Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Fjarmalakastið

Shows

FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 92 - Spjall um bankasamruna, markaðinn og fleiraÍ vikunni sendu stjórnir Arion banka og Íslandsbanka bréf til stjórnar Kviku þar sem óskað var eftir samrunaviðræðum við Kviku. Þá er ekki langt síðan Íslandsbankaútboðið kláraðist og hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér að undanförnu. Í síðustu viku voru vextir lækkaðir um 25 punkta og verðbólgan mælist nú 3,8%. Í þessum þætti er rætt um þessi mál ásamt fleiru við Má Wolfgang Mixa, dósent í fjármálum við Háskóla Íslands.-----------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-05-291h 03FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 91 - Efnahagsspjall með Jóni BjarkaÍ þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin en Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka mætti í settið. Rætt er um væntingar fyrir stýrivaxtaákvörðunina í næstu viku, væntingingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hjöðnun verðbólgu og horfur á því sviði. Þá var einnig rætt um áhrif mögulegra tolla áforma Bandaríkjaforseta á íslenskt efnhagslíf og horfur á innlenda hlutabréfamarkaðnum.---------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-05-1444 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 90 - Spjall um gervigreind og fjármálÍ þessum þætti er rætt við Söfu Jemai stofnanda og framkvæmdastjóra Víkonnekt. Rætt er um gervigreind almennt, hvernig hægt er að nýta hana í fjárhagslegum ákvarðanatöku, hvað er nýjast í fræðunum, hvað er fram undan, hvernig standa íslensk fyrirtæki á þessu sviði og margt fleira.--------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-04-1932 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 89 - Spjall um englafjárfestingar og nýsköpunÍ þessum þætti er rætt við Jón Inga Bergsteinsson formann ICEBAN - Samtök englafjárfesta á Íslandi og fjárfesti. Rætt er um englafjárfestingar, fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja, stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum nýsköpunarfyrirtækja og ýmislegt fleira.-------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-03-3042 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 88 - Spjall um rekstrarumhverfi fjölmiðla, efnahagshorfur og fleiraÍ þættinum er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs um nýja úttekt Viðskiptaráðs á rekstraumhverfi fjölmiðla. Einnig er rætt um hagræðingartillögur fyrir ríkisstjórnina, gagnrýni á frumvarp um almannatryggingar, leigubílalögin og fleira. Þá er spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir við næstu vaxtaákvörðun sem verður næstkomandi miðvikudag og hvaða áhrif tollastríð myndi hafa á Ísland.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-03-1741 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 87 - Efnahagsspjall við Konráð GuðjónsÍ þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað.---------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-02-1556 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 86 - Spjall um rekstrarumhverfi banka og fjártækniÍ þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, regluverkið og séríslenskar kröfur á banka. Einnig er rætt um hvað sé fram undan hjá SFF og um nýlega ráðstefnu samtakanna á sviði fjártækni. Léttu nóturnar eru á sínum stað ásamt spurningum frá hlustendum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-02-0437 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 85 - Efnahagshorfur með aðalhagfræðingi ArionÍ þessum þætti er rætt við Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka. Rætt var um ganginn í efnahagslífinu á síðasta ári og horfurnar fyrir þetta ár. Spáð í spilin varðandi þróun verðbólgu og vaxta og rætt um ganginn í útflutningsgreinum Íslands ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2025-01-1732 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 84 - Markaðsspjall með Alexander, stofnanda Akkur - Greining og ráðgjöfÍ þessum þætti er rætt við Alexander Jensen Hjálmarsson stofnanda nýs greiningarfyrirtækis sem nefnist Akkur - Greining og ráðgjöf. Rætt er um greiningar og verðmöt, stöðu og horfur á mörkuðum, nýútkomna greiningu Akkurs á Arion banka, farið er yfir spurningar frá hlustendum og sitthvað fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-12-1947 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 83 - Rafmyntaspjall með Daða í Visku Digital AssetsÍ þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson stofnanda Visku Digital Assets. Rætt er um allt það helsta sem er að eiga sér stað í heimi rafmyntanna, m.a. miklar verðhækkanir á Bitcoin, kjör Trumps og þýðingu þess fyrir geirann, framtíð rafmynta, regluverkið og breytingar á því, skuldasöfnun ríkja og margt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid 2024-11-141h 16FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 82 - Viðtal við Garðar Stefánsson, forstjóra Good GoodMatvælafyrirtækið Good Good sem framleiðir sultur og smyrjur hefur verið í mikilli sókn á Bandaríkjamarkaði undanfarin ár. Í þessum þætti er rætt við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good um uppbyggingu fyrirtækisins, reksturinn, helstu markaði fyrirtækisins og markaðsetningu. Þá er rætt um samninginn sem fyrirtækið landaði við verslunarkeðjuna Costco í Bandaríkjunum og ýmislegt fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-10-1127 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 81 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing LandsbankansÍ þessum þætti er rætt við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans. Rætt er um vaxtaákvörðunina í síðustu viku og spáð í spilin varðandi verðbólguþróun, ferðaþjónustuna, fasteignamarkaðinn og hagvaxtarhorfur. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-08-2831 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 80 - Viðtal við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda HooblaÍ þessum þætti er rætt við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Hoobla. Harpa starfar einnig sem mannauðsráðgjafi. Rætt var um starfsemi Hoobla, tekjumódel og rekstur nýsköpunarfyrirtækja, umhverfi nýsköpunarfyrirtækja og mannauðsmál. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-08-0842 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 79 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing ÍslandsbankaÍ þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Rætt er um nýjustu verðbólgutölur, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur, stöðu ferðaþjónustunnar og skuldabréfamarkaðinn. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-07-2652 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 78 - Viðtal við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra StefnisÍ þessum þætti er rætt við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis. Rætt er um stöðu og horfur á hlutabréfa og skuldabréfamarkaði, skuldasöfnun ríkisins, ESG-fjárfestingar og sjóðastýringu. Þá er einnig rætt um kaup sjóðs á vegum Stefnis á Heimstaden á Íslandi, fjárfestingar lífeyrissjóða á fasteignamarkaðnum, leigumarkaðinn, skipulagsmál og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-07-041h 26FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 77 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing ViðskiptaráðsÍ þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um nýja skýrslu IMD viðskiptaháskólans sem sýnir samkeppnishæfni ríkja og stöðu Íslands á því sviði. Einnig er rætt um sérstakan vaxtastuðning, fasteignamarkaðinn, efnahagsmál og golf. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-06-2538 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 76 - Viðtal við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra BlikkÍ þessum þætti er rætt við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk. Jónína hefur starfað í fjármála og færsluhirðingargeiranum í fjölda ára og starfaði á tímabili sem forstjóri Teya (SaltPay). Rætt er um starfsemi Blikk, fjártækni, færsluhirðingu og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-06-1328 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 75 - Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri ÍslandshótelaÍ þessum þætti er rætt við Davíð Torfa Ólafsson, forstjóra Íslandshótela. Rætt er um skráningu félagins á Aðalmarkað sem verður 30. maí næstkomandi, sögu hótelkeðjunnar, íslenska ferðaþjónustu og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-05-1635 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 74 - Viðtal við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík EconomicsÍ þessum þætti er rætt við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics. Rætt er um efnahagshorfur, stýrivexti, aukningu ríkisútgjalda, fasteignamarkaði í OECD, atvinnuhúsnæði og sitthvað fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-05-0950 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 73 - Viðtal við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við HÍÍ þessum þætti er rætt við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt er um nokkrar rannsóknir á sviði heilsuhagfræði en Tinna Laufey hefur leitt margar rannsóknir á því sviði. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-04-2653 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 72 - Viðtal við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic IgniteÍ þessum þætti er rætt við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite en það félag fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum á hugmyndastigi. Rætt er um stofnun félagsins og hvert það stefnir, fjárfestingar í nýsköpun og fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-04-0525 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 71 - Hagfræðingar fara yfir efnahagshorfurÍ þessum þætti er rætt við Kára S. Friðriksson, hagfræðing hjá Arion banka og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum. Farið var yfir stýrivaxtaákvörðunina, verðbólguhorfur, kjarasamningana og aðkomu ríkisins að þeim, íbúðamarkaðinn, horfur erlendis og fleira.2024-03-2032 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 70 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra ÖlgerðarinnarÍ þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar og nýkjörin formann Viðskiptaráðs. Rætt var um Viðskiptaþingið sem haldið var á dögunum, útgjöld hins opinbera, áfengislöggjöfina, rekstur Ölgerðarinnar og fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-03-0530 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 69 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá SjóváÍ þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt er um efnahagsmál bæði hér heima og erlendis og margt fleira. Einnig er farið yfir spurningar hjá hlustendum. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-02-1648 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 68 - Viðtal við Halldór Halldórsson, forstjóra KalkþörungafélagsinsÍ þessum þætti er rætt við Halldór Halldórsson, forstjóra Íslenska kalkþörungafélagsins. Rætt var um starfsemi og stofnun Kalkþörungafélagsins, deilur félagsins við skattayfirvöld, skattamál, íþyngjandi regluverk og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-01-2635 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 67 - Viðtal við Agnar Tómas MöllerÍ þessum þætti er rætt við Agnar Tómas Möller. Agnar hefur áratugareynslu af fjármálamarkaði og stundar nú nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og situr í stjórn Íslandsbanka. Rætt var um horfur í efnahagsmálum, bæði hér heima og erlendis, hlutabréfa og skuldabréfamarkaði og ýmislegt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-01-1259 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 66 - Áramótaþáttur með viðskiptablaðamönnumÍ þennan Áramótaþátt Fjármálakastsins fékk ég til mín viðskiptablaðamennina Júlíus Þór Halldórsson og Magnús Heimi Jónasson til að gera upp viðskiptafréttaárið 2023 og ræða um horfur fyrir árið 2024. Rætt var um helstu viðskiptafréttir ársins bæði innlendar og erlendar, hvaða aðilar voru áberandi í viðskiptalífinu á árinu sem leið, horfur í efnahagslífinu og á mörkuðum og sitthvað fleira. --------------------------- https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2024-01-041h 11FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 65 - Viðtal við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra KópavogsÍ þessum þætti er rætt við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs og fyrrum aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um efnahagshorfur, kjarasamningana sem fram undan eru, rekstur Kópavogsbæjar, hlutverk ríkis og sveitarfélaga, skattamál, leikskólamál, skipulagsmál, gæluverkefni og margt fleira. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-12-2249 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 64 - Viðtal við Valdimar Ármann um efnahagshorfurÍ þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar hjá Arctica Finance. Rætt er um efnahagshorfur hérlendis og erlendis, horfur á skuldabréfa- og hlutabréfamörkuðum, fasteignamarkaðinn, verðbólgu og vaxtastig bæði hér heima og erlendis og fleira. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-12-0441 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 63 - Svanhildur og Gunnar hjá ViðskiptaráðiÍ þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um Peningamálafund Viðskiptaráðs sem fram fór í síðustu viku, stýrivexti, efnahagshorfur, kjarasamningana sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-11-271h 00FjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 62 - Viðtal við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, fjármálaráðgjafaÍ þessum þætti er rætt við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, eiganda ráðgjafarfyrirtækisins Sólveig Consulting og fjármálastjóra GeoSilica. Rætt er um góð ráð þegar kemur að fjármálum, hvað fyrirtæki ættu að hafa í huga, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og fjárfestingar í nýsköpun, efnahagshorfur, stýrivexti og kjaraviðræðurnar sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-11-0926 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 61 - Viðtal við Hörð Arnarson, forstjóra LandsvirkjunarÍ þessum þætti er rætt við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Rætt var um það sem fram fór á haustfundi Landsvirkjunar sem bar yfirskriftina Leyfum okkur græna framtíð. Þá var rætt um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í orkumálum, hvernig stjórnvöld ættu að bregðast við, hvar Ísland stendur í alþjóðlegum samanburði í þessum málaflokki og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-10-1624 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 60 - Viðtal við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherraÍ þessum þætti er rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Rætt er um efnahagsmálin, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og kjarasamningana fram undan. Einnig er rætt um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, hagræðingaraðgerðir og skattamál. Þá er auk þess rætt um nýsköpunargeirann og hvað sé fram undan í ráðuneytinu í þeim efnum ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-10-0435 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 59 - Viðtal við Daða Kristjánsson um skuldavanda ríkjaÍ þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Visku Digital Assets en hann hefur starfað í 16 ár á fjármálamarkaði. Rætt er um skuldavanda ríkja, einkum Bandaríkjanna, hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af stöðunni og hvaða áhrif það myndi hafa ef til skuldakrísu kæmi. Einnig er rætt um stöðuna á skuldabréfamörkuðum, verðbólguna, bæði hér heima og erlendis og viðbrögð seðlabanka við henni. Þá er rætt um stöðu efnahagsmála hér heima, skuldir íslenska ríkisins og kjarasamningana sem...2023-09-2853 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 58 - Viðtal við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækjaÍ þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja. Rætt er um regluverk á fjármálamarkaði og breytingar sem hafa átt sér stað í fjármálageiranum á undanförnum misserum. Einnig er rætt um hugmyndir viðskiptaráðherra um bankaskatt. Þá er rætt um starfsemi og hlutverk SFF og auk þess um fjármálalæsi ungs fólks og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid2023-09-2430 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 57 - Viðtal við Ólaf Sigurðsson, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðsÍ þessum þætti er rætt við Ólaf Sigurðsson, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Rætt er stuttlega um fjárlagafrumvarpið og efnahagsástandið en einblínt er á lífeyrismálin. Fjallað er um fjárfestingastefnu lífeyrissjóða, hvernig fjárfestingar lífeyrissjóða hafa gengið undanfarið, lagaumgjörðina í kringum lífeyrissjóði, fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis, sjálfbærar fjárfestingar og gagnrýni á þær, lífeyrismál almennt og hugmyndir fjármálaráðherra um aukið valfrelsi fólks í lífeyismálum og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakas...2023-09-1434 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 56 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa, dósent í fjármálum við HÍÍ þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin. Ég fékk til mín í settið hann Má Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Farið var yfir víðan völl og rætt um allt það helsta sem snýr að efnahagsmálum líðandi stundar. Rætt var um stýrivexti, verðbólgu, komandi kjaraviðræður, fasteignamarkaðinn, skýrslu viðskiptaráðherra og hugmyndir hennar um bankaskatt, hlutabréfamarkaðinn, skuldabréfamarkaðinn og fleira. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um...2023-09-0753 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 55 - Viðtal við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFSÍ þessum þætti er rætt við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, formann Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Rætt er um ýmislegt tengt sjávarútvegi meðal annars stöðu greinarinnar, orðspor atvinnuvegarins, nýsköpun í sjávarútvegi, ákvörðun matvælaráðherra um að framlengja ekki hvalveiðibannið, fiskeldi og fleira. Þá er rætt stuttlega um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og verðbólguna.2023-08-3141 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 54 - Viðtal við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnarÍ þessum þætti er rætt við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar. Rætt er um ýmislegt tengt ferðaþjónustu eins og til dæmis hvernig sumarið hefur gengið, hvort Ísland sé uppselt, lúxus ferðaþjónustu, markaðssetningu greinarinnar, hvernig íslensk ferðaþjónusta stendur í alþjóðlegum samanburði, aðgangsstýringu, skattlagningu og ýmislegt fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða s...2023-08-2525 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 53 - Viðtal við Boga Nils Bogason, forstjóra IcelandairÍ þessum þætti er rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair. Rætt er um uppgjör félagsins, hvernig sumarið hefur gengið og ýmislegt tengt félaginu. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og hefur starfsl...2023-07-3136 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 52 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur og Andrés Magnússon, blaðamennÍ þessum þætti er rætt við Andreu Sigurðardóttur og Andrés Magnússon, blaðamenn á Morgunblaðinu. Rætt er um Lindarhvolsskýrsluna, Íslandsbankaútboðið og ýmislegt fleira. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og hefur starfs...2023-07-0644 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 51 - Viðtal við Kristbjörgu M. Kristinsdóttur, fjármálastjóra StefnisÍ þessum þætti er rætt við Kristbjörgu M. Kristinsdóttur, fjármálastjóra Stefnis. Rætt er um sögu Stefnis og þá sjóði sem Stefnir býður upp á. Einnig er rætt um fjárfestingar almennt, sjálfbærar fjárfestingar og fleira. Stefnir er aðalstuðningsaðili þáttarins. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Ísland...2023-06-2924 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 50 - Viðtal við Guðmund Halldórsson, framkvæmdastjóra Te og kaffiÍ þessum þætti er rætt við Guðmund Halldórsson, framkvæmdastjóra Te og kaffi. Rætt er um sögu og rekstur Te og kaffi og sitthvað fleira. Fjármálakastið fer nú í tveggja vikna sumarfrí en nýr þáttur er væntanlegur í lok júní. -------------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar sa...2023-06-0523 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 49 - Viðtal við Björn Berg Gunnarsson, ráðgjafa, um fjármál í íþróttumÍ þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafa og fyrrverandi fræðslustjóra Íslandsbanka, um fjármál í íþróttum erlendis. Rætt er um tekjur og virði íþróttaliða, laun íþróttamanna ásamt kostnaði stórmóta og fleira. Einnig var rætt stuttlega um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í morgun. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eft...2023-05-2433 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 48 - Viðtal við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka um fasteignamarkaðinnÍ þessum þætti er rætt við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka. Rætt er um fasteignamarkaðinn og stöðu og horfur á þeim markaði. Einnig er rætt um verðbólguna og spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir í lok mánaðar ásamt fleiru. ------------------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samk...2023-05-1127 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 47 - Viðtal við Jóhann Má Helgason, sérfræðing í fjármálum fótbolta - Fjármál í íslenska fótboltanumÍ þessum þætti er rætt við Jóhann Má Helgason en hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Vals og einnig Aftureldingar og er sérfræðingur í fjármálum fótbolta. Farið er yfir fjármál í í íslensku knattspyrnunni. Rætt er um rekstur og fjármál félaga, laun leikmanna, VAR og flest sem viðkemur fjármálum íslenska fótboltans. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem l...2023-04-2837 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 46 - Viðtal við Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra KLAKÍ þessum þætti er rætt við Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra KLAK. Rætt er um starfsemi KLAK og alla þá nýsköpunarhraðla sem KLAK stendur fyrir, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og ýmislegt fleira. ----------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og lögum um rekstraraðila sér...2023-04-1316 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 45 - Viðtal við Helga Vífil, blaðamann á Innherja og Þórð Gunnarsson, hagfræðingÍ þessum þætti er rætt við Helga Vífil Júlíusson, blaðamann á Innherja og Þórð Gunnarsson, hagfræðing. Rætt er um óróann á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, stýrivexti, verðbólguna, fasteignamarkaðinn, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en einnig rekstrarumhverfi fjölmiðla í dag. 2023-04-0434 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 44 - Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra SAFÍ þessum þætti er rætt um stöðu og horfur í ferðaþjónustunni, viðburð sem fjallaði um þjóhagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar sem haldinn var fyrr í vikunni og hverjar eru helstu náttúruperlur Íslands og ýmislegt fleira. Gestur þáttarins að þessu sinni er Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.2023-03-2433 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 43 - Viðtal við Eyþór Mána, framkvæmdastjóra HoppÍ þessum þætti er rætt við Eyþór Mána Steinarsson, framkvæmdastjóra deilisamgöngufyrirtækisins Hopp. Rætt er um fyrirtækið Hopp, sögu þess og starfsemi en líka um nýsköpunarumhverfið á Íslandi og hvernig það er að vera ungur frumkvöðull í dag. -------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkv...2023-03-1525 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 42 - Viðtal við Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóra sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq IcelandÍ þessum þætti er rætt við Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóra sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland. Rætt er um starfsemi Kauphallarinnar og hvað sé fram undan hjá þeim, fjárfestingar, regluverk á fjármálamarkaði og ýmislegt fleira. ----------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og lögum...2023-03-0834 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 41 - Viðtal við Gunnar og Elísu, hagfræðinga ViðskiptaráðsÍ þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson og Elísu Örnu Hilmarsdóttur, hagfræðinga Viðskiptaráðs. Rætt er um verðbólguna, aðgerðir Seðlabankans, nýliðið Viðskiptaþing, orkumál, kjaramálin, fasteignamarkaðinn og fleira. ----------------------------- Fyrirvari:  https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um...2023-03-0247 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 40 - Viðtal við Önnu Hrefnu, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, um kjaramálin og jafnlaunavottunÍ þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífins um stöðu kjaramála, hvort jafnlaunavottunin hafi skilað tilætluðum árangri, stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, verðbólguna, fasteignamarkaðinn og sitthvað fleira. --------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Félagið starfar samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og...2023-02-2331 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 39 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá SjóváÍ þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá, fyrrverandi yfirmann greiningardeildar Kaupþings og einn af virkustu meðlimum fjármálatwitter. Rætt er um stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, verðbólguna, húsnæðismarkaðinn, kjaramálin, efnahagshorfur erlendis, fyrirhugaða sameiningu Kviku og Íslandsbanka, lög á fjármálamarkaði, skortsölu, skuggabankastarfsemi og sitthvað fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Fyrirvari: Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða...2023-02-1042 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 38 - Viðtal við Stefaníu Kolbrúnu Ásbjörnsdóttur, hagfræðing hjá Samtökum atvinnulífsinsÍ þessum þætti er rætt við Stefaníu Kolbrúnu Ásbjörnsdóttur, hagfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins. Stefanía hélt áhugavert erindi á Skattadegi Deloitte, Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins þar sem hún fjallaði um fjármögnun vegakerfisins. Í þessum þætti er farið yfir erindið hennar en einnig yfir nýjustu verðbólgutölur, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku og einnig er farið yfir stöðu kjaramála. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarin...2023-02-0326 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 37 - Viðtal við Halldór Kára Sigurðarson, hagfræðing HúsaskjólsÍ þessum þætti er rætt við Halldór Kára Sigurðarson, hagfræðing Húsaskjóls. Halldór hefur á undanförnum misserum skrifað fjöldann allan af greinum sem fjalla um stöðu og horfur á fasteignamarkaðnum. Í þættinum er rætt um stöðu og horfur á fasteignamarkaðnum hér á landi, fasteignamarkaði í nágrannalöndunum, aðgerðir Seðlabankans, sögulega þróun markaðarins og sitthvað fleira.  ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og r...2023-01-2628 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 36 - Viðtal við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra GeoSilicaÍ þessum þætti er rætt við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra GeoSilica. Rætt er um vöxt fyrirtækisins, áskoranirnar í rekstrinum og frumkvöðlalífinu, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og margt fleira.2023-01-1821 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 35 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðing Arion bankaÍ þessum þætti er rætt við Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðing Arion banka, um kjaramálin, gengi krónunnar, stýrivexti, verðbólgu, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur og ýmislegt fleira. 2023-01-1232 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 34 - Viðtal við Lárus Welding um bókina hans og efnahagsmálÍ þessum þætti er rætt við Lárus Welding en hann gaf nýverið út bókina Uppgjör bankamanns. Rætt er um nýútkomna bók hans, tímann sem bankastjóri Glitnis en einnig efnahagsmálin innanlands og erlendis.2023-01-0635 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 33 - Áramótaþáttur - Viðskiptafréttir ársins með blaðamönnum ViðskiptablaðsinsÍ þessum áramótaþætti Fjármálakastsins er viðskiptafréttaárið gert upp með blaðamönnunum Guðnýju Halldórsdóttur og Sigurði Gunnarssyni frá Viðskiptablaðinu. Rætt er um helstu viðskiptamenn ársins, viðskipti ársins, verstu viðskipti ársins, stöðuna í efnahagslífinu, horfur á næsta ári og fleira.2022-12-2727 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 32 - Safa Jemai: „Mikilvægt að vera stöðugt að læra eitthvað nýtt“Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Víkonnekt. Safa er menntaður hugbúnaðarverkfræðingur sem fluttist hingað til lands frá Túnis fyrir um fjórum árum síðan og hefur hún stofnað nokkur fyrirtæki síðan. Í þættinum er rætt um þau fjölmörgu fyrirtæki sem hún hefur stofnað, nýsköpun á Íslandi, frumkvöðlalífið og sitthvað fleira.2022-12-0622 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 31 - Júlíus Þór: „Umfjöllun fjölmiðla hefur því miður borið vott um vanþekkingu“Í þessum þætti er rætt við Júlíus Þór Halldórsson, blaðamann á Viðskiptablaðinu. Rætt er um stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankasölunni og þau viðbrögð sem hún hefur fengið. Einnig er rætt um stöðu ÍL-sjóðs, fall rafmyntakauphallarinnar FTX, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans næstkomandi miðvikudag og fleira. 2022-11-1934 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 30 - Konráð: „Verðbólgan er sameiginlegur óvinur okkar allra“Í þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, hagfræðing og efnahagslegan ráðgjafa Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um kjarasamningana sem nú eru fram undan, verðbólguna, stýrivexti, fasteignamarkaðinn og ýmislegt fleira. 2022-11-0232 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 29 - Helga Valfells: „Það er hægt að gera allt en ekki allt í einu.“Í þessum þætti er rætt við Helgu Valfells, stofnanda og framkvæmdastjóra vísissjóðsins Crowberry Capital. Helga er með grunngráðu í hagfræði og enskum bókmenntum frá Harvard og MBA gráðu frá London Business school. Í þættinum er rætt um fyrirtækið hennar, nýsköpun, konur og fjárfestingar og ýmislegt fleira.2022-10-2236 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 28 - Valdimar Ármann: „Við lifum á sögulegum tímum á mörkuðum.“Í þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar Arctica Finance. Rætt er um efnhagsástandið í Bretlandi, fjárhagsvanda Credit Suisse, stýrivexti, skuldabréfamarkaðinn og horfur á mörkuðum bæði hér heima og erlendis og ýmislegt fleira.2022-10-0630 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 27 - Stefán Baxter, stofnandi SnjallgagnaÍ þessum þætti er rætt um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, hvernig það hefur breyst í áranna rás og hvernig það er í samanburði við önnur lönd. Einnig er rætt um hvað ungir frumkvöðlar ættu að tileinka sér til að ná árangri og ýmislegt fleira. Rætt er við Stefán Baxter en hann er stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Snjallgagna og hefur starfað í nýsköpun í áratugi. 2022-09-2638 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 26 - Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekendaÍ þessum þætti er rætt við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rætt er um áfengisgjöld, fjárlagafrumvarpið, hvað stjórnvöld geti gert til að bæta rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja, kjaramál, fasteignaskatta og ýmislegt fleira. 2022-09-1926 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 25 - Daði Kristjánsson, stofnandi Visku Digital AssetsÍ þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda Visku Digital Assets sem er fyrsti íslenski rafmyntasjóðurinn. Daði starfaði í um 15 ár á fjármálamarkaði áður en hann tók þá ákvörðun að stofna Visku ásamt félögum sínum. Í þættinum er rætt um rafmyntir, bálkakeðjutækni, hvort sú gagnrýni sem rafmyntir fá á sig sé réttmæt, gerjunina í rafmyntaheiminum, stöðuna á fjármálamörkuðum og sitthvað fleira.2022-09-0843 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 24 - Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnarÍ þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Rætt er um stöðuna í greininni, horfur, kjarasamningana sem eru fram undan, hvort hvalveiðar séu skaðlegar fyrir ferðaþjónustuna og fleira. 2022-07-2030 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 23 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá ViðskiptaráðiÍ þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um skýrsluna The Icelandic Economy. Einnig er rætt um hvort bóla sé til staðar á fasteignamarkaði, hvort verðbólgan muni fara í tveggja stafa tölu, samkeppnishæfni og fleira.2022-07-1219 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 22 - Viðtal við Þórð Gunnarsson, hagfræðingÍ þessum þætti er rætt við Þórð Gunnarsson, hagfræðing, um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku, fasteignamarkaðinn, verðbólgu, skráningu Nova og Alvotech og fleira. 2022-06-2718 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 21 - Viðtal við Ragnar Árnason, prófessor emeritus við HÍÍ þessum þætti ræðum við um kostnað vegna umferðartafa en samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Samtökin samgöngur fyrir alla með stuðningi frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál kemur fram að við töpum um 60 milljörðum á umferðartöfum. Til að ræða um þessi mál fékk ég til mín hann Ragnar Árnason, prósessor emeritus, við Háskóla Íslands og formann Rannsóknarráðs RSE.2022-05-2920 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 20 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar LandsbankansÍ þættinum er rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku en síðastliðinn miðvikudag tilkynnti Peningastefnunefnd Seðlabankans að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1 prósentustig. Sú spá var í takt við spá Hagfræðideildar Landsbankans. Í þættinum er rætt við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans. 2022-05-0914 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 19 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur, fyrrum blaðamann á ViðskiptablaðinuÍ þessum þætti er rætt um Íslandsbankaútboðið. Þann 22. mars seldi ríkið 22,5 prósent hlut í Íslansbanka til 207 fjárfesta á tæpa 53 milljarða króna. Þar með er ríkið ekki lengur meirihluta eigandi að bankanum en eftir söluna þá á ríkið 42,5 prósent í bankanum en einkaaðilar 57,5 prósent. Til að ræða um útboðið fékk ég til mín hana Andreu Sigurðarsdóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu. 2022-05-0225 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 18 - Viðtal við Vigni S. Halldórsson, stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins.Í þessum þætti er rætt um fasteignamarkaðinn, byggingageirann og áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á markaði svo fátt eitt sé nefnt. Rætt er við Vigni S. Halldórsson, byggingaverktaka og stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins. 2022-03-0717 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 17 - Viðtal við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing og greinanda hjá ÍslandsbankaÍ þessum þætti er rætt við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing sem starfar í greiningardeild Íslandsbanka. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, verðbólguna, fasteignamarkaðinn, kjaramálin, ferðaþjónustuna og fleira. 2022-02-1028 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 16 - Viðtal við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing ViðskiptaráðsÍ þessum þætti er rætt við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs. Elísa er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og var nýverið ráðin sem annar tveggja aðalhagfræðinga Viðskiptaráðs en hún starfaði áður hjá Seðlabankanum. Í þættinum er rætt um helstu áskoranirnar í íslensku efnahagslífi á þessu ári, kjaramálin, sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda, stýrivexti, fasteignamarkaðinn, samfélagsbanka og ýmislegt fleira.2022-01-2726 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 15 - Áramótaþáttur - Viðtal við Má Mixa, lektor í fjármálumHverju á að fjárfesta í árið 2022? Í þessum sérstaka áramótaþætti Fjármálakastsins er rætt við Má Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík. Rætt er um árið 2021 á mörkuðum, horfur á árinu 2022 á hlutabréfa, skuldabréfa og fasteignamörkuðum. Einnig er rætt um rafmyntir og ýmislegt fleira.2022-01-0535 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 14 - Viðtal við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra ÖssurarÍ þessum þætti er rætt við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Jón tók við forstjórastól Össurar fyrir rétt tæpum 26 árum en mun láta af störfum í apríl á næsta ári. Í þættinum er rætt um feril Jóns og tíð hans í forstjórastól Össurar. Þá er jafnframt rætt um vöxt Össurar í gegnum árin, hvað stuðlaði að velgengni fyrirtækisins og ýmislegt fleira. 2021-12-2027 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 13 - Viðtal við Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig ConsultingÍ þessum þætti er rætt við hana Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting. Sólveig er með BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Hult International Business School. Þá er hún einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Sólveig hefur starfað í 12 ár á fjármálamarkaði og hefur starfað sem stjórnarmaður en rekur nú sitt eigið fyrirtæki Sólveig Consulting en þar ráðleggur hún fyrirtækjum og einstaklingum í fjármálum. Í þættinum er meðal annars rætt um fjármál fyrirtækja og einstaklinga, atferlisfjármál en einnig það...2021-12-1729 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 12 - Viðtal við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsinsÍ þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Anna Hrefna er hagfræðingur og hefur lengi starfað við efnahagsgreiningar. Í þættinum er meðal annars rætt um fjárlögin, brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar, fjölgun opinberra starfsmanna og ýmislegt fleira en einnig er rætt um þær efnahagslegu áskoranir sem við stóðum frammi fyrir á árinu sem er að líða og þau verkefni sem bíða okkar á nýju ári. 2021-12-1023 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 11 - Viðtal við Bjarna Herrera, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG, um sjálfbær fjármálÍ þessum þætti er rætt við Bjarna Herrera Þórisson, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG. Bjarni er með gráðu í lögfræði og viðskiptafræði og einnig MBA gráðu frá Yonsei háskóla. Hann hefur komið að fjölmörgum verkefnum í gegnum tíðina sem snúa að sjálfbærni í gegnum félagið sitt Circular sem síðar var selt til KPMG. Í þættinum er rætt um sjálfbærni og sjálfbær fjármál sem hafa notið sívaxandi vinsælda að undanförnu en sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að leggja áherslu á þann málaflokk. 2021-12-0233 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 10 - Viðtal við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra ViðskiptaráðsÍ þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Konráð er með bachelor gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University og Warwick. Meðal annars er rætt um stýrivaxtahækkunina í þar síðustu viku, húsnæðismarkaðinn, nýja greiningu Viðskiptaráðs um atvinnurekstur hins opinbera, sóttvarnaraðgerðir, ríkisfjármálin og fleira.2021-11-2727 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 9 - Viðtal við Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfestaÍ þessum þætti er rætt við hann Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfesta, um fjárfestingar, markaði og starf Ungra fjárfesta. Félagið Ungir fjárfestar var stofnað af sex ungum fjárfestum í upphafi árs 2014 og er tilgangur félagsins að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna. Félagið hefur einnig það markmið að vekja áhuga félagsmanna og ungs fólks á fjármálum, fjárfestingum, sparnaði og verðbréfamörkuðum. Þeir sem vilja kynna sér félagið nánar er bent á Facebook-síðuna Ungir fjárfestar en hægt er að skrá sig í félagið á heima2021-11-2218 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 8 - Viðtal við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna InvestÍ þessum þætti er rætt við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna Invest. Rósa er lögfræðingur og starfar sem yfirlögfræðingur og regluvörður hjá Akta. Fortuna Invest er fræðsluvettvangur sem veitir aðgengilega fræðslu um fjárfestingar með það að markmiði að auka fjölbreytileikann í þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum er rætt meðal annars rætt um hlutverk og markmið Fortuna Invest og nýútkomna bók sem stofnendurnir skrifuðu.2021-11-1522 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 7 - Viðtal við Gunnlaug Jónsson, framkvæmdastjóra FjártækniklasansÍ þessum þætti er rætt við hann Gunnlaug Jónsson, verkfræðing og framkvæmdastjóra Fjártækniklasans, um fjártækni. Mikil gróska hefur verið í fjártækni að undanförnu og hafa mörg ný og spennandi fyrirtæki sprottið upp. Fjártækniklasinn er samfélag um framfarir í fjártækni og tilgangur hans er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti auðveldari og betri.2021-11-0835 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 6 - Viðtal við Björn Berg um nýju bókina hans PeningaÍ þessum þætti er rætt við hann Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, um nýútkomna bók hans Peninga. Bókin Peningar varpar ljósi á áhugaverðar og spaugilegar hliðar fjármála og er bókinni skipt upp í kafla þar sem ýmis atriði eru tekin fyrir í fjármálalegu samhengi. Bókinni er skipt í nokkra kafla og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 2021-11-0130 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 5 - Viðtal við Heiðar Guðjónsson, forstjóra SýnarÍ þessum þætti er rætt við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar, um málefni Norðurslóða. Heiðar er hagfræðingur, fjárfestir og sérfræðingur í málefnum Norðurslóða en hann ritaði bókina Norðurslóðasókn sem kom út árið 2013. Í þættinum er rætt um tækifærin sem felast á Norðurslóðum, gjaldmiðlamál, hlutverk Seðlabanka og ýmislegt fleira. 2021-10-2522 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 4 - Viðtal við Þórunni Björk Steingrímsdóttur, verðbréfamiðlara hjá LandsbankanumÍ þessum þætti er rætt við Þórunni Björk Steingrímsdóttur en hún starfar í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum. Þórunn er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Í þættinum er rætt um horfur á mörkuðum á komandi misserum, hvaða hluti þarf að hafa í huga áður en maður byrjar að fjárfesta, starf hennar sem verðbréfamiðlari og ýmislegt fleira.2021-10-1818 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 3 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing ÍslandsbankaÍ þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Jón Bjarki er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University of Warwick. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í síðustu viku, hvort það sé góð hugmynd að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólguviðmiði Seðlabankans, nýja Þjóðhagsspá Íslandsbanka og fleira.2021-10-1239 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 2 - Viðtal við Svanhildi Hólm, framkvæmdastjóra ViðskiptaráðsÍ þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra og þar áður í fjölmiðlum. Í þættinum er meðal annars rætt um áherslur Viðskiptaráðs sem kynntar voru í aðdraganda kosninga. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.2021-09-2346 minFjármálakastiðFjármálakastiðÞáttur 1 - Viðtal við Magnús Harðarson, forstjóra KauphallarinnarÍ fyrsta þætti Fjármálakastsins er rætt við Magnús Harðarson forstjóra Kauphallarinnar. Magnús tók við forstjórastól Kauphallarinnar af bróður sínum Páli Harðarsyni í október 2019. Hann hefur starfað hjá Kauphöllinni síðan 2002 en áður starfaði hann sem hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og sem efnahagslegur ráðgjafi. Magnús hefur doktorspróf í hagfræði frá Yale-University. Í þættinum er rætt um fjárfestaumhverfið á Íslandi og leiðir að úrbótum á því. Einnig er rætt um þróun markaðarins í áranna rás, hvernig hann muni koma til með að þróast á næstu árum og ýmislegt fleira. Umsjónarma2021-09-1426 min