Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Marteinn Urbancic Og Þorsteinn Roy Johannsson

Shows

Út að hlaupaÚt að hlaupa#90 Hlaupamömmur með ofurhugarfar!Ofurhlaupamömmurnar Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir og Gréta Rut Bjarnadóttir kíktu í spjall til okkar Út að hlaupa bræðra og ræddu við okkur um barneignir og hlaup. Við ræddum um að vera "kúplaðar út" úr hlaupunum, að koma sér aftur af stað eftir fæðingu, grindarbotninn, þvagleka, ótrúlegt hugarfar og hvernig miklar áskoranir hafa mótað þeirra líf. Við mælum mikið með því að hlusta á þessar frábæru manneskjur segja sína sögu í gegnum hlaupin! 2025-07-222h 04Út að hlaupaÚt að hlaupa#89 Laugavegsuppgjörið mikla!Við fórum yfir upplifanir okkar af Laugavegshlaupinu í ár ásamt því að taka helstu umræðupunkta hlaupsins fyrir og ræða þá fram og til baka. Einnig fórum við yfir eitthvað af því  sem framundan er í utanvegahlaupunum og fengum góða gesti í settið til þess að segja okkur frá góðgerðarverkefni fyrir Reykjarvíkurmaraþonið! 2025-07-152h 02Út að hlaupaÚt að hlaupa#88 Andrew Douglas, skotinn á Íslandi!Andrew Douglas talkes about his career as a runner, how he changed his path and fell in love with trailrunning. He talkes about how much he loves to travel through running, how much he hates long runs and why he chose to come to the third time (kind of the fourth) to do the Laugavegur Ultra! 2025-07-101h 10Út að hlaupaÚt að hlaupa#87 Blueprint af Laugaveginum!Grétar Örn Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið og ofhugsaði hlutina með okkur fyrir Laugaveginn. Við svöruðum kallinu frá ykkur hlustendum og fórum yfir allt sem okkur datt í hug hvað varðar laugarveginn! 2025-07-082h 19Út að hlaupaÚt að hlaupa#86 Celeb Olson!Andrea Kolbeinsdóttir mætti í Bose stúdíóið með okkur Út að hlaupa bræðrum og sat fyrir svörum. Við gerðum upp síðustu hlaup, fórum yfir það hvað er framundan og ræddum allt milli himins og jarðar hvað varðar hlaupaferil Andreu. 2025-07-021h 23Út að hlaupaÚt að hlaupa#85 Seinn í startið!Hugleiðingarnar voru á sínum stað, spurningum var svarað úr sal, uppgjör á síðustu hlaupum þar sem íslandsmet og aldursflokkamet féllu og margt fleira. Öllu varpað út úr Bose stúdíóinu að sjálfsögðu, þið heyrir það á hljóðinu!2025-06-241h 02Út að hlaupaÚt að hlaupa#84 Unga fólkið að taka yfir!Uppgjörið var ekki af verri endanum í þessum þætti, gerðum upp Hengil, Esjuna, Hvítasunnuhlaupið og Hafnarfjarðarhlaupið. Fórum yfir heimsmetið í 48 tíma hlaupi, snertum á verðlaunafé í hlaupum og hvernig valið er í Utanvegalandsliðið ásamt mörgu öðru! 2025-06-191h 27Út að hlaupaÚt að hlaupa#83 The Icelandic Method!Stútfullur þáttur af hlaupaumræðu. Alvöru skýrsla úr Mýrdalshlaupinu frá Andreu Kolbeins, spurningum svarað frá hlustendum, farið vel yfir ITRA og allskonar fídusa í Strava!  2025-06-031h 38Út að hlaupaÚt að hlaupa#82 Baráttan um heiðmörk!Ofurstjarnan Yngvild Kaspersen er mætt á svæðið, hún kom að sjálfsögðu í spjall til okkar og ræddi komandi keppni í Mýrdalnum. Hugleiðingarnar voru á sínum stað, Örvar Steingríms rætti baráttuna um Heiðmörk og síðustu keppnir voru gerðar upp ásamt svo mörgu öðru! 2025-05-301h 29Út að hlaupaÚt að hlaupa#81 Gamla geggjaða geitin!Skýrsla úr Akrafjallinu, spurningar úr sal, hugleiðingar og hlaupauppgjör. Hvað meira getur maður beðið um svona undir lok vikunnar? 2025-05-231h 29Út að hlaupaÚt að hlaupa#80 Það eru engir veggir í Köben!Alvöru skýrsla frá Danmörku, uppgjör úr bakgarðinum og hlaupunum hér heima, farið vel yfir Strava segment sem hafa hríð fallið síðustu daga og svo margt, margt fleira! 2025-05-131h 39Út að hlaupaÚt að hlaupa#79 Hlynur í Herjólfsdal!Puffin run var aðal umræðuefnið í dag. Allt frá utanumhaldi yfir í uppgjör! Hugleiðingar hlauparans voru að sjálfsögðu á sýnum stað, Vá moment nýliðinnar helgar og svo tókum við forskot á sæluna og drógum í gjafaleiknum í þráðbeinni! 2025-05-061h 13Út að hlaupaÚt að hlaupa#78 Baðaður í Boston!Hugleiðingar, 100 km áskorun og alvöru skýrsla frá Latsanum okkar! Gerðum upp hlaupin hér heima og erlendis undanfarna daga ásamt umræðu um aldurstakmarkanir í hlaupum.    Við hvetjum fólk til að skrá sig á www.utilif.is/100km 2025-04-291h 38Út að hlaupaÚt að hlaupa#77 Gleðilega páska!Fórum yfir hlaupin sem eru framundan, Hjörtur Ragnarsson sjúkraþjálfari kom með góð ráð varðandi það að tækla hlaupameiðsli. Sánuhornið var á sínum stað og sigurvegari gjafaleiksins stóra var tilkynntur! 2025-04-191h 16Út að hlaupaÚt að hlaupa#76 Home alone!Hugleiðingar, Sánuhorn og Stravaliðurinn á sínum stað. Uppgjör frá EM í götuhlaupum og sjóðandi heitt post run viðtal við Elínu Eddu sem keppti með landsliðinu í Götuhlaupum. Þorsteinn Roy talaði svo frá Spáni bæði fyrir og eftir Penyagolosa! 2025-04-151h 00Út að hlaupaÚt að hlaupa#75 Gæsir og gjafaleikur!Glænýr gjafaleikur að fara af stað hjá okkur Út aða hlaupa bræðrum! Viðtal við Elísu Kristins varðandi Bluetrail og Sveinn Skúli segir okkur frá fjallahlaupaskóla í Bandaríkjunum! Þetta og marg fleira á boðstólum í dag! 2025-04-071h 14Út að hlaupaÚt að hlaupa#74 Eitt skref í einu, áfram gakk!Úrslitin í gjafaleik Ofar og Út að hlaupa eru tilkynnt í byrjun þáttar! Hugleiðingarnar voru á sínum stað, kvöldkaffið borið á borð, skýrsla frá landsliðsmanninum Kristjáni Svani ásamt uppgjöri á fjölda hlaupa undanfarið! 2025-03-271h 48Út að hlaupaÚt að hlaupa#73 Ekki tala við mig á Threshold ákefð!GJAFALEIKUR í boði Ofar, ekki missa af honum! Við fórum yfir æfingar síðustu daga, gerðum upp síðustu hlaup og fengum skýrslu frá Kenía drollunni Andreu Kolbeins. Spurningar úr sal, hugleiðingar hlauparans og Strava liðurinn létu sig ekki vanta! 2025-03-151h 14Út að hlaupaÚt að hlaupa#72 Dr. í hlaupum!Hugleiðingar hlauparans voru á sínum stað í dag ásamt dómsdashorninu mikla. Við fengum svo frábær ráð frá Doctornum sjálfum varðandi hlaup sem mun eflaust nýtast öllum okkar hlustendum! 2025-03-071h 17Út að hlaupaÚt að hlaupa#71 Góður með tölur!Hugleiðingar varðandi rólegar vikur, markþjálfa og sixpack. Gerðum upp Meistaramót Íslands, fengum skýrslu frá Daða Arnar og fórum að sjálfsögðu í liðina ofmetið vs vanmetið og dæmir þú!2025-02-261h 39Út að hlaupaÚt að hlaupa#70 Hálfnað verk þá hafið er!Það var gír í okkur þetta kvöldið í Bose stúdíóinu. Við hugleiddum allt á milli þess hvort maður þyrfti að heita Jakob til að ná árangri í hlaupum yfir í það hvað umfjöllun væri, krufum heimsmet Kiplimo í hálfu maraþoni ásamt hlaupauppgjöri síðustu daga. Nýju dagskrárliðirnir dæmir þú og vanmetið vs ofmetið voru að sjálfsögðu á boðstólum! 2025-02-211h 09Út að hlaupaÚt að hlaupa#69 Gerum alla brjálaða!Í þættinum í dag ræddum við Út að hlaupa bræður Norðurlandamótið, veltum því fyrir okkur hvernig maður yrði betir í því að hlusta á sjálfan sig, kynntum inn nýjan dagskrárlið og dæmdum allskonar hegðun! 2025-02-131h 30Út að hlaupaÚt að hlaupa#68 Ekki festast á hjólinu!Fengum skýrslu frá pólfaranum sjálfum, Vilborgu Örnu varðandi hlaupaferilinn. Heyrðum í Óskari stuttbuxnabróður varðandi skemmtilegt hlaupaverkefni og tókum tal á tísku Tómasi alla leið frá kóngsins Köben! 2025-02-041h 31Út að hlaupaÚt að hlaupa#67 Hvað er hvíld?Þátturinn í dag er stútfullur af fróðleik fyrir ykkur. Latsi okkar allra besti mætti í Bose stúdíóið og jós úr viskubrunni sínum, Maggi sjúkraþjálfari fór vel yfir álagsstýringu á hlaupum og algeng meiðsli og Marteinn hélt uppi stemningunni alla leið frá Tene! 2025-01-242h 22Út að hlaupaÚt að hlaupa#66 Beint frá Tene!Að þessu sinni tókum við upp á Bóse settinu á ævintýraeyjunni fögru Tenerife! Hugleiðingarnar voru á sínum stað, ferðaskýrsla frá Þorsteini og hlaupauppgjör síðustu vikna. Einnig fá nýjir dagskrárliðir að líta dagsins ljós! 2025-01-141h 18Út að hlaupaÚt að hlaupa#65 Bannað að dæma!Fengum góða gesti í Bose-stúdíóið, ultrahlauparaparið Birnu Maríu og Egil Örn. Gerum upp árið 2024 hjá þeim ásamt því að kynna til leiks nýja og skemmtilega dagskrárliði í bland við þá gömlu góðu!2024-12-101h 52Út að hlaupaÚt að hlaupa#64 Við erum öll nautnaseggir!Við erum mættir aftur að míkrafónunum. Ræddum við kónginn á Hvannadalshnúk um íslandsmetið sem féll á dögunum, fórum yfir síðustu hlaup og svo margt, margt fleira!2024-12-031h 14Út að hlaupaÚt að hlaupa#63 Elísabet MargeirsdóttirVinkona okkar Elísabet Margeirs kom í heimsókn í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um hlaup. Hún fer yfir það hvernig hún byrjaði hlaupaferilinn, hvernig hún æfir, talar um Náttúruhlaupin og bakgarðskeppnirnar, fer yfir sínar helstu áskoranir á hlaupum og talar um það hvernig var að fara aftur af stað eftir barneign. Þessi þáttur er stútfullur af fróðleik frá einni af okkar allra bestu íþróttakonum! 2024-11-111h 58Út að hlaupaÚt að hlaupa#62 Stelpupabbar!Hugleiðingar, fátæklegt hlaupauppgjör, slúðurhorn hlauparans og alvöru skýrsla frá aðal bósaranum í Istanbúl, Kjartani Long. Allt þetta og meira til lóðbeint úr Bose stúdíóinu! 2024-11-051h 23Út að hlaupaÚt að hlaupa#61 Berum ábyrgð á því hvar við stígum!Stútfullur þáttur og meira til. Hugleiðingar varðandi það hvernig fólk upplifir hlaupaafrek, stígaskýrsla frá Auði Kjartans, uppgjörið margfræga og skýrsla frá maraþonmeisturum í Frankfurt! 2024-10-291h 28Út að hlaupaÚt að hlaupa#60 Fjórfalt Íslandsmet í beinni!Bakgarðurinn ræddur, íslandsmet í beinni, uppgjör síðustu hlaupa ásamt því að Friðleifur spjallaði við okkur um komandi verkefni sem eru á boðstólum FRÍ, græjuhornið frá Sigga er á sínum stað og alvöru bakgarðsskýrsla frá Rakel. Ekki láta þennan þátt fara framhjá Bose heyrnatólunum þínum! 2024-10-221h 55Út að hlaupaÚt að hlaupa#59 Nice að hitta Courtney!Svaddalegur þáttur fyrir ykkur í dag. Skýrsla frá Hildi Aðalsteins úr 100 mílna hlaupi í Nice, hlaupauppgjör vetrarhlaupanna hér heima, kraftsímtal alla leið til Iten þar sem Halldóra Huld lagði okkur línurnar frá heimili meistaranna, draumaráðningahorn Dr. Erlu og svo miklu miklu fleira! Ekki láta þennan þátt framhjá þér fara.  2024-10-152h 20Út að hlaupaÚt að hlaupa#58 Endurheimtar Einar!Taka tvö með okkar eina sanna Latsa. Nú var farið vel yfir endurheimt, próteininntöku, hitaþjálfun og margt margt fleira!2024-10-082h 08Út að hlaupaÚt að hlaupa#57 Með taugakerfið þanið!Í þættinum voru últrahlauparar sem eru að fikta í wikipediasíðum annarra ræddir, skýrsla frá Andreu Kolbeins, skóhornið þar sem við förum yfir skóbúnað inn í veturinn ásamt því að opnað var fyrir símann, hlaupauppgjör og svo mætti lengi telja! 2024-10-011h 32Út að hlaupaÚt að hlaupa#56 Þurfti að læra allt upp á nýtt!Græjuhornið, hugleiðingar, innhringing og fleira. Ein af okkar mögnuðustu ofurkonum, Fanney Þorbjörg kom með skýrslu úr Oslóarmaraþoninu og Ósk Gunnars mætti í frumraun sína í stúdíó til þess að gera upp Bakgarðinn!  2024-09-271h 37Út að hlaupaÚt að hlaupa#55 Nú fékk hann metið metið!Hugleiðingar varðandi tannheilsu hlaupara, skýrsla frá Ultrahjónunum í Slóveníu, græjuhornið, hlaupauppgjör og örviðtal við Arnar Pétursson fyrir Berlínarmaraþonið! 2024-09-231h 52Út að hlaupaÚt að hlaupa#54 Bakgarðs upphitun úr Bose stúdíóinu!Við erum mættir í Bose stúdíóið! Slóum á þráðinn til Andra Guðmunds og ræddum Bakgarðinn í þaula, fórum yfir brautarvörsluna í Eldslóðinni, skýrsla um kostnað hlaupa ásamt allskonar góðgæti! 2024-09-181h 51Út að hlaupaÚt að hlaupa#53 Nýtt stúdíó!Í þættinum í dag voru alvöru hugleiðingar, meiðslaskýrsla frá Marteini, glænýr dagskrárliður með Sigga Ragnars sem kallast græjuhornið, massíft hlaupauppgjör og margt, margt fleira. Allt þetta var að sjálfsögðu rætt í nýja stúdíóinu okkar! 2024-09-091h 34Út að hlaupaÚt að hlaupa#52 Er alltaf stuttbuxnaveður?Svekkelsið við það að þurfa að fresta Öræfahlaupinu, hugleiðingar veðurfræðings og skýrsla frá Halldóru Huld Ingvarsdóttur úr CCC. Guðfinna Kristín Björnsdóttir mætti sem gestastjórnandi í fjarveru Marteins. Við stikluðum á stóru í gegnum hlaupaferilinn, ræddum komandi áskoranir og fórum vel yfir UTMB sem kláraðist nýliðna helgi. 2024-09-022h 19Út að hlaupaÚt að hlaupa#51 Reykjavíkurmaraþons uppgjörið mikla!Reykjavíkurmaraþonið gert upp, óbrjótanlegt heimsmet sem féll, statusinn tekinn á Nick Gísla fyrir CCC og á Fríðu Rún eftir World Masters Athletics Championships! 2024-08-261h 36Út að hlaupaÚt að hlaupa#50 Upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið!Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir Reykjavíkurmaraþonið, brautin rædd, góð ráð fyrir hlaup og svo mætti lengi telja. Við fengum skýrslu frá Andreu Kolbeins og viðtal við Hlyn Andrésson sem við mælum mikið með að hlusta á! 2024-08-201h 49Út að hlaupaÚt að hlaupa#49 Fjallahlauparar eiga ekki breik!Hugleiðingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið, Ólympíuleikarnir, Fimmvörðuhálsinn og Súlurnar gerðar upp. Við fáum úrvals sögu frá últrahlauparanum geðþekka Sigfinni Björns ásamt alvöru niðurhlaupi! 2024-08-131h 48Út að hlaupaÚt að hlaupa#48 Villtur í KerlingarfjöllumHugleiðingar varðandi 100km hlaup, skýrsla úr Kerlingarfjöllum, uppgjör á allskonar hlaupum og margt fleira á boðstólum í þættinum í dag!2024-07-311h 10Út að hlaupaÚt að hlaupa#47 Laugavegsuppgjörið mikla!Laugavegurinn á risastóran sess í hlaupasumri flestra utanvegahlaupara. Það verður að vera sér þáttur til að gera upp þetta stóra og mikla hlaup! 2024-07-171h 16Út að hlaupaÚt að hlaupa#46 Laugavegsvikan með MarteiniLaugavegurinn var þema þáttarins. Við fengum skýrslu frá Rögnu, viðtal við sjálfan Laugavegskónginn, Höskuld og svo var hlaupauppgjörið að sjálfsögðu á sínum stað. Þess má geta að næringarplönum okkar var lekið í beinni útsendingu svo nú getið þið öll étið þennan Laugaveg eins og úthvíld tröll! 2024-07-101h 15Út að hlaupaÚt að hlaupa#45 Næringarpælingar með Latsa!Viðtalsþáttur við sjúkraþjálfarann geðuga Einar Sigurjónsson. Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar hvað varðar næringu íþróttafólks. Einar, eða Latsi eins og hann er gjarnan kallaður er frábær í að útskýra flókin fyrirbæri á mannamáli og því vonum við að hlustendur geti lært af þessu spjalli og hafi gaman af! 2024-07-081h 35Út að hlaupaÚt að hlaupa#44 Með Steina í vasanum!Í þættinum í dag gerðum við upp Ármannshlaupið, tókum upp símann og heyrðum í Hafdísi, Siggunum tveimur og fengum skýrlu frá Olgeiri varðandi Dyrfjallahlaupið. Upplagt að hlusta á þáttinn á leiðinni austur! 2024-07-031h 26Út að hlaupaÚt að hlaupa#43 Með krampa í kjálkanum!Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir farinn veg í nýafstöðnum hlaupum, bæði hér heima og erlendis. Við fáum góða tjónaskýrslu frá Hlyni Guðmunds eftir krampafestival á Ítalíu og nýtt hlaup verður kynnt ásamt fullt af aulabröndurum. Þess má geta að það er enginn best fyrir dagsetning á þessum þætti! 2024-07-011h 33Út að hlaupaÚt að hlaupa#42 Er nostalgía besta tilfinningin?Hugleiðingar, skýrsla, uppgjör og margt margt fleira í þætti dagsins! 2024-06-2056 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#41 Últrahlaup og eftirhermur!Það var af nægu að taka í hlaupauppgjörinu að þessu sinni enda langt síðan við félagarnir höfum sest niður og rætt málin. EM í Annecy, Mýrdalshlaupið og Hengillinn voru gerð upp af mikilli alúð.2024-06-091h 09Út að hlaupaÚt að hlaupa#40 Grudge í hlaupaheiminum!Hlaupauppgjör síðustu hlaupa, stiklað á stóru fyrir næstu hlaup og hugleiðingar hlauparans fá að njóta sýn í þættinum í dag. Við fórum einnig yfir stóra Reykjavíkurmaraþons málið og náðum líklega að leysa það! 2024-05-231h 19Út að hlaupaÚt að hlaupa#39 Þetta er allt sagan manns!Fjölgun í Út að hlaupa fjölskyldunni, uppgjör síðustu hlaupa, skýrsla frá Halldóru Huld ásamt allskonar hugleiðingum. Mælum með því að hlusta! 2024-05-141h 20Út að hlaupaÚt að hlaupa#38 Sjálfstraust er val!Þá er komið að úthringiþættinum mikla. Við fáum skýrslu frá Snorra Björns og Ósk Gunnars, hlaupasögu og brautarlýsingu frá Sigurjóni Erni og alvöru ævintýrafrásögn frá Stebba Páls alla leið úr Frönsku ölpunum. Síðustu hlaup voru að sjálfsögðu gerð upp og hlauparar vikunnar valdir! 2024-05-071h 46Út að hlaupaÚt að hlaupa#37 Við keyrðum Kára af stað!Í þættinum í dag voru hlaup síðustu daga gerð upp. Við fengum skýrsla frá Kára Steini úr Vormaraþoninu, fórum yfir komandi hlaup og ræddum um daginn og veginn, aðallega hlaupaveginn! 2024-05-011h 30Út að hlaupaÚt að hlaupa#36 Styttist í sumarhlaupin!Í þættinum í dag verður farið yfir víðan völl, við ræðum við Arnar Pétursson um hvað framundan sé hjá þeim mikla kappa, slóum á þráðinn til Kalmars Kristins sem virðist vera búinn að finna réttu formúluna fyrir Bakgarðinn ásamt því að gera upp allskonar hlaup og hita upp fyrir önnur!  2024-04-231h 38Út að hlaupaÚt að hlaupa#35 Það er einhver hundur í okkurÞað er margt og mikið sem dregið var upp úr pokahorninu í dag. Hundar sem hlaupafélagar, Gummi Kri að detta úr formi, pælingahornið, hlaupauppgjör og svo mætti lengi telja! 2024-04-161h 19Út að hlaupaÚt að hlaupa#34 Við erum ekki hættir!Allskonar eyrnakonfekt á boðstólum í dag. Aprílgabb, hugleiðingar varðandi andlegu hliðina í hlaupum, Barkley marathons, símtal til austur Evrópu og margt fleira! 2024-04-061h 11Út að hlaupaÚt að hlaupa#33 Hvað á þessi þáttur að heita?Vorjafndægur, verknám og vandað hlaupaspjall var á boðstólum í dag. Hlaupauppgjör síðustu keppna, tónlist á hlaupum, símtal frá dyggum hlust-Ara þáttarins og margt fleira! 2024-03-211h 16Út að hlaupaÚt að hlaupa#32 Þrjátíu leiðir á toppinn!Farið var yfir allt frá veðri og vindum til úrslita síðustu hlaupa ásamt frábærum fróðleik um leiðarval fyrir æfingar vorsins! 2024-03-081h 04Út að hlaupaÚt að hlaupa#31 Fyrir alla hlustendur!Við fórum um víðan völl í dag, umræðan var allt frá kvíðakasti yfir í lyfjanotkun. Gerðum upp Bose hlaupið og hituðum upp fyrir vorið sem er í vændum! 2024-02-2459 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#30 Kolbeinn Höður GunnarssonMÍ krifjað, fjálsíþróttasenan og spretthlaup er á boðstólum hjá okkur langhlaupurunum í dag. Stórskemmtilegt viðtal við hraðasta mann landsins Kolbein Höð Gunnarsson!  2024-02-211h 48Út að hlaupaÚt að hlaupa#29 Þú getur þetta alltaf, þú þarft bara að pína þig!Allt frá hlaupum á braut í snjómoð í fjöllunum ásamt allskonar í viðbót! 2024-02-1250 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#28 Engar tásumyndir frá TeneVið erum komnir í vorfíling, enda kominn febrúar. Í þættinum ræðum við landsliðsverkefnið í Frakklandi, ITRA og margt fleira. Góðir gestir slá á þráðinn og við hlaupum hressir inn í helgina! 2024-02-021h 19Út að hlaupaÚt að hlaupa#27 Nýtt ár, ný tækifæri!Annað season komið af stað hjá okkur í Út að hlaupa. 2024-01-171h 07Út að hlaupaÚt að hlaupaJÓLADAGATAL ÚT AÐ HLAUPA - Þáttur 3Þriðji þáttur af jóladagatalinu kominn út, Gleðileg jól!2023-12-2323 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#26 Íris Anna SkúladóttirViðtal við ofurkonuna Írisi Önnu Skúladóttur þar sem hún fer yfir hlaupaferilinn, fjölskyldulífið og margt fleira. Loksins náðum við að setjast saman fyrir framan hljóðnemana. Vonandi finnst ykkur jafn gaman og okkur að hlusta á Írisi Önnu! 2023-12-211h 53Út að hlaupaÚt að hlaupaJÓLADAGATAL ÚT AÐ HLAUPA - Þáttur 2Jólastemningin heldur áfram hjá Út að hlaupa bræðrum, að þessu sinni var það Thelma Björk Einarsdóttir sem spjallaði við okkur! 2023-12-2017 minÚt að hlaupaÚt að hlaupaJÓLADAGATAL ÚT AÐ HLAUPA - Þáttur 1Nú eru jólasveinarnir komnir til byggða og Út að hlaupa strákarnir náðu að sjálfsögðu tali á þeim. Sá fyrsti er enginn annar en góðvinur þáttarins, Örvar Steingrímsson! 2023-12-1828 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#25 Valencia uppgjörÍ þættinum í dag verður Valencia maraþonið gert upp. Sagan verður á sínum stað, Strava liðurinn og allt þetta helsta. Hlustun gerir eyrunum gott! 2023-12-111h 16Út að hlaupaÚt að hlaupa#24 Ekki vera beinbjúga og drullaðu þér út!Hlaupaspjall eins og það gerist best, nýr dagskrárliður, nóg af aulabröndurum og spjall við Tobba og Andreu! 2023-11-271h 06Út að hlaupaÚt að hlaupa#23 Höfuðljós getur dimmu í dagsljós breyttÍ þættinum er farið yfir síðustu hlaup, strava liðurinn er á sínum stað og síminn var að sjálfsögðu tekinn upp en allar línur voru rauðglóandi að vanda!2023-11-101h 22Út að hlaupaÚt að hlaupa#22 Það verður ekki aftur núiðÍ þættinum ræða þeir út að hlaupa bræður það nýliðna, framhaldið og allt þar á milli er varðar hlaup! 2023-10-281h 12Út að hlaupaÚt að hlaupa#21 Petter Engdahl - UTMB, mastering the right training volume, nutrition thoughts and team spirit!Þriðji þáttur af liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við erlenda hlaupara. Þriðja viðtalið er við engan annan en síkáta Svíann, Petter Engdahl. Það þarf vart að kynna kappann en hann vann til að mynda CCC (100 km og 6000+ hæðarmetrar) árið 2022 sem er eitt sterkasta hlaup heims. 2023-10-201h 41Út að hlaupaÚt að hlaupa#20 Afsakið hlé!Afsakið langa pásu en hér er glóðvolgur þáttur af laufléttu hlaupaspjalli og vonandi stutt í þann næsta! 2023-10-1553 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa19 Live Út að hlaupa í ÚtilífÚt að hlaupa bræður stikla á stóru varðandi hlaupasumarið í sérstökum live þætti í Útilíf. Sérstakar þakkir fá þau sem mættu í salinn. Einhverntíman er allt fyrst!2023-09-2757 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#18 Wildstrubel uppgjör og styrkur með Gumma KriGlænýr þáttur kominn í loftið þar sem Wildstrubel ferðin til Sviss var gerð upp. Einnig fara strákarnir yfir styrktaræfingar með Gumma Kri hjá Elite þjálfun. 2023-09-211h 36Út að hlaupaÚt að hlaupa#17 Þú þarft bara hlaupaskó!Við förum um víðan völl í þætti dagsins, allt frá hlaupaskotfimi yfir í hvað virkar best í baráttunni við krampa! 2023-09-041h 15Út að hlaupaÚt að hlaupa#16 Reykjavíkurmaraþons uppgörTitillinn segir allt sem segja þarf fyrir þennan þátt!2023-08-211h 05Út að hlaupaÚt að hlaupa#15 Bailey Kowalczyk - Professional trail runner and amazing role model!Annar þáttur að liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við erlenda hlaupara. Að þessu sinni er Bailey Kowalczyk viðmælandi þáttarins. Bailey er hlaupari að atvinnu og er í Bandaríska landsliðinu í utanvegahlaupum. Hún var fimmta í Golden Trail Series árið 2022. Hlustun er heyrn ríkari! 2023-08-171h 22Út að hlaupaÚt að hlaupa#14 Við erum í team Útilíf!Við erum mættir aftur, ferskir sem aldrei fyrr eftir smá sumarfrí!2023-08-1351 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#13 Halldóra Huld IngvarsdóttirViðtal við Halldóru Huld Ingvarsdóttur hlaupadrottningu með meiru! 2023-08-021h 28Út að hlaupaÚt að hlaupa#12 Ætlar þú að hlaupa Araþon?Allskonar umræður um það hvernig á að undirbúa sig fyrir stórt verkefni á borð við Reykjavíkurmaraþonið.2023-07-251h 03Út að hlaupaÚt að hlaupa#11 LaugavegsuppgjörLaugavegsuppgjörið mikla! 2023-07-171h 33Út að hlaupaÚt að hlaupa#10 Við erum öll að Strava gamanKeppnisvikan fyrir Laugaveginn, Dyrfjallahlaupið, Akureyrarhlaupið, Saga Garðars og margt fleira rætt í sjóðandi heitum og glænýjum þætti af Út að hlaupa! 2023-07-1158 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#9 Stian Angermund - 2x world champion trail running winnerFyrsti þáttur af liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við hlaupara erlendis. Fyrsta viðtalið er við tvöfaldan heimsmeistara í fjallahlaupum, Norðmanninn geðþekka Stian Angermund.2023-07-071h 13Út að hlaupaÚt að hlaupa#8 Allur heimurinn er úti að hlaupaHólmsheiðarhlaupið, Stravaliðurinn og mannasiðir á hlaupum var á milli tannanna á Teinunum tveimur í þætti dagsins!2023-07-0557 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#7 Laugavegsupphitun X Villi í Steve DagskráÍ þættinum er farið yfir víðan Laugaveg með einum af okkar dáðustu hlaðvarpssonum og sjónvarpsstjörnum, Vilhjálmi Hallssyni. Við mælum með að poppa og njóta hlustunarinnar eftir góðan hlaupatúr! 2023-06-3058 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#6 Sá vinnur sem mest hefur gamanÍ þættinum var Snæfellsjökulshlaupið krufið til mergjar þar sem hlaupasögur frá okkur félögunum fengu mikið rými. Hugmyndum af deildarkeppni í hlaupunum kom upp á yfirborðið, áhugavert að sjá hvert það fer! 2023-06-261h 11Út að hlaupaÚt að hlaupa#5 Alinn upp á orðagríniFimmti þátturinn er mættur! Esjan Ultra, Gullspretturinn og margt fleiri á boðstólum. Sá vinnur sem mest hefur gaman! Fylgdu okkur á @utadhlaupa á Instagram!  2023-06-221h 02Út að hlaupaÚt að hlaupa#4 Guðni forseti orðinn valtur í sessiÍ þættinum er HM í Austurríki gert upp ásamt síðustu hlaupum á Íslandi. 2023-06-141h 05Út að hlaupaÚt að hlaupa#3 Svaðilför Nick Gísla til AfríkuNick Gísli Janssen er viðmælandi þáttarins í dag. Hann fer lauslega yfir það hvernig hann fór út í hlaup ásamt því að segja okkur frá upplifun sinni af 6 vikna æfingaferð til Kenía. 2023-06-0745 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#2 Tveggja teina talÍ þætti dagsins er Hvítasunnuhlaupið rætt ásamt komandi hlaupum í sumar. Nýjir dagskrárliðir líta dagsins ljós og eins og einn aulabrandari fékk að fljóta með. 2023-06-0141 minÚt að hlaupaÚt að hlaupa#1 Pilot UrbancicFyrsti þáttur af hinu sívinsæla hlaupahlaðvarpi Út að hlaupa. Þáttastjórnendurnir Þorsteinn Roy Jóhannsson og Marteinn Urbancic fara yfir fyrstu hlaup sumarsins, Heimsmeistaramótið í Austurríki ásamt fleiri stórskemmtilegum viðfangsefnum. Hlustun er sögu ríkari!2023-05-2451 min