Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Kviðakastið

Shows

KvíðakastiðKvíðakastið85. Styrkár Hallsson - FíknivandiÞátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík Foto. Afsláttarkóðinn Kvidakastid15 gefur 15% afslátt af öllum vörum á fors.is. Styrkár Hallson starfar á fíknigeðsviði spítalans (Teigi) og hjá Sálfræðingunum. Einnig hefur Styrkár komið að kennslu fyrir nema og meistaranema í sálfræði ásamt því að taka þátt í rannsóknarvinnu hjá Háskólanum í Reykjavík.  Þessi þáttur fjallar um fíknivanda og getur innihaldið umræður sem gætu reynst krefjandi fyrir suma hlustendur. Í þættinum útskýrir Styrkár fyrir okkur muninn á fíkn og ávana, mismunandi birtingarmyndir...2025-02-051h 05KvíðakastiðKvíðakastið84. Þórdís Rúnarsdóttir - Hvað vill fólk vita um átraskanir?Þátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík Foto! Afsláttarkóðinn Kvidakastid15 gefur 15% afslátt af öllum vörum á fors.is. Þórdís Rúnarsdóttir er einn af eigendum Sálfræðistofunnar. Hún útskrifaðist með doktorspróf frá California School of Professional Psychology árið 2007. Hún sinnir mest einstaklingsmeðferð átraskana, kvíða, depurðar og sjálfsmyndarvanda. Einnig er hún verkefnisstjóri forvarnarverkefnisins Sterkari út í lífið. 2024-11-261h 07KvíðakastiðKvíðakastið83. Sigurþóra Bergsdóttir - Reynslusaga og Bergið HeadspaceÞátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík Foto! Afsláttarkóðinn Kvidakastid15 gefur 15% afslátt af öllum vörum á fors.is. Sigurþóra er framkvæmdarstjóri og stofnandi Bergsins headspace og í framboði fyrir Samfylkinguna. Hún segir okkur frá reynslu sinni að missa son sinn úr sjálfsvígi, sorgarferlinu og stofnun Bergsins Headspace í kjölfarið til að veita ungu fólki öruggan stað til að leita til. 2024-11-1148 minKvíðakastiðKvíðakastið82. Leitin að hamingjunniÞátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík Foto! Afsláttarkóðinn kvidakastid15 gefur 15% afslátt af öllum vörum! Í þættinum tölum við um hamingju og hvernig við stuðlum að henni í daglegu lífi. 2024-10-2354 minKvíðakastiðKvíðakastið81. Halla Ósk Ólafsdóttir - Geðhvörf (e. bipolar)Þátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík foto! Afsláttarkóðinn kvidakastid15 gefur 15% afslátt af öllum vörum! Halla Ósk Ólafsdóttir er sálfræðingur í geðhvarfateymi Landspítalans, doktorsnemi og stundarkennari við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum tölum við um einkenni geðhvarfa, förum yfir hvaða meðferð er algengust við geðhvörfum, hverjar helstu áskoranirnar eru í meðferð ásamt því að fara yfir hvaða mýtur eru til staðar um geðhvörf og hvað aðstandendur geta gert þegar grunur er um geðhvörf.2024-09-281h 12KvíðakastiðKvíðakastið80. Dr. Tómas Kristjánsson - SjálfsvígshugsanirTómas Kristjánsson er lektor við Háskóla Íslands og sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Í þessum þætti er fjallað um sjálfsvígshugsanir, þróun þeirra, áhættuþætti, ýmis verkfæri til að kljást við þær, hvert fólk á að leita og hvað aðstandendur geta gert. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is, Píeta símann s.552-2218, bráðamóttöku geðsviðs eða bráðamóttöku í Fossvogi utan opnunartíma geðsviðsins. Þau sem misst hafa ástvin í sjá...2024-09-211h 02KvíðakastiðKvíðakastið79. EinmanaleikiÞátturinn er í boði Fors.is, World Class og Reykjavík Foto! Afsláttarkóði á fors.is: kvidakastid15 fyrir 15% afslátt! Í þættinum förum við yfir orsakir og afleiðingar einmannaleika, algengi og hvernig við getum unnið með hann.2024-09-111h 05KvíðakastiðKvíðakastið78. Halla Margrét Bjarkadóttir - ReynslusagaÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Halla er ráðgjafi (senior consultant) hjá Deloitte í Kaupmannahöfn og hefur byggt upp mikla sjálfsþekkingu og þrautseigju í gegnum ævina. Við förum yfir hennar vinnu í eigin sjálfsmati, ADHD greiningu á fullorðinsárum og ýmis verkfæri sem hún hefur sankað að sér í gegnum mörg ár hjá sálfræðingi.2024-08-211h 24KvíðakastiðKvíðakastið77. Spjall eftir sumariðÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Léttur þáttur þar sem við spyrjum hvort annað óvæntra spurninga. 2024-08-0637 minKvíðakastiðKvíðakastið76. Hvernig er best að taka ákvörðun?Þátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Í þættinum förum við yfir hvernig við tökum ákvörðun, af hverju sumir eiga erfitt með að taka ákvarðanir og hvernig við getum verið ánægðari með ákvarðanirnar okkar. 2024-07-1258 minKvíðakastiðKvíðakastið75. Tómas Páll - Meðferð kvíðaraskannaÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Tómas Páll er einn af eigendum og sálfræðingur á Kvíðaklíníkinni og sérhæfir sig í meðferðum kvíðaraskanna. Í þættinum tölum við meðal annars um ferlið að fara í greiningu og í meðferð við kvíðaröskunum, áskoranir sem koma fram í meðferð og hvernig kvíði getur haft áhrif á sjálfsmyndina. 2024-06-251h 01KvíðakastiðKvíðakastið74. Gyða Hjartardóttir - Samvinna foreldra eftir skilnaðÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Gyða Hjartardóttir er félagsráðgjafi ásamt því að vera umsjónar- og ábyrgaraðili SES á Íslandi, www.samvinnaeftirskilnad.is Í þættinum fræðir hún okkur m.a. um hvernig sé best að tala við börn um skilnað foreldra, líðan barna, umgengi, skipta búsetu, meðlagsgreiðslur, samskipti foreldra og margt fleira.2024-05-271h 08KvíðakastiðKvíðakastið73. Spurningar til okkar! - Q&AÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Í þættinum förum við yfir spurningar sem við fengum á instagram um sálfræðinámið (inntökuferli, mun á HÍ og HR og fleira), hundahræðslu, dagbókarskrif og annað létt og skemmtilegt!2024-05-1357 minKvíðakastiðKvíðakastið72. Tómas Daði Bessason - FrestunÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Tómas er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Í þættinum fræðir hann okkur um vítahring frestunar, óhjálplegar hugsanir sem koma fram í frestun og hvernig við getum tæklað þær ásamt því að að gefa okkur ýmis hagnýt verkfæri.2024-04-281h 28KvíðakastiðKvíðakastið71. Áhugaverðar sálfræðirannsóknir Vol IIIIÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Í þessum fjórða rannsóknarþætti fórum við yfir "the Batman Effect", einmannaleika og að blekkja aðra á stefnumótaforritum. Rannsóknir nefndar: The “Batman Effect”: Improving Perseverance in Young Children - White ofl., 2016 The socioeconomic consequences of loneliness: Evidence from a nationally representative longitudinal study of young adults - Byan ofl, 2024 Deception in online dating: Significance and implications for the first offline date - Sharabi og Cauglin, 2019 2024-04-2136 minKvíðakastiðKvíðakastið70. Ásmundur Gunnarsson - FlughræðslaÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Ási er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og sérhæfir sig í ýmsum kvíðavanda. Í þættinum útskýrir hann hvernig flughræðsla birtist og viðhelst af mismunandi ástæðum, hvað eru óhjálpleg viðbrögð við flughræðslu og hvað sé hægt að gera til ná bata.2024-04-0556 minKvíðakastiðKvíðakastið69. Hvað er grufl?Þátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Í þættinum tölum við um grufl (rumination), hvernig það lýsir sér, hvenær það er óhjálplegt, hvað við getum gert til að taka eftir því og hjálpleg ráð til að takast á við það. 2024-03-2453 minKvíðakastiðKvíðakastiðKlippa: Hvernig finnur þú þín lífsgildi?Þátturinn er í boði World Class! Brot úr þætti 18. Hvað eru lífsgildi og hvernig tengjast þau markmiðum okkar? Í klippunni förum við yfir spurningar sem hjálpa okkur að finna lífsgildin okkar og af hverju það er mikilvægt. Kvíðakastið er í boði World Class og Reykjavík Foto!2024-03-1706 minKvíðakastiðKvíðakastið68. Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir - KynlífsvandiÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Aldís Þorbjörg er sálfræðingur hjá Líf og sál. Í þættinum fræðir Aldís okkur um para- og kynlífsráðgjöf, skilgreinir kynlífsvanda, ásamt því að fara yfir algengi og helstu úrræði sem eru í boði. Hún svarar líka nokkrum spurningum hlustenda. 2024-03-051h 22KvíðakastiðKvíðakastið67. Ellen Sif og Vala Thorsteinsson - Líðan og bjargráð GrindvíkingaÞátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Ellen og Vala eru sálfræðingar á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Í þættinum förum við yfir hverjar eru algengar birtingarmyndir af líðan og hegðun einstaklinga sem eru að upplifa náttúruvá, hvað þarf að hafa í huga varðandi líðan barna í þessu ástandi og förum yfir mörg verkfæri sem hægt er að nýta sér á erfiðum tímum til að hjálpa eigin geðheilsu og geðheilsu barnanna sinna. Í lokin förum við yfir hvað aðstandendur og samfélagið getur gert til að hlúa að Grindvíkingum og2024-01-311h 05KvíðakastiðKvíðakastið66. Hvað einkennir góðan sálfræðing?Þátturinn er í boði World Class og Reykjavik Foto! Í þættinum förum við yfir hvað hlustendum finnst einkenna góða sálfræðinga ásamt því að ræða hvaða rannsóknir sýna og okkar eigin reynslu á meðferðarvinnu.2024-01-2355 minKvíðakastiðKvíðakastiðKlippa: Mismunandi stig og meðferð kulnunar (burn out)Þátturinn er í boði World Class! Brot úr þætti nr 40. Anna Sigga - Kulnun (burn out). Í klippunni er talað um hvort þarf að auka eða minnka virkni þegar manneskja er í kulnun og hvort veikindaleyfi sé nauðsynlegt til að ná bata. Í þættinum er talað um hópmeðferð sem er í boði á Kvíðameðferðarstöðinni.2024-01-1407 minKvíðakastiðKvíðakastið65. Þorkatla Elín Sigurðardóttir - Nálægð við dýr í sálfræðimeðferð barnaÞátturinn er í boði World Class, Eimskip og Reykjavík Foto! Í þættinum fræðir Þorkatla okkur um hvernig hún nýtir dýr í sinni meðferðarvinnu, kosti þess og áskoranir. Þorkatla er sálfræðingur og rekur sálfræðistofuna Hlöðuloftið í Hafnarfirði en veitir líka viðtöl á Lífsgæðasetrinu St. Jó.2023-12-2944 minKvíðakastiðKvíðakastið64. Villi Neto - ReynslusagaÞátturinn er í boði World Class, Eimskip og Reykjavík Foto! Í þættinum deilir Villi reynslunni sinni af þunglyndi og kvíða. Við förum yfir æskuna, flutning til Íslands, höfnun frá LHÍ, að fara til sálfræðings í fyrsta skipti og hvaða verkfæri hann nýtir sér í dag. 2023-12-111h 00KvíðakastiðKvíðakastið63. Áhugaverðar sálfræðirannsóknir vol IIIÞátturinn er í boði World Class, Eimskips og Reykjavík Foto! Hvað eiga trigger warnings, hawthorne effect, að vera áhugaverður í samtali og rafstuð sameiginlegt? Að vera topic í þessum svakalega rannsóknarþætti!2023-11-2959 minKvíðakastiðKvíðakastið62. Engilbert Sigurðsson - Meðferð þunglyndisÞátturinn er í boði World Class, Eimskips og Reykjavík Foto. Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og prófessor í geðlæknisfræðum mætti til okkar og fór yfir skilgreininguna á þunglyndi, orsök og algengi þess. Engilbert fræðir okkur einnig um helstu meðferðir við þunglyndi, ásamt því að fara yfir nýjar meðferðir á borð við segulörvun, psilocybin og ketamín nefúða.2023-11-181h 11KvíðakastiðKvíðakastiðKlippa: Af hverju förum við í hugrof?Klippan er úr þætti 9. Kristjana Þórarinsdóttir - Hvaða áhrif hafa áföll á okkur? Í klippunni fer Kristjana yfir hvernig hugrof lýsir sér, af hverju heilinn okkar bregst við aðstæðum með því að fara yfir hugrof og hvernig hugrof skýrir ákveðin viðbrögð í hættulegum aðstæðum. 2023-11-0306 minKvíðakastiðKvíðakastið61. Hvað er taugaáfall?Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir sögu hugtaksins taugaáfalls, hvaða einkenni fólk lýsir sem taugaáfalli og sálfræðilegar skýringar þeirra. 2023-10-1340 minKvíðakastiðKvíðakastið60. Ásgerður Arna Sófusdóttir og Daðey Albertsdóttir - Streita tengd foreldrahlutverkinuÞátturinn er í boði World Class og Eimskip. Daðey Albertsdóttir, sálfræðingur og Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna komu til okkar í spjall. Í þættinum fjöllum við um hvernig streita birtist í foreldrahlutverkinu og af hverju, spennustig foreldra, áreitastjórnun og önnur gagnleg verkfæri. 2023-09-291h 03KvíðakastiðKvíðakastið59. Andrés Proppé Ragnarsson - Ofbeldi í nánum samböndumÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Andrés er sálfræðingur og einn af eigendum Sálfræðistofunnar á Höfðabakka. Hann rekur einnig úrræðið Heimilisfriður sem er meðferðarúrræði gerenda heimilisofbeldis. Í þættinum ræðum við um mismunandi tegundir ofbeldis, hvernig "ofbeldishringur" verður til, rauð flögg og það sem einkennir oft gerendur heimilisofbeldis og hvað er gert í úrræðinu Heimilisfrið. 2023-09-2251 minKvíðakastiðKvíðakastið58. Kristín Kristjánsdóttir - SorgÞátturinn er í boði Eimskips og World Class! Kristín er er djákni í Grafarvogskirkju, með diplómanám í sálgæslu og handleiðslu og starfar hjá Sorgarmiðstöðinni. Í þættinum ræðum við um sorg, hvernig hún birtist, góð bjargráð við sorg, hvernig aðstandendur geta brugðist hjálplega við, að útskýra dauðann fyrir börnum og fleira.2023-09-031h 30KvíðakastiðKvíðakastið57. Bjarki Grönfeldt Gunnarsson - Sameiginlegur narsissismi (e. Collective Narcissism)Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bjarki er doktor í stjórnmálasálfræði og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Í þættinum fræðumst við um sameiginlegan narsissisma og m.a. hvað aðgreinir það hugtak frá narsissisma, þjóðernishyggju og að tilheyra hópi sem maður er stoltur af.2023-07-3055 minKvíðakastiðKvíðakastið56. Baldvin Logi Einarsson - Þráhyggju-árátturöskun (OCD) meðal barnaÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Baldvin er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og í þættinum fræðir hann okkur um þráhyggju-árátturöskun hjá börnum og meðferðir við henni.2023-07-211h 31KvíðakastiðKvíðakastið55. Heiðdís Snorradóttir - Næring og andleg heilsaÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat. Í þessum þætti fræðir Heiðdís okkur m.a. um svengdarvitund, emotional eating, matarkvíða hjá börnum og hvernig greiningar eins og ADHD og einhverfa geta haft áhrif á matarinntöku.2023-07-091h 07KvíðakastiðKvíðakastið54. Að setja mörkÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum ræðum við um af hverju er mikilvægt að setja mörk, hvernig við setjum mörk, hvaða erfiðleika geta komið í kjölfarið af því að setja mörk eða ekki að setja mörk og förum yfir og hvað við eigum að gera þegar aðrir virða ekki mörkin sem við setjum.2023-07-021h 15KvíðakastiðKvíðakastið53. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson - Hvað er incel?TW: Þátturinn inniheldur lýsingar um kynferðisofbeldi. Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bjarki er doktor í stjórnmálasálfræði og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Í þættinum fræðumst við um hugtakið incel, hvernig það varð til og hvernig það hefur þróast í gegnum tíðina. Bjarki segir okkur frá afleiðingum þess að tilheyra incel og hvernig megi bera kennsl á þá sem tilheyra þeim hópi. Að lokum fer hann yfir forvarnir og meðferðarúrræði.2023-06-2547 minKvíðakastiðKvíðakastið52. Draumar og martraðirÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir kenningar um hvað draumar og martraðir eru og nýjustu rannsóknir á þeim, hvaða tilgangi draumar þjóna, útskýrum svefnrofalömun (e. sleep paralysis) og næturtrylling (e. night terrors) og förum yfir hvaða meðferðir eru í boði til að takast á við martraðir. 2023-05-211h 01KvíðakastiðKvíðakastið51. Gunnlaugur Pétursson - HeilsukvíðiÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Gunnlaugur er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og sérhæfir sig í ýmsum kvíðaröskunum eins og þráhyggju- og árátturöskun, heilsukvíða, ofsakvíða og félagskvíða. Í þættinum ræðum við um einkenni heilsukvíða, hvernig við aðgreinum heilsukvíða frá öðrum röskunum, hvernig heilsukvíði þróast og verður að vanda og hvaða fyrstu skref er hægt að taka til að byrja að takast á við hann.2023-05-151h 08KvíðakastiðKvíðakastið50. Viktor Örn Margeirsson - Geðheilsa íþróttafólksÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Viktor er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og Heil heilsumiðstöð. Í þættinum ræðum við um mótlæti sem íþróttafólk verður oft fyrir, að takast á við gagnrýni og mistök, kulnun íþróttafólks og förum yfir verkfæri til að stuðla að góðri geðheilsu. Hægt er að hafa samband við Viktor í gegnum netfangið viktor@viktormargeirs.com2023-04-151h 22KvíðakastiðKvíðakastið49. Gleðiskruddurnar - Jákvæð sálfræði og gleðiverkfæriÞátturinn er í boði World Class og Eimskip! Yrja og Marit eru á bakvið Gleðiskrudduna sem var lokaverkefnið þeirra í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði vorið 2020. Í þættinum ræðum við um jákvæða sálfræði og hvernig nýta má hana í vinnu með börnum. Þá ræðum við gleðiverkfærin sem m.a. snúa að styrkleikum, núvitund og að sýna sjálfum sér sjálfsvinsemd.2023-04-041h 16KvíðakastiðKvíðakastið48. Guðbrandur Árni Ísberg - SkömmÞátturinn er í boði World Class og Eimskip! Guðbrandur er sálfræðingur á stofunni Sálfræðiráðgjöfin og höfundur bókarinnar Skömm: úr vanmætti í sjálfsöryggi. Í þættinum ræðum við um skammarkerfið, hvenær skömm er orðin að vandamáli, tengsl skammar við geðraskanir, fullkomnunaráráttu og narsisisma og hvernig við getum brugðist við skömm á hjálplegan hátt.2023-03-261h 16KvíðakastiðKvíðakastið47. Haukur Örvar Pálmason - ADHDÞátturinn er í boði World Class og Eimskip! Haukur er sálfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Í þættinum ræðum við um einkenni ADHD, stýrifærni, mismunagreiningar, algengi, kynjamun, greiningarferlið, inngrip og ýmsar pælingar frá ykkur hlustendum. 2023-03-161h 28KvíðakastiðKvíðakastið46. Freyja Ágústsdóttir - Samfélagsmiðlar og geðheilsaÞátturinn er boði World Class og Eimskip! Freyja er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni.  Í þættinum ræðum við um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu þ.á.m FOMO, samanburð og einmannaleika. Við ræðum líka um aukna umræðu um geðraskanir og geðgreiningar á samfélagsmiðlum. 2023-03-121h 10KvíðakastiðKvíðakastið45. Bryndís Jóna Jónsdóttir - Núvitund og samkennd í skólastarfiÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bryndís Jóna er aðjúnkt á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands og einn að stofnendum Núvitundarsetursins. Hennar sérþekking snýr að núvitund og jákvæðri sálfræði, sérstaklega í skólastarfi. Í þættinum förum við m.a. yfir formlegar og óformlegar núvitundaræfingar, jákvæðar afleiðingar núvitundar og hvernig núvitund tengist samkennd.2023-02-121h 11KvíðakastiðKvíðakastið44. Hanna Bizouerne - Uppeldisráðgjöf seinni hlutiÞátturinn er í boði World Class og Eimskips! Hanna Bizouerne er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Þar sinnir hún m.a. greiningarvinnu og uppeldisráðgjöf. Í seinni þættinum um uppeldi fer hún yfir hversu mikilvægt sé að horfa til framtíðar í uppeldinu, áhrif góðra tengsla milli foreldra og barns og mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér sem foreldri. Hún fer einnig yfir skjátímanotkun barna og mikilvægi þess að hafa reglur, rútínur og að nota skýr fyrirmæli í uppeldi.2023-02-0554 minKvíðakastiðKvíðakastið43. Hanna Bizouerne - UppeldisráðgjöfÞátturinn er í boði World Class! Hanna Bizouerne er sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Þar sinnir hún m.a. greiningarvinnu og uppeldisráðgjöf. Í þættinum förum við yfir hvað einkennir gott uppeldi, foreldrahlutverkið og mikilvæga eiginleika þess, samviskubitsvæðinguna og helstu uppeldisnámskeiðin sem eru í boði.2023-01-2953 minKvíðakastiðKvíðakastið42. Hvað eru góð samskipti?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir hvað einkennir góð og slæm samskipti. Við förum yfir hvernig við biðjum um það sem við viljum á árangursríkan hátt, að viðhalda tengslum og byggja ný tengsl, að taka gagnrýni og biðjast afsökunar. 2023-01-241h 11KvíðakastiðKvíðakastið41. DauðakvíðiÞátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hvað dauðakvíði er, hvenær hann er orðinn að vandamáli, hvernig hann viðhelst og hvernig við getum unnið með hann. 2023-01-1550 minKvíðakastiðKvíðakastið40. Anna Sigga - Kulnun (burn out)Þátturinn er í boði World Class! Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Hún sérhæfir sig í kulnun, streitu, sjálfsmati og ýmsum kvíðavanda. Í þættinum förum við yfir einkenni kulnunar, hvað orsakar kulnun og hvernig við getum komið í veg fyrir hana. 2022-12-261h 19KvíðakastiðKvíðakastið39. Hvað höfum við lært?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir uppáhalds þætti hlustenda, punkta sem standa mest upp úr hjá okkur eftir árið, ferlið að byrja með podcastið og endum á hvað við hefðum viljað vita þegar við vorum yngri um geðheilsu. 2022-12-191h 00KvíðakastiðKvíðakastið38. Ofsakvíði (panic disorder) - Eru kvíðaköst hættuleg?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir einkenni ofsakvíðakasta, hvað fólk hræðist í kvíðaköstum, hvernig brugðist er óhjálplega við kvíðaköstum og hvernig er hægt að komast út úr ofsakvíðavítahringnum.2022-11-2748 minKvíðakastiðKvíðakastið37. Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir - ÆlufælniÞátturinn er í boði World Class! Sigurbjörg er yfirsálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar og sérhæfir sig í þráhyggju- og áráttu, ælufælni, ofsakvíða og fleiri kvíðaröskunum. Í þættinum förum við yfir birtingarmynd ælufælni, hvernig hún truflar líf fólks, hvaða meðferðir eru í boði og fyrstu skref þeirra.2022-11-1348 minKvíðakastiðKvíðakastið36. Seigla í gegnum lífiðÞátturinn er í boði World Class! Í þættinum ræðum við um hvað seigla er, af hverju hún er mikilvæg, hvernig hún þróast, hvernig við getum byggt upp seiglu barna og viðhaldið henni út lífið.2022-10-3052 minKvíðakastiðKvíðakastið35. Workshop - Hvernig tæklum við óhóflegar áhyggjur?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir áhyggjur, hvað ýtir undir þær, hvað við gerum til að bregðast við þeim og förum í gegnum skref til að takast betur á við þær. Við minnum á að þættirnir okkar eru einungis í fræðslutilgangi en ekki sálfræðimeðferð.2022-10-2150 minKvíðakastiðKvíðakastið34. Aldís Eva Friðriksdóttir - Líðan í tengslum við frjósemisvandaÞátturinn er í boði World Class! Í þættinum tölum við um skilgreininguna á frjósemisvanda, mögulegar ástæður fyrir honum, streituna sem fylgir honum úrræði sem eru í boði og hvernig á að vera til staðar. 2022-10-1657 minKvíðakastiðKvíðakastið33. Heimir Snorrason - Nútímasamfélag og sjálfsmynd karlaÞátturinn er í boði World Class! Heimir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni, áhugasvið hans í meðferð eru meðal annars sjálfsmatsvinna og áföll. Fyrstu mínútur þáttarins fjalla um nútímasamfélag og þróun sálfræðimeðferðar. Frá 29. mínútu er rætt um sjálfsmynd karla og birtingarmynd hennar.2022-10-081h 17KvíðakastiðKvíðakastið32. Hvað á ég að gera í krísu?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum tölum við um verkfæri sem við getum notað til að takast á við sterkar tilfinningar án þess að  bregðast við á óhjálplegan og/eða skaðlegan hátt. 2022-10-021h 06KvíðakastiðKvíðakastið31. SjálfsskaðiÞátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hvað sjálfskaði er, hver tilgangurinn er á bak við hann og hvernig geta brugðist við og sýnt stuðning. Í næsta þætti verður farið yfir verkfæri til að takast við erfiðar tilfinningar á hjálplegri hátt. 2022-09-2442 minKvíðakastiðKvíðakastið30. Tinna Þorsteinsdóttir - Almenn kvíðaröskun (áhyggjuvandi)Þátturinn er í boði World Class! Tinna er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Í þættinum útskýrir hún almenna kvíðaröskun, persónueinkenni og næmisþætti þeirra sem þróa með sér röskunina, hvað sé eðlilegt magn af áhyggjum, öryggishegðun og ákvarðanartöku hjá þeim sem eru með röskunina og gefur verkfæri til að byrja á að takast á við vandann.2022-09-181h 07KvíðakastiðKvíðakastið29. Loddaralíðan (impostor syndrome)Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum útskýrum við hugtakið loddaralíðan, förum yfir hvernig það birtist og gefum verkfæri hvernig er hægt að vinna gegn því.2022-09-1533 minKvíðakastiðKvíðakastið28. Ástin - Er hún alltaf hjálpleg?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum fjöllum við um ást, hvernig við tjáum ást, hvenær hún er hjálpleg og hvenær óhjálpleg og ástarsorg.2022-08-2938 minKvíðakastiðKvíðakastið27. Hvað óttastu mest? - sértæk fælniÞátturinn er í boði World Class! Köngulær, geitungar, sjórinn, háar hæðir... allt eru þetta algeng dæmi um það sem fólk hræðist mest. Í þættinum ræðum við um orsakir og meðferð við sértækri fælni. 2022-08-2354 minKvíðakastiðKvíðakastið26. Hvernig tæklum við prófkvíða?Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir orsakir og einkenni prófkvíða/námskvíða og förum yfir verkfæri til að tækla hann. Í lokin endum við á ráðum til kennara og foreldra einstaklinga með prófkvíða.2022-08-121h 03KvíðakastiðKvíðakastið25. Hvernig vekjum við upp áhuga?Þátturinn er í boði World Class! Við tengjum flest öll við að hafa oft ekki áhugahvöt (motivation) til að fara í líkamsrækt, læra, taka til, að sinna áhugamálum og hitta vini. Hvaðan kemur áhugi? Hvernig getum við ýtt undir hann? 2022-07-2854 minJákastiðJákastið#16 KvíðakastiðGestir mínir þessa vikuna eru þau Katrín, Nína og Sturla en saman mynda þau hlaðvarpið Kvíðakastið. Það var hrikalega gaman, fræðandi og áhugavert að spjalla við þau enda eru þau gjörsamlega frábær og mögnuð. Þú ert frábær. Ást og friður.  2022-07-041h 03KvíðakastiðKvíðakastið24. Styrkár Hallsson - GeðrofÞátturinn er í boði World Class! Styrkár er sálfræðingur á Landspítalanum og á stofunni Sálfræðingarnir. Í þættinum förum við yfir einkenni geðrofs, orsakir og algengi geðrofssjúkdóma, meðferð við geðrofi og ráð til aðstandanda. 2022-06-201h 20KvíðakastiðKvíðakastið23. Thelma Rún van Erven - EinhverfaÞátturinn er í boði World Class! Thelma er sálfræðingur á Ráðgjafa og greiningarstöð, er sjálfstætt starfandi og vinnur einnig í félagsmiðstöð fyrir einhverfa unglinga á vegum Einhverfusamtakanna. Í þættinum ræðum við um einkenni einhverfu, svörum spurningum ykkar um einhverfu og förum yfir verkfæri fyrir fólk á einhverfurófinu.2022-06-051h 23KvíðakastiðKvíðakastið22. Hvernig líður mér á sumrin?Þátturinn er í boði World Class! Spjallþáttur um sumarið - FOMO, skipulag, mismunandi tilfinningar, samanburð og margt fleira.2022-05-2944 minKvíðakastiðKvíðakastið21. Ásmundur Gunnarsson - Líkamsskynjunarröskun (Body dysmorphic disorder)Þátturinn er í boði World Class! Ási er sérfræðingur í klínískri sálfræði og starfar á Kvíðameðferðarstöðinni. 2022-05-141h 02KvíðakastiðKvíðakastið20. Áhugaverðar sálfræðirannsóknir vol IIÞátturinn er í boði World Class! Mögulega smá galsi í fólki enda gleður fátt okkur meira en sálfræðirannsóknir2022-05-0738 minKvíðakastiðKvíðakastið19. Dr. Ólafía Sigurjónsdóttir - Þráhyggju-árátturöskun (OCD)Þátturinn er í boði World Class! Dr. Ólafía Sigurjónsdóttir er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og er þar yfir OCD teymi stofunnar. Í þættinum förum við yfir hvað þráhyggju-árátturöskun er og meðferðir við henni.2022-04-301h 10KvíðakastiðKvíðakastið18. Hvað eru lífsgildi og hvernig tengjast þau markmiðum okkar?Þátturinn er í boði World Class! Hvernig berum við kennsl á lífsgildin okkar? Við segjum frá okkar lífsgildum til að gefa ykkur hugmyndir.2022-04-2354 minKvíðakastiðKvíðakastið17. Elfur ráðgjöf - Tengslamyndun barnaÞátturinn er í boði World Class! í þættinum er rætt um hvað einkennir góð tengsl og óörugg tengsl, hverjar vísbendingarnar eru um óörugg tengsl hjá barni, hvernig er hægt að styrkja tengsl milli umönnunaraðila og barna, hvernig er hægt að styrkja tengsl barna við dagforeldra og kennara í skólum og fleira.2022-04-161h 18KvíðakastiðKvíðakastið16. Vinalegur vinaþáttur um vináttuÞátturinn er í boði World Class! Í þættinum: Heilbrigð og óheilbrigð samskipti í vinasamböndum, hvernig er hægt að eignast vini á fullorðinsárum? hvernig viðhöldum við vinasamböndum?2022-04-091h 08KvíðakastiðKvíðakastið15. Hugrún Vignisdóttir - Málefni trans barna á ÍslandiÞátturinn er í boði World Class! Hugrún Vignisdóttir er sálfræðingur sem sérhæfir sig í málefnum trans barna. Í þættinum fjöllum við um kynvitund, mismunandi fornöfn, hormónameðferðir, öráreitni gegn trans fólki, ráðleggingar til foreldra trans barna og fleira.2022-04-021h 46KvíðakastiðKvíðakastið14. Hver er munurinn á fullkomnunaráráttu og metnaði?Þátturinn er í boði World Class! Hefur fullkomnunarárátta einhver neikvæð áhrif? 2022-03-211h 20KvíðakastiðKvíðakastið13. Dr. Tómas Kristjánsson - ÞunglyndiÞátturinn er í boði World Class! Tómas er sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina og doktor í sjónskynjunarsálfræði. Í þættinum tölum við m.a. um hvað viðheldur þunglyndi, hvernig getum við tekist á við það og hvað geta aðstandendur gert. Stútfullur þáttur af fróðleik og hagnýtum ráðum.2022-03-051h 16KvíðakastiðKvíðakastið12. Workshop - Hugsanaskekkjur og hvernig við endurmetum þærÞátturinn er í boði World Class!2022-02-2633 minKvíðakastiðKvíðakastið11. Áhugaverðar sálfræðirannsóknirMögulega skemmtilegasti þáttur sem við höfum tekið upp 2022-02-1949 minKvíðakastiðKvíðakastið10. Beggi Ólafs - Hvernig getur okkur liðið enn betur?Hvernig getum við nýtt styrkleika okkar, komið okkur í gang og maaaargt fleira2022-02-121h 23KvíðakastiðKvíðakastið9. Kristjana Þórarinsdóttir - Hvaða áhrif hafa áföll á okkur?Fyrsti viðmælandinn okkar! Kristjana er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og doktorsnemi við Háskóla Íslands þar sem hún rannsakar áföll og afleiðingar þeirra. Ótrúlega áhugaverður þáttur sem allir geta lært eitthvað af.2022-02-051h 12KvíðakastiðKvíðakastið8. Félagskvíði - Af hverju er okkur ekki sama um hvað öðrum finnst?Af hverju finna margir fyrir félagskvíða þrátt fyrir að við flest hittum fólk nánast á hverjum degi? 2022-01-291h 25KvíðakastiðKvíðakastið7. Þarf alltaf að gefa ráð?Við könnumst öll við að fá ráð og viðbrögð sem betur hefði mátt sleppa. Við förum yfir algeng ráð sem fólk gefur öðrum og hvernig við getum brugðist við því þegar aðrir gefa okkur óhjálpleg eða óumbeðin ráð. 2022-01-1656 minKvíðakastiðKvíðakastið6. Lágt sjálfsmat og samanburðurHvernig lýsir það sér að vera með lágt sjálfsmat? Hvernig hefur það áhrif á líf okkar? 2022-01-0947 minKvíðakastiðKvíðakastið5. Bólusetningar barna gegn CovidVið gáfum út grein!2022-01-0929 minKvíðakastiðKvíðakastið4. Er kvíðinn óvinur okkar?Hver er munurinn á kvíða og kvíðaröskun? og kvíðakasti og ofsakvíðakasti? Í þættinum ræðum við um þetta magnaða viðbragðskerfi sem kvíðinn er.2021-12-2758 minKvíðakastiðKvíðakastið3. En mér líður bara illa...Hvað eru tilfinningar? Hvaða tilgangi þjóna þær? 2021-12-2256 minKvíðakastiðKvíðakastið2. Hvernig líður mér um jólin?Í þættinum ræðum við um fjölbreyttu tilfinningarnar sem við upplifum yfir jólatímann, væntingarnar sem við höfum til okkar í jólaundirbúningnum, lífsgildi, áramótaheit og fleira.2021-12-151h 03KvíðakastiðKvíðakastið1. Á ég að fara til sálfræðings?Í þættinum tölum við um starf sálfræðinga, að fara til sálfræðings í fyrsta skipti, hvað bendir til þess að við ættum að leita okkur aðstoðar, hvernig maður velur sér sálfræðing og hvernig fyrstu meðferðartímarnir ganga fyrir sig.2021-12-151h 21SkoðanabræðurSkoðanabræður#46 Tobba Marinós ritstjóri DV, hrun Bandaríkjanna og „dagbækur Hitlers“www.patreon.com/skodanabraedur. BDSM-róla í kjallarahvelfingu. Það er allt eðlilegt við það. Það er líka allt eðlilegt við að Tobba Marinós, ritstjóri DV með meiru, nefni ámóta kjallara sem það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún nær sambandi við Skoðanabræður. Eða hún nær sambandi við er ekki nákvæmt orðalag. Þeir ná sambandi við hana, sem er gleðiefni, enda ekki auðsótt hjá uppteknum ritstjóra sem lofar því þó að hann sé ekki á leið hraðbyri inn í kulnun, eða Burnout eins og Þjóðverjinn kallar það og Bandarík...2020-05-151h 36