podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Hlaðvarp Grindavikurbæjar
Shows
Góðan daginn Grindvíkingur
#15 Otti Rafn Sigmarsson
Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingar ræðum við við Otta Rafn Sigmarsson, framkvæmdastjóra HP flutninga og einn af burðarásunum í starfi Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Otti hefur verið í framlínu björgunarstarfa í Grindavík í áratugi og stóð vaktina þegar allt breyttist þann 10. nóvember 2023.Í viðtalinu rifjar hann upp æskuárin í Grindavík, fyrsta útkallið, áskoranirnar sem fylgdu rýmingunni og hvernig hann leiddi skipulagningu aðgerðanna með reynslu og yfirvegun að vopni. Hann talar einnig um vináttuna, félagsskapinn og trúna á að Grindavík rísi aftur.
2025-04-16
1h 17
Góðan daginn Grindvíkingur
#14 Sigurður Rúnar Karlsson
„Ég held að framtíð Grindavíkur sé björt – jafnvel bjartari en áður.“Í þessum þætti af Góðan daginn, Grindvíkingar ræðum við við Sigurð Rúnar Karlsson, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar – oft kallaðan Sigga Garðhúsum. Sigurður var fyrsti maðurinn sem snéri aftur í bæinn eftir rýmingu þann 11. nóvember 2023. Þar tók hann fyrstu skrefin í viðgerðum og uppbyggingu sem hann hefur stýrt af festu og jákvæðni síðan.Hann segir frá æskuárunum í Garðhúsum, áhrifum hamfaranna á sitt eigið heimili og þeirri von sem h...
2025-04-09
50 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#13 Jóhanna Lilja Birgisdóttir, framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindavíkinga
Jóhanna Lilja Birgisdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindvíkinga, ólst upp í Grindavík og býr yfir sterkum tilfinningalegum tengslum við heimabæinn, þrátt fyrir að hafa búið víða síðustu áratugi. Jóhanna fer yfir æskuárin í Grindavík sem hafa verið einstaklega hlý og mótandi þar sem samvera, náttúra og íþróttir gegndu stóru hlutverki.Lífið í litla sjávarplássinu var ríkt af tækifærum og samhug. Jóhanna lýsir bernsku þar sem allir tóku þátt, hvort sem var í íþróttum, tónlist eða kirkjustarfi. Nát...
2025-04-02
48 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#12 Kjartan Friðrik Adólfsson
Kjartan Friðrik Adólfsson hefur verið búsettur í Grindavík frá árinu 1973. Hann rifjar upp æskuárin í Vestmannaeyjum, rýminguna vegna eldgossins á Heimaey og þróun bæjarlífs í Grindavík.Saga Kjartans veitir okkur dýrmæta innsýn í reynslu þeirra sem hafa misst heimili sín vegna náttúruhamfara. Hann leggur áherslu á að viðhalda jákvæðni og vanda ákvarðanir þegar kemur að endurbyggingu bæjarins, en um leið að hver og einn fái að ákveða hraða síns eigin heimflutnings.Tækniúrvinnsla: Óskar Kristinn Vignisson(Lag: Vi
2025-03-27
49 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#11 Fasteignafélagið Þórkatla
Í þættinum ræða Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Þórkötlu og Dagný Lísa Davíðsdóttir fjármálastjóri félagsins um starfsemi félagsins.Fasteignafélagið Þórkatla hefur leikið lykilhlutverk í að skapa Grindvíkingum fjárhagslegt svigrúm í kjölfar hamfara en um leið hvílir mikil ábyrgð á félaginu að tryggja búsetur í Grindavík til frambúðar.(lag: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Heimkoma).
2025-03-17
49 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#10 Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar
Gestur okkar að þessu sinni er Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Hún ræðir m.a. um uppvöxt sinn í Grindavík, hvernig samfélagið mótaði hana og lagði grunninn að hennar lífsviðhorfi og starfsvettvangi sem kennari og síðar bæjarfulltrúi. Þá ræðir hún stöðuna í Grindavík í dag og hennar framtíðarsýn. (Lag: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Heimkoma)
2025-03-04
49 min
Til skjalanna
Grindavíkurskjölin
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.
2023-12-18
35 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#9 Líð ég burt frá landi
Tónleikarnir Líð ég burt frá landi voru í Grindavíkurkirkju, sunnudaginn 12. mars, 2023. Kvennakórinn Grindavíkurdætur frumflutti lög og texta eftir Kristínu Margréti Matthíasdóttur. Berta Dröfn Ómarsdóttir stjórnaði kórnum og Ingunn Hildur Hauksdóttir sá um meðleikinn. Tónleikarnir voru partur af skipulagðri Menningarviku Grindavíkurbæjar.Margrét Rut Reynisdóttir sagði frá vinnunni á bak við tónleikana, um undirbúninginn og hvernig þetta allt varð til.
2023-03-10
29 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#8 Jólaþáttur Alexanders með góðum gestum
Góðan daginn Grindvíkingar! Alexander Birgir Björnsson mætti aftur í stúdíó240 og tók upp jólaþátt með sérlegri aðstoð frá Elínborgu Ingvarsdóttur, forstöðumanni Þrumunnar. Þau ræddu um jólahátíðina og fengu nokkra góða gesti í settið sem starfa við Grunnskóla Grindavíkur. Við mælum með hlustun ef að þið viljið koma ykkur í jólaskap í þessu veðri. Það verða svo sannarlega hvít jól þessi jólin. Um að gera að fá sér heitt kakó og smákökur, já eða pakka inn jólapökkunum! Sérlegar þakkir...
2022-12-20
1h 12
Góðan daginn Grindvíkingur
#7 Alexander Birgir Björnsson
Góðan daginn Grindvíkingar! Loksins kominn nýr þáttur eftir smá hlé. Alexander Birgir Björnsson mætti í stúdíóið til okkar ásamt Veigari Gauta Bjarkasyni. Veigar Gauti fékk Alexander til þess að segja okkur aðeins frá sjálfum sér og hvernig hann var sem barn, erfiðu tímabili í hans lífi, um einhverfu, Eurovision og fleiru. Takk Alexander fyrir að leyfa okkur að fá innsýn í þitt líf, segja okkur þína sögu og fræða okkur um einhverfu. Frábær karakter og mikill meistari. Við mælum með að hlusta og endilega deil
2022-06-29
46 min
Góðan daginn Grindvíkingur
XD - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.Hjálmar Hallgrímsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Friðrik Sigurðsson og Ólafur Reynir Ómarsson, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónamaður ungmennaráðs, spyrja Hjálmar nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við D og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Hjálmari aðeins betur og heyra hver hann...
2022-05-08
22 min
Góðan daginn Grindvíkingur
XU - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.Helga Dís Jakobsdóttir er oddviti Raddar unga fólksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Vignir Berg Pálsson og Una Rós Unnarsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónarmaður ungmennaráðs, spyrja Helgu Dísi nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við U og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Helgu Dísi aðe...
2022-05-08
31 min
Góðan daginn Grindvíkingur
XM - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (Didda) er oddviti Miðflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Friðrik Sigurðsson og Ólafur Reynir Ómarsson, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónamaður ungmennaráðs, spyrja Diddu nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við M og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Diddu aðeins betur og heyra h...
2022-05-08
21 min
Góðan daginn Grindvíkingur
XS - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.Siggeir F. Ævarsson er oddviti Samfylkingarinnar í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Vignir Berg Pálsson og Una Rós Unnarsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónarmaður ungmennaráðs, spyrja Siggeir nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við S og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Siggeiri aðeins betur og heyra hver hann er.
2022-05-08
23 min
Góðan daginn Grindvíkingur
XB - Kosningavarp ungmennaráðs
Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240. Ásrún Kristinsdóttir er oddviti Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Tómas Breki, fulltrúi ungmennaráðs, og Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar, spyrja Ásrúnu nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau standa, af hverju við ættum að setja x við B og fleira í þeim dúr. Þar að auki fengum við að kynnast Ásrúnu aðeins betur og heyra hver hún er. Takk fyrir að hlusta og...
2022-05-08
28 min
Góðan daginn Grindvíkingur
#1 Góðan daginn Grindvíkingur - fyrsti þáttur
Í þessum þætti verður fjallað um okkar nýjustu tækni, hlaðvarp Grindavíkurbæjar, Góðan daginn Grindvíkingur! Þær Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar, og Sunna Jónína Sigurðardóttir, verkefnastjóri Kvikunnar, fara yfir það sem er framundan og greina frá því hvernig aðrar stofnanir Grindavíkurbæjar getur nýtt sér þessa tækni til þess að koma sér á framfæri og vonandi myndað samstarf í gegnum þessa spennandi tækni.Góður gestur kemur í þáttinn hann Aðalgeir Jóhannson eða Alli á Eyri eins og hann er jafnan kallaður. Alli segir okkur frá því...
2022-05-05
25 min