Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Malfundafelagið Frelsi Og Fullveldi

Shows

Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldisUpptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 4. nóvember 2024 en þetta var ellefti opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis. Framsögumenn voru þeir sr. Geir Waage og sr. Halldór Gunnarsson. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.Stefnumálin eða hugmyndir Málfundafélagsins eru einkum unnar upp úr fundum félagsins og er ætlað að hvetja til umræðu í aðdraganda Alþingiskosninganna 2024. Öllum f...2024-11-152h 04Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #10: Staða Íslands innan EES og bókun 35Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 16. september 2024 en þetta var tíundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Staða Íslands innan ESS og bókun 35. Framsögumenn voru þeir Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur með áherslu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál og Bjarni Jónsson alþingismaður. Báðir hafa þeir nýleg skrifað athyglisverðar greinar í Morgunblaðið og á vefmiðilinn Vísi.Grein Hjartar heitir "Milljarðatugir Jóns Bald...2024-09-251h 54Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #9: Verjum hag eldra fólksUpptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 22. apríl 2024 en þetta var níundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Verjum hag eldra fólks. Framsögumenn voru þeir Ragnar Árnason prófessor emerítus og sr. Halldór Gunnarsson fyrrverandi sóknarprestur. Þeir upplýsa um stöðu eldra fólks en stór hluti þess háir erfiða lífsbaráttu og skerðingar á réttindum. Fundarstjóri var dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur.Á fundinum var ályktun um aðgerðir til að bæta hag eldra fól...2024-05-021h 00Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #8: Varðstaða um íslensk gildiUpptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 18. mars síðasliðinn en þetta var áttundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var Varðstaða um íslensk gildi. Framsögumenn voru þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Birgir Þórarinsson alþingismaður. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.Á fundinum var ályktun um aðgerðir til að tryggja varðstöðu um íslensk gildi borin upp og samþykkt með margföldu lófataki.Til upplýsingar: Eftir að...2024-04-022h 02Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #7: Löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímumMálfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 26. febrúar síðasliðinn en þetta var sjöundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum. Framsögumenn voru þeir Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri og fv. alþingismaður og Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur og formaður tollvarðafélags Íslands. Funarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.Á fundinum var ályktun um brýnar aðgerðir til að tryggja stjórn á landa...2024-03-072h 10Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #6: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærinMálfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 6. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 15. janúar síðastliðinn. Umræðuefni: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærinFramsögumenn: Jón Magnússon og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismennFundarstjóri: Anna Björg HjartardóttirBreytt stefna í málefnum hælisleitenda var mikið rædd og eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu opnaði fundarstjóri á mælendaskrá fundarins. Miklar og góðar umræður spunnust en hlýða má á framsögumenn og ræður allra...2024-01-231h 48Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiJón Magnússon: Mikilvægustu þjóðfélagsmálin í þessu öldurótiJón Magnússon er í viðtali við Edith Alvarsdóttur. Hann segir frá hvers vegna hann valdi að starfa með Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Jón segir að þetta sé félagsskapur sem hann eigi fulla samleið með, félagsskapur sem vilji þoka málum áfram, vilji brydda upp á umræðum um mikilvægustu þjóðfélagsmálin á grundvelli þjóðfrelsis og fullveldis íslensku þjóðarinnar. "Þetta skiptir verulegu máli, ekki síst núna í þessu ölduróti og umróti sem við erum stödd í, þar sem við erum að horfa upp á að það eru að bresta ýmsar stíflur," segir Jón.H...2024-01-0927 minFrelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiJólahugvekja sr. Halldórs Gunnarssonar í HoltiÍ tilefni jóla sendir sr. Halldór Gunnarsson í Holti jólahugvekju til allra félagsmanna í Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Eftir hugvekjuna flytja Baggalútur, BRÍET og Valdimar Guðmundsson lagið Jólin eru okkar.2023-12-2511 minFrelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiÞjóðin er fullvalda, ekki stjórnmálastéttinEdith Alvarsdóttir ræðir við sr. Geir Waage, formann Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis í þessum hlaðvarpsþætti. Aðspurður um hvers vegna farið hafi verið af stað með það að stofna málfundafélagið segir Geir:"Það eru ýmsar forsendur fyrir því. Auðvitað þreyta þeirra sem hafa verið að taka þátt í pólitísku starfi á undanförnum áratugum. Það er hvergi pláss eða friður til þess að standa að neinni pólitískri samstæðu eða pólitískri umræðu innan stjórnmálaflokkanna. Stjórnmálaflokkarnir hafa breyst mjög mikið og stjórnmálaumræða hefur breyst mjög mi...2023-12-1719 minFrelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #2: Þrælshringurinn og vakningarákall til þjóðarinnarÞessi upptaka er frá öðrum málfundi Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis sem haldinn var á Catalínu í Kópavogi þann 27. apríl 2023. Framsögumenn voru Arnar Þór Jónsson lögmaður og sr. Geir Waage. Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Hér er upptaka af ræðum framsögumanna (47 mínútur) en upptaka af öllum fundinum, þ.e. ræður framsögumanna og umræður allra sem tóku til máls verður líklega birt á nýrri YouTube-rás félagsins sem er í vinnslu.(Smá hljóðtruflan...2023-12-1147 minFrelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiHvernig verjum við frelsi og fullveldi Íslands?Hér er viðtal sem Edith Alvarsdóttir tók við Arnar Þór Jónsson lögmann 29. nóvember 2023. Edith spurði Arnar út í bókun 35 og þá þróun sem verið hefur síðan Ísland samþykkti að ganga inn í viðskiptabandalag og gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir 30 árum. Þau ræða um  forsetaembættið og Arnar svarar spurningunni um hvernig við verjum frelsi og fullveldi Íslands. Arnar veltir fyrir sér hvort íslenskur almenningur sofi áhyggjulaus á sínum kodda. 2023-12-0427 minFrelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiMálfundur #5: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða?Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 5. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Umræðuefnið var: Stefnir í annað hrun? Hvað er til ráða?Framsögumenn voru þeir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismaður og hagfræðingur. Fundarstjóri var Geir Waage.Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu og má hlýða á framsögumenn og umræður allra sem tóku til máls í spilaranum hér að ofa...2023-11-182h 08Frelsi og fullveldiFrelsi og fullveldiFyrir hvað stendur málfundafélagið Frelsi og fullveldi?Sr. Geir Waage, Edith Alvarsdóttir og Ólafur Ísleifsson segja frá stefnu og aðaláherslum málfundafélagsins Frelsis og fullveldis.2023-10-3124 min