podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Hafsteinn Sæmundsson
Shows
Bíóblaður
#315 1994 vs. 1999 með Bjarna Thor og Hödda
Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira.00:00 - Intro...
2025-05-15
2h 18
Bíóblaður
#314 Star Wars: Andor með Birgi Ársæls
Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi. Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone Wars styrkti preq...
2025-04-22
1h 58
Bíóblaður
#311 Bíóblaður spurningaspil: Egill vs. Ísrael vs. Teitur
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni. Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum. Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!
2025-03-02
51 min
Bíóblaður
#307 Stallone vs. Schwarzenegger með Ísrael og Binna
Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að finna út hvort Stallone eða Schwarzenegger sé með betri myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Cliffhanger, Eraser, True Li...
2025-01-23
2h 29
Bíóblaður
#301 Hot Takes með Arnari Tómas
Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest sé fáránleg, hvort Star Wars sökki og margt, margt fleira.
2024-11-20
1h 32
Bíóblaður
#300 Part II (Illska og Hasar)
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum seinni hluta eru hóparnir ILLSKA (Kidda Svarfdal, Lovísa Lára og Jökull) og HASAR (Óli B
2024-11-13
2h 21
Bíóblaður
#300 Part I (Disney, Sci-Fi og Blockbusters)
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum fyrri hluta eru hóparnir DISNEY (Arnar Freyr og Egill Andri), SCI-FI (Kilo, Teitur Magn...
2024-11-06
3h 00
Bíóblaður
#289 Bíóspjall með Anthony Evans
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 20. janúar 2023. Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90’s myndir og hversu geggjaðar þær eru, Menace II Society og Boys N’ the Hood, Steven Seagal og Out for Justice, hversu skemmtile...
2024-05-29
2h 44
Bíóblaður
#286 Vídjó áskorun með Hugleiki Dags og Söndru Barilli
Uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og framleiðandinn Sandra Barilli byrjuðu með kvikmyndahlaðvarpið Vídjó árið 2021. Í hlaðvarpinu horfa þau saman á eina kvikmynd og spjalla síðan um hana í þætti hjá sér. Hugleikur og Sandra kíktu til Hafsteins og sögðu honum aðeins frá Vídjó og einnig kom Hafsteinn þeim á óvart með skemmtilegum leik. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Rocky sé ofmetin, hversu mikill asni Viddi er í Toy Story seríunni, hvernig Hugleikur og Sandra kynntust, hvort það væri sniðugt að sýna sex ára gömlu barni A N...
2024-05-08
1h 44
Bíóblaður
#284 Hot or Not með Kiddu Svarfdal
Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins og tók þátt í skemmtilegum leik sem Hafsteinn bjó til. Hafsteinn fann 15 kynæsandi kvikmyndaplaköt sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu og Kidda og Hafsteinn skiptust á að segja hvort þau væru virkilega heit eða ekki. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Jessica Alba sé með góð gen, hvort það sé kynæsandi að sjá Gerard Butler öskra framan á 300 plakatinu, hversu flottur Hugh Jackman er sem Wolverine, hvort Eva Green sé...
2024-04-17
2h 10
Bíóblaður
#280 Topp 10 með Ísrael Daníel Hanssen
Ísrael Daníel Hanssen hefur komið áður til Hafsteins og rætt Óskarsverðlaunin en Ísrael er algjör sérfræðingur þegar kemur að Óskarnum. Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín til að ræða eitthvað annað en Óskarinn og því mætti Ísrael með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu fullkomin ævintýramynd Jurassic Park er, hversu góður Marlon Brando er í The Godfather, hvort Steve Martin sé bestur í Three Amigos, hversu sturluð 90’s tónlistin er í The Rock og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna
2024-03-20
2h 51
Bíóblaður
#276 Bíóspjall með Ivy Björgu
Ivy Björg er áhættuleikari, Parkour iðkandi og loftfimleikalistamaður. Ivy hefur líka gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð og Hafsteinn var því spenntur að fá hana til sín í fjölbreytt bíómyndaspjall. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu mikið Ivy elskar James Cameron, hvort hún væri til í að láta kveikja í sér sem áhættuleikari, hversu stórt Blu Ray safn hún á, hversu erfið Dahmer serían var, Cobra-Kai og karate bakgrunnurinn hennar Ivy og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells
2024-02-22
2h 32
Bíóblaður
#272 Topp 10: Part II með Óla, Mána og Haffa
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hvaða áhrif Spider-Man 2 hefur á Óla, hversu góð Mána finnst The Silence of the Lambs vera, hversu mikið Hafsteinn elskar Pulp Fiction, hvernig The Fountain er ekki mynd fyrir alla og margt, margt fleira. Þátturin...
2024-01-19
2h 44
Bíóblaður
#271 Topp 10: Part I með Óla, Mána og Haffa
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu erfitt er að gera svona topp 10 lista, hvort The Rocketeer sé hin fullkomna ævintýramynd, hversu mikið Óli elskar For a Few Dollars More, af hverju Hafsteinn setur Barry Lyndon á listann sinn þrátt fyrir einungis eitt áhorf, Drakúl...
2024-01-17
2h 49
Bíóblaður
#270 Movie Legends: Hugleikur Dagsson vs. Óli og Máni
Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti! Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir. Strákarnir skiptast á að svara alls konar kvikmyndaspurningum en þar á meðal eru spurningar um 70’s glæpamyndir og 80’s grínmyndir, leikstjóraspurningar og plakatspurningar. Þessi þáttur er algj...
2024-01-09
1h 55
Bíóblaður
#268 2023 Quiz: Gummi Sósa vs. Snorri vs. Oddur Klöts
Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur. Strákunum var hinsvegar komið á óvart með öðrum keppanda, Oddi Klöts, en Oddur mætti óvænt í miðjum upptökum. Úr varð frábær keppni þar sem strákarnir skiptast á að svara 2023 kvikmynda og sjónvarpsþátta sp...
2023-12-27
2h 06
Bíóblaður
#267 Comedy Quiz: Kilo vs. Villi Neto
Rapparinn Kilo og leikarinn Villi Neto eru miklir kvikmyndaáhugamenn og grínistar. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að keppa í skemmtilegri spurningakeppni. Hafsteinn samdi 60 spurningar sem allar snúast um grínmyndir að einhverju leyti. Í þættinum þurfa strákarnir meðal annars að svara almennum spurningum, flokkaspurningum og plakatspurningum. Hvað ár kom Mean Girls út? Hver var fyrsta myndin sem framleiðslufyrirtækið Happy Madison gaf út? Horfið á þáttinn til að komast að því. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2023-12-17
1h 42
Bíóblaður
#266 Rétt eða Rangt með Blaffa og Jóa Degi
Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira. Þá...
2023-12-13
2h 07
Bíóblaður
#264 Kilo snýr aftur!
Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru unglingar, hvort Invincible sé betri en The Boys, hversu gamlir strákarnir eru orðnir, Blue Eye Samurai og hversu sturluð sú sería er og margt, margt fleira. Þ...
2023-11-22
1h 14
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #35 - Spider-Man með Helga, Hauki og Patreki
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndanördarnir Helgi, Haukur og Patrekur eru rosalegir Spider-Man aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þennan merkilega karakter. Í þessum þætti er einblínt á Tobey Maguire Spider-Man myndirnar en Hafsteinn stefnir á að gera sér þætti fyrir Andrew Garfield og Tom Holland. Í þessum þætti ræða strákarnir meðal annars hversu gamall Tobey var þegar hann lék í fyrstu myndinni, hversu frábær Willem Dafoe er sem Green Goblin, hversu vel Spider-Man 2 sýnir hversu stressandi það væri að vera ofurhetja eins og Spider-Man, Alfred Molina og...
2023-09-22
11 min
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #34 - DC vs. Marvel 3 með Gumma, Ragga, Fannari og Ara
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Ultron gæti rústað Brainiac, hvort The Wasp kæmist inn í heilann á Poison Ivy, hvernig Spider-Man myndi ganga á móti Clayface og Cyborg, hvort Aquaman þyrfti aðst...
2023-09-08
11 min
Bíóblaður
#253 Top 10 with Jason Thompson
Jason Thompson is a tattoo artist and the owner of Black Kross Tattoo, a tattoo shop in Kópavogur. Jason is originally from Ohio but has lived in Iceland for almost 20 years with his wife and kids. Jason is not only an artist but he is also a self-described “Movie Ninja”. Jason wrote down his ten favorite movies and shared them with Hafsteinn. Among the things the guys talk about is Jason’s background, the time when he decided to leave America and move to Iceland, his time living in the deep South, his love for Mart...
2023-09-06
2h 43
Bíóblaður
#252 DC vs. Marvel 2 með Gumma, Ragga, Fannari og Ara
Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Doomsday myndi vinna Hulk, hvort öskrið hjá Black Canary væri nóg til að rústa Gamora, hvort Bane næði að kremja hausinn á Kraven og margt fleira. Þátturinn...
2023-08-30
2h 25
Bíóblaður
#250 Bíótöfrar II með Jóhanni Leplat
Fyrir nokkrum mánuðum stofnuðu Hafsteinn og Jóhann Leplat Ágústsson, í samstarfi við Sambíóin Kringlunni, bíóklúbbinn Bíótöfra. Klúbburinn sýnir eldri og klassískar kvikmyndir einu sinni í mánuði í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst þessar fyrstu fimm sýningar hafa gengið, hvað er framundan, hvaða kvikmynd væri þeirra draumakvikmynd að sýna og margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2023-08-16
53 min
Bíóblaður
#242 Morðingjar með Stellu og Láru
Vinkonurnar Stella Björk Guðmundsdóttir og Lára Guðmundsdóttir eru miklir true crime aðdáendur og í kjölfarið byrjuðu þær með hlaðvarp sem kallast Morðaforði. Stelpurnar fjalla þar um alvöru fjöldamorðingja og önnur hryllileg mál. Hafsteinn fékk þær í heimsókn til sín til að ræða kvikmyndamorðingja og fá þeirra álit á þeim. Hafsteinn bjó til leik handa þeim þar sem Stella og Lára þurfa að gefa þekktum kvikmyndamorðingjum einkunn út frá því hversu ógnvekjandi þeim finnst þeir vera. Í þættinum ræða þau einnig Jeffre...
2023-06-16
2h 05
Bíóblaður
#237 Topp 10 með Bjögga
Framleiðandinn Björgvin Harðarson kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Bjöggi og Hafsteinn hafa þekkst í 35 ár og Bjöggi er einn af fastagestum Bíóblaðurs. Bjöggi hefur samt aldrei komið í topp 10 þátt áður og Hafsteini fannst alveg tímabært að ræða uppáhalds myndirnar hans Bjögga. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig í ósköpunum Doc Brown og Marty McFly kynntust, hvort Saving Private Ryan sé besta stríðsmynd sem hefur verið gerð, hversu vel Seven eldist, hversu mikið Bjöggi elskar 90’s myndir og margt, margt fleira. Þátturi...
2023-05-03
2h 00
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #24 - Star Wars: Rétt eða Rangt með Kjartani, Ægi og Óðni
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Star Wars áhugamennirnir Kjartan Rúnarsson, Ægir Líndal og Óðinn Gunnarsson kíktu til Hafsteins í skemmtilegan Rétt eða Rangt: Star Wars leik. Hafsteinn samdi 12 Star Wars fullyrðingar sem strákarnir skiptast á að segja hvort séu réttar eða rangar. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort The Mandalorian sé betri sería en Andor, hvort Rey Skywalker sé betri karakter en Princess Leia, hvort Darth Maul sé svalari en Kylo Ren og margt, margt fleira. Þátturinn er 130 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða...
2023-04-28
10 min
Bíóblaður
#235 Topp 10 með Guðmundi Bjarna
Kvikmyndaáhugamaðurinn Guðmundur Bjarnason hefur lengi fylgst með Bíóblaðri og Hafsteinn var því spenntur að fá hann loksins til sín sem gest. Gummi mætti með sinn topp 10 lista og strákarnir fara yfir hann í sameiningu. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Aviator, Mad Max: Fury Road, The Incredibles, Drive og Forrest Gump. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2023-04-19
2h 23
Bíóblaður
#234 Movie Masters: Kilo og Snorri vs. Óli og Máni
Það er komið að stærstu spurningakeppni ársins! Kilo og Snorri hafa keppt tvisvar sinnum á móti hvor öðrum en núna eru þeir saman í liði á móti Óla og Mána. Kilo og Snorri voru ótrúlega jafnir þegar þeir kepptu og nú verður gaman að sjá hversu gott lið þeir mynda. Óli og Máni hafa keppt einu sinni áður í spurningakeppni en þá kepptu þeir við Ara og Ragga. Óli og Máni rústuðu þeirri keppni og því verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur á móti Kilo og Snorra. Í þættinum eru alls konar s...
2023-04-12
2h 41
Bíóblaður
#232 Bíótöfrar með Jóhanni Leplat
Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn og Hafsteinn Sæmundsson, stjórnandi Bíóblaðurs, hafa í samstarfi við Sambíóin Kringlunni stofnað glænýjan bíóklúbb sem kallast Bíótöfrar. Markmið klúbbsins er að skapa jákvæða kvikmyndaumræðu og planið er að sýna eldri myndir í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni, einu sinni til tvisvar sinnum í mánuði. Strákarnir ræða þennan spennandi klúbb, helstu markmið og drauma, hvaða kvikmyndir þeir sjá fyrir sér að sýna í framtíðinni og hversu spenntir þeir eru fyrir fyrs...
2023-03-20
1h 08
Bíóblaður
#231 DC: Gods and Monsters með Gumma Sósu
Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða núverandi stöðu DC og hversu björt framtíðin er eftir að James Gunn og Peter Safran tóku við DC studios. Gummi og Hafsteinn ræða þessi 10 verkefni sem Gunn tilkynnti á dögunum en þar á meðal er ný Superman mynd, HBO sería um Green Lanterns, ný Supergirl mynd, kvikmynd um ofurhetjuteymið The Authority og HBO sería um Amanda Waller. Strákarnir ræða einnig hvort DC menn munu reyna að brjótast út úr Mar...
2023-03-15
2h 06
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #20 - Star Wars: Andor með Birgi Ársæls
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi. Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone W...
2023-03-14
11 min
Bíóblaður
#227 Marvel með Röggu Hólm
Rapparinn Ragga Hólm kíkti til Hafsteins til að ræða Marvel myndir. Ragga horfði á allar MCU myndirnar í fyrsta skipti fyrir stuttu og Hafsteini fannst áhugavert að fá hana til sín og ræða þessa risa seríu við hana. Hafsteinn bjó einnig til 25 MCU spurningar fyrir Röggu til að athuga hversu mikill Marvel aðdáandi hún er orðin. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2023-02-22
1h 40
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #18 - 1994 vs. 1999 með Bjarna Thor og Hödda
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira. Þ...
2023-02-20
10 min
Bíóblaður
#225 Napóleonsskjölin með Vivian Ólafs
Leikkonan Vivian Ólafsdóttir lék eitt aðalhlutverkanna í grín/spennumyndinni Leynilöggan árið 2021 og lék aðalhlutverkið í hryllingsmyndinni It Hatched sem kom út árið 2022. Nú fyrir stuttu kom út hennar nýjasta mynd en það er spennumyndin Napóleonsskjölin sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir Arnald Indriðason en í myndinni leikur Vivian aðalhlutverkið. Hafsteinn fékk Vivian til sín í skemmtilegt spjall og spurði hana aðeins út í þessa íslensku stórmynd. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2023-02-08
1h 25
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #15 - Bíóspjall með Anthony Evans
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90’s myndir og hversu geggjaðar þær eru, Menace II Society og Boys N’ the Hood, Steven Seagal og Out for Justice, hversu skemmtilegar 90’s hasarhetjurnar voru og margt, margt fleira. Þátturinn...
2023-01-20
10 min
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #14 - Nörda Quiz: Ari og Raggi vs. Óli og Máni
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Bræðurnir Ari og Raggi Ólafs keppa við vinina Óla Bjarka og Mána Frey í svakalegri nördakeppni! Strákarnir áttu von á Star Wars keppni en Hafsteinn kom þeim á óvart og bjó til nördakeppni í staðinn. Strákarnir þurfa að svara spurningum úr Star Wars, Star Trek, Harry Potter, Marvel, DC og The Lord of the Rings. Hvort liðið veit meira um nördaefni? Svarið kemur í ljós í pökkuðum spurningaþætti!
2023-01-06
10 min
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #13 - Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Jóhann Leplat Ágústsson er stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn og hann kíkti til Hafsteins til að ræða stórmynd ársins, Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira. Þátturinn er 110 mínútur. Hægt er að horfa á...
2023-01-02
10 min
Bíóblaður
#210 Hrekkjavaka með Emmsjé Gauta
Rapparinn Emmsjé Gauti snýr aftur! Í þessum sérstaka hrekkjavökuþætti ræða Gauti og Hafsteinn hrekkjavöku og hryllingsmyndir. Strákarnir ræða einnig Jeffrey Dahmer seríuna á Netflix, hvort Gauti væri til í að gera hvað sem er fyrir 500 milljónir, ógeðslegar myndir eins og Saw, Hereditary og hvernig áhrif hún hafði á Gauta, hvort það sé í lagi að lesa um kvikmyndir á Wikipedia frekar en að horfa á þær og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2022-10-31
1h 48
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #2 - The Infinity Saga Part II með Degi, Ragga og Ara
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming, Black Panther, Avengers: Infinity War og margar fleiri. Þátturinn er 2 tímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
2022-10-03
10 min
Bíóblaður
Bíóblaður áskrift #1 The Infinity Saga Part I með Degi, Ragga og Ara
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI — Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Iron Man, The Incredible Hulk, The Avengers, Thor, Guardians of the Galaxy og margar fleiri. Þátturinn er 3 tímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
2022-10-03
11 min
Bíóblaður
Áskriftin er hafin!
Hafsteinn talar aðeins um áskriftarleiðina sem hann var að byrja með. Hægt er að gerast áskrifandi með því að skrá sig á www.biobladur.is Takk fyrir ykkar stuðning!
2022-10-03
01 min
Bíóblaður
#204 Einvígi: Blaffi vs. Haffi
Blaffi er rappari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann er með sterkar kvikmyndaskoðanir og er alls ekki feiminn við að opinbera þær. Blaffi og Hafsteinn eru ekki alltaf sammála og því ákváðu þeir að fara í kvikmyndaeinvígi. Blaffi kom með 3 myndir sem hann fílar en Hafsteinn þolir ekki og öfugt. Strákarnir skiptast síðan á því að ræða þessar myndir og verja þær til skiptis. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Batman, Superman Returns, The Hobbit, Forrest Gump, Venom og Jurassic World. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy
2022-09-14
1h 59
Bíóblaður
Stutt skilaboð
Hafsteinn ræðir aðeins Bíóblaður og breytingar sem eru væntanlegar.
2022-08-25
11 min
Bíóblaður
#200 Part II
Það er komið að þætti 200! Hafsteinn fagnar tvöhundraðasta þættinum með miklum veisluþætti. Hann fékk til sín 18 gesti og skipti þeim niður í 6 hópa. Hver hópur er með sitt eigið topic en í þessum seinni hluta eru hóparnir Ofurhetjur, 80’s og Leikstjórar. Gestirnir fara í rétt eða rangt leik með fullyrðingum sem tengjast þeirra topic-i. Gestir þáttarins eru Donna Cruz, Raggi Ólafs, Dagur Landvörður, Hansel Eagle, Höddi, Bjarni Thor, Óli Bjarki, Máni og Teitur Magnússon. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna,
2022-08-16
3h 33
Bíóblaður
#200 Part I
Það er komið að þætti 200! Hafsteinn fagnar tvöhundraðasta þættinum með miklum veisluþætti. Hann fékk til sín 18 gesti og skipti þeim niður í 6 hópa. Hver hópur er með sitt eigið topic en í þessum fyrri hluta eru hóparnir 90’s, Horror og Leikarar. Gestirnir fara í rétt eða rangt leik með fullyrðingum sem tengjast þeirra topic-i. Gestir þáttarins eru Kilo, Sæunn, Snorri, Haukur H, Orri, Kidda, Camilla, Bjöggi og Ari Ólafs. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2022-08-09
3h 03
Bíóblaður
#189 Marvel Studios Quiz: Adam vs. Raggi Ólafs
Marvel Studios Quiz! Hafsteinn auglýsti eftir keppanda til að koma og skora á Marvel nördann og fastagest Bíóblaðurs, Ragga Ólafs. Kvikmyndaáhugamaðurinn Adam Sebastian Ástmundsson varð fyrir valinu og strákarnir kepptu í alvöru MCU nördakeppni. Í þættinum eru meðal annars bjölluspurningar, flokkaspurningar og myndaspurningar. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2022-06-21
1h 45
Bíóblaður
#171 Rétt eða Rangt með Kilo og Hauki H
Óhefluðu rappararnir Kilo og Haukur H eru tveir af vinsælustu gestum Bíóblaðurs og Hafsteinn var því spenntur að gera þátt með þeim saman. Í þessum sérstaka þætti fá strákarnir 20 kvikmyndafullyrðingar sem þeim finnst annað hvort vera réttar eða rangar. Jim Carrey er fyndnari en Eddie Murphy. Transformers eru svalari en Turtles. 90’s hasarmyndir eru betri en 90’s rapptónlist. Þessar fullyrðingar ásamt fleirum í þessum pakkaða þætti! Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.
2022-04-13
2h 08
Bíóblaður
#141 2021 Quiz með Snorra og Ara Ólafs
Matgæðingurinn Snorri Guðmundsson og söngvarinn Ari Ólafsson kíktu til Hafsteins og tóku þátt í 2021 spurningakeppni sem Hafsteinn samdi. Í þættinum eru bjölluspurningar, myndaspurningar, flokkaspurningar og margt fleira. Strákarnir keppa sín á milli og úr verður æsispennandi keppni. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
2021-12-22
1h 45
Bíóblaður
#123 Leynilögga með Lilju Ósk
Lilja Ósk Snorradóttir hefur unnið hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus í fjölda mörg ár og hefur framleitt bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Lilja er ein af framleiðendum myndarinnar Leynilögga sem verður frumsýnd í Sambíóunum í dag. Hafsteinn fékk Lilju til sín til að ræða þessa spennandi mynd og ferlið á bakvið gerð myndarinnar. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
2021-10-20
1h 24
Bíóblaður
#108 Topp 10 með Bara Palla
Páll Sigurðsson eða Bara Palli eins og hann kallar sig á samfélagsmiðlum er TikTok skemmtikraftur og sviðsleikari. Palli er einnig grjótharður kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín í nördaspjall. Í þættinum ræða þeir meðal annars uppáhaldsmyndirnar hans Palla, hvernig Palli fílar að vera sviðsleikari, hversu mikið hann elskar Marvel heiminn, Whiplash og JK Simmons og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.
2021-08-20
1h 54
Bíóblaður
#107 Bransaspjall með Björgu Magnús
Björg Magnúsdóttir er handritshöfundur og átti hún meðal annars þátt í að skrifa sjónvarpsseríurnar Systrabönd og Ráðherrann. Hafsteinn fékk Björgu til sín og ræddi við hana um handritagerð, persónusköpun og bransann. Í þættinum ræða þau einnig ítarlega Systrabönd, hversu magnaður karakter Tony Soprano er, hvað gerir aðalpersónur áhugaverðar, Dexter og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.
2021-08-18
2h 16
Bíóblaður
#106 Bransaspjall með Aldísi Amah
Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem er nýbúin að skrifa og leika í sjónvarpsseríu sem kallast Svörtu Sandar. Hafsteinn var spenntur að fá hana í heimsókn og spjalla við hana um bransann. Í þættinum ræða þau meðal annars ferlið á bakvið Svörtu Sanda, tölvuleikinn sem Aldís leikur í, leiklistartækni, hversu gaman er að skjóta úr byssum, álit annarra og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni og Subway.
2021-08-13
1h 46
Bíóblaður
#103 Topp 10 með Ara Ólafs
Söngvarinn Ari Ólafsson keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018 og hefur lengi vel þótt framúrskarandi söngvari. Ari er samt líka mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var því spenntur að spjalla við hann. Í þættinum ræða þeir uppáhaldsmyndirnar hans Ara, hversu mikið hann elskar Marvel, nördauppeldið sem Ari fékk, hversu öflugur Superman er, hversu mikið Ari elskar The Lord of the Rings og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-08-04
2h 21
Bíóblaður
#100 Part II
Þáttur 100 heldur áfram! Í þessum þætti fær Hafsteinn til sín Nönnu, Teit, Gunnar, Bjarna, Bjögga, Snorra, Óla og Tomma. Í þættinum er farið yfir söguna á bakvið hvern gest, uppáhalds þætti, hryllingsmyndir, Ed Wood, Netflix, Congo, Star Wars og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-07-23
3h 21
Bíóblaður
#100 Part I
Það er komið að þætti 100! Hafsteinn fær til sín góða vini þáttarins en þetta eru gestir sem hafa komið oftar en einu sinni. Gestir þáttarins eru Alex, Arnar, Dagur, Fannar, Diðrik, Kilo og Högni. Í þættinum er farið yfir söguna á bakvið hvern gest, uppáhalds þætti, Marvel, Black Widow, Heat, bestu tölvuleikjamyndirnar, The Sopranos, Band of Brothers og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-07-21
2h 50
Bíóblaður
#96 Topp 10 með Herra Keflavík
Rapparinn Andri Már, einnig þekktur sem Herra Keflavík, gaf nýlega út lag sem kallast Hækka þetta og hann stefnir á að gefa út breiðskífu sem allra fyrst. Hafsteinn var spenntur að fá hann í heimsókn og ræða ýmislegt við hann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu svalur 50 cent er, hæfileika Andra í hnefaleikum, hversu fyndin og skemmtileg myndin How High er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-07-07
1h 28
Bíóblaður
#92 Topp 10 með Jóa Degi
Rapparinn Jói Dagur, einnig þekktur sem Ruddagaddur, er mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og heyra um uppáhalds myndirnar hans. Í þættinum ræða þeir hversu mikið Jói elskar Unbreakable, hversu mikil vonbrigði Glass var, hvernig smekkurinn hans Jóa einkennist af steiktum myndum, hversu fyndin og vanmetin Super er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-06-23
1h 53
Bíóblaður
#90 Bransaspjall með Snævari Sölva
Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti til Hafsteins í áhugavert bransaspjall. Snævar hefur gert þrjár kvikmyndir en þær kvikmyndir fjármagnaði hann að mestu leyti sjálfur og Hafsteinn var spenntur að heyra um "indie" bransann á Íslandi. Í þættinum ræða þeir meðal annars harkið við indie kvikmyndagerð, hvernig Snævar fékk áhugann á kvikmyndum, Martin Scorsese, hversu mikið Snævar elskar Sci-Fi og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-06-16
3h 26
Bíóblaður
#87 Hvað er list? með Jóhanni LePlat
Kvikmyndaáhugamaðurinn Jóhann LePlat Ágústsson er admin og stofnandi Facebook grúbbunnar, Kvikmyndaáhugamenn. Jóhann er duglegur að birta alls konar færslur í þessari grúbbu og hefur oft náð að búa til skemmtilegar umræður. Hafsteinn var því spenntur að fá Jóhann til sín og spjalla aðeins við hann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig þessi grúbba byrjaði, pólitík í kvikmyndabransanum, hvað telst vera list, hárígræðslur fræga fólksins og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Dor
2021-06-04
3h 03
Bíóblaður
#84 Bíó áskorun með Nönnu og Unni
Kvikmyndafræðingurinn Nanna Guðlaugardóttir og leikkonan Unnur Eggerts kíktu til Hafsteins í fjölbreytta og skemmtilega bíó áskorun. Hafsteinn samdi 10 spurningar sem stelpurnar skiptust á að svara. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort að Gravity sé ofmetin bíómynd, hvort það væri gaman að hanga með Hermione Granger í heilan sólarhring, hversu góð ástarmynd Moulin Rouge er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-05-26
1h 44
Bíóblaður
#78 Bíóspjall með Þorvaldi Árna
Framkvæmdastjóri Sam-Film, Þorvaldur Árnason, hefur starfað fyrir Sambíóin í 30 ár og hefur upplifað ýmislegt í bíóbransanum. Hafsteinn var því gríðarlega spenntur að fá hann til sín sem gest og ræða við hann um bíóbransann og bíómyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig gekk í bíóbransanum í miðjum COVID faraldri, óvissusýningar og forsýningar, WB/HBO MAX samkomulagið, hvernig bíóbransinn var í gamla daga og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-05-05
1h 31
Bíóblaður
#75 Bíó áskorun með Ernu og Kiddu
Útvarpskonan Erna Dís og ritstjóri hun.is Kidda Svarfdal kíktu til Hafsteins og í þetta skipti tóku þær þátt í bíómynda áskorun sem Hafsteinn bjó til. Í þættinum ræða þau meðal annars í hvaða sjónvarpsþáttaheimi þær væru til í að búa í, þegar Kidda lék lítið hlutverk í Justice League, hversu hræddar þær voru við jólasveina þegar þær voru yngri, hvort það sé skrítið að vera fullorðinn einstaklingur í Quidditch liði og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
2021-04-23
1h 38
Bíóblaður
#70 Sci-Fi með Emmsjé Gauta
Rapparinn Emmsjé Gauti hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum Íslands síðustu ára og Hafsteinn var því mjög spenntur að fá hann til sín og ræða við hann um bíómyndir. Í þessum sérstaka Sci-Fi þætti þá ræða strákarnir meðal annars myndirnar Contact og Upgrade, í hvaða Sci-Fi heimi Gauti væri til í að búa í, hvort það væri skemmtilegra að eiga Optimus Prime eða ryksugurobot, hvort Gauti væri til í að hitta geimverur, hversu mikið Gauta langar til að smakka neon lituðu ávextina úr Avatar og margt, margt fleira. Þát...
2021-04-07
2h 46
Bíóblaður
#69 Nördaspjall með Gísla Einars
Eigandi Nexus, Gísli Einarsson, rekur vinsælustu nördabúð landsins en Gísli er ekki bara fyrirtækjaeigandi. Hann er líka mikill kvikmyndaáhugamaður og hefur verið viðriðinn ofurhetjur og fleira slíkt í fjöldamörg ár. Í þættinum ræða Gísli og Hafsteinn meðal annars hversu mögnuð persóna Superman er, hvernig Nexus byrjaði, námskeiðin sem Nexus býður upp á fyrir ungt fólk, mikilvægi þess að vera með góðan lesskilning, hvernig síðasta serían af Game of Thrones eyðilagði næstum því vörumerkið og margt, margt fleira...
2021-04-02
2h 09
Bíóblaður
#65 Bíó/leikja áskorun með Gunnari og Arnóri
Gunnar Björnsson og Arnór Ívarsson eru með sitt eigið hlaðvarp sem kallast Tölvuleikjaspjallið og Hafsteini fannst upplagt að fá þá í smá crossover þátt. Strákarnir eru nefnilega miklir kvikmyndaáhugamenn og Hafsteinn bjó til fyrir þá tölvuleikja/bíómynda áskorun. Í þættinum ræða þeir meðal annars hver gæti unnið John Wick í skotbardaga, hversu leiðinlegt það er þegar persóna manns talar ekki í tölvuleikjum, hvernig LOTR myndirnar eldast, hversu léleg Super Mario Bros myndin er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus.
2021-03-19
2h 16
Bíóblaður
#64 Bíó áskorun með Hauki H
Óheflaði rapparinn Haukur H gefur út nýja plötu í dag sem kallast Óreiða. Hafsteini fannst því upplagt að fá hann aftur til sín og í þetta skipti tók Haukur þátt í áskorun sem Hafsteinn bjó til. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Breaking Bad eyðilagði aðra sjónvarpsþætti fyrir Hauki, hversu miklir nördar Harry Potter aðdáendur eru, af hverju Haukur þolir ekki Marvel myndirnar, hversu harður Denzel Washington er í The Equalizer, hversu léleg nýja Wrong Turn myndin er og margt, margt fleira. Þátturinn er
2021-03-17
1h 48
Bíóblaður
#60 Bransaspjall með Jóel Sæmunds
Leikarinn Jóel Sæmundsson kíkti til Hafsteins og ræddi við hann um bransann, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Í þættinum ræða þeir meðal annars Breaking Bad og hversu góður leikari Bryan Cranston er, hvort Jóel trúi á frjálsan vilja og örlög, hvernig sumir leikarar leika alltaf sömu týpuna, hversu mikilvægt það er að þekkja sjálfan sig, hvort álit annarra skipti máli, hvort það sé mikilvægt að bíómyndir séu skemmtilegar og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus.
2021-03-03
2h 33
Bíóblaður
#48 Bíó áskorun með Teiti og Dóra
Tónlistarmaðurinn Teitur Björgvinsson og grafíski hönnuðurinn Dóri Andrésson kíktu til Hafsteins og tóku þátt í kvikmyndaáskorun sem Hafsteinn bjó til. 10 fjölbreyttar kvikmyndaspurningar sem strákarnir skiptust á að svara. Í þættinum ræða þeir meðal annars í hvaða kvikmyndaheimi þeir væru mest til í að búa í, hvaða ógeðslega morðingja þeir væru alls ekki til í að hafa á eftir sér, hvort Darth Maul sé svalari en Chewbacca, hversu frábær tónlistin er í Lawless og margt, margt fleira.
2021-01-08
2h 14
Bíóblaður
#47 WW84 með Alex from Iceland
Content creatorinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Alex from Iceland kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu strákarnir myndina Wonder Woman 1984. Í þættinum ræða Alex og Hafsteinn hvernig tilfinning það var að fara aftur á nýja stórmynd í bíó, hversu vel heppnuð fyrsta myndin var, hvernig framhaldsmyndin nær að klúðra ýmsum hlutum, hversu hræðilegt handritið er, 80's cheesiness og margt, margt fleira.
2021-01-06
55 min
Bíóblaður
#44 Létt spjall með Ernu Dís
Útvarpskonan, Erna Dís, kíkti til Hafsteins í létt og skemmtilegt spjall. Erna og Hafsteinn ræða ýmsa hluti en í þættinum ræða þau meðal annars misheppnuð stefnumót, útvarpsþáttinn hennar Ernu, Magasín, sem er á FM957, hvernig börn eru ekki með neinn filter, hvernig Joker kom Ernu á óvart, hvort að Erna líti á fangelsi sem endurhæfingu eða refsingu, hversu klikkuð Tiger King serían var og margt, margt fleira.
2020-12-18
1h 48
Bíóblaður
#42 Topp 10 með Lilju Gísla
Förðunarfræðingurinn og hlaðvarpsstjórnandinn, Lilja Gísla, kom í heimsókn til Hafsteins og tók með sér listann sinn yfir sínar topp 10 bíómyndir. Lilja og Hafsteinn fara vel yfir listann hennar og ræða meðal annars hversu fyndin Bridesmaids er, hvernig sumar barnastjörnur verða smá ruglaðar með tímanum, hvort The Bachelor séu vandaðir þættir, hversu mikið jólabarn Lilja er, hvort það sé í lagi að skreyta fyrr á þessu ári vegna COVID og margt, margt fleira.
2020-12-11
1h 29
Bíóblaður
#41 Bíóspjall með Páli Óskari
Poppkóngurinn, Páll Óskar Hjálmtýsson, er þekktastur fyrir tónlistina sína en það sem kannski færri vita er að hann er líka grjótharður kvikmyndaáhugamaður. Hafsteinn var því mjög spenntur að fá hann í þáttinn og Páll Óskar olli ekki vonbrigðum. Strákarnir ræða meðal annars hversu sérstakur John Waters er sem leikstjóri, hversu gróf og ógeðsleg Cannibal Holocaust er, hversu mikið Russ Meyer elskaði stór brjóst, hversu mikilvægt það er að hafa trú á sjálfum sér og margt, margt fleira.
2020-12-09
1h 48
Bíóblaður
#31 Létt Spjall með Bjarna Áka
Eigandi Bako Ísberg, Bjarni Ákason, kom í heimsókn til Hafsteins og spjallaði við hann um allt og ekkert. Strákarnir ræddu meðal annars þegar Hafsteinn vann hjá Bjarna, Steve Jobs og Apple, þegar Bjarni hitti Mel Brooks í París, hvernig Bjarni var með þeim fyrstu sem fóru í sóttkví vegna COVID og hversu mikilvægt það er að leyfa börnunum sínum að velja sína eigin ástríðu.
2020-11-06
48 min
Bíóblaður
#28 Bíóspjall með Ásgeiri Kolbeins
Ásgeir Kolbeins kom í heimsókn til Hafsteins og þeir ræddu alveg heilan helling. Í þættinum ræða þeir meðal annars íslenska kvikmyndagerð, ástríðuna sem Ásgeir hefur fyrir góðu hljóði í bíómyndum, baráttu minnihlutahópa í Hollywood, hversu mikið Ásgeir elskar Inception, byrjunaratriðið í Final Destination 2, hvernig Saw kom á óvart og margt, margt fleira.
2020-10-28
2h 54
Bíóblaður
#27 Bíó áskorun með Bjögga og Hödda
Hafsteinn ákvað að búa til kvikmyndaáskorun fyrir Bjögga og Hödda. Hafsteinn bjó til 10 fjölbreyttar spurningar og strákarnir skiptast á að svara þeim. Þeir fara vel yfir öll svörin og ræða meðal annars líka hversu harður Jake the Muss er í myndinni Once Were Warriors, hvort það yrði gaman að hanga með Marsellus Wallace í heilan sólarhring, hversu blóðug Braindead er, hvort það hafi verið sniðugt að gefa út myndina 2012 árið 2009 og hvort það sé til betri byssumynd en Hard Boiled.
2020-10-23
1h 39
Bíóblaður
#26 Keilubíó með Hafþóri Harðar
Hafþór Harðarson, fjórfaldur Íslandsmeistari í keilu, kom til Hafsteins og þeir ræddu keilumyndirnar, Kingpin og The Big Lebowski. Þeir spjalla um þessar tvær myndir en þeir ræða líka margt, margt fleira. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu skemmtilegur leikari Tom Hanks er, hvernig fólk virðist ekki taka keilu alvarlega, hvað einkennir góðan keilara, hversu fyndinn Bill Murray er í Kingpin, hvort Friends séu betri þættir en Seinfeld og hvort Svíar séu með lélegan kvikmyndasmekk.
2020-10-21
1h 58
Bíóblaður
#25 Ógeðslegar myndir með Kiddu Svarfdal
Kidda Svarfdal, ritstjóri hun.is, kom í heimsókn til Hafsteins og þau ákváðu að spjalla um ógeðslegar myndir. Myndirnar sem þau nefna sérstaklega eru The House That Jack Built, A Serbian Film, Martyrs og The Human Centipede. Þau ræða þær og einnig hvað það er við ógeðslegar myndir sem þeim finnst heillandi, hvað Kidda hugsaði þegar hún hitti leikstjórann sem gerði The Human Centipede, skítugt blóð, hvort fólk geti fæðst vont og hvernig nokkrum manni datt í hug að fjármagna A Serbian Film.
2020-10-16
1h 51
Bíóblaður
#24 Topp 10 með Guðrúnu Dögg og Ástrós Líf
Hafsteinn fékk systurnar, Guðrúnu Dögg og Ástrós Líf, í heimsókn til sín og þær komu með lista yfir sínar topp 10 myndir. Guðrún og Ástrós eru mjög nánar systur en þær eru með mjög ólíkan kvikmyndasmekk. Hafsteinn og stelpurnar fara vel yfir þær myndir sem stelpurnar nefna en einnig ræða þau hversu töff leikari Tom Hardy er, hversu viðkvæmar þær eru fyrir ofbeldi gagnvart dýrum í bíómyndum, hversu mikið Ástrós elskar teiknimyndir og hvort Guðrún sé hrifnari af Gladiator eða Braveheart.
2020-10-14
2h 01
Bíóblaður
#23 Sin City með Nönnu
Nanna kom aftur og hún og Hafsteinn spjölluðu um Sin City. Sú mynd vakti mikla athygli á sínum tíma fyrir sitt frumlega og tölvugerða svart/hvíta útlit. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu vel myndin eldist, hversu hrikalega góður Mickey Rourke er sem Marv, hversu töff Rosario Dawson er sem Gail, ritgerðina sem Nanna skrifaði um Sin City, hvernig myndin nær að vera mjög trú myndasögunni og hvort það sé virkilega þægilegt að ganga í Converse skóm.
2020-10-09
1h 16
Bíóblaður
#22 Nördaspjall með Óla Jóels
Tölvuleikjaspilarinn og framkvæmdastjórinn, Ólafur Þór Jóelsson, kom til Hafsteins og þeir töluðu um bíómyndir og tölvuleiki. Strákarnir ræða ýmislegt saman en meðal annars ræða þeir hvernig COVID-19 hefur haft áhrif á kvikmyndahús á Íslandi, hversu spenntir menn eru fyrir Playstation 5, hversu pirrandi kraftlausar ofurhetjur eru, hversu hægur tölvuleikurinn Red Dead Redemption 2 er og hversu oft Óli fór á Grown Ups 2 í bíó.
2020-10-07
2h 03
Bíóblaður
#21 Bíólist/Tónlist með Teiti
Tónlistarmaðurinn Teitur Björgvinsson kom til Hafsteins og þeir ákváðu að ræða vel valdar bíómyndir þar sem tónlist spilar stórt hlutverk. Þeir völdu myndirnar Almost Famous, Engla Alheimsins, Sing Street og Hustle & Flow. Strákarnir ræða meðal annars hversu sjarmerandi Penny Lane er, hversu flott frumsömdu lögin í Sing Street eru, hversu mikilvægt það er að elta draumana sína og hversu flottur Joaquin Phoenix var sem Johnny Cash í myndinni Walk the Line.
2020-10-02
1h 48
Bíóblaður
#20 Bíóspjall með Ernulandi
Ernuland kom í heimsókn til Hafsteins og þau áttu gott og fjölbreytt bíóspjall saman. Þau spjölluðu um bíómyndir, þætti og margt, margt fleira. Þau ræddu meðal annars hversu æðislegur Leonardo DiCaprio er sem leikari, hvernig trú hefur breyst með árunum, hversu mikið Erna elskar Mamma Mia, hversu auðveldlega fólk deyr í Grey's Anatomy og hvort það væri gaman að spjalla við einhvern sem skrifar reglulega neikvæðar athugasemdir á samfélagsmiðlum.
2020-09-30
1h 44
Bíóblaður
#19 A Quiet Place með Bjögga
Bjöggi og Hafsteinn hittast aftur og í þetta skipti ræða þeir einungis eina bíómynd en það er bíómyndin, A Quiet Place. Sú mynd fékk hrikalega flotta dóma á sínum tíma en strákarnir eru ekki alveg sammála þeim dómum. Þeir ræða meðal annars hversu heimsk myndin er, hvernig sumir hafa ekki mikinn áhuga á að passa börnin sín, hvort það hefði ekki verið betra fyrir fjölskylduna að búa í hljóðeinangruðu stúdíói og hvernig í ósköpunum geimverurnar heyra stundum vel og stundum ekki.
2020-09-25
44 min
Bíóblaður
#18 Topp 10 með Kilo
Rapparinn Kilo mætti til Hafsteins og þeir fóru saman yfir 10 myndir sem Kilo elskar. Strákarnir ræða þær í þættinum og margt, margt fleira. Þeir ræða meðal annars hversu góð mynd Leon er, hversu glatað það er þegar leikstjórar hrista myndavélina í hasaratriðum, hvort maður eigi að hætta að horfa á Kevin Spacey myndir, hversu gaman það er að skjóta úr byssum og hvernig franska myndin, Martyrs, hefur þann eiginleika að geta meitt mann í sálinni.
2020-09-23
2h 09
Bíóblaður
#17 KIWI áskorun með Inga og Arnari
Hafsteinn fékk KIWI strákana, Inga og Arnar, til að kíkja til sín og taka þátt í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi sex spurningar, Ingi tvær og Arnar tvær. Strákarnir skiptast á að svara þeim og ræða meðal annars í þættinum hversu fyndin mynd Borat er, hversu góð mynd As Good as it Gets er, hvort Lara Croft sé harðari en Sarah Connor og hversu margar anime myndir Ingi hefur séð.
2020-09-18
1h 58
Bíóblaður
#16 Marvel með Sunnevu Einars
Sunneva Einars kom til Hafsteins og þau ræddu Marvel ofurhetjumyndir. Hafsteinn bjó til 10 Marvel spurningar handa Sunnevu og hún svarar þeim í þættinum. Þau fara saman yfir svörin og ræða meðal annars hversu fyndin Thor: Ragnarok er, hvernig Sunneva heldur oft með vondu köllunum, nördalegasta hlut sem Sunneva hefur keypt, hvaða ofurkraft væri best að vera með og hvort það hefði verið gaman að berjast með Captain America í seinni heimsstyrjöldinni.
2020-09-16
1h 52
Bíóblaður
#15 Scarface/Carlito's Way með Hödda
Hafsteinn fær Hödda aftur í heimsókn og í þetta skipti ræða þeir Scarface og Carlito's Way. Strákarnir ræða meðal annars hversu vel Scarface eldist, hversu góður karakter Tony Montana er, hvort fólk sé töff sem notar sólgleraugu á kvöldin, hversu vanmetin Carlito's Way er og hversu sturlaður Sean Penn er sem leikari.
2020-09-11
1h 59
Bíóblaður
#14 Kvikmyndaáskorun með Sölva Tryggva
Sölvi Tryggva kom til Hafsteins og þeir fóru saman í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi 10 fjölbreyttar spurningar og þeir skiptust á að svara þeim. Strákarnir ræða ýmislegt eins og t.d. hversu góður leikstjóri Stanley Kubrick var, hvort Sölvi gæti lært eitthvað af Vito Corleone, hversu klikkaður rétttrúnaðurinn er orðinn og hversu vel Brad Pitt eldist.
2020-09-09
1h 55
Bíóblaður
#13 The Invisible Man/Hollow Man með Bjögga
Bjöggi og Hafsteinn ræða muninn á The Invisible Man og Hollow Man. Þeir ræða meðal annars hversu flókið það væri að vera ósýnilegur, gallana við plottið í The Invisible Man, hversu kjarkaður Kevin Bacon er sem leikari og hversu erfitt það væri fyrir ósýnilegan mann að sofa.
2020-09-04
1h 19
Bíóblaður
#11 Tenet með Nönnu
Hafsteinn og Nanna fóru á Tenet í bíó og ákváðu að gagnrýna hana saman. Þau ræða meðal annars hversu flókin myndin er, hversu þroskaður Robert Pattinson er orðinn, hvort það sé gott að fá stundum nei og hversu töff John David Washington er.
2020-08-28
45 min
Bíóblaður
#9 Kvikmyndaáskorun með Birtu Líf
Hafsteinn fær Birtu Líf í heimsókn og þau fara saman í kvikmyndaáskorun. Hafsteinn samdi 10 fjölbreyttar spurningar sem þau skiptast á að svara. Þau ræða meðal annars væmnar myndir, bíóreglur, hefndarmyndir, svöl kærustupör í bíómyndum og hvernig myndir Birta Líf fékk að horfa á þegar hún var þriggja ára gömul.
2020-08-19
1h 46
Bíóblaður
#8 Rock Ocean Movie Challenge með Sigga og Snorra
Siggi og Snorri taka þátt í kvikmyndaáskorun sem Hafsteinn bjó til. Hann samdi 10 spurningar sem félagarnir skiptast á að svara. Þeir ræða meðal annars hversu góð hasarmynd Mad Max: Fury Road er, hvaða myndir fengu strákana til að tárast, hvort Elektra sé vanmetin mynd og hversu kjarkaðir Suður-Kóreubúar eru þegar kemur að kvikmyndagerð.
2020-08-12
2h 04
Bíóblaður
#7 Predator Quadrilogy með Hödda
Höddi og Hafsteinn spjalla um Predator myndirnar. Þeir ræða meðal annars hversu karlmannleg fyrsta myndin er, hversu illa Predator 2 eldist, menn sem ganga með gemsana sína í byssubelti undir öxl og hvort börn eigi að vera í Predator myndum.
2020-08-05
2h 11
Bíóblaður
#6 80's grínmyndir með Sigga
Siggi valdi Police Academy, The Burbs og Trading Places. Hafsteinn valdi Airplane!, Fletch og Uncle Buck. Þeir fara vel yfir þessar myndir og ræða einnig af hverju 80's grínmyndir eru skemmtilegar, hvort Dan Aykroyd sé fyndinn leikari og hversu strangur Hafsteinn er þegar hann býður fólki heim í videokvöld.
2020-07-29
1h 40
Bíóblaður
#5 Scream Quadrilogy með Nönnu
Hafsteinn fær Nönnu í heimsókn og þau spjalla saman um Scream myndirnar. Þau ræða meðal annars hvort að Stu hafi verið skotinn í Billy, listrænt tjáningarfrelsi, hvað Courteney Cox var eiginlega að hugsa með Scream 3 hárgreiðslunni sinni og hvort það þurfi ekki bara að leggja Sidney Prescott inn á geðdeild.
2020-07-22
2h 22
Bíóblaður
#4 30 Day Movie Challenge með Snorra
Snorri og Hafsteinn fylltu út sína 30 Day Movie Challenge lista og bera þá saman í þættinum. Þeir fara yfir víðan völl og spjalla meðal annars um fólk sem hjólar með Predator hjálma, hversu oft þeir fóru á The Dark Knight og hvernig Braveheart er fullkomin bíómynd til að sýna geimverum.
2020-07-15
2h 05
Bíóblaður
#3 Stríðsmyndir með Jónasi
Hafsteinn fær Jónas til sín og þeir spjalla um Platoon, Saving Private Ryan, Black Hawk Down og 1917. Meðal annars tala þeir um langar myndir, áhugaverðasta stríðið, bræðrabönd í stríðsmyndum og hvernig Sam Mendes hefði getað gert 1917 skemmtilegri.
2020-07-03
1h 47
Bíóblaður
#2 Once Upon a Time in Hollywood með Bjögga
Björgvin og Hafsteinn spjalla um nýjustu mynd Quentin Tarantino, Once Upon a Time in Hollywood. Félagarnir fara yfir samtöl í bíómyndum, man crush, Luke Perry og hvort Tarantino muni gera mynd númer 10.
2020-07-03
1h 09
Bíóblaður
#1 Alien Quadrilogy með Snorra
Hafsteinn fær Snorra í heimsókn og þeir spjalla um fyrstu fjórar Alien myndirnar. Þeir tala meðal annars um hönnun, James Cameron, litlar fatastærðir, auglýsingar í bíómyndum og hamingjusykur.
2020-07-03
1h 59