Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Knattspyrnufelagið Valur - Podcast

Shows

Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpStSt by Knattspyrnufélagið Valur - Podcast2024-10-2836 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpÞorsteinn Leó kortlagður og takk Börkur!Vængjum Þöndum í uppgjaðarham með Jóa Skúla og Halla Dan. Besta deildin fer aftur af stað um helgina á "Hlutlausum" velli.2024-10-1734 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpEVRÓPUDAGUR í Kaplakrika!!Agnar Smári og Jakob Martin hjá Vængjum Þöndum. Er hægt að hita upp EvrópuTvennu betur en með þeim? Alvarlegu nóturnar fyrst en keppni og spurningar í seinni hálfleik. Nýtt lag frumflutt seint í þættinum!2024-10-151h 00Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVikan í Val: Evróputvennan í augnsýn og yfirlit yfirþjálfaraVika að baki og ný hafin. Vængjum Þöndum gerir upp liðna viku hjá Val með Fróða manninum og yfirþjálfara knattspyrnudeildarinnar, Halla Heimis.2024-10-1453 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpUpphitun fyrir EvrópudeildinaVængjum Þöndum í upphitun fyrir Evrópudeildina í handbolta. Franzarinn og sá Fróði fóru yfir helstu liðin sem Valur og FH mæta, hringdu til Makedóníu og leynigestur frá óþekktu landi.2024-10-081h 09Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpÁhorfendamet í sögu kvennaboltans og Evrópa að byrja í handboltanumVængjum þöndum á mánudegi. Franzarinn, Halli Dan og Viktor Unnar fara yfir Vikuna í Val. Áhorfendamet í sögu kvennaboltans á Íslandi, Evrópa í handboltanum, 2 góðir í röð á strákunum í Bestu en bara 1 stig og Bónusdeildin er byrjuð! VÁ mikið2024-10-0737 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpÚrslitaleikir framundan og ákall til Valsara!Franzarinn í hinu virta Gústa loungi með Arnari Sveini, Benna Bó og Öddu Baldurs. Fótboltinn ræddur, uppgjör á deildarkeppninni og úrslitaleikir framundan.2024-09-1943 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpFallbyssu þáttur með Evrópu, Olís og SjónvarpiFranzarinn og sá fróði fá góðan gest upp í Gústa Loungið2024-09-1248 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpGóða kvöldið Holland, Vængjum á farands fæti: SE07 - EP06Vængjum þöndum í Hollandi með meistaraflokki kvenna í knattspyrnunni í Champions League fýling. Franzarinn fær Öddu og Gísla til sín í kvöldchatt.2024-09-0323 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValsmenn negldir niður og Bjöggi æfir með derhúfu - SE07/EP05Jói Skúli og Halli Dan kíkja á Franzarann upp í Lenovo-stúku, orð eru óþarfi.2024-08-3020 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpUpphitun fyrir handboltan - Gaupi og Baldvin Fróði, SE07 - EP04Gaupi og Baldvin Fróði kíkja á Daníel Franz og hita vel upp fyrir handbolta tímabilið hjá Val. Evrópukeppni comming up, Meistarar meistaranna og margt fleira í máli og tali.2024-08-2654 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpBikarmeistarar og Champions League, SE07 - EP03Daníel Franz fær Öddu Baldur, Hallgrím Heimisson og Lillý Rut í heimsókn og ræðum um bikarleikinn og undankeppni Champions League.2024-08-2417 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpBikarmeistarar og Champions league, SE07 - EP03Daníel Franz fær Öddu Baldurs, Halla Heimirs og Lillý Rut, nýkrýnda bikarmeistara til sín. Champions League framundan. Getum við komist þangað?2024-08-2317 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpÓskar Bjarni í hetjuviðtali um Evrópudrauma Valsara, SE07 - EP02Daníel Franz og Benni Bó fá Evrópumeistarann Óskar Bjarna í heimsókn og kryfja Evrópudrauminn okkar í smáeindir. Þetta var sko enginn venjulegur draumur.2024-08-2135 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE07 - EP01 Úrslit Mjólkurbikars kvenna og Tufa tekinn viðBenni, Danni og Jói í Lenovo Stúkunni Úrslit Mjólkurbikarsins, Arnar Rekinn og Tufa inn, stórleikur gegn blikum karlamegin.2024-08-1426 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE06 - EP02Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn við Olympiacos. Við fórum yfir allt þetta helsta en handboltinn var í fyrirrúmi. Sérfræðingurinn Arnar Daði var á línunni og við spáðum í úrslitakeppnirnar í Olís og hituðum fyrir Evrópuævintýrið sem er f...2024-05-0931 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi SteindórsÞá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögðu yfir Tvíhöfða kvöldsins í körfunni og handboltanum, hituðum upp fyrir úrslitakeppnirrnar og ræddum vel og lengi um upphaf...2024-04-1049 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE05 - EP09 - Óskar Bjarni og Haukur PállVængirnir hófu sig til flugs á ný og við tókum lauflétta yfirferð yfir það helsta sem hefur verið að gerast í okkar ástkæra félagi og þeir Haukur Páll og Óskar Bjarni á línunni. Gerist varla betra. Óskar talaði um stemninguna í Val þessa dagana en hann einbeitir sér nú fyrst og fremst að meistaraflokki karla meðan einn af okkar dáðustu sonum Anton Rúnarsson, fer fyrir yngri flokka starfinu. Það stoppaði ekki Anton í að vera á bekknum gegn HC Motor. Óskar fer vel yfir það einvígi og dagskrána í kringum leikinn. Það verður húllumhæ niðu í Val á laugardag og...2023-12-0136 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP09 - Sá besti í sumar og Patrick á línunniÍ tilefni af lokum tímabilsins hjá karlaliðinu í fótbolta var blásið til uppgjörsþáttar í Vængjum þöndum. Við fengum góðan gest til að fara yfir sumarið. Jóhann Skúli kom einbeittur til leiks beint frá borg Englanna, Los Angeles. Við fórum aðeins yfir leik stelpnanna í í meistaradeildinni í gær áður en tekið var til við viðurkenningar. Hringborðið valdi besta leikmann sumarsins að sínu mati og sá var á línunni. Hlusta þarf til að komast að valinu. Þá var valið fallegasta markið, óvæntasta hetjan, besti leikurinn og fleira og fleira. Í lokin heyrðum við í Patrick okkar Pedersen en þær gleðifréttir b...2023-10-1244 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP08 - Gústi Jó og Finnur FreyrStúdíó Borgó tók vel a móti löskuðum Vængjum en Jóhann Alfreð komst ekki vegna anna við upptaka a auglýsingu. En Benni og Breki settust niður og heyrðu hljóðið i okkar dásamlegu þjálfurum, Gústa Jóh og Finn Frey. Ágúst er að fara etja kappi við rúmenska ofurliðið Dunarea en stúlkurnar okkar stoðu vel i hárinu a stjörnupryddu liði. Finnur Frey var svo með sitt lið i generalprufu i leiknum meistarar meistaranna a Sauðárkróki og við hituðum upp fyrir spennandi vetur í körfunni me...2023-09-2838 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP07 - Fanndís, Addi Grétars og Björgvin PállÞvílíkur dagur fyrir þetta dropp! Við hófum okkur til flugs í hádeginu enda nóg um að vera í félaginu nú þegar handboltinn er kominn á fulla ferð. Við hreinlega lágum í símanum í tæpan klukkutíma. Slógum meðal annars á þráðinn til Fanndísar Friðriksdóttur og spurðum hana út í ferðalag stelpnanna til Albaníu, leikina þar og dráttinn á föstudag sem er framundan í Meistaradeild kvenna. Við ræddum líka lokasprettinn í Bestu deild kvenna en þegar við bjölluðum lá ekki fyrir að Fanndís og liðsfélagar færu á koddann í kvöld sem Íslandsmeistarar. Til...2023-09-1347 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP06 - Elísa Viðars - Þáttur frá 30. ágústEftir sumarleyfi, tæknivesen og golfbakteríu mættum við vængstífðir og uppveðraðir á fjalir Borgarholtsskóla eða President Borgó eins og hann hefur verið kallaður. Nýtt stúdíó og ný hljóðmynd kynnt til leiks! Og það var heldur betur margt að ræða! Meðal annars var hringt í Elísu Viðars en stelpurnar okkar i fótboltanum eru að fara til Albaniu a mánudag i Evrópukeppnina og þá heyrðum i Valsara vikunnar sem ætlar að endurvekja golfmót Vals núna í september. Við ræddum körfubolta, fyrirkomulagið á sýningarréttinum í handboltanum, 40 ára afmælish...2023-09-1342 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP05 - Allt í gangi, afmælisdagur og Birkir MárAfmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórleik á dögunum gegn KR-ingunum og lagði upp þrjú mörk. Við fórum yfir leikinn sem hann segir jafnvel komast á topp fimm listann yfir bestu leiki sem hann hef...2023-05-1239 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP05 - Fyrsti leikur í bestu og úrslitakeppnirnar innanhússArnór Ben, einn harðasti stuðningsmaður Vals settist niður með Vængjunum að loknum leik Vals og Stjörnunnar í Origo í úrslitakeppninni í körfu karla. Við höfðum nauman tíma áður en húsinu var lokað en ræddum stórsýningu Kára Jónssonar í leiknum, stöðuna í einvíginu við Stjörnuna og Hauka kvennamegin í körfunni og mögulegan þríhöfða hjá okkur Völsurum á sunnudaginn næstkomandi þegar Valur spilar meðal annars við Blika í Bestu deild karla. Þá gerðum við upp leikinn við ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildar karla en Arnór er einn þeirra sem heldur úti Fasteignafél...2023-04-1227 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP04 - Farið yfir sviðið og Arnar Grétars í spjalliVið settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka! Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflokkunum í körfunni nú þegar stutt er í úrslitakeppnina. Og svo er það morgundagurinn! Framundan er sannkallað stríð gegn þýska stórliðinu Göppingen hjá strákunum í handboltanum og ljóst að Evrópuhöllin okkar mun s...2023-03-2038 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP03 - Hitað upp fyrir leikinn gegn PAUC - Fúsi, Gaupi og Dagur SigHér er dottinn inn sérstakur upphitunarþáttur fyrir stórleikinn í Evrópudeildinni í handknattleik annað kvöld þegar Valsmenn mæta franska liðinu Pauc. Af þessu tilefni var farið á sérstakan Evrópurúnt í hlaðvarpinu Vængjum þöndum. Við byrjuðum í Skipholtinu hjá Sigfúsi Sigurðssyni en hann afgreiddi af miklum móð fiskibollur í tilefni dagsins. Fúsi hefur að sjálfsögðu ekki látið sig vanta á leikina í vetur og hann ræddi við okkur um hans tilfinningu fyrir liðinu og leiknum á morgun. Þaðan var brunað á Hlíðarenda þar sem æfing liðsins var að klárast og verið að stilla upp í blaðamannafund...2023-02-2025 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP02 - Björgvin PállOlís deildin í handbolta er farin að rúlla af stað á nýjan leik eftir HM-hléið. Við fengum Björgvin Pál í smá heimsókn í Toggastofu og fórum yfir vertíðina framundan í handboltanum. Við ræddum aðeins heimsmeistaramótið sem er að baki, Evrópuleikina næstu vikurnar þar sem allt verður undir og taktinn að spila tvo leiki á viku í deild og Evrópu. Valsliðið er þessa stundina á ferðalagi til Flensburg þar sem er framundan spennandi verkefni gegn einu besta liði Þýskalands. Við fórum svo líka stuttlega yfir stöðu handboltans almennt með Bjögga. Njótið!2023-02-0526 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE5 - EP01 - Arnar GrétarsArnar Grétarsson, þjálfari okkar í fótboltanum, settist í Toggastofu eftir matarbita í Fjósinu. Trúlega hefði þetta geta verið fimm tíma spjall enda ekkert eðlilega gaman að tala um fótbolta við Arnar. Hann er hafsjór af fróðleik og metnaðurinn hreinlega lekur af honum. Hann vill gera allt til að vinna. Og hér er klukkutímaspjall um hvernig við förum upp í hæstu hæðir á ný. Leiðin þangað er grýtt en Arnar hefur skýra sýn um það hvernig hann vill gera hlutina. Jóhann Alfreð forfallaðist á síðustu stundu vegna Gettu Betur sem hefst i...2023-01-0958 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP11 - Áramótaþáttur - Dagur og Bjarki Sig og PavelÁramótaþáttur Vængjum þöndum. Í Valsblaðinu sem kom út fyrir stuttu síðan mátti finna viðtal sem bræðurnir Dagur og Bjarki Sig tóku við Pavel Ermolinskij í Toggastofu. Spjallið þeirra var tekið upp og birtist nú í hlaðvarpinu í lengri útgáfu. Það er eiginlega næg kynning og engu við það að bæta. Njótið vel og gleðilegt ár kæru Valsmenn. Takk fyrir hlustanir og takk fyrir árið 2022 þar sem sex titlar komu í hús. Heyrumst á nýju ári.2022-12-3059 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE4 - EP10 - Snorri SteinnSnorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Meistaraflokks karla, kom í Toggastofu, til að fara yfir þær áskoranir sem eru framundan hjá liðinu. ÍR í kvöld, FTC á þriðjudag á dúknum í Origo í Evrópudeildinni, Grótta á föstudag og loks Benedorm á laugardag. Já, það er nóg framundan og þjálfarinn talaði tæpitungulaust og fór ekki í felur með hversu stórt þetta Evrópuævintýri okkar er. Snorri er einstakur maður og það er gaman að hlusta á hann tala af ástríðu um liðið okkar og félagið. Þetta er góð hlustun. Við eiginlega lofum. Í síðari hlutanum settumst við Vængjamenn niður og...2022-10-2149 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE4 - EP9 - Björgvin PállÞað var rífandi stuð i Toggastofu þegar einn af okkar bestu félagsmönnum Björgvin Páll Gústavsson fékk sér sæti, nýkominn af sófadögum Húsgagnarhallarinnar. Bjöggi hefur komið eins og stormsveipur inn i félagið okkar og Valssporið er ein af hugmyndunum sem hann hefur verið að útfæra þar. Hann fór yfir mjög spennandi vetur sem er framundan í handboltanum og stemmninguna fyrir ævintýrinu sem er handan við hornið út um alla álfuna í Evrópudeildinni i handbolta og uppganginn í íslenskum handbolta. Rétt áður en Björgvin leit við var litið yfir leiki Vals og...2022-09-0734 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE4 - EP8 - Elísa Viðars og Arna SifStórleikur framundan á laugardag. Gestir hlaðvarpsins voru þær Elísa Viðarsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir. Þær fóru yfir komandi bikarúrslitaleik og rúlluðu yfir ævintýrið í Slóveníu. Örnu leið ekkert sérstaklega vel í öllum hitanum eins og hún segir frá og Elísa gaf matnum á heilsuhótelinu sem þær gistu á ágætis meðmæli en var ekki alveg klár í að gefa honum alveg fimm stjörnur. Framundan er ekkert smá skemmtilegur tími fyrir stelpurnar okkar enda stórleikir á hverju strái. Það er ekkert minna en skyldumæting í dalinn á laugardag. Eftir stuttar au...2022-08-2440 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP7 - Birkir MárVængirnir flugu af stað að nýju eftir sumarfrí og settust í Toggastofu eftir dásamlegan 2:0 sigur á Fimleikafélaginu. Við fórum um víðan völl, lentum í batterísveseni og öðrum skakkaföllum en héldum okkar sjó og bulluðum okkur í gegnum allskonar. Birkir Már kom í Toggastofu og fór yfir tímann sinn hjá Hammarby en tveir áhorfendur vöktu athygli Vængjanna, klædd í grænt og öskruðu Áfram Valur. Þau voru kominn til að sjá sína menn, Birki, Aron og Arnór. Framundan er skemmtilegur tími. Strákarnir í fótboltanum eru komnir á beinu brautina, stelpurnar að fara í...2022-08-0432 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP6 - Jói Skúli og draumalið erlendra leikmanna í ValJói Skúli settist í Toggastofu og valdi besta lið erlendra leikmanna í Val. Patrick Pedersen var að sjálfsögðu sjálfkjörin en Jói ákvað að hafa liðið frá svona 1997 til dagsins í dag. Jói er hafsjór af fróðleik og Podcast hans Draumaliðið er ekkert minna en stórkostleg heimild um horfna tíma. Nýr þáttur kom einmitt út í dag um Sumarið 2013. Hann fór um víðan völl og rifjaði upp marga gamla og misgóða erlenda leikmenn sem hafa komið og klætt sig í rauðu treyjuna. Þá rifjuðum við upp Blikaleikinn og fórum yfir Leiknisle...2022-06-241h 15Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP5 - Snorri Steinn og Finnur Freyr„Ég er harðasti stuðningsmaður handboltaliðs Vals“ Það hefur vart farið brosið af íslandsmeisturunum og skrifstofufélögunum Snorri Steini og Finni Frey sem kíktu til okkar í Toggastofu og fóru yfir titlana í handboltanum og körfuboltanum. Þetta er sérstök hátíðar útgáfa af Vængjunum enda fjögur ár síðan fyrsti þáttur fór í loftið og er boðið upp á sérstaklega gott hljóð að þessu sinni. Finnur vill meina að handboltaliðið okkar sé besta íþróttalið landsins og Snorri hefur óbilandi trú á sér sem skotmaður í körfubolta enda trúir hann því alltaf að næsta skot fari niður...2022-06-0853 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP4- Agnar SmáriHann hefur vakið verskuldaða athygli í stúkunni alla úrslitakeppnina í körfunni enda í geggjuðu formi. Hinn stórkostlegi Agnar Smári Jónsson leikmaður meistaraflokks karla í handbolti er stuðningsmaður númer eitt og kíkti í Toggastofu til okkar Vængjanna. Hann segist hafa tekið sér Birki Má Sævarsson til fyrirmyndar og reyni að mæta á flest alla heimaleiki Vals. Aggi hitar upp fyrir oddaleikinn á morgun og svo auðvitað úrslitaeinvígið gegn ÍBV þar sem stefnan er sett á að verða íslands- og bikarmeistarar tvö ár í röð. Við spáum einnig í einvígið gegn Fram og leikinn gegn Víkingum þar sem mágur Agga...2022-05-1742 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP3 - Finnur FreyrGóðan og gleðilegan kjördag. Trúlega eru einhverjir ennþá að jafna sig eftir fimmtudagskvöldið. Þvílíkur rússibani af tilfinningum. Fyrst hjá stelpunum í handbolta og svo í körfunni hjá drengjunum okkar. Maí er dásamlegur tími til að halda með Val. Svo einfalt er það. Við í Vængjunum settumst niður með Finn þjálfara í körfunni og fengum hann aðeins til að tala við okkur um leikinn, svefnlausu næturnar og raunverulega MVP í úrslitaeinvíginu en Finnur þakkar konu sinni fyrir að leyfa sér að vera eins og hann verður í þessar sjö vikur sem úrslitakeppnin stendur yfir...2022-05-1441 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP2 - PavelÞað var líf og fjör í Toggastofu í dag þegar sjálfur Pavel Ermolinskij settist niður og fór aðeins yfir körfuboltaveturinn og komandi úrslitaeinvígi. Pavel er orðinn gegnheill Valsari og elskar að labba um gangana og hitta aðra í Val til að ræða hlutina. Hann meira að segja stoppaði Snorra Stein til að ræða um leik FH og Selfoss. Eftir körfuboltafróðleik hitum við aðeins upp fyrir komandi menningarviðburð á morgun þegar KR kemur í heimsókn í Bestu deildinni. Það verður gleði og glaumur. Þetta var spjall sem fór um hvippinn og hvappinn og eiginlega um...2022-04-3029 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 - EP1 - Yfirferð og hringborðLoksins loksins var tækifæri til að setjast niður og tala um Val. En vegna ýmissa vandkvæða, þá aðallega þeirrar skæðu, höfum við verið á hóld i allt of langan tíma. En öll él styttir upp og við komum saman í sérstöku SvansStúdíói bara til að segja hæ við hvorn annan og hann Stígur Helgason hoppaði um borð. Þetta endaði reyndar í góðum klukkutíma enda langt siðan síðast. Yfirferð yfir handboltann, körfu og fótboltann og spjallað um skemmti- og upphitunarkvöld sem Vængirnir vinna að í aðdraganda fyrsta leiks í Best...2022-03-101h 17Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE4 - EP16 - Lárus SigurðssonLárus Sigurðsson passar að höfuðstóllinn lækki aldrei. Hann stökk yfir af skrifstofunni og kikti i Toggastofuna og sagði okkur Vængjamönnum aðeins um Valsmenn Ses, uppbygginguna, pælingarnar sem eru i gangi og hvað hann vill sjá. Svo tókum við aðeins ferilinn að sjálfsögðu en Lalli lagði skóna a hilluna aðeins 27 ára. Hann fór yfir skotæfingarnar með Arnóri Guð og ýmislegt fleira i löngu og góðu spjalli enda Lalli ákaflega skemmtilegur maður. Eftir stutt auglýsingahlé fóru Breki og Benni yfir fréttir vikunn...2021-11-1355 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP15Finnur Freyr kikti við i Toggastofu og fór yfir körfuboltann i Val. Hann gerði upp seríuna við KR, fór yfir leikmannahópinn sem hann hefur í höndunum og hvað það sé gaman að kveikja ljós í körfuboltanum í Val - enda er það jákvætt vandamál að aðstaðan sé sprunginn.2021-10-1437 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP14 - Björgvin PállÞað var magnað að labba inn í Origo-höllina á þriðjudagskvöld þegar Valsmenn mættu Lemgo í hörkurimmu í Evrópukeppninni í handbolta. Veturinn ber fögur fyrirheit og við fengum einn nýjasta liðsmann okkar, landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Gústavsson til að setjast niður með okkur í Toggastofu. Við fórum að sjálfsögðu yfir leikinn á þriðjudagskvöld, atvikið umdeilda og hvernig hann er að upplifa lífið í Val. Það var eins og Bjöggi hafi alltaf verið í Val. Hann er svo sannarlega ekki að tjalda til einnar nætur og ætlar sér að marka spor í sögu félagsins. Magnað spjall og v...2021-09-2344 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP13 - Titlaspjall við Fanndísi Friðriks og Elísu ViðarsÞær Elísa Viðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir mættu í Toggastofu til að fara yfir Íslandsmeistarasumarið. Þó tvær umferðir séu eftir er 124 titill okkar Valsmanna kominn í hús. Því ber að fagna og spjalla um. Þær Eyjasystur fóru um víðan völl. Stuðið um kvöldið og hvernig hægt væri að fagna þessum titli í raun þrisvar sinnum. Tapið gegn Blikum en einnig var stígið inn í kvennréttindabaráttuna. Þar hrósuðu þær þjálfara sínum Pétri Péturssyni fyrir sína baráttu en um leið er leiðinlegt að heyra að það þurfi að berjast enn f...2021-08-2757 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP12 - Birkir HeimisLangt síðan síðast og löngu kominn tími á að setjast yfir málin í Toggastofu. Og við fengum góðan gest til okkar. Birkir Heimisson hefur vakið athygli fyrir góða spilamennsku á tímabilinu. Þessi ungi leikmaður fór yfir uppvaxtarárin í Þorpinu, tímann sinn í Hollandi og veru sína í Val í stuttu spjalli. Við gíruðum okkur auðvitað fyrir Víkingsleikinn og eftir að Birkir hvarf á braut fórum við stuttlega yfir stöðuna bæði karla- og kvennamegin í fótboltanum.2021-08-1935 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP11 - Kristinn Freyr og TúfaÞað er orðið langt um liðið frá síðustu útgáfu og löngu orðið tímabært að setjast aðeins niður. Að þessu sinni hituðum við upp fyrir stórleikinn sem framundan er í Meistaradeildinni gegn Dinamo Zagreb annað kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals settist niður, fór yfir ferðasöguna til Króatíu, fyrri leikinn, spáði í spilinn fyrir leikinn á morgun og loks var aðeins farið yfir tímabils Valsmanna í deildinni fram að þessu en deildarkeppnin er rúmlega hálfnuð. Í blálokin birtist svo aðstoðarþjálfari Vals, Túfa og í stuttu spjalli hi2021-07-1235 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP10 - Óskar BjarniÞað er stór vika framundan á Hlíðarenda. Eftir dramatíska lokamínútu gegn ÍBV er meistarflokkur karla í handbolta komið í úrslitaeinvígi gegn systurfélaginu Haukum. Stórleikur á Hlíðarenda annað kvöld og við fengum engan annan en Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara liðsins í stutt spjall til að fara yfir úrslitakeppnina fram að þessu og hituðum svo upp fyrir einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Í seinni hlutanum fórum við stuttlega yfir síðustu leiki Vals í knattspyrnunni, spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Blikum á miðvikudag og hvað kynni að koma upp úr hattinum í fyrramálið þegar dregið verður í Evrópukeppninni þar sem Valsm2021-06-1431 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP9 - Svali BjörgvinsValur eru Íslandsmeistarar kvenna í körfuknattleik og karlaliðið stimplaði sig svo sannarlega inn meðal þeirra bestu í rafmögnuðu einvígi við KR-inga. Það var þess vegna góður dagur í Toggastofu á Hlíðarenda þegar við tókum á móti sjálfum Svala Björgvinssyni, formanni körfuknattleiksdeildarinnar. Við gerðum upp magnaðan en líka krefjandi vetur í körfunni í Val. Frasakóngurinn sjálfur er auðvitað hafsjór af fróðleik og við áttum skemmtilegt spjall um Frank Booker, 800 metra hlaupin í Bandaríkjunum, uppbyggingu körfunnar í Val, veturinn sem var og auðvitað var rætt um goðsögnina Helenu Sverrisdóttur. Í lok þáttar...2021-06-0555 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 - EP8 - Einar Örn Jónsson,,Það er sirka 70% vinna að halda með Val þessa dagana” sagði seinni viðmælandi Vængjanna í útgáfu dagsins. Það átti vel við enda bókstaflega allt í gangi á Hlíðarenda þessa dagana. Þar af leiðandi fengum við einn af okkar allra bestu sonum, íþróttafréttamanninn Einar Örn Jónsson, í Þorgrímsstofu og fórum vítt yfir sviðið og landsslagið í íþróttunum. Það er jú nánast þannig að það er nánast full vinna að halda með Val þegar sex deildir berjast á öllum vígstöðvum. Einar Örn ólst upp á Hlíðarenda og spilaði með handboltaliðinu til aldamóta þegar hann gekk í raðir Hauka. Ei...2021-05-1843 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 EP7 - Elísa Viðars og Eiður BenVængirnir strikuðu niður á Hlíðarenda nú þegar rúmur sólarhringur er í fyrsta leik Vals í Pepsi Max deild kvenna. Eiður Ben, aðstoðarþjálfari og Elísa Viðarsdóttir, reynslubolti í liðinu komu í skemmtilegt spjall. Við fórum yfir komandi sumar, breytingar á hópnum, markmiðin, komandi Evrópukeppni og stöðuna í kvennaboltanum almennt. Í seinni hlutanum leit við Stígur Helgason, fréttamaður í uppgjör á fyrsta leik karlaliðsins gegn Skaganum og í örlitla upphitun fyrir FH-leikinn á sunnudag.2021-05-0543 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpSE3 EP6 - Andri Adolphs, Arnór Smára og Tómas ÞórMótið er handan við hornið og Vængjum Þöndum tók á loft í Toggastofu með þá Andra Adolphson og Arnór Smárason enda er fyrsti leikurinn gegn ÍA á föstudag. Báðir þekkja vel til á Skaganum. Andri flutti ungur að árum upp á Skipaskaga og Arnór er uppalinn þar á bæ. Andri er að koma til baka eftir erfið meiðsli og Arnór er að verða klappaður og klár eftir að hafa verið lengi frá. Þeir fóru aðeins yfir sviðið, komandi tímabil, meiðslin og markmiðin. Í lokin kom svo Tómas Þór, ritstjóri enska boltans á Íslandi og einhver fróðast...2021-04-291h 10Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpHöll Minningana II - Valur-Fram 1998Vængirnir fljúga afram þótt Covid hafi sett allt annað i stopp. Höll minninga snýr aftur og nú er komið að því að rifja upp einn eftirminnilegasta titil okkar i handboltanum - bikarmeistaratitilinn 1998. Við fengum tvo af okkar dáðustu sonum Óskar Bjarna og Theódór Valsson til að rifja upp þennan magnaða leik og gullaldarárin í handboltanum á þessu tíma.2021-03-3057 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum SE3 EP5 - Birkir MárVængirnir mínus Gettu betur stjarnan Jóhann Alfreð fengu einn okkar allra dáðasta son Birki Ma til að kikja i Toggastofu og fara yfir málin. Birkir kom a hlaupahjóli með þungarokk i eyrunum. Það styttist i 100 landsleikina hjá okkar manni en það er fátt skemmtilegra en að setjast niður með Birki og tala um fótbolta. Við fórum lika aðeins yfir stöðuna i hand- og körfubolta en aðalmalið var landsliðið og leikurinn a laugardag, Valur - kr. Sjáumst i hádeginu a laugardag.2021-03-1836 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S4EP3 - HeimirVið náðum í Heimi Guðjónsson á milli æfinga hjá karlaliði Vals í fótbolta. Valsmenn taka nú fullan vinnudag tvisvar í viku. Við forvitnuðumst um það, hvernig leikmannamálin standa og hituðum upp fyrir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins sem fram fer á morgun.2021-02-0522 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S4 EP2 - Finnur FreyrFinnur Freyr þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta kíkti í Toggastofu. Við fórum yfir stöðuna á liðinu, markmiðin í vetur, sóknina í körfunni á Hlíðarenda og hituðum upp fyrir stórleikinn framundan gegn KR í Dominos-deildinni.2021-01-1738 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS4 EP1 - Höll Minningana I - Bjössi og Bjarni ÓlafurEnn er ekkert spilað og því göngum við inn í Höll minninganna sem er nýr liður sem verður vonandi endurtekinn reglulega. Að þessu sinni rifjum við upp sumarið 2007, þegar karlaliðið í fótbolta varð Íslandsmeistari. Við fengum tvo af máttarstólpunum þetta sumarið, fyrirliðann Sigurbjörn Hreiðarsson og Bjarna Ólaf Eiríksson sem fóru yfir ævintýrið þegar við lönduðum þeim stóra í fyrsta skipti í tuttugu ár.2021-01-1459 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpS3 EP17 - ÁramótauppgjörVið áramót er gott að staldra við og líta um öxl. Í þessari sérstöku áramótaútgáfu fengum við þjálfara Vals í handknattleik karla og Valsgoðsögnina Snorra Stein Guðjónsson til að líta við. Við tókum púlsinn á liðinu en stefnt er að því að byrja að spila í seinni hluta janúar og hituðum líka upp fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta sem er framundan. Þá mætti Valgeir Lunddal til okkar í kveðjuspjall. Hann er á förum frá félaginu eftir frábært sumar og mun ganga til liðs við Hacken í Svíþjóð.2020-12-301h 05Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum - S3 EP16 - Eiður BenVið höldum áfram að gera upp liðið tímabil í fótboltanum í Val og nú er komið kvennatímabilinu. Við fengum aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna, hann Eið Ben í gott spjall. Fórum yfir sumarið, úrslitaleikina við Blika, Evrópuleikina nú á dögunum og mögulegar hræringar í leikmannamálum.2020-11-3038 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 EP15 - Heimir GuðjónsVið gerðum upp liðið tímabil nú þegar ákveðið hefur verið að setja punkt fyrir aftan Íslandsmótið 2020. Valur er Íslandsmeistari karla og Heimir Guðjónsson, þjálfari mætti í spjall. Fórum um víðan völl, ræddum liðið tímabil, umgjörðina í Val og það sem framtíðin ber í skauti sér. Í seinni hlutanum mætti góðvinur þáttarins Stígur Helgason. Fórum yfir leik stelpnanna í meistaradeildinni gegn Glasgow áður en við helltum okkur í að gera upp liðið sumar.2020-11-191h 11Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 EP14Þær Mist Edvardsdóttir og Elísa Viðarsdóttir kíktu til okkar Vængjabræðra þar sem ýmislegt var rætt. Besta bíómyndin, kúlturinn í Val, næringuna og auðvitað komandi leik gegn Breiðablik. Úrslitaleikinn um titilinn en stelpurnar fóru í taktík í dag og á föstudag verður skipt í ungir gamlir og endað á skotkeppni en ungar hafa ekki unnið í tvö ár. Þetta er góður hálftími og gleðilegur enda stutt í sannkallaðan stórleik. Mætum öll og styðjum okkar fólk til góðra verka.2020-10-0130 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S3 E13Þeir Breki Logason og Benedikt Bóas settust niður eftir jafnteflið við Blika og ræddu þessa mögnuðu viku og þessa stórsigra sem unnust áður en bakverðirnir okkar mættu á svæðið til að fara yfir sama svið. Valgeir Lundal átti 19 ára afmæli í vikunni og Birkir Már getur ekki hætt að skora. Magnaðir báðir tveir.2020-09-2829 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3E12Benedikt Bóas, Breki Logason og Stígur Helgason settust niður eftir níunda sigurleikinn í röð. Spjölluðu aðeins en þessir leikir sem byrja svona seint eru greinilega ekki gerðir fyrir Podcast því það þurfti að hætta skyndilega - enda þjófavarnakerfið að fara af stað. Það var því aðeins farið yfir leikinn og gesturinn slapp við mætingu þó við sem þekkjum skólakerfið setjum S á kappann.2020-09-1422 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S3 E11Frábær vika að baki á Hlíðarenda. Benni Bóas og Jói Alfreð fóru yfir KR-leikinn og tóku svo á móti nýstirni Vals, bakverðinum Valgeiri Lunddal Friðrikssyni. Við ræddum fótboltasumarið fram að þessu, tíma hans í Val, að kötta inn af vinstri og draumana um atvinnumenskuna.2020-08-2841 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S3 E10Bikarsigur og áfram skundum við í bikarnum þar sem andstæðingarnir verða HK, einhvern tímann í september. Patrick, Lasse og Einar Karl skoruðu mörkin fyrir okkur. Það lá aðeins á okkar mönnum um tíma en varnarlínan var þétt sem fyrr. Það var því við hæfi að fá Eið Aron í heimsókn eftir leik í Þorgrímsstofu, þar sem hann er einn af okkar uppáhalds. Hann fór aðeins yfir málin og talaði hreint út. Sagðist ætla sofa í svokölluðum compression buxum. Hann fór yfir sviðið. Hvernig byrjunin fór í hann og meiðslin sem hann varð fyrir KR og h...2020-08-1926 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 E9Vængjabræður, Benedikt Bóas og Breki Logason, settust niður með markaskorara dagsins, Kidda Frey, eftir leikinn gegn KA. Kiddi hefur verið lengi í Val, lítur á sig sem Valsara og segir að hann sé loksins orðinn heill heilsu. Hann geti jafnvel farið í gönguferð með dóttur sína án þess að finna til verkja.2020-08-1536 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 E8Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð fengu leyfi frá Víði til að mæta og hitta formann vor, Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildarinnar, fór yfir danatenginguna, komu Gunnhildar Yrsu, Covid krísuhópinn sem aldrei varð og komandi leiki. Það er alltaf gaman að hlusta á Börk tala um fótbolta og félagið. Góða helgi.2020-08-1430 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpViðhafnarútgáfa Jón Arnór mætturGleðifréttir, ekki aðeins fyrir Val heldur íslenskan körfubolta, sagði Svali Björgvinsson formaður körfuboltadeildarinnar þegar hann kynnti Jón Arnór Stefánsson til leiks. Jón þarf ekki mikið að kynna. Hann er jú besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið og ber sterkar taugar til Vals. Vængjamenn blésu í hátíðarlúðurinn og hittu á Jón og Finn þjálfara.2020-08-0525 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3E7Benedikt Bóas mætti hás og líkari Bryan Adams en sjálfum sér, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu Birki Má Sævarsson til að fara yfir leikinn gegn Fylki. Ýmislegt skemmtilegt bar á góma eins og færið hans Patrick, Hamarby og Leeds að sjálfsögðu, Birkir er jú einn harðasti Leeds-ari landsins.2020-07-2421 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjumÞ20.7Breki og Benedikt Bóas hittust í hádeginu og gerðu tilraun. Óvænt innkoma Jóa frá Húsavík. Fóru yfir Blikaleikinn og komandi verkefni gegn einmitt Blikum. Örlítil tæknivandamál hafa verið að hrjá hópinn en það er þetta með kappið og fegurðina. Áfram Valur.2020-07-2031 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 E5Benni, Breki og Jóhann Alfreð settust niður yfir kaffibolla og fóru yfir það sem á dagana hefur drifið í fótboltanum í Val undanfarnar vikur.2020-07-1128 minValur - HljóðvarpValur - Hljóðvarp25. júní - Ákall til stuðningsmannaVængjum Þöndum, hlaðvarp okkar Valsmanna, eru með áhyggjur af andanum í stúkunni þessa vikuna. Þeir ákváðu því að kalla til sín einn af okkar allra sterkustu leikmönnum sem klæðst hefur Valsjakkanum. Arnór Ben var ekki sá liprasti á vellinum þegar Benedikt Bóas þjálfaði hann í 7.flokki en hann hefur vakið athygli í stúkunni. Arnór sem er raddtvífari Óskars Bjarna segist brenna fyri klúbbinn og ætlar sér að rífa upp stemmninguna á pöllunum. Kristjáns-Mínútan, Stuðningssveit Séra Friðriks og áætlanir Arnórs og félaga koma til tals ásamt ágætri byrjun Valsliðann...2020-06-2644 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S3 E3Benedikt Bóas, Breki Loga og Jói Alfreð kíktu í Podcastherbergi Séra Friðriks. Fengu Stíg Helgason, fréttamann RÚV, óvænt í fangið og buðu hann velkominn með í sýninguna. Siggi Lár kíkti svo við.2020-06-1040 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S3E2Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð kíktu í Valsheimilið og hittu á meistara Srdjan Tufegdzic, Túfa. Hann hefur sögu að segja og er að klára UEFA PRO gráðuna með Robbie Keane. Toppmaður. Þeir félagar spjölluðu einnig aðeins um komandi æfingarleiki gegn Keflavík og Blikum á sunnudag. Vonandi hafið þið gagn og gaman af.2020-05-2750 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S3E1Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu loksins að kíkja við og dusta rykið af Podcastgræjunni, setjast í sófann og anda að sér sögunni. Heimir Guðjónsson, kóngurinn á hliðarlínunni, kíkti í heimsókn sem var svo skemmtileg að drengirnir héldu áfram að spjalla um allt og ekkert langt frameftir.2020-05-2043 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpKóvídPod tilraunHeimamenn, settust niður og prófuðu að tala um fótbolta á þessum síðustu og verstu. Benedikt Bóas sat í Melgerðinu, Breki Logason sat við Your Day Tours og Jói Alfreð var heima hjá sér í Laugardalnum. Spjall sem fór úr einu í annað. Þetta er tilraun svo bannað að dæma mjög hart en vonandi léttir þetta einhverjum Valsmönnum lundina.2020-03-2532 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E12Áfram gakk sagði einhver snillingurinn. Titlaleikur á morgun og svo Grindavík á sunnudag. Farið yfir sviðið svona á léttu nótunum. Fínt inn í helgina. Vængjum þöndum er að sjálfsögðu í boði Session þar sem gott er að sitja og gaman er að njóta. Ofboðslega skemmtilegur og góður bar.2019-09-2029 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E11Það kom einhvern veginn bara einn maður til greina til að rúlla yfir komandi daga. Pétur Pétursson, þjálfari stelpnanna okkar. Hann fékk líka að tala í gullin míkrafón. Það var skemmtilegt. Pétur þekkti Atla Eðvaldsson, þekkir KR sem kíkir til okkar í heimsókn á mánudag og hver er betri til að ræða við um komandi stórslag á sunnudag gegn Blikum. Þar verður stuð - þar verður gaman. Vængjum þöndum er í boði Session, Bankastræti 14. Þar er gott að sitja.2019-09-1241 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E10Fjölskyldu stemmari, stuð og fjör. MorgunverðarPodcast fyrir ÍBV leikinn þar sem er farið um víðan völl sem fyrr. Benedikt Bóas, Jóhann Alfreð og Breki Logason fengu sér kaffi og graut.2019-08-3122 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E9Gott og gleðilegt hádegisspjall um komandi leik gegn Blikum og aðeins farið yfir leikinn gegn FH, pistill Brynjars Harðar og bara þetta klassíska - almenn vitleysa. Vængjum þöndum flýgur með Session Bar þar sem gott er að sitja - sérstaklega um helgar.2019-08-1636 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E8Það var góðmennt á Session Bar þegar Vængjum þöndum snéri aftur eftir örlítið hlé. Ólafur Karl Finsen heiðraði Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð með nærveru sinni sem og kaupmaðurinn á horninu, Sigurður Pálmi, Spjallið fór um víðan völl. Allt frá erfiðu ferðalagi til Búlgaríu, styrkleika Bjarna Ólafs, Fylkissigurinn var krufinn og hitað upp fyrir FH. Þess á milli var bara bullað og vitleysan flæddi um borð Session. Ekkert sérstaklega flókið.2019-08-1039 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E7Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu sér sæti á góðum bar úti í góða veðrinu og ræddu um Víkingsleikinn og komandi Evrópuleik gegn Ludogorets. Vængjum þöndum er í boði Session bar þar sem er gott að skála, gaman að sitja og þægilegt að fá sér einn eða tvo.2019-07-2331 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum S2 E6Benedikt Bóas, Breki Logason og Matthías Guðmundsson fóru í gegnum KA leikinn og hituðu upp fyrir Maribor. Það var ekki leiðinlegt hjá þeim félögum. Vængjum þöndum er í boði Session bar sem er stórkostlegur bar með gott úrval af allsskonar bjór. Þar er gott að vera.2019-07-0942 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S2 E5Hann var dásamlegur bjórinn sem skolaði niður þremur stigum á Session bar. Enginn Breki sem skellti sér á hálendi landsins og var því sest niður með Stefáni Árna og syni hans Gunna til að fara yfir leikinn gegn HK. Þær Lillý Rut Hlynsdóttir og Sandra Sigurðardóttir kíktu svo í heimsókn enda er stórleikur á miðvikudag. Þar verða allir.2019-07-0129 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S2 E4Upphitun fyrir okkar uppáhaldsleik, leikinn gegn KR. Benedikt Bóas og Breki Logason fóru á Hlíðarenda eftir æfingu og hittu á fyrirliðann Hauk Pál. Í seinni hlutanum njóta þeir góðs af visku Jóhanns Alfreðs til að spá og spekúlera í komandi leik, sá kafli var tekinn upp 17. júní á góðum bar. Session craft bar býður upp á Podcast Vals.2019-06-1950 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S2 E3Vængjum þöndum var tekið upp á Session Bar, Bankastræti 14. Frábær staður þar sem góður mjöður fæst. Umsjónarmennirnir Benedikt Bóas og Breki Logason fengu Jóhann Alfreð til að kíkja með sér í einn kaldan og ræða um okkar menn í landsliðinu, komandi leik gegn ÍBV og spá og spekúlera í komandi leik.2019-06-1438 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum S2E2Vængjum Þöndum fór í landsliðsferð. Benedikt Bóas og Breki Logason, umsjónarmenn hlaðvarpsins, fóru að hitta Strákana okkar, Ara Frey og Rúnar Má. Breki sótti vin sinn í vinnuna og rúllaði að hóteli landsliðsins. Og eins og stundum gerist þá er árangurinn á knattspyrnuvellinum ræddur í þaula. Það gerðist einnig að þessu sinni. Eftir gott spjall við þá félaga rúllaði Benedikt niður á Hlíðarenda þar sem Dóra María Lárusdóttir sat fyrir svörum en Valskonur spila leik við Fylki.2019-06-0748 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpLoxins byrjaðirValspodcastið snýr aftur eftir örlitla bið sökum Eurovision ótrúlegt en satt. Session craft bar býður upp á Vængjum þöndum þetta árið og munu Benedikt Bóas og Breki Logason halda um stjórnartaumana. Gestir eru Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Alfreð2019-05-2950 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum Þáttur 10Podcast þáttur Vals þar sem hitað er upp fyrir komandi leik. Einar Karl Ingvarsson kíkti í heimsókn og fór yfir söguna sína, frá ungdómnum í FH yfir í þrumuskotin í Val en hann er sonur Ingvars Guðmundssonar sem átti farsælan feril í Val. Þá kom Tómas Þór í leyniklefan og fór yfir komandi umferð auk þess að ausa úr viskubrunni sínum. Hann ræddi um handboltann og sjónvarpsmálin fyrir komandi vetur. Leyniklefinn lét illa að stjórn og hljóðið á öðrum míkrafóninum var aðeins að stríða okkur. En það kostar lítið að hækka.2018-08-231h 03Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpBjossiSigurbjörn Hreiðarsson, leit við í sérstöku Evrópu podcasti þar sem Valsmenn og aðrir fá að fræðast um hið ótrúlega ferðalag liðsins til og frá Moldóvíu. Um komandi andstæðing Sherif og svo auðvitað aðeins um Liverpool og Pepsi deildina. Það er auðvelt að sitja með Bjössa og hlusta á hann tala um fótbolta.2018-08-1542 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum - EvrópuþátturSérstakur viðhafnarþáttur af Vængjum þöndum. Jón Grétar Jónsson og Þorgrímur Þráinsson settust niður í stúdíó og rifjuðu upp nokkra Evrópuleiki. Þegar Kevin Keegan spilaði með Hamburg, viðureignina við Mónakó þar sem Arsené Wenger var við stjórnvölin og auðvitað leikina við Juventus. Ferðalagið sjálft þegar spilað var við Wismut Aue og möguleikana gegn Rosenborg. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas2018-07-1037 minValur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum Þöndum þáttur 8Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas Gestir: Anton Ari Einarsson, Kjartan Sturluson og Elvar Geir Magnússon.2018-07-041h 26Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpVængjum þöndum þáttur 6Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas Gestir: Eiður Aron Sigurbjörnsson, Matthías Guðmundsson og Gunnar Birgisson2018-06-191h 11Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 5Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas Gestir: Birkir Már Sævarsson, Henson og Elvar Geir Magnússon2018-06-071h 42Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 4Valspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 4 by Knattspyrnufélagið Valur - Podcast2018-05-251h 13Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 3Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas Gestir: Sigurður Egill, Hörður Hilmars og Tómas Þór.2018-05-161h 00Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 2Benedikt Bóas fær til sín góða gesti. Fyrstur á mælendaskrá er Guðjón Pétur Lýðsson, í kjölfarið mætir Dóra María Lárusdóttir og að endingu kemur Henry Birgir og hitar upp fyrir næstu umferð ásamt Benna. Hljóðið er eitthvað bjagað hjá Dóru Maríu og biðjumst við velvirðingar á því.2018-05-031h 13Valur - HljóðvarpValur - HljóðvarpValspodcast - Vængjum þöndum, þáttur 1Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni. Umsjónarmaður: Benedikt Bóas Gestir: Haukur Páll, Anthony Karl og Tómas Þór.2018-04-241h 10