Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Hlaðvarp Þjoðskjalasafns

Shows

Til skjalannaTil skjalannaMinja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu.Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja. 2025-06-0342 minTil skjalannaTil skjalannaLestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðunaHelgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum.  Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýnir ákveðna togstreitu milli laga og hagsmuna samfélagsins.2025-04-2843 minTil skjalannaTil skjalannaAðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja frá 1964Í febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973.  Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrsluna, tilurð hennar og mikilvægi þegar á reyndi.Meðal þess sem fram kemur í þættinum er náttúruvá, jarðskjálftamælar, Heimaey, flugvöllur á Skógarsandi og betri flugsamgöngur.Þátturi2025-03-2733 minTil skjalannaTil skjalannaÆttfræði og tækniÍslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni.2025-02-2751 minTil skjalannaTil skjalannaCornell háskóli. Saga, söfn og aðgengi.Ólafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla. Þátturinn er á ensku. 2025-01-1639 minTil skjalannaTil skjalannaJólasiðir þá og núHelgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn.  Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til landsins í gegnum tíðina og hjálpað við að móta siði og venjur. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er fjöldi jólasveina, jólakveðjur, innkaup fyrir jó...2024-12-1631 minTil skjalannaTil skjalannaFóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703Helgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703. Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar.  Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafsláttur og heytollur.  2024-11-2722 minTil skjalannaTil skjalannaBlái skjöldurinnHelgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea. 2024-10-2333 minTil skjalannaTil skjalannaHeimsókn til Gdansk í PóllandiHelgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala, nýsköpun, miðlun gagna og minni þjóðar. 2024-09-3044 minTil skjalannaTil skjalannaNetógnir dagsins í dagHeiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum. 2024-08-1238 minTil skjalannaTil skjalannaÞjóðlendurannsóknirHelgi Biering ræðir við Ólaf Arnar Sveinsson fagstjóra fræðslu og rannsókna og Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur skjalavörð um Þjóðlendurannsóknir sem farið hafa fram á Þjóðskjalasafni Íslands í um tuttugu ár.2024-06-2426 minTil skjalannaTil skjalanna„Þessi frægu glæpamál“Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Jón Torfason og Má Jónsson um nýútkomna bók þeirra Þessi frægu glæpamál.  Í þættinum ræða þau um ein þekktustu morðmál Íslandssögunnar en það eru morðin á Sjöundá og Illugastöðum. 2024-05-1543 minTil skjalannaTil skjalannaÚt á brún og önnur miðHelgi Biering ræðir við Hauk Aðalsteinsson rithöfund og skipasmið um bókina Út á brún og önnur mið. Útgerðarsaga Vatnsleysustrandarhrepps til 1930. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er verbúðalíf, skipasmíðar, spítalafiskur og hvalveiðar í net. 2024-04-1738 minTil skjalannaTil skjalannaTrump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum.Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.2024-03-2231 minTil skjalannaTil skjalannaSkjalafréttir 10 áraHelgi Biering ræðir við Árna Jóhannsson skjalavörð um fréttabréf Þjóðskjalasafns Íslands Skjalafréttir. Fyrsta tölublað Skjalafrétta kom út 14. janúar árið 2014 og því fagnar það 10 ára afmæli um þessar mundir.2024-02-1921 minTil skjalannaTil skjalannaDómabókagrunnur ÞjóðskjalasafnsSkjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.2024-01-1744 minTil skjalannaTil skjalannaGrindavíkurskjölinHelgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.2023-12-1835 minTil skjalannaTil skjalannaKynlegt stríð - ástandið í nýju ljósiBenedikt Eyþórsson ræðir við Báru Baldursdóttur sagnfræðing um bók hennar Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi sem nýlega kom út. Óhætt er að segja að gögn sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands hafi varpað nýju ljósi á samneyti íslenskra kvenna og hermanna á hernámsárunum. 2023-11-2940 minTil skjalannaTil skjalannaÍslenskir sakamenn í KaupmannahöfnÍslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn. Helgi Biering ræðir við Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur sagnfræðing um rannsóknir hennar á íslenskum sakamönnum sem sendir voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1736-18302023-10-1934 minTil skjalannaTil skjalannaHverjir völdu fulltrúa fólksins?Ragnhildur Anna Kjartansdóttir ræðir við Hrafnkel Lárusson skjalavörð og nýdoktor í sagnfræði um rannsókn hans á kosningum og kjörhegðun Íslendinga á landshöfðingjatímanum (1874-1903), en verkefnið hlaut nýverið nýdoktorsstyrk frá Rannís2023-06-0129 minTil skjalannaTil skjalannaFarsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25Benedikt Eyþórsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðing og ljóðskáld um nýútkomna bók hennar um farsóttarhúsið í Reykjavík2022-12-1339 minTil skjalannaTil skjalannaÞrautseigja og mikilvægi íslenskrar tunguUnnar Rafn Ingvarsson og Jón Torfi Arason ræða við Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur um nýstárlega sagnfræðirannsókn hennar um tungumálanotkun á Íslandi, dönsk áhrif á 18. og 19. öld og um mikilvægi íslensku frá siðaskiptum2021-11-1447 minTil skjalannaTil skjalannaLénið ÍslandUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur sagnfræðing um tímamótarannsókn hennar: Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld. 2021-10-1331 minTil skjalannaTil skjalannaJarðskjálftar á ÞjóðskjalasafniUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing og prófessor emeritus um sögu jarðskjálftamælinga á Íslandi og stafræna afritun sögulegra mæligagna um jarðskjálfta, sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni, og hafa að geyma ómetanlegan vitnisburð um hreyfingu jarðarinnar2021-07-1540 minTil skjalannaTil skjalannaEinkabréf alþýðukonu frá 19. öldJón Torfi Arason ræðir við Helgu Hlín Bjarnadóttur sagnfræðing og skjalavörð um safn sendibréfa lausakonunnar Arnfríðar Þorkelsdóttur (1830-1885) sem nýlega komu fram í dagsljósið á Þjóðskjalasafni. Tilefnið er grein Helgu Hlínar í Sögu, þar sem hún kynnir þessar ómetanlegu hversdagsheimildir2021-06-3028 minTil skjalannaTil skjalannaUm skjalfræði og mikilvægi upprunansJón Torfi Arason ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur sagnfræðing og lektor í skjalfræði um fræðigreinina skjalfræði, upprunareglu í skjalavörslu og námsleið í hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands2021-06-1130 minTil skjalannaTil skjalannaLýðræði í mótunUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um doktorsritgerð hans: Lýðræði í mótun: félagastarf, fjölmiðlun og þátttaka almennings 1874-19152021-06-0238 minTil skjalannaTil skjalannaSkjöl á skriðusvæðiUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Karen Sigurkarlsdóttur forvörð og Andra Má Jónsson skjalavörð, en þau aðstoðuðu bæði við björgun á skjölum úr skriðunum sem féllu á Seyðisfirði í desember árið 20202021-03-2434 minTil skjalannaTil skjalannaSmitvarnir og bólusetningarUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Erlu Dóris Halldórsdóttur sagnfræðing um bólusetningar á 18. og 19.  öld og þá kröfu sem var gerð til skipa að þau væru smitfrí2021-02-2629 minTil skjalannaTil skjalannaÆttarsaga óperusöngvaraUnnar Rafn Ingvarsson og Benedikt Eyþórsson ræða við Bjarna Thor Kristinsson óperusöngvara um rannsóknir hans á sögu fjölskyldunnar.2021-02-0834 minTil skjalannaTil skjalannaDánarbú 30.000 ÍslendingaRætt er við Má Jónsson prófessor um gagnagrunn og leitarvél sem nú er orðin aðgengileg á vef Þjóðskjalasafns og tekur til dánarbúauppskrifta, skiptabóka og uppboða á 18. og 19. öld. Dánarbússkrárnar innihalda nákvæmar skrár yfir eigur fólks og taka m.a. til fatnaðar, verkfæra og búfjár og eru ómetanlegar upplýsingar um lífskjör fólks 2021-01-1235 minTil skjalannaTil skjalannaGuðjón Samúelsson, húsameistari ríkisinsBenedikt Eyþórsson fagstjóri og Freyr Snorrason sagnfræðingur ræða við Pétur Ármannsson arkitekt og sviðstjóra hjá Minjavernd um nýútkomna bók hans um ævistarf Guðjóns.2020-12-2142 minTil skjalannaTil skjalannaÍ hers höndumUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðinemana Atla Björn Jóhannesson og Daníel Godsk Rögnvaldsson um skönnun og skráningu skjala sem varða stríðsárin 1940-1945. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-12-0228 minTil skjalannaTil skjalannaStormhúfa og harmóníka. Um hagsögusafn Þjóðskjalasafns ÍslandsÍ upphafi árs 2020 lauk endurskráningu á gríðarstóru safni verslunarskjala sem verið höfðu óaðgengileg um áratuga skeið á Þjóðskjalasafni. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðingana Gunnar Örn Hannesson og Jón Torfa Arason sem báðir komu að verkefninu. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-11-2530 minTil skjalannaTil skjalannaRaddir frá liðnum tímaNjörður Sigurðsson ræðir við Bjarka Sveinbjörnsson fagstjóra Hljóð- og myndsafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabóksafns um björgun hljóðs af pappaplötum frá árinu 1944. Á upptökunum má heyra raddir margra af fyrstu forystumönnum Alþýðuflokksins. Hér er því um einstakar heimildir að ræða sem heyrast nú í fyrsta skipti í áratugi. Plöturnar eru varðveittar í skjalasafni Alþýðuflokksins í Þjóðskjalasafni Íslands. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-11-0432 minTil skjalannaTil skjalannaLandsnefndin 1770-1771Störf og hlutverk Landsnefndarinnar fyrri sem starfaði á árunum 1770-1771. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur og Helgu Hlín Bjarnadóttur, en þær komu allar að útgáfu 5. bindis skjala Landsnefndarinnar. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-10-2627 minTil skjalannaTil skjalannaÞjóðskjalavörður hefur orðiðUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalavörð um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og verkefni þess í bráð og lengd. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-10-2127 min