar var ekki í kot vísað og fóru þeir yfir upphaf og mögulegan endi Bjórlands ásamt ýmsu öðru. Í þessum þætti var ýmislegt smakkað, m.a. Raföl frá A6 brugghúsinu á Akureyri, tilraunabjór frá Steðja, Samstarfsverkefni við Ægisgarð og loks einhver algjör bomba frá Omnipolo.2021-10-301h 03BruggvarpiðBruggvarpiðS4E03 - OktóberfestgrínNú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur. Í þessum þætti er smakkað: Paulaner Oktoberfest Bier Litla Brugghúsið Keilir IPA Veður fyrir leður Hoppy Pils nr. C30 The Brothers Brewery Dirty Julie IPA Býkúpudrottning honey soured ale2021-10-151h 09BruggvarpiðBruggvarpiðS04E02 Lite haustÞessi þáttur hefst á óvnjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.2021-10-081h 00BruggvarpiðBruggvarpiðS4E01 - Kosningaviti Bruggvarpsins og netverslanir með áfengiBruggvarpið snýr aftur.  Strákarnir setjast aftur við míkrafóninn og röfla eins og þeim einum er lagið. Í þessum þætti er farið aðeins yfir kosningarnar framundan. Höskuldur veltir því fyrir sér með hvaða leiðtoga stjórnmálaflokkanna hann myndi vilja fá sér bjór, með dyggir aðstoð Stefáns. Þá er forystuféð aðeins dregið í dilka með hvaða bjóra þeir eru paraðir við. Svo ræða þeir piltar að sjálfsögðu daginn og veginn og snerta aðeins á netverslunum. Í þessum þætti er smakkað: Garðskagi hveitibjór frá Litla brugghúsinu Grænih...2021-09-171h 08BruggvarpiðBruggvarpiðS3E17 - Síðasti þáttur fyrir sumarfríSíðasti reglubundni þáttur sumarsins. Hér var farið aðeins yfir Bjórhátíðina sem að var haldin í Vestmannaeyjum, hjá Brothers Brewery. Þá var farið um víðan völl, meðal annars kíkt aðeins í Brugghús blaðið sem að fylgdi með Fréttablaðinu í loka júní. Hér var smakkað: Djúpið frá Dokkunni Sumarálfur Strawberry White frá Álfi Brugghúsi Hver? nr. 4 frá Ölverk Hveragerði Malbygg Ribbit frá... Malbygg  Skjálfti tunnuþroskaður frá Ölvísholti2021-07-0257 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E16 – Innlit á RVK BruggstofuStrákarnir fóru og hittu hann Sigga hjá RVK Bruggfélagi á nýja veitingastað félagsins á Snorrabrautinni. Viðeigandi að þetta var áður ein vinsælasta ÁTVR búðin, en það er önnur saga. Sigurður Pétur Snorrason eða Siggi eins hann er alltaf kallaður fór með strákunum yfir sögu RVK brewing , brugghússins og ræddi ý verkefni. Þá voru kranar og dósir vitanlega ekki langt undan: Hér var smakkað: Hnoðri SIPA Verum bara vinir Skuggi Porter Holt Brett Ale Keisarinn Tripel IPA2021-06-251h 03BruggvarpiðBruggvarpiðS3E-Auka1 - Bjórhátíð BBBjórhátíð Brothers Brewery. Það er fjör og strákarnir fóru þangað. Það er of langt mál að telja allt upp sem var smakkað en í staðin var hatíðinni gerð stutt skil á staðnum. Óklippt gleðinu hljómar svo!2021-06-1819 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E15 - Sumarið er tíminnSumarið er tíminn söng maðurinn. Og það er alveg rétt. Sumarið hefur fært okkur þónokkra sumar bjórar sem hér eru smakkaðir. Strákarnir ræða saman um norðurlandið og hvernig Stefán mun taka N1 mótið í sumar.  Þá eru bjórhátíðir sumarsins ræddar lítið eitt ásamt því að baráttunni um netverslanirnar er gerð skil. Hér er smakkað: Sundsprettur frá Segli 67 Ölverk Cuexcomate sumarbjór Fá Cher til að ná sér frá Smiðjunni Vík Ferskjur á kantinum sumar hefeweizen frá Böl...2021-06-1151 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E14 - Snemmbúið sumar eða síðbúið Eurovision... þáttur um allskonar.Sumarið er handan hornsins og í stað sólar virðist það koma með vefverslanir og óáfenga bjóra. Hér er farið yfir ýmislegt, byrjað á óáfengum bjórum og svo færa strákarnir sig út um allt borðið. Löng umræða um vefverslanir í áfengi, smá spjall um bjórhátíðir og sitthvað fleira. Hér er smakkað: Ylfa, Óáfengur bjór frá Borg Brugghúsi Kjartan, Kombucha frá Borg Brugghúsi Lady Brewery Dream Baby Dream NEIPA Lady Brewery Dr. Schepsky's Passion Fruit Sour frá Ægi Brugghúsi Co&Co Kókos Imperial Stout2021-05-2850 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E13 - Þátturinn um allskonarJæja, það er komið sumar. Loksins. En það er enn COVID, þó það sjái fyrir endann á því. Strákarnir fara hér aðeins yfir stöðuna og fókusa aðeins á sumarbjórana. Smá umræða um allar þessar netverslanir. Hér er smakkað: Slipfrá Smiðjunni í Vík 10 Beers Cream Ale nr. C29 Frá Borg Brugghúsi Sólstingur– Segull 67 Hey Kanína nr. C22 IPL frá Borg Brugghúsi Er of snemmt að fá sér ? Frá Smiðjunni í Vík Sólveig nr. 25 hveitibjór Frá Borg Brugghúsi...2021-05-141h 13BruggvarpiðBruggvarpiðS3E12 - Ó blessuð sértu sveitin mín ÖlvísholtÍ þessum þætti bregða strákarnir undir sig betri fætinum og fara upp fyrir Elliðaárnar.  Stefnan var tekin á Ölvísholt þar sem að hún Ásta Ósk Hlöðversdóttir ræður ríkjum. Þar var ekki í kot vísað og sagði Ásta strákunum upp og ofan af starfseminni Ölvísholti, hvernig hún fór í brugg, allt á meðan hún bruggði bjór. Í þessum þætti var smakkað: Skjálfti Freyja Wit bjór Freyja Bláberja Wit Rauðvínstunnuþroskuð Jóra, imperial stout Hvítvínstunnuþroskaður Sk...2021-04-301h 11BruggvarpiðBruggvarpiðSumardagurinn þyrstiJæja, það er formlega komið sumar. Sumarbjórarnir eru að komast á kreik og um ýmislegt að spjalla. Ný brugghús skoðuð aðeins og vangaveltur um allskonar íþróttatengingar í bjórnum. Í þessum þætti var smakkað: Bergið Pilsner frá Litla Brugghúsinu Bönní Bönní Bönní Bönní White Ale Cyclopath Pale Ale frá Reykjavík Brewing Hlemmur IPA frá Reykjavík Brewing Fornar ástir Frá Reykjavík Brewing Glussi nr. T32 Double IPA frá Borg Brugghús2021-04-231h 21BruggvarpiðBruggvarpiðS3E10 - Austurland að GlettingiÞegar pósturinn bankar með töskuna fulla af góðgæti var ekki annað hægt en að taka því fagnandi. Upp úr pokanum komu 4 alveg prýðis bjórar sem að strákarnir gerðu góð skil. Austri og Múli eru tvö brugghús með miklar tengingar og flæktar rætur á Austurlandi. Um ýmislegt er spjallað í tengslum við þetta og það var meira að segja Alþjóðlegi Saison dagurinn. Smakkað: Herðubreið Skessa, wasabi infused DIPA Birtingur Saison Burning Down the House Beer2021-04-1656 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E9 - Þátturinn með öllum lausnunum...Loksins datt þátturinn eftir páska. Enn er COVID að stríða landanum. Strákarnir hittust á laugardagskvöldi aldrei þessu vant og fóru aðeins yfir stöðuna. Ýmislegt rætt, eins og þegar Costco bauð í listun fyrir Stellu í ÁTVR, hvernig leysa má sóttvarnarhótelsvandann, fagleg úttekt á viðrunarvanda sóttvarna og lauslega rennt yfir tengingar Belga við Skota. Sumsé, algjört blaður. Smakkað er: Stella Artois Houblon Chouffe Frýs í æðum Bjór IPA frá Ölvísholti Takk frá OG natura Upp á topp og niður Pale Ale frá RVKbrewing2021-04-1155 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E8 – Páskar og aftur páskarPáskaþátturinn er kominn. Hér fara piltarnir aðeins yfir bara stöðuna, ræða eldgos, páskamat og hefðir, veitingastaði og allskonar. Enda fátt mannlegt óviðkomandi. Tengjast páskar einhvernvegin bjór? Í þessum þætti er tekið í smakk en bara frá brugghúsum sem byrja á B: Ljúflingur, Session IPA frá Böl brewing Birta mango peach & apricot gose frá Böl Brewing Salka nr. 81 frá Borg Brugghús Austur nr. 2 frá Borg Brugghús Trifecta, Belgian triple frá Böl Brewing Krosslafur nr. 30.2 frá Borg Bruggh2021-04-021h 21BruggvarpiðBruggvarpiðSaison 3 - Þáttur 7 - Komdu inn í Kófið mitt, er bylgjan skyggja ferFyrsti þáttur piltanna sem fer líka í myndbandsformi á netið! Sjá á youtube hér: https://www.youtube.com/watch?v=6-S9GQU7Mxs  Þessi þáttur var tekinn upp í gegnum fjarfundarbúnað og þegar hann var komin þangað var svo tilvalið að skella honum á netið. Hér er fyrsti þáttur piltanna á netinu í bæði hljóð og mynd sumsé.  Hér er farið yfir stöðuna, nýlegar vendingar í sóttvörum ræddar ásamt allskonar smakki. Bessi Vienna lager frá Múla Craft Hvítur wit frá Múla Craft Kommissar Saison frá Brothers Brewery  OMG súkkulaði stout frá Ölvísholti Bal2021-03-2634 minBruggvarpiðBruggvarpiðS3E6 - Brothers BreweryJóhann Guðmundsson og Hlynur Vídó frá Brothers brewery kíktu í heimsókn í BruggVarpið. Eins og allir vita sem fylgst hafa með Brothers brewery er alltaf gaman þegar þessir „bræður“ koma saman, í heidl eða hluta. Í þessum þætti fóru Höskuldur og Stefán með þeim yfir upphaf, tilurð og tilgang Brothers Brewery og smakka sig í gegnum söguna. Smakklisti: Easy Brother Eldfell Krækiberja súr bjór (2017 Tunna) Hindber Skyr sour Sigla Humlafley Humlar Alheimsins2021-03-191h 18BruggvarpiðBruggvarpiðS3E5: Bjórinn beint frá býli: Snilld eða Kjaftæði?Í þessum þætti fara strákarnir yfir málefni sem tengjast nýlegu frumvarpi um heimild til sölu bjórs frá framleiðslustað. Farið er yfir trend og tölur þegar kemur að neyslu áfengis og eru ýmsar mýtur vegnar og léttvægar fundnar. Hér er hlekkur á umsögn piltanna til Allsherjar- og menntamálanefndar.  Inn í þetta er piprað smakki á páskabjórum: Skíðastubbur frá Segli 67 Satan frá Borg Brugghúsi Páskabjór Milk stout frá Brothers Brewery Kjaftæði frá Böl Brewing Nema Stout frá Smiðjunni, Vík Ungi Qu2021-03-121h 23BruggvarpiðBruggvarpiðS3E4- Steini Stefáns af allsstaðar!Steinn Stefánsson eða Steina á Míkró, Steini á Mikkeller, Steini hjá Kex, STeini hjá KexBrewing, Steini í Ölvísholti og nú Steini í Malbygg kíki til piltanna í því sem einungis verður lýst sem afar fróðlegt spjall. Þessu spjalli var ætlað að verða styttra en þegar gleðin er við völd, er erfitt að takmarka sig og eins og í góðu partýíi vildi enginn hætta. Hér fer Steini hispurlaust yfir sín mál og dregur fátt undan.  Allskonar smakkað. 2021-03-051h 53BruggvarpiðBruggvarpiðSaison trippel, þáttur 3 - Þorraþræll og VínbúðHvað er betra en að pæla aðeins í Þorrabjórum? Drekka þá er svarið, ef einhver var í vafa. Hér er farið aðeins yfir allskonar, meðal annars farið töluvert dýpra ofan í sölutölur Vínbúðarinnar fyrir árið 2020 en gert var í þáttum áður. Þá uppljóstrast gamalt fjölskylduleyndamál frá Siglufirði og allskonar vitleysa viðhöfð. Í smakki í þessum þætti:  Vetraröl frá Víking  Þorra Kaldi  Frýs í æðum bjór, frá Ölvísholti  Súr á móti LemonIPAde frá Ægisgarði  SvartaMaría frá Segli 67.2021-02-2646 minBruggvarpiðBruggvarpiðSaison 3, þáttur 2. Árni GæðingurÁrni Ingólfur Halldórsson Hafstað bóndi, tal- og heyrnarmeinafræðingur, bruggari, þúsundþjalasmiður og bareigandi kíkti í heimsókn í Bruggvarpið. Árni Gæðingur eins og hann er alla jafna nefndur í daglegu tali er einn af upphafsmönnum handverksbrugg senunnar á Íslandi og óhætt að fullyrða að hann sé frumkvöðull handverksbara á landinu. Árni fer í skemmtilegu spjalli yfir víðan völl og segir strákunum frá tilurð Gæðings, Míkróbars, af hverju hann fór útí brugg og deilir með okkur leyndarmáli velgengni sinnar, sem snýr að fyrstu lögun hverrar tegundar.  Ýmsir bjórar smakkaðir frá Gæðingi.2021-02-191h 36BruggvarpiðBruggvarpiðSaison Trippel hefst.Nú er komið nýtt ár og það þýðir bara nýr þáttur. Saison Trippel? VAr það of fyrirsjáanlegt? Allavega. Fram undan er ár bjórsins en hér eru strákarnir að koma sér í gang. Farið yfir málin, smánunaleg sem stórvægileg. Ekki töluð vitleysan… framan af. Hér er smakkað: Yuzu Rice Lager - RVK brewing DimSum lager – RVK brewing Loftur Lagerbjór – Ægisgarður og Mói Brugghús Skúli Pale ale – Borg Brugghús Skuggi – RVK brewing Embla – Borg Brugghús Surt2021-02-081h 16BruggvarpiðBruggvarpiðÁramót 2020 - Annus Horribilis kvatt með stæl.Áramótaþátturinn. Hér er aðeins horft um öxl, klappað á bak og talað um hvað strákarnir hefðu gert betur við móttöku bóluefnisins. Smá tís fyrir næsta ár, en aðallega er tekið fyrir Sæmundur frá Borg, Festivus, samstarfsverkefni Borgar Brugghúss og Mono, Cosmos 20 og 21 frá RVK Brewing og Bóluefnið frá Borg Brugghúsi og Kalda.   Síðasti þáttur ársins. Takk fyrir hlustið.  Sjáumst á næsta ári.2020-12-301h 06BruggvarpiðBruggvarpiðSaison 2, þáttur 11: Jólabjórinn lagður!Það eina sem er vont við þetta hlaðvarpsform er að geta ekki sett sigurtónlist undir textalýsingar. Kæri hlustandi. Vinsamlegast taktu símann þinn og gúgglaðu “Theme from Rocky”. Þannig líður strákunum núna. Hér er hið ókleifa fjall sigrað og jólabjórinn lagður. Ó já. Hér er farið yfir: Föröja Jólabrygg Hvít Jól, Mandarínu White Ale JólaTumi frá Gæðingi Anchor Christmas ale Heims um Bjór A Red and White Christmas frá Mikkeller (eld2020-12-2343 minBruggvarpiðBruggvarpiðSaison 2, Þáttur 10: Þetta er aaaaaaaaalveg að hafastJæja. Ef þetta á að nást verður að fórna öllu sagði maðurinn og tók tappann úr flöskunni. Hættumerki sagði móðir hans og konan dæsti. En við erum Hlaðvarp í almannaþágu. Áfram veginn! Þetta skal hafast... Hér er klárað: Jingle Balls frá Gæðingi Tveir vinir og annar í Jólum Frostrósir frá RVK brewing Askasleikir Frá Borg Eitthvað fallegt All that Glitters Ain‘t gold frá Lady Brewery Egils Malt Jólabjór Leppur frá Brothers Brewery Kaldi Súkkulaði Porter Giljagaur frá Borg Brugghúsi 24 frá Ölvísholti Heilög Eilífð Barrel Aged P2020-12-221h 39BruggvarpiðBruggvarpiðNíu bjórum fyrir jól…„Að setja sér raunhæf markmið eykur líkurnar á því að þau náist” sagði markþjálfinn sem strákarnir hafa aldrei hitt. Að smakka alla jólabjórana er að reynast snúið. Er þetta markmið kannski raunhæft? Það allavega saxast á þetta. Hér er farið yfir ein 11 stykki ásamt því að Stefán kemur upp um sig að hafa aldrei pælt í mettaðri fitu. Bjórar í smakkröð: Jóla Thule frá Víking Víking Jólabjór frá Víking Okkara bjór frá Okkara í Færeyjum QAJAQ X-mas lager frá Greenland Craftworks...2020-12-181h 35BruggvarpiðBruggvarpiðSíson 2: Þessi jólabjór klárast aldrei...„Þetta er nú meira verkefnið“ dæsti maðurinn og hélt áfram. Það eru orð að sönnu. Eftir smá tafir þá heldur jólasmakkið áfram ótrautt hér í þessum 8. þætti saison 2. Nú eru það Víking Lite Jóla, Jólapakki frá Segli, Jóli Bæjó frá Móa Brugghúsi, Tomorrows Dreams frá Lady Brewing, Halelúja jólabjór og Almáttugur jólaöl frá Steðja brugghúsi, Jóló frá OG natura og loks Eftir Sex frá Reykjavík Brewing. Að þessu smakki loknu er búið að fara yfir 53 bjóra auk einhverra óáfengra telst okkur til. Og ekki nema um 40 eft2020-12-151h 09BruggvarpiðBruggvarpiðSaison 2 - Sjöundi þáttur í sjöunda veldi. Jólabjórasmakk af stærri gerðinni…Er allt erlent vont? Heldur betur ekki. En það leynist nú allskonar misjafnt inn á milli. Í þessum þætti sem er lengri en góðu hófi gegnir gera strákarnir tilraun til að smakka alla jólabjórana sem til eru frá útlöndum. Dyggir hlustendur vita að strákarnir telja Færeyjar eins og Vestmannaeyjar til íslenskra bjóra. Þannig að núna er það restin af heiminum undir. Hér í þessum þætti er byrjað á Pripps og svo bara niður listann, kannski ekki alveg í stafrófsröð samt. Bruggvarpið GETUR EKKI MÆLT MEÐ því að þetta sé leikið eftir, enda fagdrykkjumenn á ferð. Albani...2020-12-042h 16BruggvarpiðBruggvarpiðSaison 2: Það þarf ekki alltaf að vera vín.Í þessum þætti staldra piltarnir aðeins við, enda augljós áhrif sem þetta smack hefur á heilsuna, skv. Stefáni. Þessi þáttur er smá hliðarskref þar sem að allt óáfengt sem telst til bjórs og hægt er að tengja við jólin og Stefán og Höskuldur fundu, var smakkað. Egils malt, Víking malt, Danskt hvítöl var tekið fyrir, áður en allir jóla-radlerarnir voru kannaðir. Loks var endað á JólaKalda 2,25%, Hvítum Jólum Mandarínu White Ale 2,25% og loks óáfengum Froðusleiki frá Borg. Ekki þurfti svo sem að eyða löngum stundum í allt, enda lan...2020-11-2745 minBruggvarpiðBruggvarpiðSaeson 2: Almanna varir halda áfram að funda - Jólasmakkið heldur áframJá, þetta trukkast áfram. Reyndar er ótrúlega mikið magn af jólabjór eftir að smakka. Hér halda piltasrnir reyndar áfram og í þessari röð smakka þeir: JólaKalda frá Bruggsmiðjunni Kalda, Grýlu frá Ölverk í Hveragerði, Santas Blue Balls frá Smiðjunni, Vík í Mýrdal, Ekkert sérstaklega jólaleg jól frá Ægisgarði, JólaKisa frá Malbygg og loks Gluggagægi frá Borg Brugghúsi. Það er samt nóg eftir. Áfram veginn…2020-11-201h 10BruggvarpiðBruggvarpiðSaison 2 - fjórði þáttur: Jólasmakk í almannaþágu!Í þessum þætti hefjast piltarnir skipulega handa. Jólasmakkið er tekið skipulega og „vísindalega”. Byrjað er á Jólagulli. Svo er farið í Túborg jóla og hann í borinn saman við Jólatúborg frá því árinu áður. Þá er Jólaálfur smakkaður, sem er lager ale og svo farið yfir í HóHóHó brúnölið frá Ægisgarði. Að því loknu er ráðist í samanburðarsmakk á Skyrjarmi frá Borg Brugghúsi frá því ár og frá því í fyrra og loksins er lagt faglegt mat á það hvort Smiðjan í Vík hefði átt að breyta Choc Hó Hó bjórnum sínum í ár, frá uppskriftinni sem strákanarni voru mjög hrifnir af...2020-11-121h 14BruggvarpiðBruggvarpiðSíson tvö: koma samt ekki örugglega jól?Eða er þetta kannski Saison Dubbel, þáttur Trippel?  Í þessum þætti er aðeins farið yfir stöðuna í bjórheimum, ýmislegt smakkað, eins og Sæmundur frá Borg Brugghúsi, Polychrome frá Mono brewing auk JólaMagnúsar Frúktusar, Ris a la Sour Gose frá Smiðjunni og kolsýrðan Þriðja í jólum frá Böl.2020-10-301h 17BruggvarpiðBruggvarpiðSíson 2: Með Ása uppí erminniÞað gerðist loksins að þáttur tvö sem hefur tafist af allskonar óáhugaverðum ástæðum, datt á netið. Hér fá strákarnir valinkunnan snilling með sér á þriðja hljóðnemann. Allt rætt milli himins og jarðar. Vínarvalsinn frá Gæðingi smakkaður, Paulaner Októberfest bjórinn, Ottó frá Borg Brugghús og allskonar góðgæti sem Ási kom með.  Þá er vandamálin með það hvaða á að gera við tómu húsin þegar álverin hætta leyst á nóinu.  2020-10-231h 08BruggvarpiðBruggvarpiðSíson 2: Fyrsti þáttur. Böl er líka öl!Jæja. Eftir töluverða sumarpásu snúa strákarnir aftur með fögur loforð um betri  tíma í farteskinu.  Allskonar smakkað, meðal annars Frábært tækifæri frá Lady Brewery og Weihenstephaner ásamt öllu Böl safninu með Böl strákunum.  Axel og Hlynur kíktu til okkar í það sem okkur þótti stórskemmtilegt spjall.  Minnum á netfang þáttarins, bruggvarpid@gmail.com ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða ábendingar.2020-10-021h 17BruggvarpiðBruggvarpiðSögulegur SumarþátturEinn síðbúinn Bruggvarps þáttur sem hafði legið á tunnu og þroskast í einhvern tíma. Þessi þáttur fjallar aðeins um Lady Brewery og hvítvínstunnuþroskaða Skaða.  Sögustund með Stefáni þar sem White top bjórævintýrið er rakið. Sjá nánar hér https://timarit.is/page/2520596?iabr=on. Glösin sem Stefán talar um eru Dwarfware hönnun eftir Hrafnkel Birgisson vöruhönnuð og Reyni A. Óskarsson sem starfar víst við að meta sannleiksgildi íslendingasagnanna. Heimasíða verkefnisins er https://www.dwarf-ware.com/og er Facebook síðan þeirra hér: https://www.face2020-08-031h 00BruggvarpiðBruggvarpiðSumarþátturinn fjórðiEftir samveru í sitthvoru sóttvarnarhólfinu á N1 fótboltamótinu á Akureyri söknuðu strákarnir hvors annars svo mikið að þeir ákváðu að taka einn léttan sumarþátt. Allskonar rætt, m.a. Bjórböðin hjá Kalda Brugghúsi og Iðnaðarsafnið á Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Myndir frá Iðnaðarsafninu eru á facebook síðu Bruggvarpsins, hér:  https://www.facebook.com/Bruggvarpid Þá var Krombacher, hveitibjór í dós hellt í glös, Weihenstephaner hefe hveitibjórinn, Gull Lite White Ale og svo eigin framleiðsla smökkuð. American Wheat bjórinn er hægt að skoða uppskriftina hér: https://brewdogre2020-07-1050 minBruggvarpiðBruggvarpiðEinn óvæntur sumarþátturJæja, það er nýr sumarþáttur. Strákarnir smakka Sigla Humlafley frá Brothers Brewery, Fant, Kysstu mig frá Borg og Flamengo frá Malbygg. Svo lögðust menn í símann og hringdu út og suður. Kjartan Vídó og Simmi Vill svöruðu símanum sínum. Síðasta bjórhátíð gerð upp og aðeins rabbað um fyrirætlanir með Barion Bryggjuna brugghúsið. Allskonar. Skál!2020-06-2650 minBruggvarpiðBruggvarpiðSumarþáttur númer 2 - Sól í glasiNettur sumarþáttur númer 2. Allskonar skeggrætt og farið yfir.  Bríói átti 10 ára afmæli, brugghátíðir sem verða og ekki verða og bjórsmakk. Hvað er meira sumar en það? 2020-06-091h 03BruggvarpiðBruggvarpiðSumarþátturinn fyrstiBruggVarpið í kjölfarið á Covid-19 skoðar sumarbjóra.  STrákarnir fara yfir stóru myndina, fara yfir bruggið sem þeir hafa gert og smakka svo 5 sumarbjóra. Foli frá Gæðingi, Víking Sumaröl, Naggur sumar session IPA frá Segli 67, Dr. Schepskys passion fruit sour frá Agisgarði og Magnús Fructus frá Rvk. Brewing.2020-05-141h 21BruggvarpiðBruggvarpiðPáskaþáttur Bruggvarpsins.Strákarnir gera upp upphafsbruggið aðeins og ræða það næsta. Fyrsta afurðin er síðan smökkuð. Fyrsta bruggið. Og það var ekkert slor. Frábært segja jafnvel sumir. Páskapúki frá Dokkunni, Undraland frá Borg, BunnyBunnyBunnyBunny White ale frá Ægisgarði, tveir vinir og annar í Páskum, páskabjórinn frá Víking, Súkkulaðipáskabjórinn frá Segili 67. Öllu rennt í glas sem og einum gömlum Barabas.2020-04-111h 23BruggvarpiðBruggvarpiðÁst á tímum COVIDStrákarnir komust aftur á bragðið við síðasta þátt en ákváðu að hvíla bruggtækin aðeins. Sest var niður og staðan tekin á okkar allra bestu í bjórheimum. Hvaða áhrif hefur núverandi ástand á bjórheima? Tveir Siggar, einn Óli og Andri til teknir tali. Fréttir af framleiðslunni hjá Kalda, hressleiki í Skipholtinu, röddin hjá Ægisgarði og forstjórinn á hálsunum. 4 snillingar leggja strákunum línurnar á tímum COVID. Og tæknin klikkar ekki. Hvurslags. 2020-03-261h 07BruggvarpiðBruggvarpiðLoksins, loksins, Bruggið hið fyrsta.Eftir áþreifanlega fjarveru strákanna vegan verkfalla, veirufaraldurs og tæknilegrar vankunnáttu er gerð önnur tilraun við það að hefjast handa. Hér hefst bruggið. Hér er ágætt að koma með disclaimer: EF þú hlustandi góður ert nýr að bruggi er þetta ekki þátturinn fyrir þig. Þ.e. þátturinn til að læra nokkurn skapaðan hlut. Kannski er ágætt að hlusta á þennan þátt sem víti til varnaðar. En ýmislegt er smakkað, m.a. Linda collab RVK brewing og Víking, Páskagull og sitthvað fleira. Svona smá yfirlit fyrir þá sem vilja fletta: 00:00 – Inngangur 09:25...2020-03-201h 22BruggvarpiðBruggvarpiðBruggVarpið lifir, Hilmir snýr heim, Return of Jedi og aðrir góðir frasar…Eftir smá fjarveru snýr BruggVarpið aftur. Þetta eru árdagar þessa hlaðvarps og tæknigeta strákanna eins og áfengislaus bjór, það vantar töluvert uppá. Í þessum þætti taka strákarnir kerfi Vínbúðarinnar til bæna, fara aðeins yfir sölutölur og hvernig verðmyndun bjórs fúnkerar. Þá er Vúlkanía bjórinn aðeins smakkaður.2020-02-2558 minBruggvarpiðBruggvarpiðAlþjóðavæðing og pólitíkHlaðvarpið er alþjóðavætt, Ægisgarður, þýskhreinleikalög og smá umræða um pólitík. Allt sem góður bjórþáttur þarf að hafa.  2020-01-311h 08BruggvarpiðBruggvarpiðBjórklúbbur Advania og stöðugleikinn í EyjafirðiBruggvarpið lullar áfram. Þáttur 2. Allskonar sem ekki hefði átt að fara á netið fær að fljóta sökum leti þess er klippir Bruggvarpið. Skandall.    Bjórklúbbur Advania kíkir í heimsókn og tekur spjallið við Stefán og Höskuld, Ölgjörvi smakkaður sem og Stromtrooper.  Snúningur tekinn eftir það á Kalda brugghúsi og bjórstílar framtíðarbruggsins planaðir.   Í þessum þætti er smakkaður Ölgjörvi, Stormtrooper frá Bjórklúbbi Advania og RVK brewing sem og Kaldi trippel frá... jú, Kalda.  2020-01-2455 minBruggvarpiðBruggvarpiðUpphafið með Árna LongBruggvarpið hefur formlega gögnu sína. Piltarnir fá til sín í heimsókn Árna Long sem segir þeim upp og ofan af sínum ferli.  2020-01-171h 20BruggvarpiðBruggvarpiðLeiðréttingarkitlÞað er oft ágætt við tímamót að byrja með hreint borð. BruggVarpið er ekki óskeikult þannig að tiltekt er framin á glæfralegum fullyrðingum. Verst að Stefán var bara ekki í nágreninu. En það er auðvitað leyst.  Bríó í glasi og svo er aðeins tekið á Bjössa Bollu í lokin. Hér er síðasti bónusþátturinn áður en formleg dagskrárgerð hefst.2020-01-0929 minBruggvarpiðBruggvarpiðÁramótakitlÁramótaþáttur Bruggvarpsins, í kitl seríunni. Spekingarnir spjalla, verulega óvarlega á köflum, um áramótin og bjórana. Smakkið er ekki af verri endanum, ChocHoHo, frá Smiðjunni, Stjörnuljós frá Borg og Smiðjunni, SkúliSkúli frá Borg, Óþekktir skógar frá Lady brewery og loks Cosmos frá Rvk Brewing. Áramótahugmyndir og uppgjör þar sem við munum ekki eftir neinu. Óábyrg áramótaheit og loforð… er það ekki alltaf þannig?2019-12-311h 09BruggvarpiðBruggvarpiðKitl í fjórðaveldiKitliKitliKitl… Kitl.  Fjórði þátturinn í Kitlu-seríunni og jafnframt sá síðasti um jólabjórana er um… einmitt: Jólabjóra.  Farið um víðan völl og sjaldnast töluð vitleysan. Hvað er málið með allar þessar bjórhátíðir? Í þetta skipti er þetta smakkað: Bjúgnakrækir – Borg Brugghús Bjólfur – Austri Brugghús JólaDrangi – Dokkan FuruHlynur – Ölverk Hvernig Elvar stal jólunum – Ölverk Snjókarl – Segull 67 Hóhóhó – Ægisgarður Brugghús Eitthvað fallegt – RVK Brewing...2019-12-161h 02BruggvarpiðBruggvarpiðÁfram er kitlað - Þriðji í kitlu fjallar um minna þekkta útlendinga í jólabjóraflóðinuÞemað í þriðja kitluþætti eru minna þekktir útlendingar. Hér eru teknir fyrir 5 bjórar sem þeim félögum fannst áhugavert að smakka sem kannski hafa ekki ratað alla jafna í ísskápinn hjá þeim. Ýmsum staðreyndum hent fram af fullkomnu ábyrgðarleysi. Bjórar sem teknir eru fyrir hér eru Pripps Blå Jólaöl, Cerveza de Navidad 2019 árgerð, Anchor jólabjórinn, La Corne du Bois des Pendus d'hiver og N‘Ice Chouffe, þeir tveir síðastnefndu frá Belgíu.  Myndir má sjá á instagram síðu Bruggvarpsins, https://www.instagram.com/bruggvarpid/2019-12-0550 minBruggvarpiðBruggvarpiðKitlu þáttur 2 - Meiri jólabjórÍ öðrum kitluþætti (teaser) taka kumpánarnir upp léttara hjal. Ójólalegir jólabjórar eru til umræðu og eru teknir fyrir 5 slíkir ásamt einum meðreiðarsveini. Hægt er að sjá bjórana sem eru til umfjöllunar á instagram síðunni okkar undir Bruggvarpið.2019-11-2845 minBruggvarpiðBruggvarpiðBruggvarpið kynnir sig - JólabjórBruggVarpið, nýr hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar hefur sig til flugs. Í þessum kitluþætti (Teaser) förum við mjög takmarkað yfir nokkra jólabjóra og erum að prófa okkur aðeins áfram með tæknina. Misgáfulegar athugasemdir eru settar fram af miðaldra karlmönnum sem hata ekki að tala í míkrafón. Eiginleg þáttargerð hefst ekki fyrr en eftir áramót. Fylgist með okkur á instagram, bruggvarpid.2019-11-221h 09