podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Kirkjuvarpið
Shows
Leiðin okkar allra
Aftur af stað: Ég hef einu sinni grátið...
Kynning á næstu seríu Leiðarinnar okkar allra. Fer í loftið um helgina...Ása Laufey og Bolli Pétur hafa flutt sig um hljóðstofu og settust á dögunum með Þóri Guðmundssyni í turninn Víðförla, á horni Vonarstrætis og Lækjargötu. Leiðin okkar allra, á leið í loftið á ný!
2022-11-11
09 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Biblíufélagið, viðtal við Halldór Guðmundsson.
Í þættinum er rætt við Halldór Guðmundsson um störf og verkefni Biblíufélagsins.
2022-03-16
49 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Helgi Guðnason
Í þættinum ræða Sr. Benjamín og sr. Dagur við Helga Guðnason, forstöðumann í Hvítasunnukirkjunni.
2022-03-09
56 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Pétur munkur
Í þættinum ræða sr. Benjamín og sr. Dagur við Peter Kovacik, en Peter er kaþólskur munkur sem býr á Kollaleiru á Reyðarfirði.
2022-03-02
33 min
Leiðin okkar allra
Verði ljós, elskan: Soffía Bjarnadóttir - jólaþáttur
Til hátíðarbrigða fá Ása og Bolli skáldið Soffíu Bjarnadóttur til sín til að grufla í ljósinu, sannleikanum og fegurðinni með henni. Þau ræða skrif og skáldskap, skáldskap sem veruleika og reynslu, uppsprettu innblástursins - aðferð skrifa sem verkfæri heilunnar og lífsins göngu frá ljósi til ljóss, í gegnum skynvillur skóga. Tilefnið er vissulega nýútkomin ljóðabók Soffíu, Verði ljós, elskan - sem bókaforlagið Angústúra gefur út. Soffía er verkefnastjóri bókmennta hjá Bókasöfnum Reykjavíkur, skáld og kennari í ri...
2021-12-21
55 min
Leiðin okkar allra
Á leiðinni heiman og heim: Kynning
Hlaðvarpsþátturinn „Leiðin okkar allra“ tekur á því að mæta fólki á ferð - og huga að. Það er horft aftur um lífsleiðina og velt fyrir sér vægi hinnar andlegu vegferðar í því ferli að halda jafnvæginu. Eins og segir í ljóði Einars Georgs Einarssonar, þá geta örlögin valdið því að einn daginn verður maðurinn að halda af stað. Við getum aldrei vitað hvað mun mæta okkur á morgun, svo það er kannski bara ágætt að velta aðeins vöngum yfir lífsgildum sínum áður en lagt er af stað. Í þessum mannlegu þáttum Kirkjuvarpsins...
2021-12-19
14 min
Leiðin okkar allra
Við erum saman í samfélaginu: Svavar Knútur Kristinsson
Söngvaskáldið Svavar Knútur er mörgum kunnur af list sinni, en þessi hrifnæmi ljúfi Vestfirðingur hefur löngum veitt andanum greiðan aðgang að sér. Hann ræðir við Bolla og Ásu um sköpunargáfuna og kraftinn, heimspekilegar vangaveltur og hressandi sögur af sorgum og sigrum, og þó aðallega sorgum. Auðvitað. 45 ár af lífi - heillandi viðhorf til lífsins og reynslunnar.
2021-12-17
1h 02
Leiðin okkar allra
Að þekkja skugga sinn og drauma: Haukur Ingi Jónasson
Haukur Ingi Jónasson er lektor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og formaður stjórnar MPM-náms skólans. Hann hefur komið að margþættum rannsóknum á sviði stjórnunarfræða og er meðhöfundur sex bóka á íslensku (JPV) og fimm bóka á ensku (Routledge/Taylor and Francis).Haukur lauk doktorsnámi sínu við Union Theological Seminary í New York en þar las hann sálarfræði, geðsjúkdóma- og geðlæknisfræði, sálgreiningu, analýtíska sálfræði í sögu og samtíð, og hagnýta og kennimannlega guðfræði með sérstakri áherslu á be...
2021-12-17
1h 07
Leiðin okkar allra
Í nærgætnu skjóli: Rósa Björg Brynjarsdóttir
Rósa Björg Brynjarsdóttir umsjónarkona Skjólsins, opins húss fyrir konur í Grensáskirkju, er menntaður kennari og mannauðsstjóri, með diploma í sálgæslu. Örlögin höguðu því svo til að hún var aðeins 27 ára gömul þegar MS-sjúkdómurinn gerði vart við sig hjá henni en frá því í upphafi þessa árs hefur hún starfað að uppbyggingu og mótun Skjólsins, ásamt fleirum. Rósa Björg, móðir með tvö börn og fjölskyldu, ræðir við Ásu Laufey og Bolla Pétur um þetta leiksvið lífsins sem stöðugt krefst nýrra sviðsm...
2021-12-17
1h 03
Leiðin okkar allra
Björt mey og missir: Ólafur Teitur Guðnason
Ólafur Teitur Guðnason er höfundur bókarinnar Meyjarmissir, en hefur starfað sem blaðamaður og ráðgjafi, síðast sem aðstoðarmaður ráðherra. Ólafur hefur ritstýrt bókum og er einnig höfundar bókanna Fjölmiðlar 2004, Fjölmiðlar 2005, Fjölmiðlar 2006 og Fjölmiðlar 2007 þar sem hann leitasðist við að greina fréttaumfjöllun íslenskra fjölmiðla með gagnrýnu hugarfari.Í þættinum ræða Ása Laufey og Bolli við hann um lífið og dauðann, Engilbjörtu Auðunsdóttur, meyjarmissi, félagsskapinn Ljónshjarta og hans eigin vegferð við úrvinnslu þess áfalls
2021-12-17
1h 04
Leiðin okkar allra
Hvítþvottur skírnarinnar er ekki allt: Arnór B. Blomsterberg
Nói er prestur í Tjarnarprestakalli í Hafnarfirði, fv. kjötiðnaðarmaður og áhugabruggari. Arnór Bjarki á áhugaverða sögu, en hann segir okkur meðal annars frá leið sinni í gegnum róstursöm unglingsár, í gegnum áföll og til innri þarfar fyrir trú í sínu lífi. Í því er tiltekið hvernig það var að vera unglingur með brotna sjálfsmynd, leið fyrirgefningarinnar og upprisunnar í eigin lífi.
2021-12-16
59 min
Leiðin okkar allra
Þroskuð trú og tilgangur: Svana Helen Björnsdóttir
Í þætti dagsins birtir hinn þekkti frumkvöðull Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri og rafmagnsverkfræðingur, hlið á sjálfri sér sem ekki hefur borið mikið á. Hún segir frá trúarlegri mótun í æsku og hvernig mikilvæg reynsla á menntaskólaárunum markaði meðal annars þau spor í hennar starfi að vilja sinna öldrunarmálum með tækninýjungum í þágu heilbrigðisgeirans. Svana Helen hefur bæði djúpa reynslu og mikla sögu að segja af þeirri trú sem nærir hana og hvernig samtal hennar við þann Guð, sem er hafin yfir nöfn og merkimiða, og samfylgd með kirkjunni og K...
2021-12-16
58 min
Leiðin okkar allra
Endurheimt með orðsins ljósa galdri: Björn Hjálmarsson
Björn Hjálmarsson sérfræðilæknir á BUGL hefur verið ötull talsmaður fyrir nýrri nálgun í úrvinnslu áfalla, eða jafnvel endurhvarfs til fornra og gagnreyndra aðferða andlegra hefða og skapandi aðferða til að rannsaka sjálf og heim. Hann lætur sig margvísleg mál varða sem snerta á andlegri heilsu og blæbrigðum mannlífs, en sjálfur hefur hann glímt við margvíslegar áskoranir í kjölfar þess að sonur hans lést með voveiflegum hætti í Hollandi árið 2002. Hann fannst með mikla áverka á höfði en dánarorsök kom aldrei fram. Björn tók þá ákvör...
2021-12-15
1h 02
Leiðin okkar allra
Móðir, missir, máttur: Þóranna Sigurbergsdóttir
Það hyllir undir starfsloka-aldurinn hjá Þórönnu Margréti Sigurbergsdóttur, en hún hefur mikla sögu að segja af ferðum sínum og áföllum lífsins, þar sem trúin hefur oftar en ekki verið henni haldreipi. Hún og eiginmaður hennar Steingrímur Ágúst Jónsson hafa búið í Vestmannaeyjum frá því skömmu eftir gos. Þau sinna í dag ýmsum hugðarefnum, svo sem hjálparstarfi í Afríku og því að miðla af reynslu sinni og lífsgleði, og traustinu sem þau bera til Drottins í sínum raunum. Þóranna er ein höfunda bókarinnar Móður, missir, máttur - en...
2021-12-15
56 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Prestar innflytjenda
Í þættinum er rætt við presti innflytjenda, sr. Toshiki Toma & sr. Ásu Laufey Sæmundsdóttir.
2021-06-17
36 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Feminísk guðfræði - viðtal við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur
Í þættinum er rætt við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur um feminíska guðfræði.
2021-06-10
49 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Family ministry - viðtal við Hildi Björk Hörpudóttur
Í þættinum er rætt við sr. Hildi Björk Hörpudóttur um nýtt kirkjumódel sem kallast family ministry.
2021-06-03
53 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakana 78
Í þættinum er rætt við Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, formann samtakana 78.
2021-05-27
45 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Hinsegin Guðfræði, viðtal við dr. Sólveigu Önnu Bóasdóttur
Í þættinum er rætt við dr. Sólveigu Önnu Bóasdóttur um hinsegin guðfræði.
2021-05-20
45 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Biskup Íslands
Í þættinum er rætt við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.
2021-05-13
50 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Kirkjan og loftslagsbreytingar - viðtal við sr. Sindra Geir Óskarsson
Í þættinum er rætt við sr. Sindra Geir Óskarsson um kirkjuna og loftslagsmálin.
2021-04-29
49 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Erótík í Ljóðaljóðunum - viðtal við Daníel Ágúst Gautason
Í þættinum er rætt við Daníel Ágúst Gautason um erótík í Ljóðaljóðunum.
2021-04-22
41 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Kirkjan og Kynlíf, viðtal við Gerði Arinbjarnardóttur.
Í þættinum er rætt við Gerði Arinbjarnardóttur, eiganda Blush, um kirkjuna, kynlíf, sjálfsfróun og kynlífstæki.
2021-04-15
51 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Sálgæsla - viðtal við sr. Vigfús Bjarna Albertsson
Í þættinum er rætt við sr. Vigfús Bjarna Albertsson um sálgæslu og sálgæsluþjónustu þjóðkirkjunnar.
2021-04-08
46 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Skömm - viðtal við sr. Hjalta Jón Sverrisson
Í þættinum er rætt við sr. Hjalta Jón Sverrisson um skömm.
2021-03-31
53 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Kirkjuritið - viðtal við Kristínu Þórunni Tómasdóttur
Í þættinum er talað við sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur um Kirkjuritið árg. 2021.
2021-03-19
34 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Draumar - viðtal við Örnu Ýrr Sigurðardóttur
Í þættinum er rætt við sr. Örnu Ýrr Sigurðardóttir um drauma en Arna Ýrr er með hlaðvarpið Draumalíf og vefsíðuna www.draumaprestur.is.
2021-03-12
47 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Æskulýðsmál Þjóðkirkjunnar - viðtal við Berglindi Hönnudóttur
Í þættinum var rætt við Berglindi Hönnudóttur, formann ÆSKÞ, um æskulýðsmál Þjóðkirkjunnar.
2021-03-05
47 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Meðvirkni - viðtal við sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur
Í þættinum ræða sr.Benjamín og sr.Dagur við sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur um meðvirkni.
2021-02-26
49 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Kristin íhugun
Í þættinum er fjallað um kristna íhugun, hugleiðslu og kyrrðarbæn.
2021-02-21
47 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Yoga - viðtal við sr. Aldísi Rut Gísladóttur
Sr. Dagur Fannar Magnússon ræðir við sr. Aldísi Rut Gísladóttur um Yoga.
2021-02-15
41 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Samtal við efahyggjumann - viðtal við Jón Inga Hlynsson
Í þættinum munum við ræða guðfræðileg málefni við Jón Inga Hlynsson, nemanda í sálfræði við Háskóla Íslands.
2020-12-10
1h 11
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Himnaríki og Helvíti (Part 2)
Í þættinum höldum við umræðunni um eftirlífið áfram. Ræðum sérstaklega um hugtakið himnaríki.
2020-12-03
51 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Himnaríki og Helvíti (Part 1)
Í þættinum er fjallað um hugtökin himnaríki og helvíti og aðrar pælingar um eftirlífið.
2020-11-19
53 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Frelsunin
Í þessum þætti verður fjallað um hvað hugtakið ,,frelsun" í kristilegu samhengi þýðir á mannamáli.
2020-11-12
52 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Syndin
Fyrsti þáttur í annarri seríu af Kirkjucastinu. Í þættinum er fjallað um hugtakið synd.
2020-11-05
44 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Peningar
Í þættinum fjöllum við um peninga útfrá ýmsum hliðum. Ítarefni: https://www.storytel.com/is/is/books/616946-The-Total-Money-Makeover
2020-06-25
34 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Fyrirgefningin 2
Seinni þáttur af tveimur þar sem við fjöllum um fyrirgefninguna útfrá bók Desmond Tutu. https://kirkjuhusid.is/products/25551-bokin-um-fyrirgefninguna https://www.audible.com/pd/Book-of-Forgiving-Audiobook/B00I8NQKV4
2020-06-18
53 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Fyrirgefningin 1
Annar þátturinn af tveimur þar sem við fjöllum um fyrirgefninguna.
2020-06-11
50 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Neysluhyggja, öfund og græðgi.
Í þættinum ræðum við um neysluhyggju. Við skoðum hugtakið og sögu þess. Við fjöllum um bæði jákvæðar hliðar hennar og hinar neikvæðu. Í þættinum fjöllum við einnig um hvernig öfund og græðgi tengist neysluhyggjunni og ræðum um hugsanlegar lausnir við neikvæðum hliðum hennar.
2020-06-04
45 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Hver er ég?
Hálfleikur! Nú er fyrsta serían hálfnuð. Við förum yfir farinn veg og ræðum hvað er framundan. En í þættinum er einnig fjallað um sjálfsmyndina útfrá spurningunni ,,Hver er ég?" og hvað felst í spurningunni.
2020-05-28
43 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Streita, kvíði og þunglyndi
Í þættinum er fjallað um streitu, kvíða og þunglyndi og hvernig kirkjan og trúin getur reynst styrkur í að takast á við þessi atriði. Ítarefni: Streita: https://www.visindavefur.is/svar.php?id=65376 https://www.persona.is/index.php?action=articles&method=display&aid=25&pid=31 Kvíði: https://kms.is/almennt-um-kvidha/ https://gedhjalp.is/fraedsla/sjalfshjalp/ Þunglyndi: https://gedhjalp.is/fraedsla/gedraskanir/thunglyndi/
2020-05-21
40 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Félagsþrýstingur & Heilbrigð mörk
Í þættinum verður fjallað um Félagsþrýsting (hópþrýsting) & heilbrigð mörk.
2020-05-14
28 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Jákvæð líkamsímynd - viðtal við Ernu Kristínu Stefánsdóttur
Í þættinum er rætt við Ernu Kristínu Stefánsdóttur um jákvæða líkamsímynd.
2020-05-07
33 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Sjálfsmyndin, sjálfsálit og sjálfstraust - Aukaþáttur
Íslenskt hlaðvarp sem fjallar um ýmis málefni mannlegrar tilveru í ljósi kristinnar trúar.
2020-04-30
28 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Sjálfsmyndin, sjálfsálit og sjálfstraust
Íslenskt hlaðvarp sem fjallar um ýmis málefni mannlegrar tilveru í ljósi kristinnar trúar.
2020-04-30
39 min
Kirkjucastið
Kirkjucastið - Kynning á Kirkjucastinu
Íslenskt hlaðvarp sem fjallar um ýmis málefni mannlegrar tilveru í ljósi kristinnar trúar.
2020-04-23
29 min