podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Eiðfaxi
Shows
Á Kaffistofunni
Upphitun fyrir Landsmót
Hjörvar og Arnar hita upp fyrir landsmót og spjalla við vel valda aðila um mótið.
2024-06-27
1h 38
Á Kaffistofunni
Siggi Sig
Hjörvar spjallar við Sigga Sig keppnismann með meiru.
2024-05-09
2h 14
Á Kaffistofunni
Kaffispjall 2024 #5
Hjörvar, Arnar og Gústaf Ásgeir ræða loka Meistaradeildarinnar.
2024-04-17
1h 29
Á Kaffistofunni
Kaffispjall 2024 #4
Hjörvar, Hanne og Arnar ræða Gæðingalist í Meistaradeild Líflands
2024-03-25
1h 05
Á Kaffistofunni
Kaffispjall 2024 #3
Hjörvar, Arnar og Gísli ræða fimmganginn í Meistaradeild Líflands
2024-03-04
1h 07
Á Kaffistofunni
Kaffispjall 24 #2
Hjörvar, Arnar og Hanne ræða mál líðandi stundar. Gestir eru Glódís Rún Sigurðardóttir og Vilborg Smáradóttir. Glódís sigraði T2 í Meistaradeild Líflands og Vilborg fjórgang í 1. deildinni sem var að hefja sína göngu.
2024-02-28
1h 28
Á Kaffistofunni
Aðalheiður Anna
Hjörvar spjallar við Aðalheiði Önnu
2024-02-22
1h 58
Á Kaffistofunni
Kaffispjall 2024 #1
Hjörvar og Arnar ræða fjórgang MD ásamt öðru.
2024-01-31
1h 41
Á Kaffistofunni
Gústi og Hanna Magga
Hjörvar ræðir við Gústa og Hönnu Möggu um margt og mikið og hver uppskriftin sé að þessum frábæra árangri sem þau hafa náð á þessu ári.
2023-12-30
1h 44
Á Kaffistofunni
Elvar Þormars
Hjörvar ræðir við heimsmeistarann Elvar Þormarsson, þeir fara yfir árið hjá honum og hans áherslur við þjálfun og upplifun af HM.
2023-12-12
2h 25
Á Kaffistofunni
Kaffispjall #5
Hjörvar, Arnar og Hanne Smidesang ræða mál síðustu vikna.
2023-04-21
1h 38
Á Kaffistofunni
Kaffispjall #4
Strákarnir ræða málefni síðustu viku og það sem framundan er
2023-03-30
1h 35
Á Kaffistofunni
Maggi Ben
Hjörvar ræðir við Magnús Benediktsson
2023-03-27
2h 29
Á Kaffistofunni
Kaffispjall #3
Strákarnir ræða keppnir vikunnar, F1 MD og annað.
2023-03-08
1h 15
Á Kaffistofunni
Kaffispjall #2
Hjörvar ræðir mál líðandi stundar við símagesti.
2023-02-12
1h 17
Á Kaffistofunni
Árni Björn
Hjörvar ræðir við Árna Björn Pálsson margfaldann Landsmóts og Íslandsmeistara.
2023-02-03
2h 37
Á Kaffistofunni
Kaffispjall #1
Arnar, Gísli og Hjörvar ræða fjórganginn í Meistaradeild Líflands og þau mál sem hafa verið í umræðunni í kringum hann, heyra á meðal annars í sigurvegaranum Aðalheiði Önnu.
2023-01-29
1h 43
Á Kaffistofunni
Maður ársins 2022
Kaffistofan er komin aftur í loftið, við byrjum árið 2023 með látum og fáum snillinginn Hans Þór Hilmarsson í spjall til okkar í nýtt stúdíó í Bankanum vinnustofu, Gamla Landsbanka húsinu á selfossi.
2023-01-18
2h 34
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Lokamót MD
Hjörvar fer yfir lokamót meistaradeildar Líflands með sérfræðingum.
2022-04-12
1h 17
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Skeiðgreinar MD
Hjörvar fær til sín sérfræðinga til að ræða skeiðmót Meistaradeildar Líflands
2022-04-02
1h 19
Á Kaffistofunni
Fara sína leið
Hjörvar ræðir við hestakonuna Söru Sigurbjörnsdóttur um lífið og hestamennskuna.
2022-04-01
1h 50
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Gæðingafimi MD
2022-03-28
1h 25
Á Kaffistofunni
Ride your horse with the legs and not the hands.
Nú er brotið blað í sögu Á Kaffistofunni, fyrsti þátturinn á ensku. Viðmælandinn var margfaldur heimsmeistari Julie Christiansen. We are happy to publish our first ever podcast episode in english. The first guest was none other than the world champion Julie Christiansen. Hjörvar and Julie go over past events that shaped Julie into the rider and trainer she is today. We hope you enjoy the episode.
2022-03-08
1h 35
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Slaktaumatölt MD
Hjörvar fer yfir T2 í Meistaradeild Líflands með sérfræðingum.
2022-03-01
1h 15
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Fimmgangur MD
Hjörvar fer yfir fimmgang í meistaradeild Líflands með sérfræðingum.
2022-03-01
55 min
Á Kaffistofunni
Kóki
Það kom að því að þessi merki maður kom í þáttinn, Kóki! fáir sem hafa afrekað jafn mikið og hann og skemmt sér vel á leiðinni. þvílíkt magn af sögum í einum manni er erfitt að finna. Góða skemmtun.
2022-02-08
2h 12
Á Kaffistofunni
Einvígið 2.þáttur
Í öðrum þætti af einvíginu mætast þær Helga Una og Bylgja Gauksdóttir.
2022-02-01
1h 05
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis - Fjórgangur MD
2022-02-01
49 min
Á Kaffistofunni
Það þurfa ekki allir að vera eins
Hjörvar ræðir við Chanel drottinguna Pálínu Margréti eða eins og hún er betur þekkt Grétu Boða.
2022-01-24
1h 33
Á Kaffistofunni
Þetta á að vera einfalt
Hjörvar ræðir við Heimir Gunnarsson ræktunarleiðtoga svíþjóðar, þeir fara í sauma kynbótakerfisins og hvert við séum að stefna í ræktun. Góða skemmtun!
2022-01-09
2h 26
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis þáttur 2 - partur 2
Hjörvar fær til sín í stúdíó Alendis þær Elsu Alberts, Eyrúnu Ýr og Olil Amble. Þar fara þau yfir kynbótatímabilið í fyrra.
2022-01-08
1h 07
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis þáttur 2 - partur 1
Hjörvar fær til sín í stúdíó Alendis þær Elsu Alberts, Eyrúnu Ýr og Olil Amble. Þar fara þau yfir kynbótatímabilið í fyrra.
2022-01-08
1h 08
Á Kaffistofunni
Einvígið 1. þáttur
Kaffistofan kynnir nýjan dagskrárlið, Einvígið. Einvígið er hesta spurningakeppni milli tveggja einstaklinga, stýrt af Gísla Guðjónssyni. Fyrstu gestir eru þeir Magnús Ben og Steindór Guðmunds.
2021-12-26
53 min
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis þáttur 1 - seinni hluti
Nýtt samstarfsverkefni Kaffistofunnar og Alendis. Hjörvar ræðir við góða gesti, þau Heklu Katarínu, Halldór Viktorsson og Konráð Val.
2021-12-21
55 min
Á Kaffistofunni
Kaffistofa Alendis þáttur 1 - fyrri hluti
Nýtt samstarfsverkefni Kaffistofunnar og Alendis. Hjörvar ræðir við góða gesti, þau Heklu Katarínu, Halldór Viktorsson og Konráð Val.
2021-12-21
1h 13
Á Kaffistofunni
Heillaðu hestinn
Hjörvar spjallar við Súsönnu Sand, fyrrverandi formann FT sem nýlega gaf út sínu fyrstu bók.
2021-12-21
2h 06
Á Kaffistofunni
Tamningatöffarinn
Benedikt Líndal tamningameistari mætti í Eiðfaxa stúdíóið og sagði skemmtilegar sögur og talaði um mikilvægi frumtamninga og að nálgast hestinn rétt. Góða skemmtun.
2021-11-25
1h 32
Á Kaffistofunni
Allt í lífinu er Half halt
Hjörvar átti einstaklega fróðlegt og skemmtilegt spjall við lífskunstnerinn Erling Erlingsson oft kenndan við Fet. Kynbótasýningar, ræktun og þjálfun voru aðalumræðu efnin og greinilegt að þetta er bara byrjunin á þeim fróðleik og skemmtilegu pælingum sem Elli er að velta upp alla daga.
2021-11-14
2h 02
Á Kaffistofunni
Elskaður, hataður en aldrei hundsaður
Hjörvar fær hann Danna Jóns í spjall til sín og ræðir lífið og tilveruna. Stærstu sigrana, mestu vonbrigðin og allt þar á milli.
2021-10-28
1h 47
Á Kaffistofunni
Keflvíkingur með keppnisskap
Hjörvar ræðir við ríkjandi íslandsmeistara í fjórgangi, Jóhönnu Margréti Snorradóttur.
2021-10-09
1h 32
Á Kaffistofunni
Skaftfellski sýningarstjórinn
Hjörvar ræðir við Pétur Halldórsson um kynbótasýningar, mælingar og hrossaræktina.
2021-09-24
1h 27
Á Kaffistofunni
Miðlun og mótahald
Hjörvar ræðir við Gísla Guðjónsson og Eddu Hrund um mótahald og fréttaflutning.
2021-07-30
1h 31
Á Kaffistofunni
Ekki gleyma gleðinni
Á kaffistofunni Karl Áki og Ríkharður Flemming
2021-07-13
1h 28
Á Kaffistofunni
Íslenski hesturinn er ævintýri
Þrettándi þátturinn af Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Örlítið hlé kom á útgáfu hlaðvarpsþáttanna og er megin ástæða þess sú að verið var að standsetja nýtt stúdíó sem nú er staðsett á Selfossi og heitir Eiðfaxa stúdóið.Gestur þáttarins að þessu sinni er Þorvaldur Kristjánsson hestamaður, kynbótadómari og fyrrverandi landráðunautur í hrossarækt. Hann og Hjörvar ræddu ýmislegt er tengist kynbótadómum og hestamennsku almennt. Samræður þeirra eru áhugaverðar og skemm...
2021-06-01
1h 48
Á Kaffistofunni
Með forvitnina að vopni
Tólfti þátturinn af Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Gestur Hjörvars að þessu sinni er Mette Mannseth hrossaræktandi og þjálfari að Þúfum í Skagafirði og yfirreiðkennari Háskólans á Hólum. Mette er ein fjölmargra sem féll fyrir íslenska hestinum og hefur helgað honum líf sitt. Hún hefur náð langt í íslandshestamennskunni drifin áfram af forvitni, metnaði og áhuga. Spjall þeirra Hjörvars er ákaflega áhugavert og er hiklaust hægt að mæla með því fyrir alla áhugamenn um hesta og allt þeim...
2021-03-22
2h 06
Á Kaffistofunni
Skagfirski draumurinn
Ellefti þátturinn af Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Magnús Bragi Magnússon bóndi á Íbishóli í Skagafirði er gestur Hjörvars að þessu sinni. Hann hefur frá ýmsu að segja frá viðburðarríkri ævi sinni. Líf hans og yndi eru hestar og allt það sem tengist þeim, hann passar sig á því að taka sér ekki of hátíðlega og kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Spjall þeirra Hjörvars er áhugavert en ekki síður skemmtilegt öllum þeim sem áhuga hafa
2021-03-01
1h 21
Á Kaffistofunni
Fóðrun og Tannheilbrigði
Tíundi þátturinn af Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Viðmælendur þáttarstjórnandans síkáta, Hjörvars Ágústssonar, að þessu sinni eru tveir fagmenn á sínu sviði þau Sonja Líndal Þórisdóttir og Einar Ásgeirsson. Í þættinum fræða þau hlustendur um margt það sem viðkemur fóðrun og heilbrigði hrossa og nýta sína menntun og þekkingu til þess.Einar Ásgeirsson er menntaður hestafræðingur með framhaldsmenntun í fóðurfræði og starfar sem slíkur hjá Fóðurblöndunni, þá er hann einnig alþj...
2021-02-15
2h 01
Á Kaffistofunni
Dómgæsla í hestaíþróttum
Viðmælendur Hjörvars að þessu sinni eru þau Sigríður Pjétursdóttir og Viðar Ingólfsson. Bæði koma þau að flestum ef ekki öllum hliðum hestamennskunnar og eiga það m.a. sameiginlegt að vera íþróttadómarar. Markmið þáttarins var einmitt að ræða dómgæslu í íþróttakeppni og þá sérstaklega nýlokinni keppni í fjórgangi í Meistaradeildinni. Samræður þeirra eru mjög áhugaverðar og lærdómsríkar fyrir alla áhugasama um íþróttakeppni og keppni almennt. Góðar hugmyndir verða ekki að veruleika nema með stuðningi góðra aðila. Helstu styrktaraðilar þáttarins eru; KEMI, Va...
2021-02-01
1h 58
Á Kaffistofunni
Konur sem vinna karla
Áttundi þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Viðmælendur Hjörvars í þessum þætti eru þær Ragnhildur Haraldsdóttir og Glódís Rún Sigurðardóttir. Þær hafa báðar náð frábærum árangri í hestaíþróttinni og var Ragnhildur útnefnd íþróttaknapi ársins 2020 og Glódís Rún efnilegasti knapi ársins 2020. Þær lifa báðar fyrir hestamennskuna og eyða öllum sínum stundum í það að spá í hestum og hvernig þær geta hámarkað árangur sinn í greininni.Spjall þeirra við Hjörvar va...
2021-01-24
1h 48
Á Kaffistofunni
(sér)vitringarnir þrír kveðja árið 2020
Í tilefni þess að árið 2020 er nú að renna sitt skeið var ákveðið að taka upp einn aukaþátt af Á Kaffistofunni. Þar fékk Hjörvar, þáttarstjórnandinn síkáti, þá Arnar Bjarka Sigurðarson og Gísla Guðjónsson með sér í lið til þess að ræða margt af því sem fram fór á árinu.Meðal þess efnis sem rætt var eru kynbótasýningar, sem fá töluvert mikið vægi í þættinum þar sem þær breytingar sem voru gerðar í ár á kynbótakerfinu eru ræddar, landssýningin hvernig landsmótum framtíðar verður háttað og fleira. Við ræðum ýmislegt er tengist...
2020-12-29
2h 28
Á Kaffistofunni
Fóstbræðurnir frá Hvolsvelli
Sjötti þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Viðmælendur Hjörvars í þessum þætti eru þeir Elvar Þormarsson og Ævar Örn Guðjónsson sem jafnan eru kallaðir fóstbræðurnir. Þeir eru jafnaldrar frá Hvolsvelli og hafa brallað ýmislegt skemmtilegt saman í gegnum tíðina. Þeir eru um margt ólíkir bæði hvað varðar þá sjálfa og þeirra bakgrunn í hestamennsku.Fróðlegt er að heyra þá segja frá ýmsu úr þeirra lífi auk þess að margar skemmtilegar sögur fylgja. Þá sendu hlustend...
2020-12-21
2h 28
Á Kaffistofunni
Nýr formaður LH
Fimmti þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Gestur þáttarins að þessu sinni er nýkjörinn formaður LH, Guðni Halldórsson. Hann mætti Á Kaffistofuna og hitti þar fyrir þáttarstjórnandann Hjörvar Ágústsson sem spurði hann spjörunum úr um það hvaðan hann kemur og hver hans bakgrunnur sé bæði í leik og starfi. Einnig fara þeir yfir framtíðarsýn Guðna í formannsembætti LH, það leynir sér ekki að hann gerir allt af krafti sem hann tekur sér fyrir hend...
2020-12-07
2h 10
Á Kaffistofunni
Dalvíski netagerðarmaðurinn
Fjórði þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Gestur þáttarins er Anton Páll Níelsson sem er flestum hestamönnum vel kunnugur. Hann er fæddur og uppalinn á Dalvík þar sem hann sleit barnsskónum og byrjaði sína hestamennsku en foreldrar hans voru ekki í hestum. Hann fór til náms við Háskólann á Hólum þar sem hann lærði til reiðkennara og er einn vinsælasti reiðkennarinn í Íslandshestaheiminum. Hann hefur...
2020-11-23
2h 04
Á Kaffistofunni
Kjarnakona úr Kjósinni
Viðmælandi Hjörvars að þessu sinni er Svanhvít Kristjánsdóttir en hún hefur frá ýmsu að segja úr viðburðarríku lífi sínu. Hún er alin upp í kjósinni, lærður kjólameistari, fór erlendis til þess að víkka sjóndeildarhringinn, byggði upp jörðina Halakot ásamt manni sínum Einari Öder Magnússyni en hann féll frá langt fyrir aldur fram.Svana kallar ekki allt ömmu sína á sama tíma og uppbygging í Halakoti var á fullu var hún móðir fjögurra barna þannig að það var í nógu að snúa...
2020-11-09
2h 14
Á Kaffistofunni
Úr sitthvorri áttinni
Viðmælendur Hjörvars Ágústssonar að þessu sinni eru þau heiðurshjón Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir afreksknapar, hrossaræktendur, útflutningsaðilar og fleira og fleira. Í þættinum fáum við að kynnast þeim betur og fræðast um þeirra vegferð í hestamennskunni. Þau koma úr sitthvorri áttinni inn í hestamennskuna, Hinrik er úr stórri hestafjölskyldu en Hulda laðaðist að hestum þrátt fyrir að foreldrar hennar hafi ekki verið í hestamennsku. Margar skemmtilegar sögur, sigrar og töp eru rifjuð upp í þessu fróðlega og skemmtilega spjalli.
2020-10-26
1h 39
Á Kaffistofunni
Tvö af landsbyggðinni
Fyrsti þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið. Við sem að honum stöndum erum ákaflega stoltir af þessum tímamótum en þátturinn er samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.Eins og áður var sagt frá að þá eru það þau Þórarinn Ragnarsson og Helga Una Björnsdóttir sem eru fyrstu viðmælendur þáttarstjórnandans Hjörvars.Í þættinum er komið inn á marga skemmtilega þætti úr lífi þeirra Þórarins og Helgu. Þau eiga það sameiginlegt, fyrir utan það að vera frábærir hestamenn, að vera alin upp úti á landi þar sem þau stunduðu sína hestamennsk...
2020-10-13
1h 43