podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Hljoðkirkjan
Shows
Snæbjörn talar við fólk
#0097 Katrín Jakobsdóttir
S01E97 – Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra Íslands. Hún er ótrúlega látlaus og skrumlaus miðað við þungavigt embættisins og fas margra sem gætt hafa þess áður. Katrín er glæpasagnanörd og fjölskyldumanneskja. Hún var send margsinnis út í sjoppu sem barn til þess að sníkja gallað nammi, þá af eldri bræðrum sínum sem glöddust yfir því hversu vel það gekk — og tóku gróðann. Eftir afburðagengi í Menntaskólanum við Sund hætti hún við að gerast leðurjakkabóhem í Frakklandi og gerði að lokum lokaritgerð um Arnald Indriðas...
2022-03-24
1h 50
Snæbjörn talar við fólk
#0096 Rakel Björk Björnsdóttir
S01E96 – Rakel Björk er leikkona og söngkona. Hún ætlaði sér aldrei að verða neitt annað, sá ekki fyrir sér að Verzló myndi fara vel með hana en hins vegar varð MR henni mjög eðlilegt ferli, og þá spilaði Herranótt stærstu rulluna. Hún ólst upp við ljósleysi og málar veggina heima hjá sér í öllum mögulegum litum. Áður en leiklistarskóla lauk var hún komin í atvinnumennsku þegar Borgarleikhúsið fékk hana til liðs við sig. Þar er hún enn og Níu líf Bubba taka mikinn tíma þessa daga...
2022-03-17
3h 57
Snæbjörn talar við fólk
#0095 Aðalheiður Ámundadóttir
S01E95 – Aðalheiður, eða Alla, er gömul vinkona mín. Alveg síðan in the 80s. Við höfum gert allskonar hluti saman, brotið lögin og krufið lífið til mergjar. Við höfum haldið of litlu sambandi síðustu ár og áratugi og þess vegna var mjög gaman að setjast niður með henni núna og fylla í eyðurnar. Alla er lögfræðingur og fréttastjóri Fréttablaðsins. Hún er óhefluð og hávær, situr aldrei á skoðunum sínum og hefur mjög hátt. Hún hélt lengi framan af að hún væri heims...
2022-03-10
3h 20
Snæbjörn talar við fólk
#0094 Karl Ágúst Úlfsson
S01E94 – Karl Ágúst Úlfsson hefur komð svo miklu í verk að mig verkjar í verkkvíðan þegar ég hugsa um það. Spaugstofan og Stöðin eru þrekvirki út af fyrir sig, Nýtt líf, Dalalíf, Löggulíf og allt hitt. En kannski er hans stærsta afrek að hafa skrifað allt það sem hann hefur skrifað. Allar þessar þýðingar, leikrit, skáldverk, handrit hverskonar og hvað sem þetta heitir nú allt. Og allt snýst þetta um heppni og hungur, vill hann í það minnsta meina. Karl Ágúst er ótrúlega skemmtilegur sögumaður og listamaður af allra guða náð. Árin fara afar...
2022-03-03
2h 58
Snæbjörn talar við fólk
#0093 Sandra Hlíf Ocares
S01E93 – Sandra er frá Akureyri en samt frá Chile. Hún lærði lögfræði þrátt fyrir góðan slurk af ADHD, eignaðist börnin á réttum aldri og gerði upp gamalt hús með hjálp vina og vandamanna. Hún hefur starfað við allskonar ólíka hluti og vill einfalda það sem flókið er. Hún er mjög berorð og beinskeytt. Mjög. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Sæktu þér pizzu á Natalía í Borg 29, Borgartúni á aðeins 1.500 krónur! – Bónus býður upp á ST...
2022-02-24
3h 47
Snæbjörn talar við fólk
#0092 Agnes Grímsdóttir [2022]
S01E92 – Þetta viðtal er ekki viðtal. Þetta er bara ég að tala við konuna mína um allt og ekkert. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Skyr Factory allar skálar og boozt á aðeins 1.000 kr. í Pay appinu! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Sjóvá býður upp á STVF. Ég fékk póst í vikunni. Viðskiptavinir Sjóvá borga ekki lögboðnar bílatryggingar í maí. Ókei, næææs.
2022-02-17
1h 14
Snæbjörn talar við fólk
#0091 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
S01E91 – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er formaður borgarráðs, staðgengill borgarstjóra í Reykjavík og oddviti Viðreisnar í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún hefur komið að bissness og stjórnmálum, rekið Pizza Hut á Íslandi og í Finnlandi og komið sprotafyrirtæki á laggirnar. Hún er útlærður sjónvarpsmógúll frá New Orleans en starfaði síðan hinum megin við vélarnar, sem og við hljóðnema. Þulur í Gettu betur og aldrei að pródúsera neitt. Hún er gæd og hefur sterkar tengingar við Reykjadalinn fagra. Hún er stjórnandi í eðlinu og hefur þörf fyrir útk...
2022-02-10
2h 45
Snæbjörn talar við fólk
#0090 Ævar Þór Benediktsson
S01E90 – Við höfum sennilega öll kallað hann Ævar vísindamann, en svo einföld er sagan nú ekki. Ævar Þór er gríðarlega afkastamikill rithöfundur og grúskari en aðspurður segist hann vera leikari fyrst og allt annað á eftir. Hann er mikill talsmaður barnamenningar sem og fræðslu- og afþreyingarefnis fyrir börn og sér tækifæri í hverju horni. Hann virðist óþreytandi þegar kemur að því að koma þekkingu og gáska á framfæri en játar þó að hann sé farinn að velja tilefnin aðeins betur en hann gerði áður. Einhvern veginn kemur hann því...
2022-02-03
2h 56
Snæbjörn talar við fólk
#0089 Broddi Kristjánsson
S01E89 – Broddi Kristjánsson er goðsögn. Hann hefur unnið yfir 40 íslenska titla, hefur farið á fleiri heimsmeistaramót en hann hefur tölu á og keppti á ólympíuleiknum í Barcelona árið 1992. Hann er sagnakista og ljúfmenni, lítillátur og góðlegur. Það er þó ekki erfitt að sjá keppnisskapið í gegnum þetta allt enda kemst enginn á þennan stað nema með vinnu og ákveðni. Hann vann ekki fyrsta titilinn fyrr en furðuseint, en eftir það fékk ekkert stoppað hann. Hann lærði til íþróttakennara á Laugarvatni á sama tíma og hann var að spila sig inn á ólympíuleika, fann einhvers staðar tíma til...
2022-01-27
2h 11
Snæbjörn talar við fólk
#0088 Vigdís Jóhannsdóttir
S01E88 – Vigdís Jóhannsdóttir er trukkur. Hún er vinkona mín og við unnum saman á auglýsingastofunni Pipar\TBWA í mörg ár. Hún er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi í dag og sinnir ytri og innri markaðsmálum. Hún er alin upp í Keflavík, miklu yngri en bræður hennar tveir, tók þátt í fegurðarsamkeppnum, lærði á hljóðfæri og lék með leikfélaginu. Hún ætlaði að verða leikkona, veðurfræðingur og allskonar fleira áður en hún lenti í kjafti fjölmiðlabransans þar sem hún ílengdist í mörg ár. Hún á b...
2022-01-20
3h 20
Snæbjörn talar við fólk
#0087 Arnar Þór Gíslason
S01E87 – Arnar Þór Gíslason er einn af mest áberandi trymblum landsins. Bæði er hann afskaplega afkastamikill, spilar og hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarfólks, en þar á meðal eru Dr. Spock, Pollapönk, Mugison, Jónas Sig, Lára Rúnars, Írafár og miklu fleiri, en að auki hefur hann áberandi og heillandi stíl. Addi er þó ekki tónlistarmaður að aðalatvinnu því hann er framkvæmdastjóri þeirrar stórkoslegur búðar sem Hljóðfærahúsið kallast og stendur þar vaktina dags daglega. Hann er Hafnfirðingur, á konu og tvö börn, ekki maðu...
2022-01-13
2h 36
Snæbjörn talar við fólk
#0086 Esther Talía Casey
S01E86 – Esther Talía Casey er leikkona og söngkona, tveggja bara móðir og tískuáhugamanneskja. Hún er hálfur Íri en leiðir hennar og föður hennar skildu þegar hún var tveggja ára. Siðan þá hefur hún hitt hann afar óreglulega og ekki hægt að segja að hann sé hluti af lífi hennar. En það er allt í lagi og allir sáttir. Esther var söngkona hljómsveitarinnar Bang Gang en þurfti að velja á milli hljómsveitarinnar og leiklistarferilsins, vegna þess að einhverjar leiklistarfrekjur fóru fram á það. Hún hefur þurft að berjast fyrir sínu...
2022-01-06
1h 46
Snæbjörn talar við fólk
#0085 Sigríður Beinteinsdóttir
S01E85 – Sigga Beinteins er þjóðargersemi og í mínum veruleika hefur hún alltaf verið til. Hún hóf ferilinn í bandi með dr. Gunna, en hafði áður búið í pínulitlu asbesthúsi. Hún er ekki eins og allar stelpurnar sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er og það eitt og sér skaut henni upp á vinsældahimininn með tilþrifum árið 1984. Hún hefur farið þrisvar í Eurovision, rekið söngskóla í tveimur löndum, fengið blóðtappa sökum álags og alið upp tvíbura. Hún er hljóðfæraleikari í dvala, rokkhundur inn við beinið, að sjálfs...
2021-12-30
3h 11
Snæbjörn talar við fólk
#0084 Jóhannes Haukur Jóhannesson
S01E84 – Ég og Jóhannes Haukur þekkjumst alveg ljómandi vel og mig langaði bara til þess að hafa jó(l)a(guðs)spjallið hressandi og algerlega inni á mínu eigin þægindasvæði. Það breytir því ekki að ég komst að ógeðslega mörgu um hann sem ég vissi ekki fyrir. Þetta varð á löngum köflum algerlega gagnvirkt spjall frekar en viðtal af nokkru tagi og hann spurði jafnvel meira en hann svaraði. Jóhannes er ótrúlegur hæfileikamaður og virðist aldrei efast um neitt. Það er samt ekki alveg svona einfalt og hann hugsa...
2021-12-23
4h 02
Snæbjörn talar við fólk
#0083 Aldís Amah Hamilton
S01E83 – Aldís Amah Hamilton er mjög berorð manneskja. Hún liggur ekki á neinum skoðunum og tók mig svona allt að því á teppið með suma hluti. Það er gott, hún gerði það vel og var mjög til í samtalið. Og hey, hún hefur líka rétt fyrir sér. Aldís Amah er fædd í Þýskalandi, er af íslenskum og bandarískum ættum en eins framandi og það kann að hljóma er hún á flestan hátt alveg ofurvenjulegur Íslendingur, í besta skilningi. Hún fór í Verzló á röngum forsendum en lærði að lokum leiklist, okkur öll...
2021-12-16
2h 48
Snæbjörn talar við fólk
#0082 Elíza Geirsdóttir Newman
S01E82 – Elíza Geirsdóttir Newman er söngkona, fiðluleikari og forsprakki Kolrössu Krókríðandi, sem síðar nefndist Bellatrix. Kolrassa var stofnuð laust fyrir Músíktilraunir Tónabæjar 1992 og vann keppnina með afar sannfærandi hætti. Þá strax fór allt af stað sem leiddi bandið og Elízu til útlanda þar sem reynt var á meikdraumana. Allt var það keyrt til enda og síðan þá hefur Elíza búið til og gefið út tónlist, bæði sem sóló en líka í slagtogi við aðra. Fyrir utan tónlistina hefur Elíza gert margt, hún á fjölskyld...
2021-12-09
2h 39
Snæbjörn talar við fólk
#0081 Lára Sóley Jóhannsdóttir
S01E81 – Lára Sóley er framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er fullkomin í djobbið. Hún er Húsvíkingur í grunninn, var fyrirmyndarbarn og -unglingur, lærði á fiðlu og fór snemma að skipuleggja viðburði. Allt sem hún lærði lærði hún vel, og mögulega stundum aðeins of vel. Árum saman var hún stór hluti af tónlistarlífi Akureyrar, kom að uppbyggingu Hofs og þjónaði starfi framkvæmdastjóra þar um tíma. Fram og til baka hefur hún numið tónlist og tónlistarstjór...
2021-12-02
2h 47
Snæbjörn talar við fólk
#0080 Hinrik Þór Svavarsson
S01E80 – Hinrik Þór er alls ekki venjulegur maður. Hann á stórfurðulega ævi að baki og lifir í dag lífi sem myndi sjálfsagt ekki henta öllum. Hann hefur aldrei haft skýra stefnu en þó hefur hann verið viss í sinni sök og vitað hvar áhuginn liggur. Neysla og óregla kom þó í veg fyrir að hann næði takmörkum sínum, ástand sem knúið var af kvíða og rótleysi. Hann var mjög týndur um tíma og lét sig hverfa til útlanda. Á þessum 40 árum hefur hann unnið afar mikið en stundum afar lítið, eignast tvö börn, annað á...
2021-11-25
5h 16
Snæbjörn talar við fólk
#0079 Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir
S01E79 – Sigurlína Valgerður er oftast kölluð Lína. Hún er súpernörd sem hefur haft áþreifanleg áhrif á tölvuleikjaspilun heimsins, og þá einna helst með aðkomu sinn að FIFA-fótboltaleikjunum frá EA þar sem hún setti fjölbreytileikann í forgang. Hún stjórnaði einnig gerð Star Wars Battlefront og að þessu vann hún, ásamt fleiru, á nokkurra ára flakki sínu með fjölskylduna um Svíþjóð, Kanada og Bandaríkin. Nú er hún komin heim og vinnur sitt lítið af hverju og hefur miklu að miðla, enda mikið gerst síðan hún hóf ferilinn hjá CCP...
2021-11-18
3h 40
Snæbjörn talar við fólk
#0078 Örn Eldjárn
S01E78 – Örn Eldjárn er að norðan, úr Svarfaðardal nánar tiltekið. Hann er sveitastrákur að upplagi, hóf sína heimavistarvist aðeins sjö ára gamall og leið oftast vel í skólanum, þrátt fyrir margvíslega námserfiðleika. Hann fékk heyrnina fimm ára gamall og varð strax óskaplega góður gítarleikari. Hefðbundið nám lá ekki fyrir honum og þá tókst elítunni næstum því að eyðileggja fyrri honum gítarferilinn. Næstum því, en sem betur fer tókst það ekki vegna þess að í dag er hann einn uppteknasti gítarleikari landsins, hefu...
2021-11-11
2h 44
Snæbjörn talar við fólk
#0077 Margrét Stefánsdóttir
S01E77 – Margrét Stefánsdóttir fluttist úr villingaskóla í Versló og lærði að lokum hagnýta fjölmiðlun. Hún stytti Frakklandsdrauminn til þess að koma öðru í lífinu að og var fastagestur á sjónvarpsskjám landsmanna sem fréttakona í mörg ár. Hún hefur síðan komið að PR-mennsku, kynningarmálum og fyrirtækjastússi ýmiskonar, hefur stofnað sinn eigin rekstur, eignast þrjár dætur og leitast við að gera það sem henni finnst skemmtilegt og breyta því leiðinlega til hins betra. Um þessar mundir sýnir Sjónvarp Símans þáttaröð undan hennar rifjum, þátturinn n...
2021-11-04
3h 53
Snæbjörn talar við fólk
#0076 Auðunn Blöndal
S01E76 – Auðunn Blöndal, einnig þekktur sem Auddi Blö, er fjölmiðlamaður, vel athyglissjúkur og skemmtikraftur inni að beini. Hann veit ekkert skemmtilegra en augnablikin stuttu áður en að nýtt verkefni sem hann hefur unnið hörðum höndum er opinberað í fyrsta sinn. Um þetta leyti eru slétt 20 ár frá því hann hóf feril sinn í fjölmiðlum í þáttunum 70 mínútur og segist Auddi hafa dýrkað hverja mínútu. Frá unga aldri langaði Auðunn að vera þjóðþekktur og lifði þann draum langt fyrir efni fram, keypti sér rándýran sportbíl...
2021-10-28
2h 10
Draugar fortíðar
#LD1 Villta vestrið | Hljóðkirkjan & áhorfendur
Það eru eflaust fá tímabil í mannkynssögunni sem hafa ratað jafn oft á blaðsíður skáldsagna, leiksviðið eða hvíta tjaldið, eins og hið svokallaða "villta vestur" á 19. öld. Nær allir jarðarbúar kannast við sögur af harðduglegum kúrekum, blóðþyrstum indíánum og illmennum sem skjóta hvorn annan með köldu blóði í harðvítugu einvígi þar sem skjótasta skyttan sigrar. En hvar endar raunveruleikinn og skáldskapur tekur við? Hvernig stendur á því að kúrekar biómyndanna eru alltaf hvítir karlmenn? Hvar eru konurnar? Voru frumbyggjar alltaf í vígahug? Við nána...
2021-10-22
2h 10
Snæbjörn talar við fólk
#0075 Einar Þór Jóhannsson
S01E75 – Einar Þór Jóhannsson er gítarmeistari og tónlistarmaður í húð og hár. Hann hefur skemmt landsmönnum í tugi ára, einna lengst með hljómsveitunum Dúndurfréttum og Buffi og er að eigin sögn alveg ómögulegur ef hann er ekki að gera músík. Tónlistin hefur átt hug Einars alla tíð og hefur hann aldrei fundið aðra vinnu sem honum líkar við. Einnig er hann mikill einfari, veit ekki hvað það er að vera einmana og nýtir mikinn tíma í að vera einn með sjálfum sér. Þó á Einar oft við kvíða að etja en...
2021-10-21
3h 49
Snæbjörn talar við fólk
#0074 Hörður Ágústsson
S01E74 – Hörður Ágústsson er stofnandi Maclands, tveggja dætra faðir og mikill græjukarl. Hann er sannur viðgerðarmaður, gerir við græjur og vill einnig gera við vandamálin í lífinu. Nú reynir hann þó að venja sig af því að gera alltaf við og leyfa sér frekar að vera bara ekki góður öðru hvoru. Hörður hefur unnið mikið í sjálfum sér og talar hér umbúðalaust um ýmsa bresti í sínu eigin fari í gegnum árin og hvernig hann reynir í dag að forðast að verða þrothringnum að bráð. Til dæmis safnar hann...
2021-10-14
3h 57
Snæbjörn talar við fólk
#0073 Brynhildur Guðjónsdóttir
S01E73 – Brynhildur Guðjónsdóttir er leikkona og leikstjóri með meiru, og hefur í dag sinnt starfi leikhússtjóra Borgarleikhússins í rúmt eitt og hálft ár. Því hafa vissulega fylgt ýmsar áskoranir á borð við örsmáan heimsfaraldur, fjöldatakmarkanir og leikhússlokanir, en hún er þó hvergi af baki dottin. Í dag nýtur hún að fá að taka almennilega á því stóra verkefni að setja saman leikhúsprógram fyrir listasoltna þjóð. Leiklistin á huga Brynhildar að mestu, en hún er þó einnig frönskumælandi, Aerosmith aðdáandi og andlegt ígulker í bata. Brynhildur elskar að læra nýja hluti, hel...
2021-10-07
2h 34
Snæbjörn talar við fólk
#0072 Eva María Jónsdóttir
S01E72 – Það eru kannski heil 11 ár síðan Eva María Jónsdóttir kvaddi skjái landsmanna en hún er þó hvergi nærri af baki dottin. Líf hennar hefur einkennst af heilmikilli vinnu, barnaláni og nýjum áskorunum, en þessa dagana hefur hún vent sínu kvæði í kross, tekið sér frí frá vinnu sinni í Árnagarði, lært jógakennslu og reynir að gera hluti af áhugahvöt, ekki í blindni hins hraða nútíma. Evu Maríu finnst æðislegt að eiga lífsförunaut og trúir því að öll séum við að gera okkar allra besta sem v...
2021-09-30
3h 02
Snæbjörn talar við fólk
#0071 Ásmundur Einar Daðason
S01E71 – Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. Ásmundur hefur unnið ötult starf í þágu barnaheillar á Íslandi en leiðin lá þó ekki alltaf á þing; hann er menntaður búfræðingur og stefndi lengi á að reka sitt eigið bú. Hann á átta hunda, nýtur kosningabaráttunnar og leitar sér að áhugamáli til að deila með konunni þegar ungarnir fljúga úr hreiðrinu. Um þessar mu...
2021-09-23
2h 13
Snæbjörn talar við fólk
#0070 Guðmundur Ingi Guðbrandsson
S01E70 – Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfisráðherra Íslands, með mikla ástríðu fyrir landvernd og umhverfinu. Líf hans hefði þó hæglega getað farið á annan veg, en Guðmundur gældi bæði við þá hugmynd um að verða leikari og að helga sig guði. Hann er fjárglöggur mjög og lofthræddur, hlustar nær ekkert á tónlist og lýsir sér sjálfum sem lokaðri týpu, þótt hlustendur fái í þessu viðtali að kynnast ráðherranum mun nánar en oftast er völ á í starfi hans í ríkisstjórninni. Guðmundur lætur sig mannr...
2021-09-16
2h 36
Snæbjörn talar við fólk
#0069 Helga Vala Helgadóttir
S01E69 – Helga Vala Helgadóttir hefur setið á Alþingi Íslendinga frá árinu 2017, verið umboðsmaður hljómsveitarinnar Mammút og leikið í farandleiksýningum á Bretlandseyjum. Þar er ekki næstum því allt upp talið enda er Helga Vala mjög iðin manneskja. Sjálf lýsir hún sér barnungri sem glöðum brjálæðingi og virðist orkan hvergi nærri þrotin síðan þá. Þótt hún sé ekki með stúdentspróf hefur Helga Vala lokið þremur háskólagráðum, einni í leiklist og tveimur í lögfræði þar sem hún uppgötvaði óvæntan áhuga á skattarétti, og í dag er hún stað...
2021-09-09
2h 39
Snæbjörn talar við fólk
#0068 Bjarni Benediktsson
S01E68 – Bjarni Benediktsson er sjálfstæðismaður. Alveg grjótharður sjálfstæðismaður. Hann er fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og andar stjórnmálum allan daginn. Bjarni er lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur framan af. Á ferli sínum hefur hann komið við í forsætisráðherrastólnum og komið sér kyrfilega fyrir milli tannanna á fólki. Hann er umdeildur, elskaður og hataður. Bjarni kemur afskaplega skemmtilega fyrir sig orði en var þó afar ragur við ræðuhöld á yngri árum. Hann er stoltur af því að hafa komið Íslandi í gegnum...
2021-09-02
2h 26
Snæbjörn talar við fólk
#0067 Ómar Úlfur Eyþórsson
S01E67 – Ómar Úlfur Eyþórsson ætlaði sér alltaf að verða rokkstjarna en endaði sem fjölmiðlamaður, lengstan tíma hjá X-977 þar sem hann stjórnar Morgunþættinum í dag. Hann er líka lærður smiður, óvirkur fíkill, með He-Man húðflúr og hefur náð að eyða 15 þúsund krónum í sælgætissjálfssala á tveimur vikum. Geri aðrir betur. Þó hann vinni við að tala við fólk segist hann ekki kunna að kurteisisspjalla og að hann þurfi alltaf annað slagið að hrista upp í lífinu. Í einum slíkum hristingi breytti hann til að mynda naf...
2021-08-26
2h 37
Draugar fortíðar
#67 Lán í óláni
Þessi þáttur snýst um fyrirbrigði sem flestum er hugleikið. Það má segja að fáir hlutir séu þráðir jafn heitt og gæfan. Á þessu eru margar hliðar. Ólán er að ýmsu leyti náskylt láni og bara hin hliðin á teningnum. Í sumum trúarbrögðum og goðafræði er það sami guðinn eða gyðjan sem stjórnar því hvort maður er heppinn eða óheppinn. Nær allir menningarheimar eiga sér slík goð og í Japan eru það hvorki meira né minna en sjö guðir sem stjórna gæfunni. Það er ólán að detta niður stiga e...
2021-08-25
1h 37
Snæbjörn talar við fólk
#0066 Svandís Svavarsdóttir
S01E66 – Svandís Svavarsdóttir er heilbrigðisráðherra Íslands, þótt þið vitið það kannski ekki öll. Hún tók óafvitandi við því ótrúlega verkefni að stýra landinu í gegnum COVID19 heimsfaraldurinn og er vel í stakk búin til þess eftir mörg ár í íslenskri pólitík. Fáir vita þó að fyrir sinn stjórnmálaferil vann hún með þeim Íslendingum sem tala íslenskt táknmál að móðurmáli, og vann að réttindabaráttu þeirra. Alla tíð hefur hún brunnið fyrir samfélagið og viljað taka á óréttlætinu sem fellst í misskiptingu auðæfa, þó hún ákveði líka að skilja v...
2021-08-19
2h 56
Draugar fortíðar
#66 Versti vinur mannsins
Fá dýr eiga jafn mikla sögu í samskiptum við manninn eins og úlfurinn. Það sést greinilega á þeim aragrúa þjóðsagna þar sem þetta merkilega dýr kemur við sögu. Yfirleitt er úlfurinn tákn hins illa og má nefna þar t.d. hinn ógnvænlega Fenrisúlf sem mun bana Óðni við endalok heimsins, samkvæmt norrænni goðafræði. Úlfurinn er þó einnig tákn um tryggð og hollustu enda eru fá spendýr sem mynda jafn sterk fjölskyldutengsl. Í þessum þætti skoðum við úlfinn nánar og þá sérstaklega viðkomu hans í þjóðsögum og menningu ýmissa þjóða. Einnig verður sagt frá úlfa...
2021-08-18
1h 44
Snæbjörn talar við fólk
#0065 María Magnúsdóttir
S01E65 – María Magnúsdóttir gefur út tónlist undir nafninu MIMRA, syngur jazz og kennir nýgræðingum og lengra komnum að fikra sig áfram í sinni tónsköpun. María ólst upp í miklu trúarsamfélagi og hefur drepið niður fæti í mörgum löndum í stanslausri leit sinni að nýjum áskorunum til að takast á við og yfirstíga. Hún er sprenglærður tónlistarmaður og pródúseraði eigin plötu sem lokaverkefni frá hinum virta Goldsmiths háskóla í London. Í dag er hún ráðsett kona á Íslandi og er hvergi nærri hætt að ögra...
2021-08-12
3h 24
Draugar fortíðar
#65 Barn í brunni
Um miðjan október 1987 gleymdi bandaríska þjóðin öllum áhyggjum af stórveldadeilum eða efnahagsþrengingum. Aðeins ein frétt var efst í allra hugum. Hin 18 mánaða gamla Jessica McClure hafði fallið í gamla og þrönga brunnholu. Björgunarfólk vann baki brotnu við að bjarga barninu en tíminn var alls ekki á þeirra bandi. Bandaríska þjóðin, ef ekki allur heimurinn, fylgdist grannt með gangi mála. Í þessum þætti segjum við frá þessu atviki og öðrum svipuðum. Við skoðum einnig svipuð slys sem gerst hafa á Íslandi. Rétt er að vara fólk við því að atriði í þættinum geta valdið...
2021-08-11
2h 03
Snæbjörn talar við fólk
#0064 Andri Freyr Viðarsson
S01E64 – Andri Freyr Viðarsson hefur haft ofan af fyrir landsmönnum með þáttagerð sinni í meira en tvo áratugi. Flesta daga vikunnar má finna hann á Rás 2 að fara yfir helstu málefni dagsins og spila tónlist fyrir landann. Það er þó ýmislegt sem margir vita ekki um Andra; til dæmis lærði hann að spila almennilega á gítar á tónleikaferðalagi með Botnleðju og um þessar mundir vinnur hann í hjáverkum að heimildarmynd um kántrítónlistarmanninn Johnny King. Eins og heyra má í þessu viðtali er ávallt stutt í bæði sprelligosann og control freak-ið sem býr til fr...
2021-08-05
2h 33
Draugar fortíðar
#64 Kvenskörungur í Kænugarði
Í mannkynssögunni er að finna marga sterka leiðtoga. Hershöfðingja sem leiddu menn sína gegn ofurefli liðs eða ríkisstjóra sem héldu þjóð sinni samhentri í gegnum hungursneyðir og illt árferði. Nær alltaf eru þetta karlmenn. Konum hefur sjaldnast verið ætlað neitt stjórnunarhlutverk. Því vekur það alltaf athygli að rekast á konur í sögubókum sem gerðu allt þetta sem talið er upp hér á undan og meira til. Í þessum þætti segjum við frá Olgu sem iðulega var kennd við Kænugarð. Borgina sem í dag er kölluð Kiev og er höfuðborg Úkraínu. Olga er hennar slavneska na...
2021-08-04
1h 42
Snæbjörn talar við fólk
#0063 Agnes Grímsdóttir
S01E63 – Í dag er þátturinn með óreglulegu sniði. Þar sem Snæbjörn er í sumarfríi ákvað hann að gera sér lífið auðvelt og taka stutt viðtal við konu sína, hana Agnesi Grímsdóttur. Hún Agnes er Húsvíkingur, snyrtifræðingur á Madison Ilmhúsi, söngkona og áhugamaður um lífið; kona sem að eigin sögn þrífst ekki vel í logni. Agnes er eiginkona Snæbjörns og eiga þau saman tvö börn. Þau hjónin fá oft spurninguna, hvort í sínu lagi, um það hvernig það sé að vera gift Snæbirni, og í þessum þætt...
2021-07-29
47 min
Draugar fortíðar
#63 Óðs manns æði á úthafinu
Lengi hefur hafið heillað fólk. Ekki aðeins er það matarkista og mikilvæg flutningaleið. Það hefur einnig sérstakt aðdráttarafl sem erfitt er að lýsa í orðum. Þessi rennblauta eyðimörk hefur verið mörgu skáldinu yrkisefni og fólk sem dvalist hefur mánuðum saman á úthafinu hefur lýst alls konar hugbreytingum sem það hefur orðið fyrir. Svo er einnig um manninn sem við segjum frá í þessum þætti. Hann hét Donald Crowhurst og í lok sjöunda áratugar stefndi hann á að sigla í kringum hnöttinn í kappi við þrautreynda siglingamenn. Sjálfur hafði Crowhurst nær enga reynslu af siglingum...
2021-07-28
1h 41
Snæbjörn talar við fólk
#0062 Þorsteinn Snævar Benediktsson
S01E62 – Þorsteinn Snævar Benediktsson er maður mikilla ástríðna. Þorsteinn rekur brugghúsið Húsavík Öl sem er eins og nafnið gefur til kynna með höfuðstöðvar á Húsavík. Þorsteinn er mikill kappsmaður og vill ávallt skila af sér topp vinnu, til dæmis hafi komið fyrir að hella hafi þurft niður tanki af bjór því hann var hreinlega ekki nógu góður, fái hann hugmynd af nýjum bjór festi hann vart svefn þar til búið sé að brugga hann og ef honum detti í hug að hægt sé að gera bjór be...
2021-07-22
1h 59
Snæbjörn talar við fólk
#0061 Unnur Ösp Stefánsdóttir
S01E61 – Unnur Ösp Stefánsdóttir er leikkona fram í fingurgóma en fullyrðir þó að hún hafi verið alveg ömurleg sem slík lengi framan af ferlinum. Hún fékk nýlega aragrúa af Grímuverðlaunum fyrir sýninguna Vertu úlfur sem leikin er af manninum hennar, Birni Thors. STVF vekur athygli á að sýningar á því verki hefjast aftur í ágúst. Þar fyrir utan þekkjum við hana fyrir allt hið góða sem Vesturport hefur sett upp, kvennafangelsisþáttaröðin Fangar var ekkert nema listaverk, en þar kom hún að svo að segja öllu. Hún er trukkur, fjögurra barna...
2021-07-15
3h 42
Snæbjörn talar við fólk
#0060 Hallgrímur Ólafsson
S01E60 – Hallgrímur Ólafsson er að eigin sögn frábær í að veiða í soðið og selja alls konar dót. Hann er einni fínasti tónlistarmaður en það tók hann þónokkurn tíma að treysta á færni sína á leiksviðinu, þótt það síðarnefnda sé atvinnan hans. Hann er Skagamaður í húð og hár, alinn upp á Bubba og finnst best að vinna í hóp, þar sem hann fær ekki margar hugmyndir sjálfur. Einnig finnst honum mikilvægt að gera hlutina af sannfæringu og taka þá alla leið, ekki vinna í hálfkáki. Til að mynda hefur hann en...
2021-07-08
2h 19
Snæbjörn talar við fólk
#0059 Sigmar Guðmundsson
S01E59 – Sigmar Guðmundsson er fimmtíu og tveggja ára faðir í vísitölufjölskyldu. Þar er þó ekki öll sagan sögð. Andlit hans hefur verið tíður gestur á heimilum landsmanna, þar sem Sigmar hefur unnið í mörg ár í sjónvarpi sem fréttaritari, þáttastjórnandi og ritstjóri þótt fátt eitt sé nefnt. Nú í ár hefur Sigmar undið kvæði sínu rækilega í kross, sagt skilið við fjölmiðla og stefnir á framboð til þings á framboðslista Viðreisnar haustið 2021. Lífið hefur fært Sigmari mörg stórkostleg tækifæri en hefur þó ekki ávallt verið dans á rósum; hann er óvirkur a...
2021-07-01
2h 45
Snæbjörn talar við fólk
#0058 Króli
S01E58 – Þótt hann sé aðeins tuttugu og eins árs gamall hefur Kristinn Óli Haraldsson sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf. Króli, eins og hann er betur þekktur, hefur ásamt samstarfsmanni sínum JóaPé átt söluhæstu plötu ársins tvö ár í röð en allir Íslendingar kannast við lagið þeirra B.O.B.A. skaut þeim félögum upp á stjörnuhimininn árið 2017. Auk þess á Kristinn að baki leikferil sem hófst þegar hann var einungis tíu ára. En þrátt fyrir öll þessi afrek á Kristinn erfitt með að lýsa sjálfum sér sem hæfileikaríkum og kallar sig frekar mis...
2021-06-24
2h 25
Snæbjörn talar við fólk
#0057 Ólafur Þór Jóelsson
S01E57 – Ólafur Þór Jóelsson er tölvuleikjanörd að atvinnu. Hann hefur verið þáttastjórnandi GameTíví frá því hann hóf göngu sína og nýtur þess enn í dag að spila tölvuleiki með vinum sínum, nú orðinn um fimmtugur. Á sínum yngri árum lét Ólafur sig dreyma um að verða leikari eða uppistandari en lét aldrei verða af því að taka stökkið af alvöru. Í dag er hann þó nokkuð viss um að draumurinn hafi alltaf verið sá að geta glatt fólk og sent það frá sér brosandi út í daginn. Ólafur nýtur þess...
2021-06-17
4h 05
Snæbjörn talar við fólk
#0056 María Heba Þorkelsdóttir
S01E56 – María Heba er manneskja sem er ekki að flækja hlutina fyrir sér heldur veður beint á garðinn þar sem hún kemur að honum. Sem sjálfstætt starfandi listamaður hefur hún unnið mikið í nýjum íslenskum leikverkum í gegnum tíðin og kom nýlega inná skjái margra landsmanna í hlutverki sínu sem Rut í þáttaröðinni Systrabönd. Hún er borgarbarn, flugfreyja, móðir, leikkona og útgefið ljóðskáld sem trúir ekki á tilviljanir. Líf Maríu hefur ekki fylgt markvissu fimm ára plani heldur líður henni best í flæði, í þeirri trú að hlutirn...
2021-06-10
2h 17
Snæbjörn talar við fólk
#0055 Anna Hildur Hildibrandsdóttir
S01E55 – Anna Hildur Hildibrandsdóttir er ekki þjóðþekkt andlit en áhrif vinnu hennar á íslenskt menningarlíf eru gífurleg. Hún tók þátt í að koma ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, á legg sem opnaði fyrir gífurlega verðmætasköpun í íslenskum tónlistariðnaði, hún var lengi fréttaritari í London og nú nýlega var frumsýnd hennar fyrsta heimildarmynd „A Song Called Hate“ sem fjallar um ferð hljómsveitarinnar Hatara í Eurovision í Ísrael árið 2019. Nú í vetur flutti hún heim til Íslands eftir langa búveru í Bretlandi og hóf kennslu við Háskólann á Bifröst, stofnaði listþróunarfyrirt...
2021-06-03
3h 10
Snæbjörn talar við fólk
#0054 Sigríður Björk Guðjónsdóttir
S01E54 – Sigríður Björk Guðjónsdóttir sinnir starfi ríkislögreglustjóra; starfi sem fæst okkar myndum nokkurn tímann vilja taka að okkur. Hún hefur þó aldrei farið í lögreglunám heldur kemur að starfinu í gegnum lögfræðinám og starf skattastjóra. Sigríður er fyrrum Evrópusambandssinni og sýslumaður á Ísafirði sem nýtur þess að rýna í erfið mál í samfélaginu og leita leiða til að bæta það sem betur má fara. Það er þó ekki einfalt að vera ríkislögreglustjóri á tímum heimsfaraldurs og á Sigríður ekki auðvelt með hvers kon...
2021-05-27
2h 29
Snæbjörn talar við fólk
#0053 Aðalbjörn Tryggvason
S01E53 – Aðalbjörn Tryggvason er betur þekktur sem Addi í Sólstöfum. Addi er ein stærsta þungarokkstjarna Íslendinga en í sínu daglega lífi er hann andlega þenkjandi snyrtipinni með áhuga á edrúlífi. Það hefur þó ekki alltaf verið svo; áður en hann varð edrú var hann til að mynda 'sponsaður' af Jim Beam viskíi og gat ekki ímyndað sér að koma fram allsgáður. Addi leyfir okkur að fá innsýn í hin ótrúlegustu ævintýri sem hann hefur upplifað í gegnum árin, það góða og það slæma, sögu Sólstafa og erfiðar breytingar innan hljómsveitarinnar...
2021-05-20
4h 09
Snæbjörn talar við fólk
#0052 Þorsteinn V. Einarsson
S01E52 – Flest þekkja andlitið þótt þau viti ekki endilega hvað hann heitir. Þorsteinn V. Einarsson er maðurinn á bakvið samfélagsmiðlana Karlmennskan, sem miðla upplýsingum um málefni tengd kynjahyggju samfélagsins og hinum ýmsu birtingarmyndum karlmennskunnar. Sjálfur er hann óvirkur alki, fyrrverandi fótboltastrákur og karlremba, pabbi og eiginmaður. Á daginn flytur hann fyrirlestra, heldur úti hlaðvarpi og vinnur sem jafnréttis- og karlmennskusérfræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu Empower. Í þessu viðtali gefur Þorsteinn okkur innsýn í sitt starf, sína vegferð frá íhaldsamri karlrembu yfir í virkan femínista og hvernig við getum öll átt þýðingar...
2021-05-13
2h 56
Snæbjörn talar við fólk
#0051 Berglind Guðmundsdóttir
S01E51 – Berglind Guðmundsdóttir er konan á bak við hina geysivinsælu uppskriftasíðu GulurRauðurGrænn&salt. Síðuna hefur hún rekið í nær 10 ár og virðist ekkert lát á þeim kræsingum sem Berglind getur hjálpað okkur að búa til. Áður en hún lagði matreiðslu fyrir sig lærði Berglind sálfræði og hjúkrunarfræði, vann lengi á BUGL og í dag vinnur hún einnig við að bólusetja landsmenn gegn COVID-19. Berglind var ekki alltaf frábær kokkur, en ástríða og drifkrafturinn hafa gert henni kleift að gera GulurRauðurGrænn&salt...
2021-05-06
2h 47
Snæbjörn talar við fólk
#0050 Salka Sól Eyfeld
S01E50 – Sölku Sól Eyfeld þarf ekki að kynna – enda hefur hún ekki þurft að segja til nafns á Íslandi í mörg ár. Einn af hennar helstu styrkleikjum er að geta brugðið sér í hina ýmsu búninga; hún er Ronja Ræningjadóttir heillar kynslóðar, rappari, prjónakona og forvarnafyrirlesari svo fátt eitt sé nefnt. Sjálf segir Salka rótleysi hafa haft áhrif á ákvarðanir hennar í lífinu, sem feli í sér bæði styrkleika og flækjur. Í dag er hún mjög þakklát fyrir það líf sem hún hefur byggt sér, þar sem henni finnst bæði...
2021-04-29
3h 11
Snæbjörn talar við fólk
#0049 Anna Fríða Gísladóttir
S01E49 – Anna Fríða Gísladóttir er markaðsstjóri af guðs náð. Metnaðarfull, lífsglöð, ákveðin og skelegg; hún vill veita góða þjónustu og hikar ekki við að taka þátt í öllu starfi sinnar deildar. Suma daga þýðir það að rífa upp tommustokkinn og mæla pizzustærð af natni, þann næsta er það lífefnafræði. Anna Fríða er reynslumeiri en flestir á hennar aldri í geiranum, en hún stökk í djúpu laugina þegar hún varð markaðsstjóri hjá Dominos einungis 24 ára að aldri. Þá kom sér vel að hafa óbilandi trú á sjálfri sér. Enn...
2021-04-22
2h 08
Snæbjörn talar við fólk
#0048 Valdimar Guðmundsson
S01E48 – Valdimar Guðmundsson er söngvari, básúnuleikari og tónskáld úr Keflavík. Sjálfur segir hann að lítið hafi farið fyrir sér í skóla en í dag eru líklega fáir Íslendingar sem ekki þekkja hann í sjón, sem Maraþonmann Íslandsbanka eða þá fyrir silkimjúka röddina sem berst landsmönnum reglulega á öldum ljósvakans. Valdimar er algjörlega sjálflærður söngvari, að undanskildum þeim hæfileikum sem hægt er að yfirfæra af básúninni yfir á söng. Í dag á Valdimar von á barni með kærustunni sinni og getur ekki beðið eftir að...
2021-04-15
2h 29
Snæbjörn talar við fólk
#0047 Birna Pétursdóttir
S01E47 – Birna Pétursdóttir fer ekki endilega troðnar slóðir. Hún er leikari, leikskáld, dagskrárgerðarmaður og einn stofnanda Flugu hugmyndahúss. Bernskudraumurinn var ávallt að verða leikkona og fór hún beint til London í leiklistarnám að loknu stúdentsprófi við MA. Það er þó ekki alltaf tekið út með sældinni að vera leikari og á köflum hefur neyðin kennt Birnu að spinna: hún hefur meðal annars komið að stofnun leikhópsins Umskiptinga, unnið í dagskrárgerð hjá N4 og RÚV, skrifað leikrit og er í dag í fullri vinnu við leiklist. Það reyni...
2021-04-08
3h 36
Snæbjörn talar við fólk
#0046 Víkingur Kristjánsson
S01E46 – Víkingur Kristjánsson er landsþekktur leikari í dag en saga hans var ekki bein braut. Hann lýsir sjálfum sér sem A manni, sem sefur því hann þarf þess og kann ekki á snooze takkann, en einnig sem kvíðasjúklingi. Auk leiklistar hefur hann starfað við ýmsa hluti; keyrt lyftara, skrifað texta fyrir fyrirtæki og unnið á leikskóla, í kringum leiklistarverkefnin sem komu stundum í rikkjum. Nú um páskana verður frumsýnd ný þáttaröð eftir Víking titluð „Vegferðin“, en með aðalhlutverk þar fara Víkingur sjálfur og Ólafur Darri Ólafsson í leikstjórn Baldvins Z. Víkin...
2021-04-01
2h 42
Snæbjörn talar við fólk
#0045 Silja Hauksdóttir
S01E45 – Silja Hauksdóttir er leikstjóri og handritshöfundur með meiru. Hún er fædd í Reykjavík en hefur nokkuð dálæti á því að rífa sig upp með rótum og henda sér í hið ókunna, og hefur því búið víða erlendis og þá oft í tengslum við nám. Silja er með blæti fyrir því að segja sögur, rýna í manneskjuna og finna leiðina til að tengja áhorfandann við persónurnar á skjánum. Ný sería í leikstjórn Silju, „Systrabönd“, verður frumsýnd um páskana en þar þarf Silja að finna leiðir til að láta okkur áhorfendur k...
2021-03-25
2h 25
Snæbjörn talar við fólk
#0044 Birgir Jónsson
S01E44 – Birgir Jónsson skorast ekki undan áskorunum. Í gegnum tíðina hefur hann verið forstjóri ýmissa fyrirtækja á borð við Iceland Express og Póstinn, trommað í hljómsveitinni DIMMU og um þessar mundir rekur hann Madison Ilmhús með konu sinni Lísu Ólafsdóttur. Líf Birgis er ekki bundið við heimabæinn Kópavog, en hann hefur búið í Hong Kong þar sem hann upplifði SARS-faraldurinn, í Rúmeníu og London. Líf Birgis er samansett af mörgum verkefnum, en bútasaumurinn miðast af því að hafa ætíð ástríðu fyrir þeim verkefnum sem hann tekur að sér; mikilvæ...
2021-03-18
3h 20
Snæbjörn talar við fólk
#0043 Hjörtur Jóhann Jónsson
S01E43 – Hjörtur Jóhann Jónsson er leikari í dag, en hefði auðveldlega getað orðið heimspekingur á fjöllum. Þó svo að leiklistin sé ein vinsælasta atvinnugreinin í fjölskyldunni var það þónokkur ákvörðun fyrir hann að leggja hana fyrir sig, en á leiðinni kom hann við í björgunarsveitinni og í heimspeki í Háskóla Íslands. Á endanum var leiklistin þó það eina sem hann fékk ekki leið á og í þessu viðtali fáum við að skyggnast inn í hug hans leikara meðfram nokkrum öðrum áningarstöðum. Ferill Hjartar er fjölbreyttur, en þjóðin hefur fengið að njóta hans í mörgum sýningum á borð við Ríkharð...
2021-03-11
3h 04
Snæbjörn talar við fólk
#0042 Gísli Marteinn
S01E42 – Gísla Martein þarf vart að kynna. Hann hefur lengi verið á sjónvarpsskjám landsmanna í einni mynd eða annarri og flestir hafa líklega einhverja skoðun á honum. En hver er Gísli raunverulega? Hann bjó í Breiðholtinu í 27 ár, er Edduverðlaunahafi, fyrrum flugfreyja og með háskólamenntun í borgum. Margir tengja Gísla við bíllausan lífsstíl, en hann taldi þó niður dagana í það að hann fengi bílpróf eins og svo margir aðrir. Í dag er hann hluthafi í Kaffi Vest, þáttastjórnandi í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV og mikill áhugamaður um fólk af öllum stærðum og ge...
2021-03-04
4h 31
Snæbjörn talar við fólk
#0041 Líf Magneudóttir
S01E41 – Líf Magneudóttir borgarfulltrúi hefur brennandi áhuga á fólki og hefur það leitt hana niður alls konar brautir í lífinu. Hún er kennaramenntuð og hvatvís, andkapítalisti og með einstaka ástríðu fyrir mennta- og umhverfismálum landsins. Líf þreytist seint á að klofa þangfjöru stjórnmálanna, sem hún skilur þó eftir við þröskuldinn þegar hún kemur heim að hjálpa barninu við túbuæfingar dagsins – þótt hún sé laglaus sjálf. Líf telur mikilvægt að allir taki þátt í pólitík, enda sé hún fyrir alla, og vinni að þeim breytingum sem það...
2021-02-25
2h 42
Snæbjörn talar við fólk
#0040 Óttarr Proppé
S01E40 – Óttarr Proppé hefur marga fjöruna sopið og erfitt að segja hvort landsmenn þekki hann frekar sem tónlistarmann eða stjórnmálamann. Hann bjó ungur í Bandaríkjunum sem virðist hafa mótað skoðun hans á lífinu, náunganum og möguleikum lífsins, sem og gefið honum innsýn í tísku og tónlist 8. áratugarins sem heillar hann enn í dag. Óttarr er sjálftitlaður „djúpulaugarmaður“ sem finnst fátt betra en að ráðast á garðinn þar sem hann er vel hár og er líklega eini Íslendingurinn sem hefur bæði verið ráðherra og kepp...
2021-02-18
3h 35
Snæbjörn talar við fólk
#0039 Þórunn Erna Clausen
S01E39 – Þórunn Erna Clausen er leikari og tónlistarkona, þótt hún hafi hætt að æfa á píanó þegar hún var tólf ára. Hún trúir á að ekki gefast upp og hlusta á innsæið, þótt það hafi ekki endilega alltaf rétt fyrir sér. Í dag býr hún til flest sín verkefni sjálf og var einmitt að gefa út plötuna „My Darkest Place“ í byrjun febrúar 2021. Þórunn hefur alla tíð samið tónlist en tók ekki að vinna sín eigin lög til enda fyrr en eftir að eiginmaður hennar, Sigurjón Brink, lést árið...
2021-02-11
2h 39
Snæbjörn talar við fólk
#0038 Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
S01E38 – Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er listakona. Hún er sennilega myndlistarkona fyrst og fremst en hún er líka forkólfur og stofnandi hljómsveitarinnar FM Belfast. Hún segist vera intróvert með lærða extróvert-hegðun, finnst hlutirnir fyndnari eftir því sem þeir eru meira óviðeigandi og skilur ekki hversdagslega hluti á borð við kaffivélarspjall og vangaveltur um líðandi stund. Hún var frekar undarlegt barn og unglingur, fór erfiðu leiðina í gegnum skóla og reyndi oftar en ekki að passa inn í hólf sem hentuðu henni ekki. Í d...
2021-02-04
4h 01
Snæbjörn talar við fólk
#0037 Dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson
S01E37 – Dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson fæddist á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 15. janúar 1944, yngstur tíu barna foreldra sinna. Hann lagði stund á ljóð- og kvæðalist frá unga aldri, lærði allar kúnstarinnar reglur bragfræðinnar, hefur tekið þær með sér gegnum lífið og gefið út ljóða- og kennslubækur um fagið. Hann hefur lært mikið á leið gegnum lífið, bæði í skóla og sótti doktorsgráðu í stuðlasetningu fyrir 10 árum síðan, en einnig af reynslunni, því hann barðist við vanlíðan sem ungur maður og vökvaði það ástand síðan með neyslu áfengis í 15 á...
2021-01-28
3h 37
Snæbjörn talar við fólk
#0036 Magnús Ver
S01E36 – Magnús Ver er ferfaldur sterkasti maður heims og vann titilinn þrjú ár í röð. Hann er sveitastrákur sem vissi alltaf að hann væri sterkur og skaut upp á stjörnuhimininn á ógnarhraða. Hann er alinn upp fyrir austan og þekkir vel til bústarfa upp á gamla mátann. Magnús borðar hafragraut á morgnana og er ennþá sterkur þrátt fyrir að skrokkurinn sé farinn að finna fyrir átökum liðinna ára. Í seinni tíð hefur hann starfað sem dómari og skipuleggjandi stórra aflraunamóta á heimsvísu og er afar virtur, bæði sem slíkur en einnig sem goðsögn í lifand...
2021-01-21
3h 26
Snæbjörn talar við fólk
#0035 Rut Kára
S01E35 – Rut Kára er innanhússarkitekt Íslands. Hún lærði á Ítalíu og átti góð ár þar bæði í náminu og eftir það. Sögurnar sem hún segir frá Ítalíudvölinni eru eins og lygasögur úr mafíumyndum og sjónvarpsþáttum um aðalsborið konungsfólk. Hún kom heim með skottið milli lappanna en rétti hratt og örugglega úr sér og hefur síðan komið inn á 3.500 heimili á Íslandi, búið þau til, bætt þau og breytt þeim. Hún hefur ótrúlegt auga fyrir hönnun, fegurð, hagnýtum aðstæðum og auðvitað litum. Svo got...
2021-01-14
3h 40
Snæbjörn talar við fólk
#0034 Stjörnu-Sævar
S01E34 – Sævar Helgi Bragason er stjörnusérfræðingur. Það stendur sennilega ekki á prófskírteininu hans en við þekkjum hann í það minnsta sirka svoleiðis. Hann hefur ótrúlegan áhuga á alheiminum og býr yfir þeirri gjöf að geta talað við okkur hin á þann hátt að við bæði hrífumst með og skiljum. Hann er náttúruverndarsinni og fjölmiðlastjarna, lúði – í jákvæðustu merkingu þess orðs – og gersamlega óþreytandi þegar kemur að því að miðla og fræða. Sævar er þó meira en það því hann er faðir og á von á öðru barni með sambýliskonu sinni. Hann hefur...
2021-01-07
2h 52
Snæbjörn talar við fólk
#0033 Baldvin Z
S01E33 – Baldvin Z er stjörnuleikstjóri, framleiðandi, höfundur og allrahandakvikmyndagerðamaður. Órói, Vonarstræti, Lof mér að falla og fleiri myndir eru orðnar íslensk klassík nú þegar og þar að auki hefur hann dýft tánum í fleira, stuttmyndagerð, sjónvarpsþætti og heimildamyndagerð. Hann er einn eiganda Glassriver sem framleiðir hreyfiefni í samvinnu við þá sem gera hlutina best. Baldvin er fæddur og uppalinn á Akureyri, yngstur í stórum systkinahópi og missti móður sína úr krabba þegar hann var ungur. Tíminn fyrir slíkt er vitanlega aldrei góður en þetta áfall í bla...
2020-12-31
2h 55
Snæbjörn talar við fólk
#0032 Eva Laufey Kjaran
S01E32 – Eva Laufey er matarbloggari, sjónvarpskokkur, útvarpskona, samfélagsmiðlastjarna og margt annað sem henni dettur í hug. Hún er útpæld í sínum aðgerðum, bissnesmanneskja fram í fingurgóma og með sitt á hreinu. Hún hefur þó þurft að finna taktinn, hefur spennt bogann of hátt og magalent eftir ofálag. Síðan stóð hún upp aftur, sterkari en nokkru sinni og með planið á hreinu. Eva er af Skaganum og alin upp af tveimur elskandi foreldrum þótt faðir hennar væri ekki blóðtengdur henni. Hún vissi alla tíð hver hinn faðir hennar var en kynntist honum þó e...
2020-12-24
2h 19
Snæbjörn talar við fólk
#0031 Helgi Seljan
S01E31 – Helgi Seljan er einn þekktasti fréttamaður landsins. Hann er ekki í léttu hlutunum heldur tekur sér fyrir hendur að fjalla um erfið mál, vafasama og/eða ólögmæta framkomu fyrirtækja og einstaklinga og leitar sannleikans með flestum tiltækum ráðum. Hann er sjarmerandi á stundum fráhrindandi hátt, náttúrutöffari og gríðarlega fylginn sér. Hann ól flest fyrstu árin fyrir austan, fór ekki auðveldustu leiðina, sótti sjóinn og var upp á kant við lífið. Hann horfði upp á dauðann allt í kringum sig í uppvextinum og...
2020-12-17
3h 32
Kokkaflakk í eyrun
#15 Jólasleggjudómar með Gunnari Karli og Fanneyju Dóru
Það eru að koma jól og þá dugir ekkert annað en að henda í jólaþátt. Í þessum þætti fæ ég til liðs við mig tvo matreiðslumenn og við förum yfir jólahefðir í mat hjá þeim og þjóðinni allri. Við förum líka rækilega yfir hvaða jólamatur er ofmetinn og hvaða jólamatur er vanmetinn án nokkurrar ritskoðunnar og þar falla nokkrar sleggjur. Ef grant er hlustað má líka finna allskonar pro tip sem ættu að hjálpa fólki við matargerð á jólum, enda eru hér á ferð tveir af færustu matreiðslumönnum Íslands sem eru...
2020-12-15
1h 31
Snæbjörn talar við fólk
#0030 Hlynur Páll Pálsson
S01E30 – Hlynur Páll er framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Hann hefur gríðarlega reynslu sem allra handa listrænn stjórnandi leikhúsanna og hefur komið að listum frá unga aldri, þá sérstaklega sviðslistum. Þótt Hlynur sé kominn á fimmtugsaldurinn reynir hann að leika sér eins mikið og hann getur og spilar borð- og spunaspil af miklum móð. Við Hlynur kynntumst einmitt fyrir sirka einu og hálfu ári síðan þegar við vorum boðaðir til sama spunaspilsins og höfum spilað saman mjög reglulega síðan. Hlynur er einn allra skemmtilegasti, best gefni, frjóasti...
2020-12-10
2h 41
Snæbjörn talar við fólk
#0029 Birgitta Haukdal
S01E29 – Birgitta Haukdal er poppstjarna og rithöfundur. Hún er frá Húsavík og tengist heimabænum sterkum böndum. Þar ólst hún upp en flutti suður í borgina til þess að elta tónlistina. Árin þar á undan höfðu reynst henni erfið því hún missti eldri bróður sinn þegar hann tók líf sitt, þá sjálfur á unglingsaldri. Síðar meir missti Birgitta vinkonu sína á sama hátt og allt hefur þetta vitaskuld markað hana til framtíðar. Við Birgitta þekkjumst ágætlega án þess þó að vera nánir vinir. Ég þekkti sjálfur bróður hennar lítið eitt o...
2020-12-03
3h 04
Snæbjörn talar við fólk
#0028 Björgvin Franz
S01E28 – Björgvin Franz er múltítalent og orkusprengja. Hann er leikari, söngvari, eftirherma, sjónvarpsmaður, mikill gleðigjafi og afskaplega margt fleira. Hann er sonur tveggja af allra fremstu gamanleikurum þjóðarinnar fyrr og síðar og líf hans hefur litast af því – bæði góðum litum en líka erfiðum. Hann hefur farið í gegnum mikla sjálfsskoðun á seinni hluta ævinnar og horfst í augu við bresti sína og aðra djöfla. Hann varð nýlega fyrir áfalli þegar Gísli Rúnar faðir hans fyrirfór sér eftir ævilanga baráttu við þunglyndi og...
2020-11-26
3h 15
Snæbjörn talar við fólk
#0027 Selma Björns
S01E27 – Selma Björnsdóttir er söngkona, leikkona, leikstjóri og svo margt fleira að það er ómögulegt að telja það upp. Hún kom Íslandi á Eurovision-kortið þegar hún söng All Out Of Luck árið 1999 sem gerði hana að súperstjörnu. Hún er listakona fram í fingurgóma, skelegg, fylgin sér og stendur fast á sínu. Hún heldur einkalífinu út af fyrir sig og líður ekkert kjaftæði. Hún lætur ekkert stoppa sig en ef það er eitthvað sem hefur komist nærri því að stoppa hana er það kvíði og framkomuótti. Hún...
2020-11-19
1h 54
Snæbjörn talar við fólk
#0026 Björg Magnúsdóttir
S01E26 – Björg Magnúsdóttir er fjölmiðlakona og handritshöfundur. Hún er ein af þremur höfunda Ráðherrans, 8 þátta þáttaröð sem lauk göngu sinni á RÚV um síðustu helgi. Hún er alin upp á trúuðu heimili í Hafnarfirði en trúin átti ekki við hana þegar fram liðu stundir. Hún er fráskilin og djúpt hugsandi manneskja sem líður ekki vel þegar allt stendur í stað. Hún sér gleðina í litlu hlutunum og trúir á að vinna vinnuna sem vinna þarf þegar ástríðuverkefni banka upp á. Ég gleymdi að spyrja hana...
2020-11-12
2h 48
Snæbjörn talar við fólk
#0025 Andrea Jónsdóttir
S01E25 – Andrea Jónsdóttir er ein reyndasta fjölmiðlamanneskja landsins. Hún hefur starfað áratugum saman hjá RÚV en var áður prófarkalesari og fréttakona hjá Þjóðviljanum. Hún byrjaði sem plötusnúður á Dillon fyrir 23 árum síðan og þá var hún um fimmtugt. Hún veit allt um rokktónlist og lifði það sem við hin getum bara lesið um, fylgist með því nýja og man það gamla. Hún segist ekki vera að safna en á mörgþúsund plötur og geisladiska engu að síður. Hún sér alltaf lausnir frekar en vesen, trúir að sá...
2020-11-05
3h 06
Snæbjörn talar við fólk
#0024 Ugla Stefanía
S01E24 – Ugla Stefanía er að norðan. Hún er ötul talskona hinsegin fólks, er sjálf transkona og kynsegin. Fólk sá hana koma í heiminn sem bóndastrák en hún fann fljótlega sjálf að það var ekki rétt. Hún sökkti sér ofan í tölvuleiki og fann sig að hluta til þar. Hún kom síðan út úr skápnum á unglingsárum og hefur verið þekkt andlit síðan, talað máli transfólks og alls hinsegin fólks. Hún er dýravinur, nörd, var að kaupa sér risastóra og öfluga borðtöl...
2020-10-29
3h 18
Snæbjörn talar við fólk
#0023 Svanhildur Hólm
S01E23 – Svanhildur Hólm er sennilega þekktust fyrir fjölmiðlaferil sinn bæði hjá RÚV og Stöð 2 en þó höfum við ekki séð hana á skjánum í mörg ár. Hún er nýhætt sem aðstoðarmaður Bjarna Ben fjármálaráðherra og nýráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaráðs. Hún og maðurinn hennar eiga alls sjö börn og áttu fimm þeirra áður en sambandið hófst. Hún er nörd og hægrisinnaður bessevisser að eigin sögn. Hún er að norðan og lærði snemma að njóta leiðinlegra verka með þv...
2020-10-22
2h 32
Kokkaflakk í eyrun
#7 Shruti Basappa - Foodie
Þetta er merkilegur þáttur af Kokkaflakki í eyrun af nokkrum ástæðum. Í fyrsta sinn í sögunni fer viðtalið fram á ensku því gestur þáttarins að þessu sinni er Shruti Basappa. Hún er arkitekt frá Indlandi sem hefur búið á Íslandi í tíu ár og er tamara að nota ensku en íslensku svo hún varð ofan á. Það er líka merkilegt að við tölum mikið um allskonar pólitík og þá aðallega matarpólitík og hvernig rasismi og menningarnám birtist í samhengi við mat og veitingahús. Við tölum líka um indversk brúðkaup og matarblaðamennsku en Shruti er einmitt matarblaðakona hj...
2020-10-20
1h 27
Snæbjörn talar við fólk
#0022 Flosi Þorgeirsson
S01E22 – Flosi Þorgeirsson er vinur minn. Hann er gítarleikari í hljómsveitinni HAM, sagnfræðingur að mennt, faðir, leiðsögumaður, rokkstjarna og annar af stjórnendum hlaðvarpsþáttar sem kallast Draugar fortíðar sem Hljóðkirkjan framleiðir. Hann hefur lifað allskonar tíma og ekki alltaf góða. Faðir hans lést af slysförum þegar Flosi var 8 ára gamall sem markaði líf hans allt. Hann berst daglega við kvíða og þynglyndi en heldur því í skefjum með skynsemi og aðferðum sem hann hefur lært á lífsleiðinni. Hann er framúrskarandi greindur...
2020-10-15
4h 08
Kokkaflakk í eyrun
#6 Nuno Alexandre Bentim Servo - Mógúll
Í þessum þætti kom einn stórtækasti veitingamaður Reykjavíkur í heimsókn, sjálfur Nuno Alexandre Bentim Servo. Nuno er frá Portúgal en hefur búið hér á landi í rúm þrjátíu ár. Hann er stórtækur í veitingabransanum og er yfirleitt þekktur sem Nuno í tvíeykinu Nuno og Bento. Saman reka þeir fimm veitingahús í Reykjavík sem hafa verið meðal þeirra vinsælustu í bænum lengi. Það er mál manna í bransanum að svo virðist sem þeir félagar kunni ekki að stíga feilspor því allt sem þeir hafa opnað hefur náð miklum vinsældum. Nuno er sem sagt...
2020-10-13
1h 14
Snæbjörn talar við fólk
#0021 Inga Lind
S01E21 – Inga Lind er ein reyndasta fjölmiðlakona landsins, ræðumeistari, framleiðandi og allrahandatöffari. Hún hefur komið 5 börnum til manns, unnið í Svarta svaninum og tekið sér þriggja ára frí í Barcelona. Hún hefur afskaplega þægilegt viðmót en hefur þó þurft að fara á talbeitingarnámskeið til að lækka hljómfall raddarinnar því að eigin sögn átti hún það til að galopna augun og tala svo hátt uppi að óþægilegt þótti. Hún á sér mjög mörg og mögulega óvenjuleg áhugamál, finnst gott að vera ein með sjálfri sér, rekur framleiðslufyrirtækið Sko...
2020-10-08
2h 21
Kokkaflakk í eyrun
#5 Hrefna Sætran - Stjörnukokkur
Hrefnu Sætran kannast sennilega flestir við. Hún er búin að vera með ýmiskonar matreiðslu- og matartengda þætti í sjónvarpi í mörg ár og ber því sannarlega nafnið stjörnukokkur með rentu. Hún er einn af eigendum þriggja vinsælla veitingahúsa í Reykjavík og hefur verið í fremstu röð matreiðslufólks á Íslandi í 20 ár, þó hún sé bara rétt fertug að aldri. Við tölum um bransann, dans, fótbolta, æskuna, unglingsárin og þann fáránlega mikla metnað sem hún hefur og hefur alltaf haft til að skara fram úr. Mjög skemmtilegt spjall þó ég segi sjálfur frá. Kokkaflakk...
2020-10-06
1h 39
Snæbjörn talar við fólk
#0020 Ari Eldjárn
S01E20 – Ari Eldjárn er af mörgum talinn fyndnasti maður þjóðarinnar og hefur starfað við uppistand frá árinu 2009. Hann tók þátt í stofnun Mið-Íslands þetta sama ár en hafði fram að því haldið að hann ætti frekar heima við gerð handrita og kvikmynda. Hann hefur gert sjónvarpsþætti og komið að ýmsu gríntengdu hér á landi en einnig haldið utan og reynt fyrir sér þar með sýningar á ensku. Hann kom fram í sjónvarpþættinum Mock the Week á BBC árið 2018 við hlið risastórra grínista á borð við Dara Ó Briain og komst lifandi frá því. Og svo er hann...
2020-10-01
3h 11
Kokkaflakk í eyrun
#4 Ragnheiður Axel - Sprúttsali
Gestur þáttarins að þessu sinni er Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir bruggari, sprúttsali og náttúrubarn. Hún er í fremstu röð matarfrumkvöðla á Íslandi. Hún á fyrirtæki sem verkar söl, þara og íslenskar jurtir sem rata svo beint á bestu veitingastaði heimsins. Hún er alin upp í mið- og vesturbæ Reykjavíkur, menntaður hönnuður en ástríðan liggur í mat náttúrunnar og frumkvöðlastarfi. Ragnheiður Axel framleiðir líka vín úr íslenskum krækiberjum og rabarbara auk þess að búa til lífrænan vodka og gin og það er miklu fleira spennandi á dagskr...
2020-09-29
1h 12
Snæbjörn talar við fólk
#0019 Þuríður Blær
S01E19 – Þuríður Blær er leikkona, rappari, femínisti, nýbökuð móðir, nörd og ofboðslegur töffari. Ofboðslegur! Hún stofnaði Reykjavíkurdætur árið 2013 og hefur fylgt því ævintýri í gegnum súrt og sætt. Hún fékk óhefðbundið uppeldi, faðir hennar var bæði róni og dópisti eins og hún segir sjálf og lét lífið fyrir tæpu ári síðan. Hún er hrædd við dauðann en virðist óhrædd að takast á við allt sem á vegi hennar verður. Borgarleikhúsið er hennar að...
2020-09-24
2h 31
Snæbjörn talar við fólk
#0018 Georg Holm
S01E18 – Georg Holm er bassaleikari Sigur Rósar sem gerir hann að einum frægasta Íslendingi fyrr og síðar. Samt sem áður er hann ótrúlega lítt þekkt andlit miðað við það sem aftur gerir hann sennilega að minnst fræga Íslendingi miðað við frægð. Hann er fjölskyldumaður, letingi að eigin sögn, frekar hæglátur en þó ekki eins krúttlegur og ætla mætti. Hann er augljóslega fluggreindur og með sitt á hreinu, lítillátur og afskaplega skemmtilegur. Og eins og Lemmy þá segist hann spila rokk og ról, sem er hárrétt. Við töluðum langmest u...
2020-09-17
2h 18
Snæbjörn talar við fólk
#0017 Bragi Valdimar
S01E17 – Bragi Valdimar Skúlason er Baggalútur, tónsmiður, textasmiður, auglýsingamógull og allrahandaséní. Hann er einn af eigendum auglýsingastofunnar Brandenburg, gríðarlegur áhugamaður um íslenska tungu, stjórnar sjónvarpsþáttum, gefur út bækur og fyllir Háskólabíó alla daga desembermánaðar. Hann lærði ekki að yrkja fyrr en á unglingsárum en gerir það af alefli í dag. Hann lætur hlutina gerast, beitir sér fyrir réttindamálum tón- og textahöfunda og sameinar bissness og list. Gott spjall. – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í...
2020-09-10
2h 10
Snæbjörn talar við fólk
#0016 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
S01E16 – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var yngsti kvenráðherrann frá upphafi þegar hún var skipuð í embætti árið 2017 en það met hefur síðan verið slegið. Hún er markmiðadrifin án þess að vita nákvæmlega hver markmiðin eru, skorinort og óhrædd. Hún er í hópi þess fólks sem sækist eftir því að stýra mikilvægu málunum án þess að vilja flækja málið og flæma venjulega fólkið eins mig sjálfan frá öllu saman. Við héldum tveggja metra fjarlægð og tókum hlutina föstum tökum. Gott spja...
2020-09-03
1h 43
Snæbjörn talar við fólk
#0015 Ólafur Örn Ólafsson
S01E15 – Óli kokkur er ekki kokkur heldur framreiðslumeistari. Framreiðslumeistari er þjónn. Hann stofnaði eina veitingastað landsins sem hlotið hefur Michelin-stjörnu, eina staðinn með slíka stjörnu, og hefur komið að rekstri fjölmargra annarra. Óli er framkvæmdamaður, á og rekur Vínstúkuna Tíu sopa, er fyrrverandi glaumgosi, flugfreyja og uppvaskari. Hann stýrir þættinum Kokkaflakk hjá Sjónvarpi Símans og undirbýr núna Kokkaflakk í hlaðvarpsbúningi sem framleitt er af Hljóðkirkjunni. Hann er sérvitur á réttum sviðum og afar skemmtilegur viðtals. Gott spjall. – Hljó...
2020-08-27
2h 16
Snæbjörn talar við fólk
#0014 Hannes Óli
S01E14 – Hannes Óli er leikari af guðs náð. Hann tekur lífinu eins og það kemur og hefur leikið Sigmund Davíð í hverju einasta áramótaskaupi nema einu síðan 2009. Hann les bækur, horfir á kvikmyndir, breytir veikleikum í styrkleika og er þakklátur fyrir allt sem hann hefur. Pabbi hans er kona og hann hefur spunnið senu í kvikmynd með Will Ferrell. Ég segi þetta og skrifa hér í þetta eina skipti: Jaja Ding Dong! Gott spjall. – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og
2020-08-20
2h 08
Snæbjörn talar við fólk
#0013 Gerður Kristný
S01E13 – Gerður Kristný er skáld. Hún segir það meira að segja sjálf, sem er eitthvað sem ég get ekki tileinkað mér. Hún hefur starfað sem ritstjóri, tekið á alvöru málum af fullum þunga og fengið lof og last fyrir – oft í undarlegu hlutfalli. Hún er rithöfundur og hefur skrifað flestar tegundir bóka. Hún ferðast um allt, kynnir sig og gefur hlutunum séns. Hún fúnkerar á undarlegri blöndu af frelsi og aga og hefur skrifað bækur sem gætu talist til þeirra bestu sem ég hef lesið. Gott...
2020-08-13
1h 37
Snæbjörn talar við fólk
#0012 Franz Gunnarsson
S01E12 – Franz er og hefur verið meðlimur í Ensími, Dr. Spock, In Memoriam, Quicksand Jesus og fleiri og fleiri. Hann hefur spilað á gítar frá unglingsárum og dregið framkvæmdavagninn í flestum þeim verkefnum sem hann kemur nálægt. Hann hefur háð harðar baráttur við búsið og hafði sigur að lokum. Hann er faðir og orðinn miðaldra sólótónlistarmaður, pródjektið Paunkholm er hans upphaf nýrra tíma. Hann er duglegri en andskotinn og á endalaust af sögum í bakpokanum sem við fórum yfir. Og já, hann er hálfur Skoti og hefur...
2020-08-06
2h 12
Snæbjörn talar við fólk
#0011 Erna Hrönn
S01E11 – Erna Hrönn er söngkona frá náttúrunnar hendi, útvarpskona, táknmálsfræðingur og allrahandasnillingur. Hún brosir, syngur, hlær og tekur á öllum verkefnum með jákvæðni og stefnu á fullkomnun. 6 lög og 60 sinnum bakraddir í Eurovision, endalaus gigg af öllum stærðargráðum, 6 börn og nýtt hjónaband. En lífið er ekki áfallalaust og nákvæmlega núna stendur hún í stórræðum við að ná sér upp úr andlegri brotlendingu. Álag áranna og atburðir liðinna tíma náðu loksins í skottið á henni og þá sér í lagi einn ákveði...
2020-07-30
1h 51
Snæbjörn talar við fólk
#0010 Gunna Dís
S01E10 – Gunna Dís er fjölmiðladrottning Íslands en sömuleiðis bæjarstjórafrú á Húsavík. Hún er vopnfirðingur og fyrrverandi fyrirmyndarbarn. Hún klæddi sig síðan í hvítar pollabuxur og hvíta Buffalo-skó og tók næntísið með trompi. Hún leitaði að sjálfri sér í Chile en fann ekki, vann síðan á mögulega öllum útvarpsstöðvum landsins. Harkalegar barneignir, að finna lífsförunautinn 27 ára, sigurförin með Andra Frey á Rás 2 og 6 stærðfræðiáfangar í einu. Afskaplega glaðlegt spjall – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í...
2020-07-23
1h 45
Snæbjörn talar við fólk
#0009 Magni Ásgeirsson
S01E09 – Magni Ásgeirs er sá maður sem spannar allt á milli þess að vera sveitastrákur og rokkstjarna. Hann er einn sjóaðasti söngvari landsins, tónlistarkennari og annálað ljúfmenni. Hann öðlaðist heimsfrægð í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova og kippti sjálfum sér síðan niður á jörðina eftir að með hjálp frá fólkinu í kringum sig. Hann gætir barnanna sinna á daginn og býr á Akureyri. Og hann er náttúrlegur töffari. Beinskeytt spjall. – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæ
2020-07-16
2h 31