podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
EKKERT RUSL - Lena Og Margret
Shows
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Sea Growth er frumkvöðlafyrirtæki sem hyggst rækta fiskmeti með hjálp vísindanna með því að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum, svokallaðan vistfisk. Birgitta Guðrún Schepsky Ásgrímsdóttir er einn stofnenda Sea Growth.
Nýr heimur opnaðist þeim Lenu og Margréti þegar þær ræddu við Birgittu sem er einn af fjórum stofnendum frumkvöðlafyrirtækisins Sea Growth. Fyrirtækið hlaut Gulleggið 2024 en hugmyndin gengur út á það að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum svokallaðan vistfisk. Ferlið er þannig að frumusýni er tekið úr villtum heilbrigðum fiski og frumurnar ræktaðar upp í þar til gerðum líftönkum. Draumurinn er að hefja starfsemina á Íslandi til þess að nota endurnýjanlega orku og íslenskt vatn. Til tals komu 3D prentarar í tengslum við matvæli og margt annað framandi. Lena og Margrét spyrja sp...
2024-05-23
48 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - "Hættum að væla og hugsum í lausnum,, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra í líflegu viðtali.
„Við verðum amk næstu tvö árin með öfug orkuskipti sem þýðir að við erum með neikvæða þróun í grænu orkunni sem við státum okkur af. Það er skortur á raforku og því þurfa fyrirtæki í stóriðju að fara í olíu aftur, losun eykst og loftslagsbókhaldið okkar hefur farið niður,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra í viðtali í hlaðvarpinu Ekkert rusl. Hann segir að við verðum vinna hratt og láta hendur standa fram úr ermum til þess að mæta orkuþörfinni og lítið hafi verið hugsað til framtíðar síðustu 15-20 árin, þessi st...
2024-04-24
1h 05
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Carbfix er fyrirtæki sem við erum afar áhugasamar um því þar virðast gerast töfrar sem líkja eftir náttúrunni til þess að stuðla að hreinna andrúmslofti.
Ásdís Nína Magnúsdóttir sem starfar hjá Carbfix segir okkur frá á lifandi hátt en Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í bindingu CO2 í bergi neðanjarðar. Fyrirtækið hefur frá árinu 2012 bundið yfir 90 þúsund tonn af CO2 á Íslandi með eigin tækni og íslensku hugviti. Stefnt er að frekari innleiðingu hennar bæði á Íslandi og erlendis. Coda Terminal verkefni Carbfix hlaut 115 milljón evru styrk frá Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins en markmiðið með því verkefni er að binda 3 milljónir tonna af CO2 á ári í Straumsvík.
2024-03-27
46 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Hún hefur lyft grettistaki þegar kemur að því að nýta mat þannig að allir hafi hag af. Bergrún Ólafsdóttir starfar nú sem verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum en var áður hjá Hjálpræðishernum.
Bergrún er með ótrúlegan kraft og í raun framúrstefnulega hugsun þegar kemur að því að nýta matvæli. Hún þekkir það vel sjálf að þurfa að spara og nýta vel það sem er í ísskápnum og hefur risastórt hjarta, bæði gagnvart þeim sem minna mega sín og móður jörð. Hún hikar ekki við að fara með afganga í Frískápana svokölluðu sem eru víðsvegar um bæinn og segir okkur frá því þegar hún fór í frí og tæmdi ísskápinn sinn og fór með allt í Frískáp. Hún grípur sér líka stundum saml...
2024-02-13
43 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Matarleifarnar okkar eru að miklu leyti að fara í réttan flokk, eða allt að 70%, eftir að nýtt samhæft ruslflokkunarkerfi tók gildi. Þetta segir Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta-og viðskiptaþróunarstjóri Sorpu.
Gunnar Dofri er skemmtilegur viðmælandi enda er hann því vel vanur að tala í mikrófóninn þar sem hann heldur sjálfur úti hlaðvarpinu Leitin að peningunum. Hann segir okkur frá því að 7 tonn eða heilir 2 gámar komi inn í góða hirðinn á dag! Við fræðumst hjá honum um plastið en það sem er óendurvinnanlegt er allt brennt. Nú fyrir jólin er gott að huga að því að frauðplastið utan um tæki og dót á alltaf að fara í endurvinnslustöð, alls ekki í plasttunnuna. Það má alls ekki brenna það með öðru plasti. Íslendingar hafa staðið sig virkilega vel eftir a...
2023-12-17
1h 03
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Að þessu sinni fórum við Ekkert rusl tvíeykið á Matvælaþing sem haldið var í Hörpu og settum upp pop-up hlaðvarp. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra er fyrst níu viðmælenda sem við tókum tali í þessum fræðandi og lifandi þætti.
Þátturinn okkar er nú í fyrsta sinn tekinn upp sem pop-up hlaðvarp og það í Hörpu þann 15. nóvember á þingi um hringrásarhagkerfið í tengslum við matvælaframleiðslu, - dreyfingu og -neyslu. Matvælaráðuneytið stendur fyrir þinginu sem haldið var í annað sinn og er þátturinn stútfullur af fræðslu sem á beint erindi til neytenda. Til að mynda fáum við að kafa ofan í ruslið og sjáum hversu miklu hvert mannsbarn hendir ár hvert og tölurnar eru sláandi. Það kemur okkur á óvart að vökvi er ekki með í tölfræðinni þannig að mjólkurvörur, súpur og annað sem fer í vaskinn, fer einmitt í vaski...
2023-11-17
1h 25
EKKERT RUSL
Ekkert rusl - Hvernig getum við nært okkur án þess að ganga um og of á móður jörð? Þessu svarar Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, í þessum nýjasta þætti.
Lena varð kaupsjúk eftir að hafa sett sjálfa sig í kaupstraff allt árið 2022. Hjól atvinnulífsins fundu heldur betur fyrir því þetta árið að Lena væri farin að strauja kreditkortið sitt. Nú hugar hún að því að fara aftur í það að hefta kaupagleðina 2024. Sjáum hvað setur en Margrét greinir frá því að hún notar árlega vel yfir 2000 bómullaskífur til þess að þrífa á sér andlitið kvölds og morgna. Lena segir að hún eigi að hætta þessu rugli og byrja að nota þvottapoka í staðinn. Þetta og margt fleira ræða þær í glænýjum haustþætti af EKKERT RUSL...
2023-11-01
1h 07
EKKERT RUSL
Ekkert Rusl - Steinunn Sigurðardóttir okkar farsælasti fatahönnuður og listakona segir okkur frá því hvernig hún umgengst klæðnað og talar um heiminn út frá fataframleiðslu.
Steinunn Sigurðardóttir er Íslands farsælasti fatahönnuður. Hún umgengst föt og textíl á sinn einstaka hátt enda eru líklega fáir með þá þekkingu sem hún hefur á ólíkum efnum, vefnaði og öllu því sem viðkemur að velja hvað passar best í flík. Hún vann á árum áður í stóru tískuhúsunum og fékk að byggja upp prjónadeildir heimsfrægra merkja. Nálgun hennar er einstök og það má enginn missa af þessum þætti, sem áhuga hefur á því hvernig við neytum og klæðum okkur og umhverfismálum því tengt.
2023-05-04
1h 13
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Freyr Eyjólfsson, Sorpu segir okkur allt sem snýr að nýrri og risastórri Góðs hirðis verslun sem opnar bráðlega. Bjarni Ágústsson, hjá ON, ræðir rafbílavæðinguna
Þeir eru hressir viðmælendur þessa þáttar en Freyr Eyjólfsson hjá Sorpu lýsir fyrir okkur hugmyndafræðinni sem tengist opnun á risastórri Góðs hirðs verslun í gömlu kassagerðinni. Bjarni Ágústsson hjá ON er fróður um rafbílavæðinguna og hvernig við sem neytendur getum fengið sem besta nýtingu á rafstöðvum.
2023-03-12
1h 12
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Vala Kristín Eiríksdóttir, sú frábæra leikkona er mikill umhverfissinni og segist vilja leita jafnvægis á nýju ári. Okkur finnst að hún eigi að fara í pólitík. Aðalheiður Jakobsen eigandi Netparta fræðir okkur um endurvinnslu á bílum.
Þessar tvær frábæru konur eru viðmælendur þessa fyrsta þáttar á nýju ári. Vala Kristín vill fá dópamínkikkið sem fylgir því að kaupa sér eitthvað en hún fer þá og dólar sér í Verzlanahöllinni og leitar að gersemum til þess að klæðast. Hún notar líka fjölnota dömubindi. Hún varð umhverfissinni um 12 ára gömul þegar hún heimsótti Sorpu í fyrsta sinn. Aðalheiður Jacobsen er frumkvöðull en hún stofnaði Netparta á Selfossi sem er bílapartasala en "next level". Þar eru um 30 þúsund bílapartar geymdir og flokkaðir eft...
2023-01-27
1h 05
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Lena er orðin smá öfundsjúk út í kaup annarra kvenna. Ræðum það og dýfum okkur í viskubrunninn Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóra sem er einnig pabbi Lenu.
Nú þegar jólin nálgast þá örlar á öfund hjá Lenu Magnúsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Ekkert rusl, því hún upplifir að konur í kringum hana komi í hamingjukasti úr verslunarferðum með nýja skó, skart og föt. Hún er búin að hemja sig allverulega árið 2022 og kaupa ekkert nýtt nema samfellu sem hana bráðvantaði þegar hún var á leið í brúðkaup og áttaði sig á því að kjóllinn var hálfgagnsær og gamla samfellan hennar spratt af henni. Lena er mannleg og spennt fyrir því að kaupa sér eitthvað nýtt og fallegt á nýju ári. Hún talar um þetta í...
2022-12-01
56 min
EKKERT RUSL
11. EKKERT RUSL - Guðný hjá SoGREEN sem framleiðir glænýja lausn fyrir fyrirtæki til þess að kolefnisjafna starfsemina. Gunnar Sveinn hjá Deloitte um aukna kröfu um kolefnisbókhald hjá fyrirtækjum.
Í þættinum segir Guðný Nielsen einn stofnenda SoGREEN okkur frá íslenskri lausn sem framleiðir kolefniseiningar með því að mennta stúlkur í lágtekjuríkjum - 132 milljónir stúlkna ganga ekki í skóla. „Stúlkur í þróunarríkjum giftast margar ungar og eignast börn löngu áður en það er tímabært - ástæðan er mikil fátækt. SoGreen er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem hefur þróað lausn í loftslagsmálum sem snýr að menntun stúlkna í lágtekjuríkjum og mætir þeim síauknu kröfum að fyrirtæki þurfa að kolefnisjafna starfsemi sína,“ segir Guðný Nielsen stofnandi S...
2022-09-30
1h 12
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Kristín Laufey sem sér m.a. um sjálfbærnimál hjá 66°Norður og var áður hjá Adidas í Þýskalandi. Sigurður, stofnandi Pure North segir okkur frá endurvinnslu á plasti sem fyrirtækið sérhæfir sig. Pure North og 66°Norður eru í samstarfi.
Kristín Laufey Guðjónsdóttir hefur áhugaverða sögu að segja frá árunum sem hún starfaði í Þýskalandi fyrir Adidas. Nú er hún komin heim og sér m.a. um sjálfbærnimál hjá 66°Norður. Hún segir að öll framleiðsla hafi áhrif á jörðina, gildi einu hvort þú kaupir jakka sem brotnar niður í náttúrunni því ef þú þarft að kaupa þér nýjan á hverju ári þá er það á vissan hátt eyðileggjandi fyrir náttúruna . Ofneysla, offramleiðsla, sóun og léleg ending plaga tískuiðnaðinn en "sjálfbærni er ekki bara bóla heldur raunverule...
2022-08-21
1h 07
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Kristín Helga Gunnarsdóttir um ríka, gráðuga karlinn og loftlagsvá. Hún situr í stjórn Landverndar og er rithöfundur og fjallageit en hún og maðurinn hennar eru m.a. skíðaleiðsögumenn í ítölsku ölpunum
Dinna er hún kölluð og talar um að alvöru áhrifavaldar, sé fólk sem lætur til sín taka í málum sem skipta máli fyrir framþróun. Hina "áhrifavaldana" kallar hún FLENSU, stytting úr influensers. Hún segir að nú verði að vængstífa gráðuga, ríka og freka karlinn sem hengir sig á almannakerfi þjóðarinnar og græðir á því. Íslendingar verði að vinna að lausn á loftslagsvandanum í sameiningu. Allt sem þurfi er vilji og hugrekki yfirvalda og vísar Dinna með þeim orðum í nýlega skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kölluð er Lokaviðvörun og er
2022-07-25
1h 12
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra og fyrrum umhverfisráðherra er skemmtilegur maður sem veit meira en flestir um umhverfismál og hlýða má á viðtal við stelpur úr Vogaskóla sem segja okkur frumsamda sögu
Við köllum hann bara Mumma því okkur finnst hann svo skemmtilegur og við þekkjum hann pínulítið. Okkur finnst bæði fróðlegt og gaman að heyra hann segja frá sjálfum sér í samhengi við umhverfismál en einnig hvernig Ísland er að standa sig í stóru myndinni. Við tölum líka við stelpur á unglingsaldri sem unnu samkeppni með sögu um hann Kalla. Kalli er svolítill umhverfissóði, eins og mörg okkar án þess að gera sér grein fyrir því. Hann tekur sig á í daglegu lífi og litlu skrefin sem hann tekur í breyttum lífsstíl til þess að hugsa...
2022-05-24
1h 12
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Rafbílavæðingin sem öllu tröllríður. Runólfur Ólafsson, framkvæmdstjóri FÍB og Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju
Við höldum áfram að kafa ofan í umhverfismálin og í þessum nýja þætti af EKKERT RUSL tölum við við góða sérfræðinga um rafbílavæðinguna í Íslandi. Þeir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju komu í stúdíóið til okkar og sögðu frá þeirri þróun sem er ansi hröð í framleiðslu rafbíla. Lena ætlar að kaupa sér rafbíl og Margrét er enn að hugsa þetta því uppáhaldsbíllinn hennar er bensínþambandi jebbi sem hana hefur dreymt um að eignast. Skottið á honum gæti ör...
2022-05-10
56 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Ragna Sara Jónsdóttir hjá Fólk Reykjavík og Rakel Eva Sævarsdóttir hjá flugfélaginu Play
Nágrannarnir í Vesturbænum, þær Ragna Sara Jónsdóttir og Rakel Eva Sævarsdóttir eru báðar leiðtogar á sviði sjálfbærni en í mjög ólíkum geirum, ein í hönnunargeiranum og hin í flugbransanum. Ragna Sara á og rekur fyrirtækið Fólk Reykjavík sem hannar og selur vandaðar hönnunarvörur undir vörumerkinu hérlendis og erlendis. Rakel Eva starfar sem yfirmaður sjálbærni hjá flugfélaginu Play. Þær eru viðmælendur nýjasta þáttarins í hlaðvarpinu EKKERT RUSL.
2022-04-29
1h 12
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir um flugbransann og umhverfismál
Að fljúga til og frá New York héðan samsvarar því að fólksbíl sé ekið fjóra hringi í kringum Ísland út frá CO2 losun á hvern flugfarþega. En eins og fram kemur í þessum þætti EKKERT RUSL þá er talið að flugumferð í heiminum muni tvöfaldast á næstu tuttugu árum og því leikur þáttastjórnendum forvitni á að vita hvað flugbransinn sé að gera út frá umhverfissjónarmiðum varðandi þessa auknu eftirspurn og flugumferð til framtíðar. Til þess að skrafa um þetta fengu þær til sín Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair. Hann er þeirrar skoðunar að stjórnvöld í hverju landi eigi að búa til hvata...
2022-03-25
34 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Einar Bárðarson fræðir okkur um allskonar tengt kolefnisjöfnun, plokkun og flokkun
Einar Bárðarson er landsmönnum kunnur fyrir æði margt og þá ekki síst fyrir að vera öflugur plokkar og auðvitað mikill poppari. Hann stýrir Votlendissjóði og hefur mikinn áhuga á því hvernig við getum bætt okkur sem land í kolefnisjöfnun. Hann segir að fyrirtæki séu í raun fljót út af markaðnum ef þau ætla sér ekki að huga að þessum málum hjá sér og taka þátt í að snúa þróuninni við. “Um 60% af heildar CO2 losun Íslendinga kemur frá framræstu landi, sem eru skurðir sem voru grafnir á sínum tíma,” segir Einar og útskýrir þ...
2022-03-09
1h 03
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Lena kaupir ekkert nýtt árið 2022
Lena kaupir eldrauðan rafmagnsbíl og ætlar að greina frá sparnaði og lífsstílnum sem fylgir því að kaupa ekkert nýtt árið 2022. Vangaveltur um endurnýtanlega smokka koma upp. Margrét kaupir sér notaða úlpu á nytjamarkaði í Kaupmannahöfn og finnst að við öll ættum að líta í okkar eigið rusl og finna góða leið í endurnýtingu - hún leitar leiða til að bæta sig í umhverfisvernd. Þær stöllur eru nýkomnar úr skíðaferð frá Ítalíu en þær kolefnisreiknuðu flugið fyrir 4 farþega - 24 tré þarf að gróðursetja til þess að kolefnisjafna flugferðina fram o
2022-02-10
40 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Rakel Garðarsdóttir og Margrét Marteinsdóttir höfundar Vakandi Veröld
Rakel og Margrét eru frumkvöðlar á sviði umhverfisverndar og skrifuðu saman bókina Vakandi Veröld sem kom út hjá Forlaginu fyrir 7 árum en bókin á ríkt erindi til okkar allra í dag. Þær segja okkur frá því hvernig þær sjá heiminn út frá umhverfissjónarmiðum. Rakel talar um skekkjuna í því að búa á einni grænustu eyju í heimi en þurfa stundum að standa frammi fyrir því að börn megi ekki fara út að leika á leikskólanum þegar mengun mælist of mikil í Reykjavík. Fólk ætti jafnvel frekar að vera beðið um að hvíla bílinn endrum eins. Margrét vill að þjóðar...
2021-12-13
52 min
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Freyr Eyjólfsson, Sorpu og Ruth Einarsdóttir Góða hirðinum
Freyr sem er nýráðinn til Sorpu og er þar þróunarstjóri Hringrásarhagkerfisins, segir að það sé hreinsandi fyrir sálina að skola mjólkurfernur og hann vill ekki hafa eldhúsið sitt með hvítri kókaíneldhúsinnréttingu þar sem sál manns deyr. Hann vill blanda notuðu með nýju til að skapa heimili og hann lagar hluti - "youtubar" eins og brjálaður maður en finnur í því innri ró. Ruth, sem hefur stýrt Góða hirðinum frá árinu 2018 segir að nú sé endursöluhlutfallið á notuðum munum þar 65% en var 26% þegar hún hóf þar störf...
2021-12-09
44 min