Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Hlaðvarp Vikurfretta

Shows

Hlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 9. þáttur 2019 // Sigurður IngvarssonÞað er óhætt að segja þrjú stór málefni tengist Garðmanninum Sigurði Ingvarssyni. Rafmagn, bæjarpólitík og fótbolti. Hann hefur starfað sem rafvirki í 50 ár og því var fagnað nú á haustdögum. Nokkur hundruð manns sóttu okkar mann og SI fjölskylduna heim í 50 ára afmæliskaffi. Siggi segist hafa verið heppinn í gegnum tíðina, ekki síst að hafa haft eiginkonuna, Kristínu Guðmundsdóttur, sér við hlið í rekstrinum og síðan dæturnar tvær, þær Jónu og Guðlaugu og þeirra eiginmenn, Ólaf og Elías. Siggi hefur alla tíð verið hægri mað...2019-11-1827 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 8. þáttur 2019 // Una SteinsdóttirKeflvíkingurinn Una Steinsdóttir segist vera landsbyggðartútta en hún hefur síðustu tvo áratugi verið í framlínu Íslandsbanka en bankaár hennar eru að verða þrjátíu því hún hóf störf í Íslandsbanka árið 1991 og hafði einnig starfað í Verslunarbankanum með skóla. Una er viðmælandi Sjónvarps Víkurfrétta í þættinum Suður með sjó en einnig er rætt við föður hennar og fleiri í þættinum sem var frumsýndur á Hringbraut kl. 21.30 á mánudagskvöld er er svo einnig á vf.is. Þá eru allir þættir frá Sjónvarpi Víkurfrétta einnig sýndir hjá Kapalvæðingu í Reykjanesbæ. ...2019-11-1827 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 7. þáttur 2019 // Axel JónssonAxel Jónsson, eigandi og stofnandi Skólamatar ehf. er gestur 7. þáttar Suður með sjó frá Sjónvarpi Víkurfrétta.  Í þættinum er rætt við Axel um starfsemi Skólamatar sem er frumkvöðlafyrirtæki sem hann hefur nú rekið í tuttugu ár. Börnin hans tvö, Fanný og Jón Axelsbörn stýra núna fyrirtækinu en hjá því starfa 120 manns en um fimmtíu skólar frá mat frá Skólamat. 2019-11-1829 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 6. þáttur 2019 // Inga Karlsdóttir á KýpurNjarðvíkingurinn Inga Karlsdóttir fann ástina á Kýpur og hefur búið þar í 38 ár með eiginmanni og fjórum börnum. Hún hefur starfrækt grænmetisveitingastað með ágætum árangri, þar sem fyrstu uppskriftirnar komu úr matreiðslubók Hagkaups, Grænum kosti. Börnin hennar gætu alveg hugsað sér að flytja til Íslands en hún er ekki á leiðinni til Njarðvíkur í bráð.

Víkurfréttir heimsóttu Ingu til Kýpur og ræddu við hana um menninguna og lífið í landinu sem og hvernig heimamenn tóku grænmetisstaðnum hennar.2019-10-2427 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 5. þáttur 2019 // Bjarney S. Annelsdóttir yfirlögregluþjónn„Lögreglustarf er ekki fyrir alla og þú finnur það fljótt hvort það hentar þér. Flestir fara í lögregluna af hugsjón en ekki út af launaumslaginu. Maður finnur það að fólk sem starfar í lögreglunni eru fyrirmyndir og þegar við erum ekki í búning þá er samt fylgst með okkur því margir vita hverjir starfa við löggæslu í bænum okkar. Við viljum fjölga fólki af erlendum uppruna í lögreglunni hér á Suðurnesjum því hlutfall þeirra hefur vaxið mikið. Þó er nauðsynlegt að fólk tali góða íslensku svo ekki sé hætta á misskilningi. Lögregluliðið þarf að endurspegla samfél...2019-10-2426 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 4. þáttur 2019 // Unga fólkið á Suðurnesjum„Námið kemur ekki alltaf til móts við mann en ég held það einskorðist ekkert við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ég held það sé bara nám á Íslandi yfir höfuð. Það þarf að komast í takt við samtímann,“ segir Júlíus Viggó Ólafsson, nýr formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en hann, ásamt þeim Dagnýju Höllu Ágústsdóttur og  Karín Ólu Eiriksdóttur, er gestur næsta þáttar af Suður með sjó sem sýndur verður á sunnudagskvöld á Hringbraut kl. 20:30. Þau Dagný, Júlíus og Karín eiga það sameiginlegt að vera með sterkar...2019-10-2426 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 3. þáttur 2019 // Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og hagfræðingur„Það var ákveðin blessun að Varnarliðið fór frá Íslandi árið 2006 þegar málin eru skoðuð eftirá, þó svo að það hafi verið mikið áfall á þeim tíma. Það er miklu betra og heilbrigðara að lifa á eigin þjónustu og starfsemi en að þurfa að sækja peninga til Bandaríkjanna. Við erum að standa okkur vel í ferðaþjónustunni sem á bjarta framtíð fyrir sér á Suðurnesjum og landinu öllu,“ segir Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor og hagfræðingur í næsta þætti Suður með sjó sem sýndur verður n.k. Sunnudagskvöld. Hilmar Þór segir m.a. frá því í viðtalinu þeg...2019-05-1126 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 2. þáttur 2019 // Margrét Knútsdóttir ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun SuðurnesjaMargrét Knútsdóttir, ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, er gestur okkar í Suður með að þessu sinni.  „Ég segi stundum við verðandi mæður að hætta að googla og leggja frá sér tölvuna. Það getur stundum ruglað þær og valdið þeim kvíða þegar þær eru að leita sér upplýsinga á vefnum. Það eru breyttir tímar en áður fékkstu kannski þessar sömu upplýsingar beint frá mömmu þinni eða tengdamömmu“.  Margrét leggur einnig áherslu á að nýbakaðar mæður slaki aðeins á þegar kemur að samfélagsmiðlum og þær séu...2019-05-0627 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSuður með sjó // 1. þáttur 2019 // Júlíus Friðriksson prófessor við háskólann í Suður-KarólínuKeflvíkingurinn Júlíus Gísli Friðriksson, prófessor við háskólann í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, hefur stýrt rannsóknum á bata og endurhæfingu eftir heilablóðfall en niðurstaða úr nýlegri rannsókn á vegum Júlíusar og birtist í hina virta læknariti New England journal of medicine segir að fjórði hver einstaklingur sem nær fullorðinsaldri fái heilablóðfall. Júlíus segir að helstu ástæður fyrir því að fólk fái heilablóðfall séu erfðatengdar og einnig lífsstíl. Mikilvægt sé að stunda hreyfingu, borða hollan mat og re...2019-04-2825 minHlaðvarp VíkurfréttaHlaðvarp VíkurfréttaSjálfsfróun, fullnægingar og mörk í kynlífiÞað var heldur betur opinská umræða um sjálfsfróun, fullnægingar og mörk í kynlífi sem þær Sigga Dögg kynfræðingur og Sólborg Guðbrandsdóttir, stofnandi og umsjónamaður „Fávitar“ á Instagram buðu uppá í beinni útsendingu í Sjónvarpi Víkurfrétta nýverið. Sólborg opnaði umræðu á Instagram um fullnægingar og viðbrögðin hafa verið mikil og fjölmargar spurningar borist. Því ákvað Sólborg að fá Siggu Dögg til liðs við sig í beina útsendingu þar sem þær ræddu málin umbúðalaust og fjölmörgum spurningum frá áhorfendum var svarað.2019-04-261h 24