podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Rafn Franklin Johnson
Shows
Podcast með Sölva Tryggva
Rafn Franklín (brot af því besta)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Rafn Franklín Johnson er einkaþjálfari sem hefur kafað dýpra en flestir ofan í allt sem snýr að heilsu. Hann hóf að æfa lyftingar sem unglingur og át þá allt sem að kjafti kom og hugsaði um lítið annað en að verða sterkari. En á ákveðnum punkti áttaði hann sig á því að hann var á leiðinni í óheilbrigða átt og breytti alveg um takt. Rafn gaf nýverið út sýna fyrstu bók: ,,Borðum Betur". Í þættinum ræða Sölvi og Rafn um lífsstíl, heilsu, hreyfingu...
2024-02-22
26 min
360 Heilsa
Lykillinn að því að vera OK með Andra Iceland
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa --------------------------- Í þessum þætti fæ ég íslenska kuldakonunginn Andra Iceland til mín í annað skiptið. Í þetta sinn víkkum við umræðuna úr kuldanum yfir í hita, öndun, hugarfar, streitu og margt fleira. Við ræðum einnig um áhugaverða ráðstefnu sem Andri stendur fyrir og verður haldin í Hörpu 18. febrúar næstkomandi.
2023-02-10
52 min
360 Heilsa
Asíu ævintýri, yoga, heilsa, lífsstíl, innsæi og fleira með Apríl Hörpu
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir. Apríl er yoga kennari, meðeigandi fyrirtækisins cocobutts.is og framkvæmdastjóri Sólir yogastöðvar á Granda. Í þættinum ræðum við um 9 ára ferðalag Aprílar um Asíu, barneignir og uppeldi á Balí, fræðin og heimspekina á bakvið yoga, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og margt fleira.
2023-01-30
47 min
360 Heilsa
9 uppáhalds "biohacking" tólin mín
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir þær svokölluðu "biohacking" græjur sem ég nota reglulega til að bæta eða viðhalda heilsunni og bæta árangur og vellíðan. Ég hef prófað mikið af allskonar mismunandi græjum en það er stór hluti af þeim sem hafa fljótlega endað ofan í skúffu. En eftirfarandi listi af 9 biohacking vörum er eitthvað sem ég sé mikið notagildi í og nota að staðaldri eða mjög reglulega til
2023-01-26
26 min
360 Heilsa
Þarmaflóran, functional medicine, heildræn heilsa og fleira með Dr. Jens Guðmunds
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Jens K. Guðmundsson er læknir með sérmenntun í háls, nef og eyrnalækningum. Hann hefur yfir 15 ára reynslu í læknageiranum og vann um tíma í (HNE) skurðlækningum og á bráðadeild. Jens hefur á síðastliðnum árum fært sig meira yfir í functional medicine og sótti nám í þeim fræðum hjá Kresser Institute í bandaríkjunum. Hann lærði einnig heildræn heilsufræði hjá CHEK institute í bretlandi og hefur nýtt það samhliða fun...
2022-11-24
53 min
360 Heilsa
9 ástæður þess að þú ert ekki að komast í þitt draumaform
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir 9 atriði sem gætu verið ástæða þess að þú ert ekki að ná markmiðum þínum þegar kemur að fitutapi. Sumir vilja meina að þeir hafi látið á allt reyna en geti ekki losnað við aukakílóin. Oftar en ekki eru þó ákveðin atriði sem eru í blindblett eða "blindspot" hjá okkur sem koma í veg fyrir að við náum þeim árangri sem við teljum okkur eiga skilið. Þessi þáttur er unninn í...
2022-11-07
12 min
360 Heilsa
Áhrif hugleiðslu á heilann, streitu, vellíðan og heilsu með Ingvari H. Ólafs og Laufey Steindórs
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestir þáttarins eru hjónin Ingvar hákon Ólafsson, heila- og taugaskurðlæknir og Laufey steindórs, gjörgæsluhjúkrunafræðingur og jóga- og hugleiðslukennari. Eftir að Laufey lenti í andlegu og líkamlegu hruni árið 2013 fóru þau hjón að kynna sér betur fræði og vísindi núvitundar og hugleiðslu og áhrif þess á heilann, streitu, vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við þessi mál og fleira. Sjá www.kyrrdarjoga.is fyrir 3 fríar
2022-11-01
44 min
360 Heilsa
Lífsstíll, heilsa og meðferðir við offitu og ofþyngd með Erlu Gerði Sveins
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þessa þáttar er Erla Gerður sveinsdóttir heimilislæknir og lýðheilsufræðingur. Erla sérhæfir sig í offitumeðferð og hefur eytt síðastliðnum áratug í að aðstoða fólk í offitu og fræða fólk um þennan sjúkdóm sem fer vaxandi hér á landi og víðar í heiminum. Erla leggur áherslu á heildræna nálgun í meðferð sinni og segir ótalmarga þætti spila hlutverk þegar kemur að offitu, hlutir eins og erfðir, hormón, svefn, líkamskluk
2022-10-25
42 min
360 Heilsa
Skömm, sjálfsmat, andleg heilsa o.fl. með Guðbrandi Á. Ísberg
Guðbrandur er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Guðbrandur lauk embættisprófi í sálarfræði frá Árósarháskóla árið 1999 og seinna framhaldsnámi í hugrænni atferlismeðferð og ársnámi í taugavísindum mannlegra tengsla, auk fjölda námskeiða hér heima og erlendis meðal annars í handleiðslufræðum. Í Danmörku starfaði Guðbrandur á meðferðarstofnun fyrir traumatíserað flóttafólk og seinna á fjölskyldumeðferðarstofnun. Síðustu ár hefur Guðbrandur lagt aðaláherslu á vinnu með sálræn áföll, sorgarúrvinnslu, afleiðingar skilnaðar og ýmsan t...
2022-09-21
43 min
360 Heilsa
Meðvirkni, streita, kulnun, samskipti o.fl með Gyðu Dröfn og Kristínu Sigurðar
Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy) sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er formaður Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands. Til að kynnast betur því sem Gyða og Kristín eru að gera: https://www.facebook.com/aheildinalitid https://www.facebook.com/heillheimur Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sin...
2022-09-12
43 min
360 Heilsa
Mataræði, næring fyrir börn, einföld matargerð, lífsstíllinn o.fl með Indíönu Jóhanns
Indíana Nanna Jóhannsdóttir er einka- og hóptímaþjálfari og stofnandi GoMove Iceland. Indíana hefur mikinn áhuga á hreyfingu, næringu og matargerð og er hún dugleg að deila allskyns uppskriftum, æfingum og fleira áhugaverðu á instagram síðunni sinni @indianajohanns. Í þættinum ræddum við um allskyns hluti tengda hennar lífsstíl ásamt mataræðispælingum, einföldum matartipsum, næringu fyrir börnin, ketilbjölluþjálfun og fleira skemmtilegt. www.gomove.is Skráðu þig í áskrift á hlaðvarpinu til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.
2022-09-02
51 min
360 Heilsa
Óhefðbundin nálgun á hreyfingu, heilsu og lífsstíl með Núma Snæ
Gestur þáttarins er Númi Snær Katrínarson. Númi er menntaður einkaþjálfari og nuddari ásamt því að vera fyrrum keppnismaður í CrossFit og sundi. Númi hefur stofnað og rekið crossfit stöðvar hérlendis og erlendis og er í dag einn eiganda CrossFit stöðvarinnar Grandi 101. Númi hefur síðustu ár skipt um fókus og fært sig meira frá CrossFit heiminum yfir í öðruvísi nálgun á hreyfingu og heildræna heilsu. Hann hefur þá stofnað fyrirtækið "Movement Lab" ásamt þjálfaranum Wayne Paul. www.movelab.is Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þáttinn í heild...
2022-08-23
51 min
360 Heilsa
Öndunaræfingar fyrir betri svefn, orku, árangur og heilsu með Björgvini Pál
Gestur þáttarins er handboltakappinn Björgvin Páll Gústavsson. Björgvin hefur síðastliðin ár notað ákveðnar öndunaræfingar til að vinna á sínum kvíða, ná betri árangri í handboltanum og upplifa betri vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við hans vegferð og förum yfir allskyns öndunaræfingar sem fólk getur gert til að bæta þol og afköst í æfingum, vinna á kvíða, auka orku og vellíðan, bæta svefn og margt fleira. Framhald af áskriftarþætti #9. Mouthtaping 101 ---- Skráðu þig í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu til að hlusta á alla þætti í heild:
2022-08-12
41 min
Podcast með Sölva Tryggva
#75 Rafn Franklín með Sölva Tryggva
Rafn Franklín Johnson er einkaþjálfari sem hefur kafað dýpra en flestir ofan í allt sem snýr að heilsu. Hann hóf að æfa lyftingar sem unglingur og át þá allt sem að kjafti kom og hugsaði um lítið annað en að verða sterkari. En á ákveðnum punkti áttaði hann sig á því að hann var á leiðinni í óheilbrigða átt og breytti alveg um takt. Rafn gaf nýverið út sýna fyrstu bók: ,,Borðum Betur". Í þættinum ræða Sölvi og Rafn um lífsstíl, heilsu, hreyfingu, matarræði, skilaboð samfélagsins varðandi alla þessa þætti og m...
2022-08-08
2h 02
360 Heilsa
Jafnvægi og heilsa með Arnóri Svein Aðalsteins
Gestur þáttarins er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Arnór er einn af mínum uppáhalds mönnum til að ræða við. Hann hefur gaman af því að pæla í hlutunum og því langaði mig að fá hann í þáttinn til að ræða um "jafnvægi" og hvað það þýðir í tengslum við heilsu. Jafnvægi er bæði víðtækt og afstætt hugtak sem er oft notað í heilsugeiranum. En hvað þýðir það raunverulega og hvernig getum við öðlast meira jafnvægi til að öðlast betri heilsu? Skráðu þig í áskrift til að fá aðengi að öllum þáttum 360 Heilsu:
2022-08-07
59 min
360 Heilsa
Lífrænt líf með Önnu Maríu Björns
Gestur þáttarins er Anna María Björnsdóttir. Anna María er alveg einstök áhugamanneskja um lífræna ræktun og áhrif hennar á heilsu fólks og umhverfisins og hefur hún s.l tæp 2 ár verið að vinna að heimildarmynd um lífræna ræktun á íslandi. Í þættinum spyr ég hana spjörunum úr og við förum yfir allt sem viðkemur lífrænni ræktun og af hverju hún ætti að skipta okkur öll máli.
2022-07-20
46 min
360 Heilsa
Heilsuvegferðin, mataræði á leikskólum, húðvandamál og lífsstíll o.fl með Aroni og Hildi
Gestir þáttarins í dag eru þau Hildur Leonardsdóttir og Aron Skúlason. Þau eru par, búsett á Akureyri og halda uppi ansi áhugaverðum instagram reikning sem heitir "Frá toppi til táar". Þar fjalla þau um allskyns verðug heilsumálefni og birta reglulega skemmtilega og áhugaverða fræðslupósta um ýmsa hluti sem tengjast heilsu, umhverfinu o.fl. Ég mæli hiklaust með að fylgja þeim á instagram undir nafninu "Frá toppi til táar"
2022-07-05
42 min
360 Heilsa
Áhrif hreyfingar og lífsstíls á kvíða og andlega heilsu með Þórdísi Vals
Í þessum þætti ræði ég við fjölmiðladrottninguna og lögfræðinginn Þórdísi Valsdóttur. Ég kynntist Þórdísi fyrst þegar hún kom til mín í einkaþjálfun og fékk þar innsýn í hennar áhugaverðu sögu. Í þættinum spjöllum við um hvernig fortíð hennar og æskuáföll hafa mótað hana, hvernig hún hefur lært að nota hreyfingu til að umturna andlegri heilsu sinni og vegferðin hennar með kvíða- og þunglyndislyf og fleira. Komdu í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu með því að smella hér: www.360heilsa.is/hladvarp Samstarfsaðilar þáttarins: NUUN Electrolytes - fáanlegt í helst...
2022-06-29
2h 04
360 Heilsa
Áföll, EMDR meðferð, kvíði, andleg heilsa og fleira með Rósu Richter
Gestur þáttarins hjá mér í dag er Rósa Richter. Rósa starfar sem sálfræðingur og EMDR meðferðaraðili hjá EMDR stofunni og aðstoðar þar bæði börn og fullorðna við að vinna á hlutum eins og: Áföllum og áfallastreituröskun Tenglsavanda Þunglyndi Kvíða Fíknivanda Meðvirkni Í þættinum ræðum við um margt sem viðkemur andlegri heilsu og áföllum. Hlutir eins og hvað er EMDR meðferð og hvernig virkar hún til að vinna í áföllum. Hvað eru áföll, hvernig getum við hugað betur að andlegri heilsu, unnið á kvíða og margt fleira.
2022-06-29
35 min
360 Heilsa
Meiri orka, betri einbeiting, aukinn styrkur og minni streita með þessum mikilvægu efnum
Í þessum þætti ræði ég ákveðið málefni sem ég tel hafa fengið of aðeins of litla athygli. Þá sérstaklega hjá þeim sem stunda reglulega þjálfun og hreyfingu. Þetta eru sölt og steinefni. Í þættinum ætla ég að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega, afhverju þetta ætti að skipta þig máli, hvort þú ættir að auka inntöku eða minnka inntöku á þessum efnum, hvernig þá og af hverju. Sömuleiðis fer ég yfir af hverju ég er ósammála hefðbundnum ráðleggingum um að við ættum að lágmarka saltneyslu fyrir bætta heilsu.
2022-06-10
25 min
360 Heilsa
Hlutirnir sem enginn talar um þegar kemur að föstum
Föstur hafa lengi verið talin allrameina bót. Á síðustu árum hafa allskyns mismunandi föstur eins og 16:8, 5:2 og fleiri vaxið gríðarlega í vinsældum. Föstur eru taldar bæði stuðla að bættri heilsu og hjálpa fólki að losna við aukakílóin og komast í betra form. Föstur hafa þó sína "skuggahlið". Hlutir sem fáir tala um en eru gríðarlega mikilvægir þegar kemur að ákvörðuninni um hver eigi að fasta yfir höfuð og hver ekki, hversu lengi og hvenær. Í þessum þætti varpa ég ljósi á þær skuggahliðar fasta sem engi
2022-06-03
14 min
360 Heilsa
Besta ráðið til að léttast áreynslulaust (sem þú ert líklegast ekki að gera)
Frá því ég byrjaði að þjálfa fólk fyrir að verða 10 árum síðan hef ég uppgötvað ákveðið mynstur sem virðist sameiginlegt milli allra þeirra sem eiga erfitt með að koma sér í form og viðhalda því til lengri tíma. Í þessum þætti uppljóstra ég þessu mynstri ásamt nokkrum conceptum sem munu gera þér kleift að léttast og komast í betra form svo gott sem áreynslulaust.
2022-06-01
12 min
360 Heilsa
Leiðir að Hugarfrelsi með Unni og Hrafnhildi
Í þessum þætti fékk ég til mín þær Hrafnhildi og Unni, stofnendur Hugarfrelsis. Hugarfrelsi stendur fyrir ýmis konar fræðslu, námskeiðum og fyrirlestrum þar sem börnum, unglingum, foreldrum og fagfólki er kennt að nota einfaldar aðferðir til að efla sjálfsmynd og vellíðan. Í þættinum fékk ég að kynnast betur þeirra hugmyndafræði og hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin lífi og öðlast aukið hugarfrelsi. Þær vilja bjóða öllum hlustendum hlaðvarpsins 15% afslátt af nýju netnámskeiði sem þær voru að gefa út sem heitir "Veldu". Frábært námskeið fy...
2021-04-19
1h 18
360 Heilsa
Andleg heilsa, geðrækt, Andagift og fleira með Tinnu Sverris og Láru Rúnars
Í þættinum í dag fékk ég til mín stofnendur fyrirtækisins Andagift, Láru Rúnars og Tinnu Sverris. Andagift snýr að því að efla andlegt heilbrigði og vellíðan með viðburðum og námskeiðum eins og: – Möntrukvöld – Kakó athafnir – Retreat – Andagift festival – Innri Veröld Í þættinum förum við yfir þetta alltsaman ásamt þeirra vegferð, almennum pælingum um andlega heilsu, geðrækt og fleira. ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Kryddhúsið - www.kryd
2021-03-29
1h 52
360 Heilsa
#47. Hvað á að gefa börnunum að borða og almenn umræða um heilsu með Ebbu Guðnýju
Gestur þáttarins í dag er kennarinn, rithöfundurinn, matreiðslukonan og heilsufrumkvöðullinn Ebba Guðný eða Pure Ebba. Ebba hefur gefið út þrjár vinsælar bækur, "Eldað með Ebbu" uppskriftarbækur og síðan "Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?" Í þættinum fórum við yfir matarmál barna, heilsuvegferð Ebbu og almenna umræðu um heilbrigðan lífsstíl. ------------------------ Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Borðum betur - www.360heilsa.is/bordumbetur
2021-03-02
1h 39
360 Heilsa
#46. KAP - Er Kundalini Activation Process fyrir þig? Með Þóru Hlín Friðriks
Gestur þáttarins í dag er Þóra Hlín Friðriksdóttir. Þóra er fyrrum starfandi hjúkrunafræðingur en hefur í dag snúið athyglinni alfarið að fyrirbæri sem kallast KAP eða Kundalini Activation Process. Í þættinum förum við yfir hvað KAP er, hver hugsunin er á bakvið það og af hverju fólk ætti að stunda KAP. Þóra Hlín kennir KAP tímana sína í Sólir á Granda. -------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Kryddhúsið - www.kryddhusid.is
2021-02-22
56 min
360 Heilsa
Af hverju lífrænt, loftlagsáhrif, gerilsneyðing, fitusprenging o.fl með Kristjáni Oddssyni bónda
Gestur þáttarins í dag er Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós. Kristján er mikill frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Veristable blóðsykursmælir - www.360heilsa.is/veristable
2021-02-15
1h 23
360 Heilsa
Taka ábyrgð, frá vegan í kjöt, barefoot og margt fleira með Arnóri Svein
Gestur þáttarins í dag er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Við förum um víðan völl og ræðum um alls kyns mál tengd heilsu. Vegferð hans frá vegan lífsstíl í að borða aftur kjöt, hvernig hann leysti meiðslavandamál í fótum með því að vera berfættur og mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi. --------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.canivore.is/budin Veri-Stable blóðsykursmælir (www.360heilsa.is/betriblodsykur)
2021-02-09
2h 06
360 Heilsa
Innihaldsríkara líf eða hamingjuríkara líf? Með Begga Ólafs
Bergsveinn ólafsson er gestur þáttarins í dag. Beggi er með MSc í Hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði, fyrirlesari, fyrrum fótboltamaður og mikill spekingur. Í þættinum spjölluðum við um nýju bókina sem hann var að gefa út, 10 skref að innihaldsríkara lífi og köfuðum ofan í hvernig við getum öðlast innihaldsríkara líf og af hverju það skiptir meira máli heldur en hamingjuríkt líf. Bókin hans er fáanleg í öllum helstu bókaverslunum, hagkaup, nettó og fleiri stöðum og fyrir þá sem hafa áhuga býður hann einnig upp á tíma í þjálfunarsálfræði sem h...
2021-02-01
1h 49
360 Heilsa
Allt um hómópatíu með Guðnýju Ósk hómópata
Gestur þáttarins er hómópatinn Guðný Ósk Diðriksdóttir. Guðný lærði hómópatíu við The College of Practical Homeopathy, í Bretlandi, 1999-2003 og er einn af stofnendum hómópatíuskóla á Íslandi, Iceland School of Homeopathy. Ásamt því að starfa sem hómópati, rekur Guðný Ósk Heildræna heilsu ehf og heldur úti vefsíðunni www.heildraenheilsa.is þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar og fræðslu tengdri hómópatíu. Guðný hefur síðan einnig skrifað bækurnar Meðganga og fæðing með hómópatíu og Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu sem vor...
2020-11-25
1h 25
360 Heilsa
ADHD, áföll, andleg heilsa, vitundavíkkandi efni o.fl. með Haraldi Erlends geðlækni
Gestur þáttarins í dag er Haraldur Erlendsson Geðlæknir. Fæddur í Kaupmannahöfn og uppalinn í Reykjavík. Útskrifaður úr læknadeild háskóla Íslands Tók nám í taugalækningum í London og lærði síðan geðlækningar í Bretlandi um árið 2000. Haraldur starfaði í rúm 10 ár sem geðlæknir í bretlandi þar til hann flutti til íslands árið 2012 og tók þar við störfum sem yfirlæknir og forstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði en hefur í dag hafið sinn eigin stofurekstur í kópavogi. Hann heldur einnig uppi vefsíðunni www.télos.is Haraldur er einstaklega áhugaverður maður að ræða við. Uppfullur af fró...
2020-11-18
1h 39
360 Heilsa
Heilsa er ekki heppni með Lukku Páls
Gestur þáttarins er Lukka Pálsdóttir, sjúkraþjálfari, einkaþjálfari og stofnandi heilsuveitingastaðarins Happ. Í dag hefur hún stofnað fyrirtækið www.greenfit.is sem snýr að fyrirbyggjandi lausnum til að bæta heilsu og hámarka árangur. Við Lukka ræðum um ýmsa hluti sem þarf að huga að þegar kemur að heilsu eins og blóðsykurstjórnun, hvaða næringarefni er algengt að fólki vanti ásamt hvernig við getum bætt heilsuna okkar á einfaldan og skilvirkan máta. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is - ON skór www.purenat...
2020-11-12
1h 27
360 Heilsa
Vaktavinna og svefn
Hvað er hægt að gera til að halda svefninum og heilsunni í standi samhliða vaktavinnu. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is - ON skór www.carnivore.is/budin www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum m. kóða "360heilsa" www.360heilsa.is/fyrirlestrar - Bókaðu fyrirlestur fyrir þitt fyrirtæki
2020-10-26
24 min
360 Heilsa
Vangaveltur um geðheilbrigði með Héðni Unnsteins
Héðinn Unnsteinsson er stefnumótunarsérfræðingur með meistargráðu í alþjóðlegri stefnumótun og stefnugreiningu frá Háskólanum í Bath á Englandi. Hann starfaði sem stefnumótunarsérfæðingur í forsætisráðuneytinu 2010 til 2018 og var formaður stefnuráðs Stjórnarráðsins. Héðinn starfði áður hjá heilbrigðisráðuneytinu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Hann hefur undanfarin 25 ár verið frumkvöðull í geðheilbrigðismálum og er í dag formaður Geðh...
2020-10-12
1h 23
360 Heilsa
Þurfum við "fjölbreytta" fæðu til að tryggja heilbrigði? Með Ævari Austfjörð
Heilbrigðisstofnanir og sérfræðingar leggja gjarnan áherslu á mikilvægi þess að borða "fjölbreytt". Samanber fæðuhring landlæknisembættisins. En er það í raun og veru mikilvægt? Hvernig borðuðum við fjölbreytta fæðu hér áður fyrr þegar lítið úrval var af fjölbreyttri fæðu? Þetta og fleira spjalla ég um með Ævari Austfjörð. Til að lesa pistil hans um málefnið smelltu hér: https://bit.ly/2FyYdAA ------------------------ Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af PN vörum m. kóða
2020-09-14
1h 55
360 Heilsa
Lykillinn að langvarandi fitutapi og bættri heilsu
Eru kaloríutalningar og algengir matarkúrar skilvirk leið að bættu fitutapi? Ekki að mínu mati. Hér kem ég með aðrar uppástungur um hvernig þú getur náð áreynslulausu fitutapi og bættri heilsu án þess að svelta þig eða telja ofan í þig hitaeiningarnar. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is - ON skór www.carnivore.is/budin www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum PN m. kóða "360heilsa"
2020-09-08
34 min
360 Heilsa
Allt sem þú vilt vita um þarmaflóruna með Birnu G. Ásbjörnsdóttur
Gestur þáttarins er Birna G. Ásbjörnsdóttir. Birna er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey Háskóla og hefur lokið áföngum í gagnnreyndum heilbrigðisfræðum við Oxfordháskóla. Birna starfar í dag sem ráðgjafi og heldur reglulega fyrirlestra og námskeið hérlendis og erlendis. Þú getur fundið frekari upplýsingar um Birnu á www.jorth.is ----------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa"
2020-08-31
1h 37
360 Heilsa
Matarkúrar, næring, algengar mýtur o.fl með Betu Reynis
Gestur þáttarins er Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur og næringarþerapisti. Þú getur fundið frekari upplýsingar um Elísabetu á https://www.facebook.com/betareynis/ Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum
2020-08-24
1h 59
360 Heilsa
Smámál: Ertu ómeðvitað að eyðileggja fyrir þér árangur?
Í þessum þætti fer ég yfir hugleiðingar mínar varðandi hvernig við getum, á tímum, ómeðvitað verið að eyðileggja fyrir okkur árangur í lífinu. Ég legg síðan fram mína tilgátu um hvað gæti staðið að baki og hvernig við getum unnið á því. ------------------ Samstafsaðilar þáttarnis: Bionette - Fáanlegt í flestum apótekum
2020-08-17
19 min
360 Heilsa
Andleg heilsa, skuggavinna og leiðir til að betra sjálfan þig með Helgu Arnardóttur
Gestur þáttarins er sálfræðingurinn Helga Arnardóttir. Helga er sálfræðimenntuð frá Háskóla Íslands. Hún er með mastersgráðu í félags- og heilsusálfræði og diploma á mastersstigi í jákvæðri sálfræði. Helga starfar sjálfstætt við ráðgjöf, námskeið og fræðslu um andlega heilsu og leiðir til að hlúa að henni. Hún heldur einnig uppi facebook síðu þar sem er bæði hægt að fylgjast með henni, bóka hana í ráðgjöf og fyrirlestra á síðunni "Andleg Heilsa". ------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sport...
2020-08-10
1h 42
360 Heilsa
Hugarfarsbreyting og litlu skrefin í átt að heilbrigðari lífsstíl
Þátturinn í dag er með óhefðbundnu sniði. Í þetta skiptið fékk ég frúnna, Karen Ósk Gylfadóttir, til að setjast á móti mér og spjalla um vegferðina okkar fjölskyldunnar í mataræði og lífsstíl. Hvernig hún byrjaði og hvernig hún hefur síðan þróast og mótast með tímanum. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum
2020-08-04
1h 05
360 Heilsa
Hin raunverulega ofurfæða, x factorinn í mataræði og fleira með Hildi Magnúsdóttur
Gestur þáttarins í dag er Hildur Magnúsdóttir eigandi fyrirtækisins Pure Natura (www.purenatura.is) sem framleiðir innmat sem fæðubót. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum www.uglanheilsuvorur.is - Skinners sokkar Þú færð 10% afslátt af vörunum hjá uglan heilsuvörur með kóðanum "360heilsa"
2020-07-21
1h 11
360 Heilsa
Biohacking, öndun, kvíði o.fl með Björgvini Pál Gústavs
Gestur þáttarins er Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta, bakari, biohacker og fleira. Við ræddum um Biohacking græjur, leiðir til að bæta öndun fyrir heilsu og frammistöðu í íþróttum, hvernig Björgvin hefur unnið á kvíðanum sínum og margt fleira. Við skoðuðum einnig heimagymmið hans sem hægt er að horfa á hér: www.instagram.com/rafnfranklin ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" www.uglanheilsuvorur.is ...
2020-07-13
1h 38
360 Heilsa
Líkamsrækt, mataræði og lífsstílsbreytingar með Bjödda einkaþjálfara
Gestur þáttarins er Björn Þór Sigurbjörnsson einkaþjálfari. Björn er með margra ára reynslu sem þjálfari og starfar í dag í World Class. Hann heldur einnig uppi síðunni www.likami.is þar sem hægt er að finna fróðlega pistla og aðrar upplýsingar. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.hreyfing.is - Besta aðild www.uglanheilsuvorur.is - Skinners sokkar Þú færð 10% afslátt af vörunum hjá uglan heilsuvörur með kóðanum "360heilsa"
2020-06-30
1h 35
360 Heilsa
Uppeldi, umhverfi og áhrif fyrstu áranna á börnin okkar með Sæunni Kjartans
Sæunn Kjartansdóttir er hjúkrunarfræðingur og sálgreinir frá Arbours Association í London. Hún sérhæfir sig í geðtengslum ungra barna og foreldra og hefur að auki ritað fjölmargar bækur um málefnið og fleira. ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum frá purenatura með kóðanum "360heilsa" www.360heilsa.is - farðu inná 360heilsa.is/vorur til að finna 4 vikna netnámskeiðið "360° Heilsa" og
2020-06-24
1h 17
360 Heilsa
Af hverju genin þín þurfa alvöru næringu með Dr. Catherine Shanahan
Gestur þessa þáttar er Dr. Catherine Shanahan, læknir frá Robert Wood Johnson læknaháskólanum í Bandaríkjunum. Dr. Shanahan skrifaði bókina: Deep Nutrition: Why Your Genes Need Traditional Food og í framhaldi hannaði hún "PRO Nutrition Program" sem næringarráðgjafi fyrir körfuboltaliðið LA Lakers. Síðan þá hefur hún einnig hjálpað til við að setja upp samstarf milli Whole Foods keðjunnar í bandaríkjunum og fjölda NBA liða. Þú getur fundið meira um Dr. Shanahan og bækurnar hennar á www.drcate.com og www.fatburnfix.com ------------------- S...
2020-06-15
59 min
360 Heilsa
Spjall við Rafn Franklín um heilsu - Hlaðvarp Arnórs
Þessi þáttur er viðtal sem Arnór Sveinn Aðalsteinsson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins "Hlaðvarp Arnórs, tók við Rafn Franklín. Spjallað var um allskonar heilsutengd málefni. Vegan og carnivore mataræði, pólitík og hagsmunaárekstra í heilsugeiranum, fæðubótarefni og margt fleira.
2020-06-09
1h 46
360 Heilsa
Hrotur, kæfisvefn, skakkar tennur, breytt andlitsfall o.fl með Hrönn Róberts
Hrönn Róbertsdóttir er tannlæknir og eigandi tannlæknastofunnar www.brosid.is. Hrönn notar áhrifaríkar aðferðir með sínum skjólstæðingum til að fyrirbyggja og vinna á hrotum og kæfisvefni og sömuleiðis lágmarka líkurnar á því að börn þrói með sér skakkar tennur. ---- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is www.purenatura.is (kóði f. purenatura vörur = "360heilsa")
2020-05-26
1h 09
360 Heilsa
Q&A - Grænmetisolíur, gervisætuefni, gerilsneyddar vörur, heilsusamlegasta íþróttin o.fl
Í þessum Q&A þætti eða "spurt og svarað" fer ég yfir spurningar varðandi: Er ég ósanngjarn á grænmetisolíur? Hvert er þitt álit á súkralósa? Eru gerilsneyddar mjólkurvörur óhollar? Hver er þín skoðun á engiferskotum? Hver er heilsusamlegasta íþróttin? á að forðast sólgleraugun í morgungöngunni? Ef þú vilt fá þínum spurningum svarað í næsta Q&A þætti, sendu hana inn hér: www.360heilsa.is/spurningar --------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is www.hreyfing.is www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 25% afslátt
2020-05-18
34 min
360 Heilsa
Sjálfshöfnun, fórnarlambshlutverkið og að læra að vilja sig með Guðna Gunnars
Guðni Gunnarsson er einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í meira en 35 ár og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi. Guðni stofnaði og rekur í dag Rope Yoga setrið (www.rys.is) og www.glomotion.is Hann hefur gefið út 3 bækur og í nýjustu bókinni hans "Máttur hjartans" fer hann yfir leiðir til að ná betri tökum á eigin lífi til að upplifa meiri velsæld og hamingju. ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is www.purenatura...
2020-05-08
1h 07
360 Heilsa
Jurtir fyrir heilsu, föstur, skjaldkirtillinn, functional medicine o.fl með Ásdísi grasalækni
Í þessum þætti fékk ég til mín Ásdísi Rögnu Einarsdóttur. Við fórum um víðan völl og ræddum um heilsu, grasalækningar, heilbrigðiskerfið, föstur, heilsu kvenna, skjaldkirtilinn, functional medicine og margt fleira. Ásdís er hafsjór af þekkingu og er að mínu mati að gera flotta hluti á sviði heilsu. Þú getur kynnt þér Ásdísi betur á www.grasalaeknir.is eða facebook síðunni hennar https://www.facebook.com/grasalaeknir.is/ --------------------- Þátturinn er unninn í samstarfi við www.sportvörur.is www.purenatura.is - 25% afsláttur af öllum vör
2020-05-04
1h 04
360 Heilsa
Heilsuþjófarnir þrír
Í þessum þætti fer ég yfir heilsuþjófana þrjá. Þrjá hluti sem eru allt í kringum okkur og eru virkilega að ræna frá okkur heilsunni. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.hreyfing.is www.purenatura.is - Kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt -------------- Þessi þáttur var unninn af Arnari Dór Ólafssyni.
2020-04-19
1h 00
360 Heilsa
Hvernig öndun getur breytt lífi þínu (og barnanna þinna) með Patrick Mckeown
Gestur þessa þáttar er öndunarsérfræðingurinn Patrick Mckeown. Patrick er sérhæfður í Buteyko öndunarfræði sem hann lærði í Rússlandi árið 2002 undir Professor Konstantin Buteyko. Síðan þá hefur Patrick unnið með þúsundum fólks, allt frá börnum og fullorðnum með asmtma, svefnörðugleika og öndunarvandamál yfir í afreksíþróttafólk og ólympíufara. Hann hefur hingað til skrifað 8 bækur um öndun og nýjasta bókin hans "The Oxygen Advantage" hefur náð gríðarlegum vinsældum um allann heim og verið þýdd á 10 tungumál. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www...
2020-04-08
1h 16
360 Heilsa
Ert þú meðvirk/ur? með Gyðu Dröfn Tryggvadóttir
Ath. Ég biðst innilegrar velvirðingar á lélegu hljóði í þættinum. Tæknin var ekki nógu meðvirk. Gestur þáttarins í dag er Gyða Dröfn Tryggvadóttir. Hún starfar sem meðvirkiráðgjafi og kennari á sviði núvitundar og meðvirkni. Gyða er með meistargráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá háskólanum í Rvk og síðan hefur hún lokið námi í meðvirknifræðum Piu Mellody, sem er leiðandi sérfræðingur í þessum fræðum. Gyða færir rök fyrir því að meðvirkni verði til í æsku en sé ekki meðfætt fyrirbæri. H...
2020-04-01
1h 09
360 Heilsa
Vegferðin að bættri heilsu, tilgangur o.fl með Sölva Tryggva
Gestur þáttarins í dag er enginn annar en fjölmiðlamaðurinn og heilsumógúllinn Sölvi Tryggvason. Eins og eflaust margir landsmenn vita þá hefur Sölvi frá áhugaverðri sögu að segja um sitt ferðalag í átt að bættu heilbrigði og betri útgáfu af sjálfum sér sem hann fjallar um í bókinni sinni "á eigin skinni". Í þessum þætti spjölluðum við um vegferðina að bættri heilsu og hvað þarf að vera til staðar til að taka jákvæð skref í átt að bættri heilsu. Við köfuðum síðan í dýpri sálma eins og tilgang, drauma og fleira...
2020-03-22
1h 19
360 Heilsa
Aðgerðir sem ég ætla að tileinka mér til varnar gegn COVID-19
Í þessum þætti fer ég yfir nokkur atriði sem ég persónulega hef og ætla að tileinka mér til að verja mig sem best gegn Covid veirunni. Miðað við þá gríðarlegu umfjöllun sem hefur átt sér stað síðastliðnar vikur þá finnst mér klárlega vanta heilsuvinkilinn í umræðuna. Hvað getum við sem einstaklingar gert til að gera okkur enn hraustari og heilsusamlegri til að vera betur í stakk búin til að takast á við veiruna ef við skyldum fá hana. ------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.blublox.com - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt www.hreyfing.is www.pur
2020-03-13
21 min
360 Heilsa
Taugakerfið, streita, öndun, munnteip, hreyfiflæði o.fl með Einari Carl
Gesturinn í þessum þætti er Einar Carl, einn af stofnendum og eigandi Primal Iceland líkamsræktarstöðinni í Faxafeni 12. Einar er með virkilega áhugaverða og óhefðbundna sýn á hreyfingu og hvernig streita, taugakerfið, öndun og hreyfing hangir allt saman og getur verið beitt á mismunandi vegu til að vinna á ýmis stoðkerfis- og heilsufarsvandamálum. Við fórum um víðan völl og köfuðum ofan í allskyns áhugaverða hluti eins og taugakerfið, streitu, öndun, munnteip, hreyfiflæði og margt fleira. Ef þú vilt kynnast Einari Carl meira og því sem hann er að gera getur þú farið inn á www.primal.is eð...
2020-03-11
1h 31
360 Heilsa
Q&A - Feitir einkaþjálfarar, föstur, mjólkurvörur, sólarupprás og fleira.
Í þessum nýja Q&A þáttarlið hjá mér svara ég spurningum hlustenda og gef mitt álit á öllu mögulegu sem við kemur heilsu. - Til að senda inn spurningu í þáttinn ferðu einfaldlega inn á www.360heilsa.is/spurningar og sendir inn. Ég geri mitt besta til að svara þeim spurningum í þættinum sem ég tel eiga við. - Ég svara öllum spurningum einungis útfrá persónulegri reynslu, skoðun og þekkingu og ætti því undir engum kringumstæðum að túlka þau svör sem ráðgjöf af neinu tagi. ----- Samstarfsaðilar þáttarins: - Hreyfing heil...
2020-02-27
36 min
360 Heilsa
Kírópraktík, líkamsstaða, functional þjálfun og af hverju þú ættir að æfa berfættur með Matta Kíró
Mattías Arnarson, lærður kírópraktor, kom til mín í þáttinn í dag. Við spjölluðum um allskyns hluti eins og hver er ávinningur þess að heimsækja kírópraktor, mikilvægi líkamsstöðu og afleiðingar slæmrar líkamsstöðu, functional þjálfun, af hverju þú ættir hugsanlega að endurskoða skóna sem þú notar og í staðinn eyða meiri tíma berfættur og margt fleira. Ekki gleyma að smella á subscribe til að missa ekki af næsta þætti! ---------- Samstarfsaðilar þáttarins: -www.sportvorur.is -www.blublox.com- kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.purenatura.is-
2020-02-17
1h 19
360 Heilsa
Líkamsklukkan, gervibirta, "Blue Blocker" gleraugu o.fl með Andy Mant
Í þessum þætti spjallaði ég við mann að nafni Andy Mant. En Andy er stofnandi fyrirtækisins BLUblox sem að selur svokölluð "Blue Blocker gleraugu" sem vernda augun frá ákveðinni birtu sem getur haft neikvæð áhrif á svefn og heilsu. Andy er gríðarlega fróður um allt sem tengist birtu, ljósi, líkamsklukkum og hvaða áhrif þetta allt saman hefur á líkamann en þessir hlutir eru nefnilega gríðarlega mikilvægir þegar kemur að heilsu og það er margt sem þarf að hafa í huga. ---------- Samstarfsaðilar þáttarins: -www.hreyfing.is -www.dropi.is- kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.blublox.com- kóði...
2020-02-03
1h 07
360 Heilsa
7 Ástæður fyrir því að þú ert ekki að grennast + Q&A (föstur, melting o.fl.)
Í þessum þætti fer ég yfir 7 hugsanlegar ástæður fyrir því að þú ert ekki að grennast. Þrátt fyrir að í grunninn snúist fitubrennsla að því að brenna fleiri kaloríum en við tökum inn, þá eru fleiri þættir sem spila inn í þessa jöfnu og hafa áhrif á niðurstöðurnar. Q&A - spurt og svarað Í þessum þætti kynni ég inn nýjan lið í hlaðvarpinu sem virkar þannig að hlustendur hafa færi á að senda inn spurningar í þáttinn sem ég geri mína bestu tilraun á að svara. Fyrir hvern Q&A þátt fer ég yfir þær spurningar sem hafa verið sendar inn og vel nok...
2020-01-25
37 min
360 Heilsa
Hvaða áhrif hafa raftækin okkar á heilsuna? - rafsegulbylgjur og áhrif raftækja á heilsu með Valdemar Gísla
Málefni þáttarins í dag er ansi umdeilt en ég fékk til mín Valdemar Gísla Valdemarsson rafeindavirkjameistara til að ræða um hugsanleg heilsuspillandi áhrif rabylgna á líkamann. Valdemar er skólastjóri raftækniskólans og framkvæmdarstjóri fyrirtækisins Vitalis. Hann hefur eytt síðastliðnum 25 árum í að kynna sér rafsegulfræði og hugsanleg áhrif rafbylgna á líkama manna og dýra. Af því sem mér skilst eru rannsóknir á þessum málefnum ekki komnar langt á veg en rétt eins og fyrir 10-15 árum síðan þá þótti hugleiðsla vera algjör vitleysa og eitthvað sem bara hippar og furðufuglar stu...
2020-01-15
1h 17
360 Heilsa
Áhrif eiturefna úr umhverfi, matvörum, snyrtivörum o.fl. á heilsuna okkar með Unu Emils lækni
Í þessum þætti fékk ég til mín Unu Emilsdóttur en Una er læknisfræðimenntuð úr kaupmannahöfn og starfar í dag sem sérnámslæknir í lyflækningum hjá Landspítalanum. Í læknisfræðinni var eitt fag sem virkilega kveikti áhuga hennar en það var það sem kallast umhverfislæknisfræði "eða Environmental and Occupational Medicine" en þar er fjallað um eiturefni í nærumhverfi okkar, matvælum, snyrtivörum o.fl og farið yfir hvernig þessi efni geta haft skaðleg áhrif á heilsu okkar. Síðastiliðin ár hefur hún kafað ofan í þessi fræði utan skólans og haldið fjöldan af fyrirlestrum um málefnið til...
2020-01-06
1h 51
360 Heilsa
#8. Mismunandi andlit streitu - Streita, kulnun og andleg heilsa með Snædísi Evu Sigurðar
Stress eða streita á ekki bara við um stress vegna vinnu eða skóla. Streitan kemur að okkur úr öllum áttum og því skiptir máli að auka meðvitund á því hvernig mismunandi andlit streitu líta út og mynda sér þaðan streitustjórnunar aðferðir til að halda kerfinu í jafnvægi. Í þessum þætti spjalla ég við Snædísi Evu Sigurðardóttir sem er menntaður sálfræðingur, með streitu og kulnun sem sérsvið. Snædís starfar í Heilsuborg og segir að yfir 50% af hennar skjólstæðingum séu að kljást við streitutengd vandamál. ...
2019-12-16
1h 19
360 Heilsa
#7. 7 leiðir til að bæta svefngæðin
Í þessum þætti langar mig að fara yfir svefninn aðeins. Svefn er að mínu mati bæði vanmetið og misskilið fyrirbæri. Svefn er ekki bara svefn heldur skipta gæði svefnsins höfuðmáli. Þessvegna langar mig að fara yfir með þér 7 leiðir til að bæta svefngæðin. Þú finnur síðan upplýsingar um allt sem ég tala um í þættinum á www.360heilsa.is/svefn
2019-12-09
37 min
360 Heilsa
#6. Carnivore mataræði, vegan og umhverfisáhrif með Ævari Austfjörð
Í þessum þætti ræddi ég við Ævar Austfjörð sem hefur tileinkað sér svokallað carnivore mataræði. En það snýr að því að neyta aðeins dýraafurða. Þetta mataræði hjálpaði honum að vinna á ýmsum heilsufarsvandamálum en á sama tíma þykir það afar umdeilt. Við ræddum um mataræðið, áhrif þess á heilsu og umhverfið,hans skoðanir á vegan mataræði, game changers myndina og margt fleira.
2019-12-02
1h 36
360 Heilsa
#5. Ísböð, hugarfar og streita með Andra Iceland
Í þessum þætti spjalla ég við íslenska ísmanninn Andra Iceland. Andri hefur frá magnaðri sögu að segja þar sem hann vann bug á krónískum taugaverkjum með ísböðum. Við förum yfir allt það helsta sem þarf að hafa í huga þegar kemur að ísböðum, hugarfarið sem Andri hefur tileinkað sér, áhrif streitu á líkamann o.fl.
2019-11-24
1h 12
360 Heilsa
#4. Hvaða mataræði er best fyrir heilsuna?
Í þessum þætti spjalla ég um eina áhugaverðustu bók sem ég hef lesið. Fyrsta bókin sem ég las um mataræði, sem varpaði ljósi á raunverulegar afleiðingar vestræns mataræðis á heilsuna okkar. Bókin heitir Nutrition and Physical Degeneration og er skrifuð árið 1939 af tannlækni sem hét Dr. Weston Price. Sagan er vægast sagt mögnuð og gefur okkur innsýn í það hvernig frumbyggjasamfélög höguðu mataræði sínu og hvernig þau viðhéldu framúrskarandi heilbrigði.
2019-11-17
41 min
360 Heilsa
#3. Heilbrigð ástarsambönd, kynjahlutverk, hugarfar og karlmennska með Ólafi Árna
Í þessum þætti spjalla ég við Ólaf Árnason sálfræðing um hvað þarf til að viðhalda heilbrigðum ástarsamböndum og hjónaböndum. Við snertum einnig á viðfangsefnum á borð við kynjahlutverk og karlmennsku. Ólafur er með BA próf í sálfræði frá truman state og einnig MA próf í sálfræði frá sonoma state í BNA. Hann hefur starfað sem sálfræðingur fyrir karlalandsliðið í fótbolta ásamt því að sinna dagsdaglega sálfræðiráðgjöf fyrir íþróttafólk, stjórnendur, einstaklinga og pör.
2019-11-11
1h 25
360 Heilsa
#2. Heilsa, mataræði og eldamennska með lækninum í eldhúsinu
Ragnar Freyr Ingvarsson er gesturinn í þessum þætti. Ragnar er betur þekktur af mörgum sem Læknirinn í eldhúsinu. Hann er sérfræðingur í gigtarlækningum og starfar við það á daginn en hefur á sama tíma gríðarlega ástríðu fyrir eldamennsku. Hann hefur gefið út 3 frábærar uppskriftarbækur, haldið fyrirlestra um mataræði og síðan er hann einnig með blogg á netinu þar sem hann heldur utan um ævintýrin í eldhúsinu. Við Ragnar spjölluðum um ýmis mál tengd heilsu, mataræði og eldamennsku.
2019-11-06
1h 02
360 Heilsa
#1. Hvað er 360° Heilsa?
Í þessum fyrsta þætti langar mig að kynna fyrir þér conceptið mitt 360° heilsa. Hvað þýðir það og hvernig getur það hjálpað þér að ná betri árangri og betri tökum á eigin heilsu.
2019-11-04
21 min