Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Knattspyrnufelag Akureyrar

Shows

KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcast - Upphitun fyrir bikarúrslit í blaki 2023Jólin eru framundan í blakinu þegar úrslitahelgi Kjörísbikarsins fer fram í Digranesi 9.-12. mars og eru bæði karla- og kvennalið KA í eldlínunni. Auk þeirra á KA þrjú yngriflokkalið í úrslitum yngriflokka á sunnudeginum. Þeir Ágúst Stefánsson og Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA ræða hér helstu hlutina í blakheiminum á sama tíma og þeir renna leiðina suður.2023-03-0955 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Arnar Grétars mættur norðurHlaðvarpsþáttur KA snýr aftur eftir nokkra pásu en að þessi sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson til sín Arnar Grétarsson nýráðinn þjálfara KA í knattspyrnu til sín. Arnar er þrautreyndur í knattspyrnuheiminum og er heldur betur ástæða fyrir KA fólk að kynnast nýja stjóranum okkar. Sem leikmaður lék Arnar alls 71 landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann lék í atvinnumennsku með Rangers, AEK Aþenu og Lokeren. Þá gegndi hann stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá stórliðunum AEK Aþenu sem og Club Brugge en hann hefur einnig...2020-07-2443 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Topp 5 - Mesti KarakterPétur Heiðar Kristjánsson og Siguróli Magni Sigurðsson sjá um nýjan lið hjá KA sem ber nafnið Topp 5. Í fyrsta þætti fá þeir félagar til sín Skúla Eyjólfsson fyrrum leikmann KA og núverandi stjórnarmann. Í þessum fyrsta þætti renna þeir yfir mestu karakterana í knattspyrnuliði KA frá árinu 2000 til ársins í ár.2020-04-1651 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Sævar um uppbyggingu KA svæðisinsSævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu. Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu. Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall sem skiptir okkur að sjálfsö2019-11-1345 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Donni gerir upp Þór/KA tímannHalldór Jón Sigurðsson eða Donni eins og hann er iðulega kallaður mætti í KA Podcastið og gerir upp þriggja ára tíma sinn með Þór/KA. Auk þess spjallar hann um innkomu sína inn í þjálfarateymi karlaliðs KA um mitt sumar og er alveg ljóst að enginn ætti að láta þennan þátt framhjá sér fara.2019-10-2142 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Óli Stefán gerir upp sumariðÓli Stefán Flóventsson þjálfari KA gerir upp nýliðið sumar og fer yfir hin ýmsu mál tengdu KA liðinu sem endaði í 5. sæti Pepsi Max deildarinnar en það er besti árangur KA frá árinu 2002.2019-09-2949 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Almarr og Jón HeiðarAlmarr Ormarsson og Jón Heiðar Sigurðsson líta við í KA Podcastinu þessa vikuna en báðir fögnuðu þeir góðum sigri um helgina. Almarr ræðir 2-3 sigur KA á Víkingum í fótboltanum sem og sumarið til þessa. Jón Heiðar spjallar hinsvegar um 25-32 sigur KA á Fjölni í handboltanum sem og stemninguna í hópnum.2019-09-2437 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Elfar Árni, Gunnar Líndal og Henry BirgirHjalti Heinsson fær til sín góða gesti í KA Podcastinu þessa vikuna en Elfar Árni Aðalsteinsson ræðir magnaðan sigur KA í Grindavík en hann er nú orðinn markahæsti leikmaður í sögu KA í efstu deild. Gunnar Líndal Sigurðsson ræðir komandi tímabil hjá KA/Þór í handboltanum og spjallar um aðkomu sína að liðinu en hann tók við liðinu nú í sumar. Að lokum hringir Hjalti í Henry Birgi Gunnarsson sem mun sjá um Seinni Bylgjuna í vetur og spyr hann spjörunum úr hvað varðar komandi handboltatímabil. Ekki missa af skemmtilegum þætti!2019-09-0434 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Jonni, Stebbi og Óli StefánÞað er heldur betur góð stjórn á hlutunum í KA Podcastinu þessa vikuna. Jónatan Magnússon og Stefán Árnason þjálfarar meistaraflokks KA í handbolta fara yfir stöðuna fyrir Opna Norðlenska mótið sem hefst á morgun. Þá mætir Óli Stefán Flóventsson þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu í gott spjall um stöðuna og komandi leiki í Pepsi Max deildinni. Ekki missa af skemmtilegum þætti!2019-08-2133 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Ívar Örn og DonniHjalti Hreinsson fær þá Ívar Örn Árnason og Halldór Jón Sigurðsson (Donna) í skemmtilegt spjall. Ívar Örn sem hefur komið af krafti inn í lið KA ræðir innkomuna inn í KA-liðið sem og Bandaríska háskólaboltann þar sem hann hefur leikið listir sínar undanfarin ár. Donni fer yfir sumarið hjá Þór/KA og þau verkefni sem upp hafa komið. Hann er spenntur fyrir því að klára sumarið af krafti og halda áfram að gefa ungum leikmönnum tækifærið.2019-07-3048 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Óli Stefán um sumarið til þessaHjalti Hreinsson fær Óla Stefán Flóventsson þjálfara KA til sín í spjall þar sem þeir félagar fara yfir sumarið til þessa og stöðuna sem liðið er í nú þegar sumarið er rétt rúmlega hálfnað. Óli Stefán ræðir meðal annars David Cuerva nýjasta meðlim KA sem og hina einstöku stemningu sem er í kringum KA.2019-07-2438 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Óli Stefán og Jonni Magg (29/05/19)Siguróli og Hjalti fá til sín þá Óla Stefán Flóventsson og Jónatan Magnússon og ræða þeir félagar ýmsa kanta á sínu starfi hjá KA. Óli Stefán fer yfir síðustu leiki sem og framhaldið í fótboltanum og þá ræðir Jonni nýliðinn vetur hjá KA/Þór sem og komandi tíma hjá karlaliði KA í handboltanum.2019-05-2942 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Hallgrímur Jónasar eftir sigur á StjörnunniHallgrímur Jónasson fyrirliði KA ræðir frábæran útisigur KA á Stjörnunni í gær auk þess sem hann fer yfir undanfarnar vikur hjá liðinu.2019-05-2032 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - Grímsi ræðir sigurinn á ValKA Podcastið er komið aftur í gang og Hallgrímur Mar Steingrímsson mætir í stúdíó-ið til þeirra Siguróla og Hjalta þar sem hann ræðir frábæran sigur KA á Val og framhaldið hjá KA liðinu. Þeir Siguróli og Hjalti fara svo yfir víðan völl er tengist fótboltanum hjá KA.2019-05-0847 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 15. febrúar 2019Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA í knattspyrnu mætir til þeirra Siguróla og Hjalta og ræðir byrjunina á þjálfaraferli sínum með KA sem og komandi sumar. Þeir félagar fara yfir víðan völl í skemmtilegu spjalli og um að gera að kynnast betur þjálfaranum okkar.2019-02-1544 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 30. janúar 2019Siguróli Magni og Ágúst Stefáns mæta aftur með KA Podcastið eftir smá frí og fara þeir yfir stöðu mála í fótboltanum, handboltanum og blakinu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir en Stefán Árnason þjálfari KA í handbolta ræðir mikilvægan leik liðsins gegn Fram á sunnudaginn og þá mætir Daníel Hafsteinsson leikmaður KA í fótbolta sem var nýlega á reynslu hjá SønderjyskE2019-01-3046 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 27. október 2018Siguróli Magni og Ágúst Stefáns renna yfir stöðuna í handboltanum en KA gerði jafntefli við ÍR á dögunum eftir stórt tap gegn Stjörnunni þar áður. KA/Þór hefur farið vel af stað en tapaði þó síðasta leik á ævintýralegan hátt. Gestur þáttarins er enginn annar en Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri félagsins og ræðir hann um rekstrarumhverfi KA auk þess sem hann fer yfir þær breytingar sem orðið hafa á félaginu undir hans stjórn.2018-10-3035 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 12. október 2018Siguróli Magni og Hjalti Hreins hefja þáttinn á yfirferð yfir stöðu mála í Olís deildum karla og kvenna hjá KA og KA/Þór. Þá er farið að styttast í blaktímabilið og af því tilefni mæta þau Arnar Már Sigurðsson og Elma Eysteinsdóttir í spjall og ræða spennandi tíma í blakinu. Að lokum kíkir Áki Egilsnes í heimsókn en hann var nýverið kjörinn besti leikmaður septembermánaðar í Olís deild karla. Ekki missa af flottum þætti þessa vikuna!2018-10-1243 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 4. október 2018Eftir smá pásu eru Siguróli og Ágúst mættir aftur með KA Podcastið. Þeir byrja á að renna yfir lok knattspyrnusumarsins hjá KA og Þór/KA og slá á þráðinn til Elvars Geirs Magnússonar ritstjóra Fotbolta.net Því næst fara þeir yfir handboltann hjá KA og KA/Þór og fá til sín Katrínu Vilhjálmsdóttur leikmann KA/Þór í spjall en stelpurnar taka á móti ÍBV í KA-Heimilinu í kvöld. Ekki missa af flottum þætti!2018-10-0458 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 14. september 2018Þeir Siguróli Magni og Ágúst renna yfir opnunarleik Olís deildar karla þegar KA vann Akureyri 28-27 og rýna í deildina. Þá hita þeir upp fyrir Olís deild kvenna og fá til sín Ásdísi Guðmundsdóttur leikmann KA/Þórs. Þór/KA hefur staðið í ströngu að undanförnu og kemur fyrirliði liðsins, Sandra María Jessen, í heimsókn og ræðir stórleikinn gegn Wolfsburg og fleira.2018-09-1446 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 7. september 2018Hlaðvarpsþáttur KA er stútfullur að þessu sinni en þeir Siguróli, Ágúst og Hjalti fara yfir fótboltann sem og handboltann sem er að fara að hefjast. Andri Snær Stefánsson fyrirliði KA í handbolta ræðir komandi vetur, Donni þjálfari Þórs/KA ræðir titilbaráttuna sem og Meistaradeildina og að lokum mætir Steinþór Freyr Þorsteinsson og ræðir sumarið hjá KA sem og sinn feril.2018-09-071h 09KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 31. ágúst 2018Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram og að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni og Ágúst Stefáns yfir leiki KA og Þórs/KA í fótboltanum sem og komandi lokasprett í Pepsi deildunum. Guðmann Þórisson fyrirliði KA mætir einnig í spjall. Norðlenska Greifamótið í handboltanum fór fram um síðustu helgi og er handboltinn tekinn föstum tökum með aðstoð Jónatans Magnússonar þjálfara KA/Þórs. Að lokum kíkir Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari yngri flokka KA í knattspyrnu og fer yfir flott sumar hjá yngri iðkendum KA.2018-08-3156 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 23. ágúst 2018Siguróli Magni og Ágúst Stefáns hita vel upp fyrir Norðlenska Greifamótið í handboltanum sem hefst í dag og lýkur á laugardag. Alls keppa 6 lið hjá körlunum og 4 kvennamegin. Dagur Gautason vinstri hornamaður KA mætir í settið og fer yfir EM silfrið með U-18 landsliði Íslands sem og komandi tímabil. Auk þess er slegið á þráðinn við Gaupa þar sem hann rennir yfir spennandi Olís deild. Þá fara þeir félagar að sjálfsögðu yfir síðustu leiki í fótboltanum hjá KA og Þór/KA og renna yfir leiki liðanna á laugardag. Ekki missa af pökkuðum þætti.2018-08-2350 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 16. ágúst 2018Siguróli Magni og Hjalti fara vel yfir stöðuna í fótboltanum og fá til sín góða gesti. Ásgeir Sigurgeirsson mætir og fer yfir sumarið og ferilinn til þessa og þá mætir Anna Rakel Pétursdóttir í heimsókn og ræðir Meistaradeildina sem og baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Að lokum mætir Egill Ármann Kristinsson styrktarþjálfari KA í heimsókn og ræðir bæði þjálfun sem og hans bakgrunn í félaginu. Ekki missa af skemmtilegum þætti!2018-08-1653 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 9. ágúst 2018Hlaðvarpsþáttur KA er kominn aftur í loftið eftir smá sumarfrí. Þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson skella í rándýran þátt en þeir fá til sín Archie Nkumu leikmann KA í knattspyrnu sem og Stefán Árnason og Jónatan Magnússon þjálfara KA og KA/Þórs í handboltanum.2018-08-1052 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 19. júlí 2018Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Þór Hreinsson mæta með þétthlaðinn hlaðvarpsþátt þessa vikuna. Þeir fara vel yfir frábært gengi KA og Þórs/KA í Pepsi deildunum að undanförnu og rýna í komandi leiki. Þá heyra þeir í fjölmiðlamógúlnum Tómasi Þór Þórðarsyni sem kynnir okkur fyrir Vladimir Tufegdzic nýjasta leikmanni KA auk þess sem hann fer yfir málin í Pepsi deildinni. Að lokum mætir Callum Williams leikmaður KA í skemmtilegt spjall þar sem hann ræðir síðustu leiki sem og upplifun sína af nýliðnu HM.2018-07-191h 02KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið 5. júlí 2018Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram göngu sinni þrátt fyrir að N1-mót KA sé í fullum gangi. Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson fara yfir frammistöðu KA liðsins í sumar og rýna í hinn gríðarlega mikilvæga leik í dag sem er gegn Fjölni. Toppslagur Vals og Þórs/KA kvennamegin er einnig tekinn fyrir. Þá mætir Gauti Einarsson lyfsali í skemmtilegt spjall með Siguróla og ræðir það hvernig hann upplifir það að vera KA maður sem og hans uppeldi innan félagsins.2018-07-051h 04KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 28. júní 2018Siguróli Magni Sigurðsson og Ágúst Stefánsson renna hér yfir atburði síðustu viku en þar stóðu hæst frábær sigur Þórs/KA á Breiðablik í toppslag Pepsi deildar kvenna sem og Greifamót KA í 7. flokki kvenna. Þeir félagar hita einnig upp fyrir leik KA og Breiðabliks í fyrsta leik Pepsi deildar karla eftir HM hlé. Þá mætir enginn annar en Magnús Sigurður Sigurólason betur þekktur sem Maggi Siguróla og ræðir hann við son sinn um N1 mót KA sem hefst á miðvikudaginn ásamt ýmsu öðru tengdu KA.2018-06-281h 00KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 21 .júní 2018Siguróli Magni Sigurðsson og Ágúst Stefánsson renna yfir síðustu leiki í fótboltanum og ræða gríðarlega mikilvægan toppslag hjá Þór/KA gegn Breiðablik á sunnudaginn. Þá kemur Heimir Örn Árnason í viðtal um nýtt hlutverk en hann verður þjálfari KA í handbolta í vetur ásamt Stefáni Árnasyni auk þess sem hann fer yfir magnaðan leikmannaferil sinn.2018-06-2258 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 14. júní 2018Hinn vikulegi hlaðvarpsþáttur KA heldur að sjálfsögðu áfram en Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson fá til sín magnaðan gest að þessu sinni en það er enginn annar en Gunnar Níelsson. Gunni segir nokkrar frábærar sögur tengdar KA og er alveg ljóst að Gunni þarf að mæta aftur enda mjög gaman að hlusta á það sem hann hefur að segja. Þeir Siguróli og Birkir fara svo að sjálfsögðu yfir síðasta leik hjá KA og rýna í leik dagsins sem er heimaleikur gegn Stjörnunni.2018-06-141h 01KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 7. júní 2018Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram göngu sinni og að þessu sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson til sín Tufa þjálfara KA í knattspyrnu og fara þeir félagar yfir feril Tufa sem og hvernig það var að koma frá Serbíu og til Íslands. Einnig renna þeir yfir síðustu leiki hjá KA og Þór/KA, það er því um að gera að hlusta á þennan skemmtilega þátt.2018-06-071h 00KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 31. maí 2018Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram og að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Ágúst Stefánsson yfir stöðuna hjá Þór/KA og KA í fótboltanum, 4 brons í júdó á Norðurlandamótinu og landsliðsstelpurnar okkar í handboltanum. Sigurður Skúli Eyjólfsson fyrrum leikmaður KA í knattspyrnu kemur í heimsókn og fer yfir ferilinn, muninn á aðstöðunni í dag og þegar hann var að spila og margt fleira.2018-05-311h 03KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 24. maí 2018Áfram heldur hlaðvarpsþáttur KA en að þessu sinni fær Siguróli Magni Sigurðsson hann Ágúst Stefánsson með sér í þáttastjórnunina og fara þeir félagar yfir síðustu leiki hjá KA og Þór/KA. Þá mætir Jónatan Magnússon þjálfari KA/Þórs í handboltanum í heimsókn og fer yfir glæsilegan vetur hjá stelpunum og yngri flokkunum ásamt því að hann ræðir stöðu sína hjá A-landsliði kvenna. Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari yngri flokka í fótboltanum ræðir um uppbygginguna í yngriflokkastarfi KA undanfarin ár og einnig rýnir hann í stöðuna hjá meistaraflokksliðunum okkar.2018-05-241h 05KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 17. maí 2018Hlaðvarpsþátturinn KA Podcastið heldur áfram en að þessu sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson til sín Halldór Jón Sigurðsson, Donna, þjálfara Þórs/KA sem fer yfir ýmislegt bæði tengt kvennaliðinu sem og karlaliði KA. Að lokum fara þeir félagar yfir félagsfund KA sem fór fram í gær ásamt því að fara stuttlega yfir lokahóf handknattleiksdeildar og leik FH og KA sem fer fram í dag.2018-05-171h 10KA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 10. maí 2018Knattspyrnusumarið er komið af stað og bæði KA og Þór/KA hafa nú leikið tvo leiki í Pepsi deildinni. Þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Birkir Örn Pétursson fá til sín góða gesti en karlamegin ræðir Magnús Már Einarsson frá fotbolti.net um KA liðið og kvennamegin mætir fyrirliðinn Sandra María Jessen og fer yfir byrjunina á sumrinu sem og dvöl sína með Slavia Prag í Tékklandi. Þá kemur formaður KA, Ingvar Már Gíslason, í heimsókn og ræðir komandi félagsfund sem KA heldur 16. maí kl. 17:15 um framtíðarplön félagsins og reksta2018-05-1058 minKA PodcastiðKA PodcastiðKA Podcastið - 3. maí 2018Að þessu sinni er það Hjalti Hreinsson sem stýrir þættinum ásamt Siguróla Magna Sigurðssyni og fara þeir félagar yfir atburði undanfarinna daga hjá KA. Í heimsókn koma þeir Stefán Árnason þjálfari KA í handbolta og Haddur Júlíus Stefánsson formaður deildarinnar og ræða veturinn sem endaði á því að KA tryggði sér sæti í deild þeirra bestu. Í síðari hluta þáttarins koma þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Hrannar Björn Steingrímsson leikmenn knattspyrnuliðs KA og fara yfir fyrstu tvo leiki sumarsins og framhaldið.2018-05-031h 07